24 stundir - 20.09.2008, Side 38

24 stundir - 20.09.2008, Side 38
38 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 24stundir Silfurarmband verð 64,900 kr. það landbúnaðarmálin en sann- leikurinn er sá að það er ekki ESB sem ræður tollamálum og inn- flutningshöftum í þeim geira held- ur Alþjóðaviðskiptastofnunin. Loks hefur verið rætt um sjávar- útveginn og að mínu mati er hann stærsta spurningin. Við komum ekki til með að vita hvort við höld- um yfirráðum okkar yfir fiskimið- um fyrr en við hefjum viðræður. Dæmi eru um þjóðir sem hafa náð samningum og komið hefur verið til móts við þeirra grundvallar- stefnumál, svo sem eins og Finna. Mér sýnist auk þess vera breyting á viðhorfum LÍÚ til ESB og þar hafa menn verið að skoða málin. Einnig hefur verið rætt að atvinnuleysi gæti aukist ef við værum í ESB en mér sýnist ekki að við þurfum inn- göngu þar til að það aukist. Þessi rök eru því fallin. Það kostar tals- verða peninga að vera í ESB en ég er þess fullviss að við fáum svo margt í staðinn og landsbyggðin mun ekki síst njóta þess. Það er mikil byggðastefna rekin í ESB og sérstaklega gagnvart jaðarsvæð- um.“ Má þá búast við að í næstu al- þingiskosningum, árið 2011, verði ESB ykkar helsta baráttumál? „Það getur svo ótrúlega margt gerst þangað til. Ég get ekki sagt til um það á þessari stundu.“ Þáttaskil á Lómatjörn Greinilegt er að ESB er mikið baráttumál fyrir Valgerði og henni verður heitt í hamsi þegar hún er komin á flugið. Og þótt hún sé pólitíkus af lífi og sál og leggi alla krafta sína í þágu Framsóknar- flokksins þá er hún líka bóndi á Lómatjörn og þar hefur hún að mestu dvalið í sumar. ,,Ég er hálffeimin að segja að ég sé bóndi þar sem ég er ekki svo mikið þar við störf. En það er rétt að við erum með félagsbú fyrir norðan með tveimur systrum mín- um og mönnum þeirra. Það eru reyndar þáttaskil hjá okkur núna því við ætlum að leigja sauðfjárbú- skapinn frá okkur til nokkurra ára. Hins vegar höfum við einnig verið með kartöflurækt sem hefur verið að aukast. Ég fór í göngur í haust og naut mín fyrir norðan í sumar. Mér finnst notalegt að geta gengið úti í náttúrunni og andað að mér sveitaloftinu. Ég hef líka meiri tíma núna til að vera fyrir norðan held- ur en ég hafði meðan ég var ráð- herra. Maður er frjálsari í stjórn- arandstöðunni. Meðan ég var ráðherra tók ég eiginlega aldrei frí frá störfum, kannski í mesta lagi eina viku í einu.“ Gerði góða hluti Það er þá ekki úr vegi að spyrja hvort ekki hafi verið erfiðara að gegna starfi utanríkisráðherra en iðnaðar- og viðskipta? „Nei, aldeilis ekki þótt margir haldi það. Utanríkisráðuneytið var mun auðveldara en þar var ég að- eins í eitt ár. Á meðan ég var iðn- aðar- og viðskiptaráðherra var ég með mjög umdeild mál. Þar að auki var ég með tvö ráðuneyti sem tveir karlar gegna núna. Það voru orkumál, sala bankanna og virkj- anamál sem öll voru mjög um- deild. En hvar stæðum við í dag ef ekki hefði verið farið út í þessar framkvæmdir? Áliðnaðurinn veitir fimm þúsund manns atvinnu þeg- ar afleidd störf eru meðtalin.“ Voru það mistök á sínum tíma að einkavæða bankana? „Nei, það voru ekki mistök. Ég er sannfærð um að svo var ekki. Einkavæðingin var í samræmi við það umhverfi sem við búum við. Með inngöngu í EES hefði verið hamlandi fyrir viðskiptaumhverfið að vera með ríkisbanka. Þetta var nauðsynleg aðgerð. Bankarnir eiga líka stóran þátt í að hafa aukið kaupmátt á undanförnum árum en í tíð Framsóknarflokks og Sjálf- stæðisflokks jókst kaupmáttur hér um 60%.“ En hann fer þverrandi núna. „Já, því miður er þetta að fara á hinn veginn og það eru engin ný sannindi að efnahagur gengur í sveiflum.