24 stundir - 20.09.2008, Side 54
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@24stundir.is
Ein ástsælasta popphljómsveit
landsins stendur í stórræðum
þessa dagana við undirbúning á 20
ára afmæli sveitarinnar. Á útgáfu-
planinu er þreföld geislaplata, tvö-
faldur DVD-pakki og box með
góðgæti í.
Um helgina klárar kvikmynda-
gerðarmaðurinn Jón Egill Berg-
þórsson þrjár útgáfur af heimild-
armynd þar sem sveitin fer yfir
feril sinn á opinskáan hátt. Þar tala
liðsmenn m.a. um allar þær innan-
búðarerjur er hafa ógnað framtíð
sveitarinnar á tuttugu ára ferli
hennar. Lengsta útgáfa mynd-
arinnar fer óklippt í DVD-útgáfu
en eins og hálfs tíma útgáfa verður
sýnd í bíói í lok næsta mánaðar. Að
lokum verður gerð 50 mínútna af-
brigði af myndinni fyrir sjónvarp.
„Þeir láta margt flakka um sjálfa
sig og sína sögu sem ekki hefur
heyrst áður,“ segir Jón Egill. „Það
má segja að þetta sé engin glans-
mynd af sveitinni. Þó svo að þeirra
saga sé mjög farsæl og góð þá hafa
þeir löngum átt í innbyrðis deil-
um. Þetta hefur ekki alltaf verið
dans á rósum þó svo að út á við
hafi það litið þannig út. Þetta er
bara Sálin í víðmynd, þetta eru
þrjár útgáfur af 20 ára sögu
þeirra.“
Allt í háaloft um miðbikið
Guðmundur Jónsson, gítarleik-
ari Sálarinnar og helsti lagahöf-
undur, hefur ekki enn séð myndina
en veit þó nokkurn veginn inni-
haldið. „Þetta verður allt siðsam-
legt og skemmtilegt,“ segir Guð-
mundur í spaugi. „Auðvitað erum
við að tala um samstarfið og það
hefur gengið á ýmsu í því í gegnum
árin. Menn hafa hætt margoft,
sjálfur hef ég eflaust hætt tíu sinn-
um í einhverju fússi. En ástandið
hefur aldrei verið það slæmt að
sveitin hafi ákveðið að hætta. Um
miðbikið, svona í kringum 9́5 fór
allt í háaloft. Þá vorum við líka
búnir að keyra mjög stíft og fórum
í okkar lengstu pásu. En svo þegar
rykið hjaðnaði fóru menn að sjá
hvað skipti mestu máli. Það sem
hefur einkennt þessa hljómsveit er
þetta bræðralag sem við sækjum
svo mikið í. Svo er það auðvitað
tónlistin sem heldur okkur gang-
andi enn í dag.“
Áætlað er að gefa út heild-
arpakkann í lok nóvember. Á safn-
plötunni verða svo þrjú ný lög.
Popphljómsveit Íslands opinberar innri erjur í nýrri heimildarmynd
Sálin hans Jóns
míns á leið í bíó
Heimildarmynd er Jón
Egill Bergþórsson klárar
yfir helgina um Sálina
verður sýnd í bíói í lok
næsta mánaðar. Þar tala
liðsmenn opinskátt um
erjur innan sveitarinnar.
Jón Egill Gerir þrjár útgáfur af myndinni.
24sstundir/Árni Sæberg
Sálin Þeir hafa rifist
eins og hundar og
kettir þessir.
