24 stundir - 14.08.2008, Blaðsíða 33

24 stundir - 14.08.2008, Blaðsíða 33
Ekki er óalgengt að velgengni stígi mönnum til höfuðs, hvort sem þeir séu 17 ára eða sjötugir. Þá er skemmtanalífið heillandi á þess- um aldri, sem og samskiptin við hitt kynið, sem hljóta að aukast til muna, þegar þú ert heitasti hæfi- leikamaðurinn á landinu og ný- kominn í landsliðið? Jarðbundinn að eðlisfari „Ég er nú á lausu reyndar, en maður fær vissulega athygli frá stelpum, líkt og strákar gera al- mennt. Ég er nú annars frekar jarðbundin týpa held ég. Auðvitað grínast maður og hagar sér kjána- lega þegar maður er með vinum sínum og svona, en þetta fer allt eftir félagsskapnum sem maður er í. Ég á um fimm til sex góða vini sem ég hangi oftast með og þess utan á ég marga góða félaga. Svo eru gömlu mennirnir í liðinu dug- legir við að halda manni á jörð- inni. Arnar Grétars og Marel eru miklir reynsluboltar og maður lærir helling af svona körlum. Hvað djammið varðar þá tók ég það út þegar ég var meiddur held ég, enda eini tíminn sem gafst til þess,“ segir Jóhann. Vill skapa sér eigið nafn Hann frábiður sér allan saman- burð við aðra örvfætta Íslendinga, á borð við Tryggva Guðmundsson og Emil Hallfreðsson. „Ég held að við séum allir mjög ólíkir leikmenn og ekki sanngjarnt „Já, ætli það ekki. Ég reyni alltaf að borða á Nings fyrir leiki og helst borða ég einn banana. Þá klæði ég mig alltaf fyrst í vinstri sokkinn og vinstri legghlífina og reyni að vera síðastur út á völlinn. En hvar verður Jóhann Berg staddur í lífinu eftir fimm ár? „Ég verð vonandi að leika reglu- lega með aðalliði einhvers bresks eða hollensks liðs, auk þess að vera í landsliðinu. Ég á erfitt með að horfa lengra fram í tímann en þetta, til dæmis hvað ég geri eftir að ferlinum lýkur. En ég er alls óhræddur við að fara út og spreyta mig, “ segir Jóhann Berg að lokum. að bera okkur saman. Mínir kostir sem leikmanns eru áræði, hraði og góð fyrsta snerting, meðan lestirn- ir eru kannski hægri fóturinn og áhugaleysi í varnarleik á köflum. En það kemur allt með tímanum,“ segir Jóhann og segist hlakka til að mæta á landsliðsæfingu. „Ég er frekar spenntur en smeykur. Það eru margir stórir karlar þarna, en ég mun bara gera mitt besta og vona að það dugi. Það er mikill heiður að vera kallaður til, en auð- vitað væri frábært að fá að spila. Ég mun að minnsta kosti leggja mig allan fram.“ Ertu hjátrúarfullur leikmaður? a Ég reyni alltaf að borða á Nings fyrir leiki og helst borða ég einn banana. Þá klæði ég mig alltaf fyrst í vinstri sokkinn og vinstri legg- hlífina og reyni að vera síðastur út á völlinn. Á lausu Jóhann er maður einsamall, þó það muni eflaust ekki vara lengi. 24stundir FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2008 33 Sálin hans Jóns míns undirbýr um þessar mundir útgáfu á þre- faldri safnplötu sem mun inni- halda þrjú glæný lög. Fyrr í sumar gáfu þeir út lagið Gott að vera til og í dag mun lagið Það amar ekkert að (ég get svo svarið það) óma á öldum ljósvakans. Afneitun elskandans „Lagið fjallar um mann sem er nýhættur með konu og vill láta alla halda að honum líði mjög vel með það. Annað kemur þó í ljós þegar lesið er á milli línanna,“ segir Guð- mundur Jónsson, gítarleikar og lagahöfundur. „Ég samdi lagið en Stefán Hilmarsson samdi textann. Það er ekki óvanalegt fyrirkomulag á okkar bæ.“ Hljómsveitin fagnar í ár tuttugu ára starfsafmæli sínu og eru þeir félagar nánari en nokkru sinni. „Við höfum oft rifist og ég hef sennilega hætt í hljómsveitinni 50 sinnum og hinir oftar. Samband hljómsveitarmeðlima er að mörgu leyti eins og hjónaband sem geng- ur í gegnum skin og skúrir á ævi- skeiðinu. Ástæðan fyrir því að fólk heldur í þetta er sú að það er ein- hver ást til staðar. Í okkar tilfelli er það ástin á því að koma saman og spila tónlist,“ segir Guðmundur. Enn þá vinsælir Hljómsveitin nýtur enn mikilla vinsælda og það á væntanlega þátt í því að þeir koma enn saman á tónleikum. „Við værum líklega löngu hættir ef við spiluðum alltaf fyrir tómu húsi.“ Sálin hans Jóns míns mun halda tónleika í Versölum í Þorlákshöfn á laugardaginn kemur. „Þetta verður í fyrsta skipti á 20 ára ferli Sálar- innar sem sveitin treður þar upp og er því sannarlega tími til kom- inn. Að líkindum verður hið nýja lag frumflutt í Þorlákshöfn og verður því eftir nokkru að slægjast fyrir Sálarunnendur á Suðurlandi,“ segir Guðmundur að lokum. iris@24stundir.is Glænýtt lag með Sál- inni hans Jóns míns

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.