24 stundir - 20.09.2008, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 24stundir.
!""#
!
" #
$
%
&'()*
& + ,- ./-
0
12
'
'3.
.4
2
*5
/
62
7 ,
8 2 8
,/
!
"
7,
6
, 9
" & ;<=>;?@AB
>>BBB>@=@
;A;=;=BA@
?BCB>;>>;
BB<<B?AD<;
@D??>@
B;B=>CC=
;@D<<BD=B=
BB@=BAB=<D
;CB=?;BAC
;?A@?DB
;CDD;<=A<A
AD>C=?=;
C
BBD?<>>
;BA@DAB
;>D>;D@D
+
+
+
A>=;<CCC
+
+
=E?>
<E;<
>BE=C
=E<D
;AEBA
AEBA
>CEAC
?;AECC
>>E?C
@CECC
BE;>
DEB?
@BEDC
>C=ECC
;<CCECC
;?CECC
;=AE<C
+
+
+
BADCECC
+
+
=E?D
<E;=
>BE?C
=E=C
;AEB<
AEAC
>CE<C
?;<ECC
>>E?<
@CE=C
BEBC
DEA>
@AE?C
>;>ECC
;<BCECC
>CCECC
;==E<C
>;E?<
;E@C
+
B<BCECC
;CE<C
<ECC
./
,
;@
A;
B@
;B@
;AC
;B
<
;AB
;;@
;A
D
@;
;B
+
D
B
>=
+
+
+
<
+
+
F
, ,
;@@>CCD
;@@>CCD
;@@>CCD
;@@>CCD
;@@>CCD
;@@>CCD
;@@>CCD
;@@>CCD
;@@>CCD
;@@>CCD
;@@>CCD
;@@>CCD
;@@>CCD
;D@>CCD
;@@>CCD
;@@>CCD
;@@>CCD
;=?>CCD
><D>CCD
B=>CCD
;@@>CCD
;;@>CCD
?B>CCD
MARKAÐURINN Í GÆR
● Úrvalsvísitalan í Kauphöll Ís-
lands rauf 4.000 stiga múrinn í gær
og hækkaði um 5,25% í við-
skiptum dagsins.
● Mest hækkuðu bréf Exista um
17,3%. Spron hækkaði um 10% og
Atorka um 6%.
● Ekkert félag á aðallista lækkaði
í gær. Á First North-markaðnum
lækkaði Century Aluminum um
2,56%.
● Velta með hlutabréf var 11,5
milljarðar króna. Velta með
skuldabréf var 28,4 milljarðar.
● Krónan styrktist um 3,5% eftir
mikla lækkun síðustu daga. Geng-
isvísitalan endaði í 172 stigum í lok
dags.
● Hlutabréf hækkuðu mikið víða
um heim í gær. Samnorræna vísi-
talan hækkaði um rúm 9%.
Eftir Guðnýju Camillu Aradóttur
„Vinnumarkaðurinn er ótrúlega
sprækur miðað við það sem búast
mætti við. Það má segja að fyrir-
tæki hafi nú tækifæri til að vanda
sig meira. Á svona tímum er meira
úrval af fólki. Nú geta fyrirtæki
leyft sér að spá og spekúlera og
vanda valið. Það er kannski það
sem við finnum einna mest fyrir.“
Katrín S. Óladóttir er fram-
kvæmdastjóri Hagvangs. Hún seg-
ist ekki hafa orðið vör við mikinn
skjálfta á atvinnumarkaði þrátt fyr-
ir spár um aukið atvinnuleysi. Það
sé helst í fjármálaheiminum og í
byggingageiranum sem störfum
hafi fækkað. „Það er alls ekki þann-
ig að fólk streymi inn af götunni.
Það er enginn svoleiðis titringur
kominn.“
Varfærinn markaður
Gunnar Haugen, framkvæmda-
stjóri Capacent Ráðninga, hefur
svipaða sögu að segja og segir um-
sóknum ekki hafa fjölgað verulega.
„Það er ekkert meira framboð á
hæfu fólki en áður enda hæft fólk
svosem aldrei í vandræðum. Það er
örlítill samdráttur í framboði á
störfum en samt ekkert miðað við
það sem búast mætti við.“ Ákvarð-
anir fyrirtækja um mannaráðning-
ar séu betur ígrundaðar, ekki sé
stokkið hratt til. „Það mætti lýsa
markaðnum sem mjög varfærnum
án þess að vera stopp.“ Hann segir
árið 2007 hafa verið mikið þenslu-
ár. Því sé eðlilegt að samdráttar
verði vart núna. Ef litið sé til baka
til áranna 2005 og 2006 þá sé
ástandið líkara því sem þá hafi ver-
ið.
Ástandið jafnar sig eftir þenslu
Í samantekt Vinnumálastofnun-
ar um hópuppsagnir á árinu var
rúmlega 1300 manns sagt upp í
hópuppsögnum á fyrstu átta mán-
uðum ársins. Þá eru ótaldar aðrar
uppsagnir sem ekki þarf að til-
kynna sérstaklega. Í skýrslu stofn-
unarinnar um stöðu og horfur á at-
vinnumarkaði síðan í vor segir að
mikil eftirspurn hafi verið eftir
vinnuafli undanfarin misseri með
tilheyrandi innflutningi erlends
vinnuafls, minnkandi atvinnuleysi
og almennt mikilli spennu á at-
vinnumarkaði. Breytinga sé hins
vegar að vænta og spáir stofnunin
að atvinnuleysi á árinu 2009 verði
um 3,2% sem er ein mesta aukning
atvinnuleysis milli ára síðustu 20
árin. Því virðist full ástæða til að
ætla að horfur á atvinnumarkaði
fari versnandi.