“ Er það ekki áhyggjuefni að stór- ir bankar hér tengjast fyrirtækjum sem eru orðin nánast verðlaus og á barmi gjaldþrots? „Jú, auðvitað hefur maður mikl- ar áhyggjur af þessu öllu. Það sem skiptir þó meginmáli er að bank- arnir hafa sterka eiginfjárstöðu. Ég verð þó að viðurkenna að það skiptir gríðarlega miklu máli hvað gerist í atvinnulífinu á næstu mán- uðum. Ef fyrirtæki fara á hausinn í stórum stíl þá veit maður ekki hvar þetta endar. Þess vegna er hið ein- kennilega áhugaleysi ríkisstjórnar- innar á atvinnulífinu áhyggjuefni.“ Stóriðju- og náttúrusinni Ert þú stóriðjusinni? „Ég er fyrst og fremst stuðnings- maður kröftugs atvinnulífs enda þurfum við á því að halda til að búa til öflugt velferðarkerfi. Mér finnst grátlegt að ríkisstjórnin sé að fresta framkvæmdum á Húsavík um að minnsta kosti eitt ár eins og útlit er fyrir. Heimamenn eru búnir að setja gríðarlega fjármuni í undir- búning og það er afar slæmt að fresta framkvæmdunum. Þótt ég sé stóriðjusinni og vilji virkja auð- lindirnar þá er ég líka náttúrusinni. Þegar ég er í sveitinni minni þá líð- ur mér afar vel í ósnortinni nátt- úrunni. Sumir umhverfissinnar slá um sig í umræðunni en hafa jafnvel aldrei komið út fyrir malbikið og eru ekki í neinum tengslum við náttúruna.“ Ertu hlynnt frekari uppbygg- ingu álvera á landinu? „Það hefur allt sín takmörk og við erum nú þegar komin í fram- leiðslu upp á 7000 tonn á ári. Ég tel ekki að það verði hægt að halda endalaust áfram á þessari braut en það er gríðarlega mikilvægt núna, m.a. vegna þess að þorskveiðar hafa dregist saman, að við nýtum þau tækifæri sem gefast í erlendri fjárfestingu og aukinni verðmæta- sköpun. Mér finnst líka mjög ánægjulegt að það eru fleiri mögu- leikar að koma inn sem atvinnu- tækifæri til framtíðar aðrir en ál- vinnsla. Uppbygging hátæknifyrirtækja og leit að olíu við landið finnst mér t.d. mjög spennandi. En undirbúningur að því máli hófst fyrir alvöru í minni tíð í iðnaðarráðuneytinu.“ Drekkjum Valgerði Valgerður segist vera afar stolt af sínum störfum sem ráðherra og segist hafa gert margt sem hafi komið þjóðinni vel. ,,Ég leyni því ekki að ég er afar ánægð með það sem ég kom í verk, ekki síst sem iðnaðar- og viðskiptaráðherra.“ Hvernig kom gagnrýnin við þig – ertu viðkvæm? „Ég skal viðurkenna að ég hef býsna breitt bak en þó var eitt sem kom mjög við mig og var erfitt fyrir fjölskyldu mína. Það var þegar gengið var um bæinn með spjöld sem á stóð: Drekkjum Valgerði. Það var erfitt.“ Valgerður er ósátt við að áfram- hald varð ekki á ríkisstjórnarsam- starfi Framsóknar og Sjálfstæðis- flokks á síðasta ári og kennir útkomu kosninganna um. Þegar hún er spurð hvort rekja megi þau úrslit til þess að skipt var um for- mann og Jón Sigurðsson kom nýr inn stuttu fyrir kosningar segist hún ekki hafa gert sér grein fyrir að Jón þarfnaðist e.t.v. meiri kynning- ar á meðal þjóðarinnar. „Við í flokknum þekktum hann mjög vel og af góðu einu en við áttuðum okkur kannski ekki á hversu óþekktur hann var. Sennilega hafði hann verið of stuttan tíma á ráð- herrastóli þegar að kosningunum kom.“ Var margt sem breyttist í flokknum þegar Halldór hætti? „Halldór var afburðastjórnmála- maður á mörgum sviðum með mikla þekkingu á hinum ýmsu sviðum. Það sem mér fannst sér- stakt við hann var hversu hann horfði langt fram í tímann. Hann lagði t.d. mikla áherslu á umræðu um Evrópusambandsmál og sá fyr- ir sér að við þyrftum að ræða þau mál. Guðni var búinn að vera lengi varaformaður flokksins og hafði notið mikils trausts sem slíkur. Eðlilegt var að hann tæki við sem formaður þegar forveri hans hætti en auðvitað má segja að allir hafi sinn stíl og menn eru ólíkir.“ Ert þú kannski á leið í for- mennskuna? „Ég hef aldrei útilokað neitt en ætla ekki að bjóða mig fram í þessu viðtali. Ég er mjög ánægð með mína stöðu og mitt kjördæmi átti bestu útkomuna í síðustu kosning- um sem ég er stolt af. Ég er ákaflega stjórnsöm, hvort sem það er já- kvætt eða neikvætt, og hika ekki við að taka að mér forystustörf.