54 LAUGARDAGUR 20. SEPTEMBER 2008 24stundir
„… settist ég aftast hjá ógurlega
sætum Indverja í hvítri úlpu. Við
brostum svo sætt hvort til annars
að það braut ísinn sem vanalega
ríkir milli strætófarþega. Ég glotti
aðeins þegar hann sagðist heita
Gris og hann glotti þegar ég sagð-
ist heita Gurrí (þýðir ábyggilega
datt á rassinn á hindí).“
Guðríður Haraldsdóttir
gurrihar.blog.is
„… áður en augnlæknirinn reyndi
að pranga inn á mig gleraugum
sagði hann: „Fyrst vil ég að þú
gerir nokkrar augnæfingar.“
Það eru mörg dæmi þess að fólk
sem sjái illa fái fullkomna sjón
við það eitt að æfa augun. Hvern-
ig stendur á því að manni var
ekki sagt frá þessu fyrr?“
Þorkell Ágúst Óttarsson
thorkell.annall.is
„Þú veist að það er 2008 ef þú
ferð í partí og byrjar að taka
myndir fyrir bloggið þitt. Þú hef-
ur ekki spilað kapal með alvöru
spilastokk í nokkur ár. Ástæðan
fyrir því að þú ert ekki í sam-
bandi við suma vini þína er sú að
þeir eru ekki að blogga, ekki á
MySpace og eða á Facebook.“
Margrét St. Hafsteinsdóttir
maggadora.blog.is
BLOGGARINN
HEYRST HEFUR …
Það er ekki nóg með að Stefán Hilmarsson sé á
fullu í endurútgáfu með Sálinni því nú undirbýr
hann útgáfu á sinni fyrstu jólaplötu. Kannski kom-
inn tími til þar sem Stefán hóf einmitt feril sinn á
laginu Jólahjól sem er án efa eitt ástsælasta jólalag
okkar Íslendinga. Ekki er vitað hvert lagavalið verð-
ur en ef vel tekst til ætti fátt að koma í veg fyrir að
söngvarinn fái gull í jólapakkann. bös
Pétur Kristjánsson hefur umsjón með safn-
plötuútgáfu handan grafarinnar. Söngvarinn var
búinn að raða upp safnplötu með vinsælustu lögum
sínum löngu áður en hann lést fyrir aldur fram og
hefur útgáfufélagið Sena ákveðið að gefa út plötuna
alveg eins og hann vildi. Mikið var leitað að upp-
tökum með honum að syngja Wild Thing með
Whitesnake hér um árið, en án árangurs. bös
Freyr Eyjólfsson hefur tekið sér frí frá starfi sínu í
Síðdegisútvarpi Rásar 2 til þess að einbeita sér að
leikhúsinu. Hann kemur að tónlistinni í söng-
leiknum Fólkið í blokkinni undir stjórn Jóns Ólafs-
sonar og sköruðust æfingar við útsendingartíma og
vinnu hans á Rásinni. Verkið er eftir Ólaf Hauk
Símonarson og á meðal leikara er félagi Freys og
Geirfugl, Halldór Gylfason. bös
Búið er að ráða í öll hlutverk
farandsýningar Ívars Arnar Sverr-
issonar, Óþelló Parkour. Sjálfur
Óþelló verður leikinn af Sveini
Ólafssyni en auk hans fara Álfrún
Örnólfsdóttir, Óli Þorvaldsson og
Anton Fons með hlutverk í sýning-
unni. Sýningin hefur þegar vakið
athygli fyrir það að blanda Shake-
speare saman við jaðaríþróttina
glæfralegu parkour. Hópur áhuga-
manna um glæfrasportið úr Borg-
arholtsskóla hefur verið ráðinn til
þess að gæða sýninguna áhættu-
atriðum. Æfingar hefjast í byrjun
október, nokkuð á eftir áætlun, en
þeim var frestað vegna anna leik-
aranna.
„Núna er hópurinn bara að
koma sér í líkamlegt form,“ segir
Ívar leikstjóri. „Einhverjir leikarar
þurfa að taka á því í sýningunni og
það er því ágætt að allir séu í rosa-
lega góðu formi þegar við byrjum.
Við eigum eftir að æfa stíft og því
líka bara nauðsynlegt að úthaldið
sé gott til að þola álagið.“
Óþelló Parkour er hugsuð sem
farandsýning í menntaskóla lands-
ins. Áhugasamir stúdentar sem
komnir eru af menntaskólaaldr-
inum verða því að biðja til Guðs að
sýningin fari einhvern tíma í al-
mennar sýningar. „Við erum ekk-
ert að setja okkur í neinar stell-
ingar með að þetta sé bara fyrir
menntaskólann. Við erum með
lærða leikara og leggjum alveg jafn
mikið í þetta og við myndum gera
fyrir stóru leikhúsin. Það má vel
vera að hún öðlist meira líf og ég
vona það. En til að byrja með erum
við með fókusinn á þennan túr um
landið sem við ætlum að fara.“
biggi@24stundir.is
Búið að ráða leikara í Óþelló Parkour
Leikarar að koma
sér í líkamlegt form
Ívar Örn Vonast til að farandsýning sín,
Óþelló Parkour, öðlist framhaldslíf.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
7 8 1 6 9 2 5 3 4
5 6 9 4 3 7 2 1 8
2 3 4 8 1 5 6 7 9
8 9 7 5 6 3 4 2 1
4 5 2 9 7 1 3 8 6
3 1 6 2 8 4 7 9 5
6 2 8 7 4 9 1 5 3
9 7 3 1 5 6 8 4 2
1 4 5 3 2 8 9 6 7
Þannig að fyrir utan þennan smá raka er
bara allt gott að frétta af þér?
a
Þetta endaði auðvitað með
keisaraskurði, en barnið er
sprækt og foreldrarnir stoltir.
Guðlaug, var þetta erfið fæðing?
Guðlaug Einarsdóttir er formaður Ljósmæðrafélags Ís-
lands, en sátt náðist í kjaradeilu félagsins í gær, þegar
miðlunartillaga ríkissáttasemjara var samþykkt.FÓLK
24@24stundir.is fólk