24 stundir - 14.08.2008, Side 34
Tvífarar vikunnar að þessu sinni
eru þeir Egill Helgason og Colm
Meaney. Egill er landsþekktur
spjallþáttastjórnandi og stjórn-
málaskýrandi úr Silfri Egils.
Colm Meaney er þekktur leikari,
sem leikið hefur í myndum á
borð við Die Hard 2, Under
Siege, Síðasti Móhíkaninn, Con
Air, Layer Cake og sjónvarpsþátt-
um á borð við Star Trek og Life
on Mars. tsk
Tvífarar vikunnar
34 FIMMTUDAGUR 14. ÁGÚST 2008 24stundir
Samantha Ronson tjáði sig loks-
ins um sambandið við Lindsay
Lohan í viðtali við tímaritið Har-
pers Bazaar. Hún forðaðist þó að
svara spurningunni um hvort
þær væru par eða ekki. „Lindsay
er æðisleg en ég held að fólk
gleymi því að hún er bara 22 ára
gömul,“ sagði Ronson. „Á netinu
eru stöðugar fréttir af okkur en
eina stundina erum við saman,
þá næstu óvinir og loks bestu vin-
konur. Öryggisvörðurinn á flug-
vellinum í Kanada spurði mig
meira að segja hvort það væri satt
að við værum par.“ Ronson segist
forðast slúðurblöðin enda þurfi
hún ekki að verjast sögusögnum
um meinta eiturlyfjanotkun.
Lindsay Lohan hefur aðeins látið
hafa eftir sér að samband hennar
og Samönthu sé einkamál. iav
Ronson tjáir sig um Lohan
Tyra Banks er komin af stað með
Americas Next Top Model 11 en
módelið sem vekur mesta athygli
að þessu sinni heitir Isis. Það er
þó ekki eingöngu útlit hennar
sem talað er um því Isis er fyrsti
kynskiptingurinn sem tekur þátt
í þáttaröðinni. Hún kom áður
fram í þættinum en þá sem heim-
ilislaus stúlka sem sat fyrir ásamt
keppendum. Það verður spenn-
andi að sjá hvernig henni gengur
og hversu mikið mál Tyra gerir úr
þessu. iav
Kynskiptingur
í Top Model
Helsti galli leiksins er sá að
stundum finnst manni eins og far-
artækin séu þyngdarlaus, líkt og
maður aki um sléttur tunglsins.
Mótorhjólin geta svifið nánast
endalaust, buggy-bílarnir velta um
leið og einhver þúfa horfir á þá og
maður fær aldrei þá tilfinningu að
maður sé í raun og veru að stjórna
þessum kröftugu farartækjum.
Burtséð frá því þá er ATC Off-
road Fury Pro nokkuð þéttur pakki.
Leikurinn býður upp á skemmtilega
spilun, gott úrval farartækja (þó þau
séu ekki öll skemmtileg) og ágætis
úrval brauta til að bruna um á.
Eftir Viggó I. Jónasson
viggo@24stundir.is
Undanfarin misseri hafa vinsældir
torfærumótorhjóla og fjórhjóla rok-
ið upp úr öllu valdi. Fólk hamast
við að fjárfesta í rándýrum vélbún-
aði og bruna svo fram og til baka
um götur og sveitir landsins með
tilheyrandi hamagangi. Þeir sem
hafa ekki efni á dýrum hjólum en
vilja samt komast í utanvegaakst-
ursgírinn geta aftur á móti fjárfest í
tölvuleiknum ATV Offroad Fury
Pro og notið utanvegaakstursins
hvar sem er, án þess að óttast að
verða kærðir fyrir náttúruspjöll.
Í ATV Offroad Fury Pro er leik-
mönnum boðið upp á heilan haug
af spilunarmöguleikum. Hægt er að
velja á milli fjölmargra mótorhjóla,
buggy-bíla, trukka og fjórhjóla til að
keppa á og fer keppnin fram undir
allskonar kringumstæðum. Hægt er
að spila leikinn jafnt á netinu sem
einn síns liðs. Einmana sálir geta
spilað í gegnum nokkurs konar
mótafyrirkomulag þar sem samið er
við styrktaraðila, keyptir varahlutir
til að betrumbæta farartækin og
keppt á allskonar mótum. Sá spil-
unarmöguleiki getur enst manni
nokkuð lengi enda taka flestar
keppnirnar mjög skamma stund.