Enn vantar í vissa tegund starf
Agla Sigríður Björnsdóttir, ráðn-
ingastjóri hjá vinna.is, segist sjá
einhverjar breytingar en býst við að
þær eigi að mestu eftir að koma í
ljós. „Það eru ákveðin störf sem
vantar alltaf í og sem verður alltaf
hreyfing á. Umsóknirnar hafa
kannski aðeins aukist en það er
ennþá skortur á fólki í sum störf.
Fólk stendur ekkert í biðröðum
hérna fyrir utan.“ Hún segir að
ástandið hafi til að mynda jafnað
sig nokkuð í verslunargeiranum
„Nú er fólk að ráða þá starfsmenn
sem það óskaði eftir fyrir ári og
tveimur árum.“ Þó vanti enn
starfsfólk í verslun og þjónustu og
eins sé til að mynda skortur á
meiraprófsbílstjórum. Það sem
helst hafi breyst sé að þeir sem áður
hefðu hugsað sér að skipta um starf
haldi að sér höndum og bíði. „Eins
og staðan er í dag er nóg af verk-
efnum hjá okkur og við þurfum að
auglýsa og sækjast eftir fólki.“
Enn nóg af
störfum í boði
Ekki samdráttur á atvinnumarkaði í ár miðað við önnur ár
Fyrirtæki gefa sér tíma í ráðningar og vanda betur val á fólki
➤ Atvinnuleysi var 1,2 % íágúst.
➤ Atvinnuleysi var 0,9% fyrirári.
➤ Vinnumálastofnun spáir alltað 1,5% atvinnuleysi á árinu.
➤ Vinnumálastofnun spáir 3,2%atvinnuleysi 2009.
➤ Um 1300 hefur verið sagt uppí hópuppsögnum á árinu.
VINNUMARKAÐURINN
Úrvalsvísitalan hækkaði um 5,23% í gær og er þetta þriðja mesta
hækkun vísitölunnar frá upphafi. Þann 25. mars sl. hækkaði hún um
6,16% og 6. nóvember 2001 hækkaði hún um 6,11%. Lokagildi Úrvals-
vísitölunnar í gær var 4.055,84 stig en velta með hlutabréf nam 11,3
milljörðum króna. Exista hækkaði mest eða um 17,29%, Spron um
10%, Færeyjabanki um 8,82%, Atorka um 5,99% og Glitnir 5,44%. Eitt
félag lækkaði í verði, Century Aluminum um 2,56% – mbl.is
Betri tíðindi úr Kauphöll
Helstu seðlabankar í Evrópu
buðu 90 milljarða dollara lán
annan daginn í röð til þess að
lífga við lánsfjármarkaði. Evr-
ópski seðlabankinn og Eng-
landsbanki tilkynntu að 40
milljarðar dollara yrðu til fyrir
fjármálastofnanir í þrjá daga og
Seðlabanki Sviss tilkynnti 10
milljarða dollara lán. Kaup-
hallir tóku að lifna við í gær
eftir að ríkisstjórn Bandaríkj-
anna tilkynnti undirbúning
áætlana sem eiga að draga úr
kreppunni og reglusmiðir hófu
herferð gegn skortsölumönn-
um. – ÞÞ
Lána mikið til að
lífga markað við
Hlutfall vanskila og útlánatapa
hefur verið nokkru hærra hér á
landi í sögulegu í samhengi en á
hinum Norðurlöndunum. „Bank-
ar hér eru með minni hlutdeild í
íbúðalánum sem eru áhættulitlar
lánveitingar ef rétt er staðið að
þeim,“ segir Halldór J. Krist-
jánsson, bankastjóri Landsbank-
ans. Hann segir að búast megi við
sameiginlegum aðgerðum bank-
anna í vanskilum. Allir hafi hags-
muni af því að leysa sameiginlega
málefni þeirra sem ekki geta stað-
ið við skuldbindingar sínar. Þetta
er meðal þess sem kemur fram í
viðtali við Halldór í Morg-
unblaðinu í dag. –ÞÞ
Bankar í takt
vegna vanskila
BANDARÍSKA ríkisstjórnin vinn-
ur sem stendur að röð áætlana
sem myndu fela í sér stærsta inn-
grip hins opinbera á fjár-
málamarkaði síðan á fjórða áratug
síðustu aldar. Staðfesta þessar
áætlanir þörf fyrir heildarlausn
eftir röð einstakra aðgerða til þess
að bjarga fyrirtækjum á barmi
greiðslustöðvunar.
Þungamiðja þessara áætlana er
gangverk sem myndi fjarlægja
slæmar eignir af efnahagsreikn-
ingum fjármálafyrirtækja, að því
er fram kemur í vefútgáfu Wall Street Journal. Tilvíst slíks gangverks
er í fullkomnum samhljómi við aðgerðir í fyrri fjármálakreppum. Um-
fang þessara áætlana ríkisstjórnarinnar gæti hlaupið á hundruðum
milljarða dollara. Upplýsingar um áætlanirnar koma á sama tíma og
og bandaríski seðlabankinn býður milljarða dollara lán til viðskipta-
banka til þess að auðga markað með lánsfé. -ÞÞ
Risavaxið inngrip hins opinbera
FÉ OG FRAMI
frettir24stundir.is a
Vinnumarkaðurinn er ótrúlega
sprækur miðað við það sem búast
mætti við. Það má segja að fyrirtæki
hafi nú tækifæri til að vanda sig meira.
SALA
JPY 0,8533 5,80%
EUR 131,42 3,64%
GVT 172,51 3,45%
SALA
USD 91,99 3,01%
GBP 166,33 3,42%
DKK 17,617 3,66%