24 stundir - 14.08.2008, Blaðsíða 28
Eftir Hauk Johnson
haukurj@24stundir.is
„Þeir sem eru á annað borð í gæs
eru nokkuð meðvitaðir um hvað er
að gerast í næstu viku og eru þar af
leiðandi margir farnir æfa sig. Það
er því ágætt að taka þátt í svona
keppni til þess að sjá hvar maður
stendur,“ segir Hjálmar Ævarsson,
verslunarstjóri veiðibúðarinnar
Hlaðs á Bíldshöfða, en verslunin
stendur fyrir skotmótinu. Síðan
skotsvæðinu í Leirdal var lokað fyr-
ir nokkrum árum hefur ekki verið
hægt að halda keppnina á hverju
ári vegna aðstöðuleysis en nú verð-
ur breyting á.
„Núna verðum við með þetta í
Álfsnesi þar sem framtíðarsvæði
fyrir skotveiðiíþróttina verður. Við
munum því gera þetta að árlegum
viðburði aftur.“
Alltaf að koma nýjar stjörnur
Að sögn Hjálmars hefur ekki
verið nein lognmolla í íþróttinni
þrátt fyrir verra efnahagsástand.
„Eini munurinn sem maður sér
er að hugarfar skotveiðimanna er
búið að breytast. Núna fara menn
meira sér til skemmtunar og ná sér
í nokkra fugla í soðið. En magn-
veiðimenn eru eiginlega alveg
horfnir út úr þessu. Það hlýtur að
vera mjög jákvætt.“
Segir hann jafnframt að endur-
nýjunin sé enn mikil.
„Það eru yfirleitt í kringum 20
keppendur á svona mótum og það
skemmtilega er að það eru alltaf að
koma nýjar stjörnur. Það er því
talsverð endurnýjun í greininni.“
Í keppninni verður skotið á leir-
dúfur og þeir sem fá flest stig í
fyrstu umferð komast áfram í loka-
hring. Það er svo heildarstigafjöldi
að keppni lokinni sem úrskurðar
um sigurvegara.
„Þessi skotkeppni sem við erum
með kallast sporting og líkist meira
því sem menn geta átt von á á
veiðislóð heldur en annað hefð-
bundið leirdúfuskyttirí.“
Að lokum segir Hjálmar að-
spurður að enginn uggur sé í gæsa-
skyttum eftir að hafa séð þættina
Mannaveiðar í Sjónvarpinu síðasta
vetur en í þeim gerir morðingi
nokkur gæsaskyttur að fórnar-
lömbum sínum.
„Nei nei, við erum ekki skelkaðir
eftir það. Þetta var eiginlega bara
einn brandari fyrir skotveiðimenn
því það var allt frekar ófaglega gert
sem sneri að skotveiðum.“
Skotmót Hlaðs fer fram næstkomandi laugardag
Gott að æfa sig
fyrir veiðitímabilið
Gæsaveiðitímabilið hefst
næstkomandi miðviku-
dag og eru veiðimenn því
margir farnir að dusta
rykið af hólkum sínum.
Þeir metnaðarfyllstu hafa
þó haldið sér í æfingu í
allt sumar og taka þátt í
skotmóti á vegum veiði-
búðarinnar Hlað á laug-
ardaginn.
Tilbúinn Hjálmar er tilbú-
inn fyrir gæsaveiði-
tímabilið sem hefst í
næstu viku.
➤ Hver og einn keppandi skýturá 50-75 leirdúfur en efstu sex
komast áfram í lokahring þar
sem þeir skjóta á 25 leirdúfur.
➤ Mótsgjald er 1500 kr. og hefstmótið kl. 12 á laugardaginn.
Skráning á skotreyn@visir.is.
SKOTMÓT HLAÐS
28 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2008 24stundir
Heilaheill er félag fyrir fólk sem
hefur lent í heilablóðfalli, eða
sambærilegum sjúkdómi, og að-
standendur þeirra.
Næstkomandi laugardag verður
félagið með sína árlegu sumarferð
en að þessu sinni verður farið um
Reykjanesið.
„Við reynum að fara eina dags-
ferð á hverju sumri og þátttakan
hefur yfirleitt verið góð,“ segir
Kristján Eiríksson, meðlimur í
ferðahópi Heilaheilla.
Reykjanesið varð fyrir valinu
vegna þess að þar eru margar
söguslóðir tengdar landnámi Ís-
lands, auk þess sem jarðsaga þess
er afar merkileg.
Gott aðgengi fyrir alla
Vel verður gætt að því að allir
sem vilja komist með í ferðina.
„Við verðum í rútu sem er með
lyftum fyrir hjólastóla. Þannig
geta þeir sem það vilja komið á
hjólastólum,“ segir Kristján.
Lagt verður af stað frá höfuð-
stöðvum Heilaheilla að Hátúni 12
klukkan 10 að morgni en stefnt er
að því að koma til baka klukkan
18. Farið verður sem leið liggur
frá Hátúni suður á Vatnsleysu-
strönd, í Voga og til Keflavíkur
þar sem snæddur verður hádeg-
isverður.
Því næst verður haldið áfram
suður í Garð, Sandgerði, Stafnes,
Ósbotnaveg, Hafnir (Kirkjuvogs-
kirkju), Reykjanesvita og til
Grindavíkur. Þar verður drukkið
kaffi en svo haldið til Krísuvíkur
og loks í Hafnarfjörð.
Þátttökugjald er 5.000 krónur
og fer skráning fram á vefsíðu
Heilaheilla, www.heilaheill.is. Þar
má einnig sjá myndir frá fyrri
ferðum félagsins og öðrum við-
burðum. haukurj@24stundir.is
Hin árlega sumarferð Heilaheilla verður farin á laugardaginn
Náttúra og saga Reykjanessins
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is útivist
Það er meira
í Mogganum
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1800
í dag
Fimmtudagur 14. ágúst 2008
Valsarar á sumaræfing-
um líta upp til ólympíufara
» Meira í Morgunblaðinu
Handboltahetjur
Tískuvörukeðjan Zara er
nú sú stærsta í heimi
» Meira í Morgunblaðinu
Fram úr Gap
Óútgefin ljóðabók Steins
Steinarr gefin út í haust
» Meira í Morgunblaðinu
Í tímavél Steins
Námskeið í tónlistarlegu
uppistandi á Skagaströnd
» Meira í Morgunblaðinu
Lærðu að buska
Reru frá Vík til Eyja með
hvölum og brimöldum
» Meira í Morgunblaðinu
Upplifun á kajak