Spilun leiksins er býsna mismun-
andi eftir því hvaða fararkostur er
valinn. Mótor- og fjórhjólin eru
klárlega skemmtilegustu farartækin
í leiknum en buggy-bílarnir eru
hreinlega leiðinlegir enda hefur
maður stundum á tilfinningunni að
þeim farartækjum hafi verið bætt
við leikinn á síðustu stundu og í
miklum flýti.
Í lausu lofti á mótorfák Svifið á mótorhjólunum jafnast á stundum við geimfarahopp
á yfirborði tunglsins.
Svifið um á sléttum tunglsins
Nú verður fjör á hommabör-
unum því systurnar Kylie og Dan-
nii Minogue hafa hljóðritað saman
lostafulla útgáfu af ABBA-
slagaranum The Winner Takes it
All. Lagið var sérstaklega hljóðritað
fyrir breska sjónvarpsþáttinn
Beautiful People er skartar Meeru
Syal í aðalhlutverki.
Endurkoma Kylie inn á tónlist-
armarkaðinn eftir baráttu sína við
brjóstakrabbamein hefur ekki
gengið sem skyldi og systir hennar
hefur haldið sig fjarri tónlistinni og
vinnur nú fyrir salti í grautinn með
því að vera kynnir í X-Factor í
Bretlandi. Það er gamalt bragð í
bransanum að hljóðrita alþekkt
tökulag þegar halla fer undan fæti
og má því líta á þetta sem tilraun
beggja til þess að minna á sig.
Dannii og Kylie eru þó vanar að
syngja saman því litla systir fyllti í
skarð Robbie Williams í laginu
Kids á síðasta tónleikaferðalagi
stóru systur.
Dannii segist sakna þess að
syngja og stefnir á plötuútgáfu á
næsta ári. Þetta mun þó vera í
fyrsta skipti sem þær systur gefa út
lag saman en æstir aðdáendur
systranna hafa því beðið eftir því í
lengri tíma. bös
Minogue-systur syngja ABBA-lag
FÓLK
24@24stundir.is a
Það er þó ekki eingöngu útlit hennar sem talað er um því Isis er fyrsti
kynskiptingurinn sem tekur þátt í þáttaröðinni. Hún kom áður fram í
þættinum en þá sem heimilislaus stúlka sem sat fyrir ásamt keppendum.
fréttir
Aðþrengdur Afsakið að ég er til!
MÉR ER ALVEG SAMA HVORT GLASIÐ ER HÁLF
FULLT EÐA HÁLF TÓMT, BARA EINS GOT T FYR IR ÞIG
AÐ ÞÚ RUKKIR MIG EKKI FULL T VERÐ FYR IR ÞAÐ
NÚTÍMA BJARTSÝN ISMAÐUR
HÚN ER MJÖG HAMINGJU-
SAMT LÍTIÐ BARN. AUÐVITAÐ ER
HÚN EKKI ENN FARIN AÐ TALA
SVO ÞIÐ VERÐIÐ BARA AÐ TREYSTA
MÉR FYRIR ÞVÍ
Bizzaró
Maðurinn minn
fær öll sín föt
hjá BIG and TALL
versluninni
Maðurinn
minn fær öll
sín föt hjá BIG
LOUDMOUTH
and JERK’S
versluninni
MYNDASÖGUR
Nýkomið og æðislegt í BCD skálum á
kr. 2.950,- flottar buxur
í stíl á kr. 1.450,-
Mjög fínlegur í BCD skálum á kr.
2.950,- boxer buxur í stíl
á kr. 1.450,-
Grafík: 73% Ending: 70%
Spilun: 83% Hljóð: 81%
Unreal Tournament 3 (PSP) 3+
NIÐURSTAÐA: 77%