24 stundir - 23.09.2008, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 24stundir
Nágranni konu sem handtekin
var í tengslum við fíkniefnamál á
Sauðárkróki segist ekki hissa á
handtökunni. Mikil umferð hafi
verið heim til konunnar um langt
skeið, bílar komið og stoppað stutt
fyrir utan. Sérstaklega hafi þetta ver-
ið algengt á fimmtudagskvöldum og
um helgar. „Það vissu þetta allir í
bænum og almennt segist fólk vera
hissa á að lögreglan hafi ekki gripið
til þessa fyrir löngu.“
Lögreglan handtók konuna sam-
hliða því sem húsleit var gerð á
heimili hennar. Við húsleitina
fannst umtalsvert magn fíkniefna af
ýmsum tegundum en lögreglan hef-
ur ekki viljað gefa upp hversu mikið
magnið er né af hvaða tagi fíkniefn-
in eru. Stefán Vagn Stefánsson yfir-
lögregluþjónn á Sauðárkróki stað-
festir þó að lögreglan þar hafi aldrei
haldlagt jafnmikið magn fíkniefna í
einu áður. „Við rannsökum málið
með tilliti til þess að efnin hafi verið
ætluð til sölu og dreifingar.“
Við húsleitina á Sauðárkróki
fundust vísbendingar sem leiddu til
þess að húsleit var gerð á höfuð-
borgarsvæðinu. Við þá húsleit fund-
ust bæði vopn og fíkniefni í litlum
mæli. Enginn var þó handtekinn í
tengslum við þá húsleit.
Konan sem handtekin var hefur
áður komið við sögu lögreglu. „Við
vitum alveg hver þessi kona er og
höfum fylgst með henni um nokk-
urt skeið.“
Konan var úrskurðuð í gæslu-
varðhald til fimmtudags og ef ekki
verður farið fram á framlengingu
sleppur hún því út daginn sem hún
verður 47 ára. freyr@24stundir.is
Lögreglan á Sauðárkróki lagði hald á mikið magn fíkniefna í húsleit aðfaranótt laugardags
Nágranni segir mikla umferð hafa verið í húsið
➤ Stefán Vagn segir að aukinsamvinna lögreglu á Norður-
landi í fíkniefnamálum hafi
þarna sannað gildi sítt.
➤ Ellefu lögreglumenn tókuþátt í húsleitinni ásamt fíkni-
efnahundi.
AÐGERÐIN
Sauðárkrókur Lögreglan á Sauð-
árkróki hefur ekki áður fundið jafn-
mikið magn fíkniefna í einu.
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@24stundir.is
„Það þýðir auðvitað ekkert að hafa
skipin bundin við bryggju. Mér
finnst það blasa við að þegar olíu-
verð hækkar eins það hefur gert þá
hljóti það að leiða til þess að fjár-
veitingar séu hækkaðar til nauðsyn-
legra verkefna eins og Landhelgis-
gæslunnar,“ segir Friðrik Jón
Arngrímsson framkvæmdastjóri
Landssambands íslenskra útvegs-
manna (LÍÚ). 24 stundir sögðu frá
því á laugardag að varðskip Land-
helgisgæslunnar mundu í auknum
mæli liggja við bryggju til þess að
mæta auknum eldsneytiskostnaði.
Friðrik Jón kallar á að virðisauka-
skattur af olíukaupum Landhelgis-
gæslunnar verði felldur niður.
Georg Lárusson forstjóri Land-
helgisgæslunnar segir að kostnaðar-
aukning vegna eldsneytisverðs-
hækkana á árinu 2008 sé gróflega
áætluð um 120 til 130 milljónir
króna.
Skerðing óumflýjanleg
Georg segir að hjá Landhelgis-
gæslunni sé nú reynt að sigla minna,
hafa túrana styttri og að eitt skip
muni verða við bryggju fyrst um
sinn. „Það skip verður reiðubúið við
bryggju með áhöfn og við erum
ekki búin að segja upp mannskap.