“ Telurðu að núverandi stjórnar- samstarf haldi út kjörtímabilið? „Ef þetta gengur áfram eins og verið hefur að það sé ósamstaða milli flokka og óskýr stefna þá finnst mér þetta bera dauðann í sér. Hins vegar getur vel verið að það sé ekki í mörg hús að venda og því geri flokkarnir allt til að líma þetta samstarf saman. En þetta verður erfiður vetur fyrir stjórnarflokkana og þeir eiga ekkert sérstaklega bjarta daga framundan.“ Með norskan ríkisborgararétt Það er ekki auðvelt að koma Val- gerði frá stjórnmálunum inn á hið persónulega líf, t.d. hvernig henni finnist að halda tvö heimili. „Ekk- ert mál,“ segir hún. „Ég er orðin svo vön því.“ Valgerður er gift Norðmannin- um Arvid Kro og þau eiga þrjár dætur, Önnu Valdísi sem er í sam- búð með Þórhildi Guðmundsdótt- ur, Ingunni Agnesi sem er nýgift Hjalta Þór Pálssyni og Lilju Sól- veigu sem er við nám í Mennta- skólanum á Akureyri. Elsta dóttirin er samkynhneigð og þar sem mál- efni þeirra hafa verið mikið í um- ræðunni á Alþingi er ekki úr vegi að spyrja Valgerði hvort það hafi verið henni áfall. „Nei, alls ekki, frekar léttir,“ svarar hún. „Ég var löngu búin að gera mér grein fyrir að það var eitthvað sem gerði að verkum að hún var ekki fullkom- lega sátt við sjálfa sig, svo það var léttir fyrir mig. Síðan hefur allt ver- ið miklu auðveldara.“ Engin barnabörn? „Nei, en Arvid átti dóttur áður og hún á þrjú börn.“ Valgerður segir að Arvid sé ekki pólitískur en styðji sig í einu og öllu. „Ég fæ mikinn stuðning hér heima. Hann hefur þó ekki ennþá komið því í kring að gerast íslensk- ur ríkisborgari og hefur því ekki fengið að kjósa mig. Hann segist vera svo sáttur við að vera Norð- maður en er þó farinn að orða rík- isborgarann núna,“ segir hún. „Hann er búinn að búa á Íslandi síðan árið 1972 svo að það ætti að ganga hratt í gegnum kerfið. “ Valgerður segir að Arvid sé bóndi í sér og heimili þeirra fyrir norðan sé heimili númer eitt. „Áhugamál mín fyrir utan pólitík snúast um sveitina.“ Tískudama með áhuga á hönnun Þú ert stundum kölluð tísku- dama – hefur þú áhuga á tísku og hönnun? „Já, ég verð að viðurkenna það. Ég spara ekki við mig fatakaup. Ís- lensk hönnun var eitt að því sem ég beitti mér fyrir í iðnaðarráðuneyt- inu. Þessi áhugi minn kemur frá móður minni sem lést innan við fimmtugt úr krabbameini. Hún var mjög áhugasöm um fatnað og átti vefnaðarvöruverslun í Reykjavík. Foreldrar mínir voru nokkuð við aldur þegar þau tóku saman og hún tók þá ákvörðun að flytja í sveitina til hans. Mörgum fannst það djarft af fínni Reykjavíkur- dömu. Við systurnar höfum erft þennan áhuga á fatnaði frá henni.“ Stundum er sagt að konur í pólitík séu dæmdar öðruvísi en karlar. Ertu sammála því? „Já, við erum stjórnsamar og frekar. Það eru önnur orð notuð um okkur en karlana.“ Valgerður hefur sýnt það á bloggfærslum á heimasíðu sinni að hún er kjarnakona sem lætur karl- ana ekkert eiga inni hjá sér. „Mér finnst gaman að blogga,“ segir hún. „Sem barn skrifaði ég mikið og hef alltaf haft áhuga á texta. Þarna get ég líka komið á framfæri ýmsu sem mér liggur á hjarta. Eftir að kjör- dæmin stækkuðu er erfiðara að nálgast kjósendur og þetta er góð leið til þess.“ Það er farið að halla að lokum þessa viðtals enda Valgerður á leið í bíó með dætrum sínum að sjá Mamma mia. Það verður þó varla neitt mamma mia á væntanlegu þingi þar sem tekist verður á um erfiðleika og niðursveiflu í íslensku þjóðfélagi. a … eitt sem kom mjög við mig og var erfitt fyrir fjölskyldu mína. Það var þegar gengið var um bæ- inn með spjöld sem á stóð: Drekkjum Valgerði. 24stundir/Golli a Við verðum að breyta pen- ingastefnunni og styrkja hagstjórnina eða taka stefnuna á ann- an gjaldmiðil og þá með aðild að ESB. Fleiri álveg? Þótt ég sé stóriðjusinni er ég líka nátt- úrusinni og sveita- barn í mér.

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.