Þannig að það hefur engu verið
lagt,“ segir hann en viðurkennir að
ekki verði komist hjá því að einhver
skerðing verði á þjónustu. „Skipin
verða hugsanlega eitthvað lengra frá
vettvangi í einhverjum tilvikum.“
Ekki rekstrarvandi
Georg segir Landhelgisgæsluna
ekki eiga við rekstrarvanda að etja
og ekki kvarta yfir því að fá ekki
auka-fjárframlög. „Þetta er nokkuð
sem allir í landinu eru að glíma við
og við erum bara að reyna að gera
ráðstafanir til þess að láta enda ná
saman. Þetta er í rauninni það
minnsta sem við getum gert.“
Þarf frekar að efla starfsemina
Friðrik Jón segir að afstaða LÍÚ sé
alveg skýr. „Það þarf að efla starf-
semi Landhelgisgæslunnar frekar en
hitt,“ segir hann og heldur áfram:
„Það eru næg verkefni. Bæði er það
öryggishlutverkið og verkefni við
gæslu- og vöktunarstörf sem Land-
helgisgæslan hefur ekki getað sinnt
jafn vel og hún hefði viljað vegna
fjárskorts.“ Hann nefnir sem dæmi
að fylgjast þurfi betur með veiðum
sem stundaðar eru við landhelgis-
línuna.
Vill fella niður virðisaukaskatt
Friðik Jón vill að hætt verði að
krefja Landhelgisgæsluna um virð-
isaukaskatt af olíunni. „Ríkið er
bara að færa peninga úr einum vasa
í annan.“
Georg segir að það kæmi sér að
sjálfsögðu vel fyrir Landhelgisgæsl-
una og segir viðræður um slíkt hafa
átt sér stað við stjórnvöld. „Það hef-
ur ekki borið árangur. Til þess að
svo geti orðið þyrfti að breyta ís-
lenskum skattareglum sem heimila
ekki slíka niðurfellingu,“ segir hann.
Vill að auknum
kostnaði verði mætt
Framkvæmdastjóri LÍÚ vill að Landhelgisgæslan fái auknar fjárveitingar til að mæta
hærra olíuverði Forstjóri Landhelgisgæslunnar segir kostnaðaraukann 120 milljónir
Saman við bryggju Það mun
verða algengari sjón að sjá
bæði varðskipin, Ægir og Týr,
saman við bryggju.
➤ Aukakostnaður Landhelgis-gæslunnar vegna hækkana á
olíu er 120-130 milljónir
króna á árinu 2008.
➤ Landhelgisgæslan hefurstundum siglt til Færeyja og
keypt þar olíu því þar greiðir
hún ekki virðisaukaskatt.
OLÍUKOSTNAÐUR
„Það koma nýjar tölur á mið-
vikudaginn. Ég er jákvæð því ég
veit að það voru tekin inn töluvert
mörg börn í dag,“ segir Soffía Páls-
dóttir, æskulýðsfulltrúi íþrótta- og
tómstundaráðs, um þá stöðu sem
er á frístundarheimilunum núna.
„Listinn er orðinn minni og við
stefnum auðvitað að því að allir fái
pláss. Það hafa nýir starfsmenn
bæst í hópinn okkar. Það verður
eitthvað áfram um að tekin verði
inn börn í vikunni.“
Soffía segist skilja vel að foreldr-
ar þeirra barna sem ekki hafa feng-
ið pláss séu áhyggjufullir en verið
sé að vinna í þessu öllu saman. „Ég
er að skoða samsetningu á biðlist-
anum og fara yfir þessi mál.“
kristing@24stundir.is
Frístundaheimilin fá inn fleira starfsfólk
Biðlistar minnka
„Það er verið að taka viðtöl og
skoða mál þeirra,“ segir Haukur
Guðmundsson, forstjóri Útlend-
ingastofnunar, um hælisleitend-
urna sem gerð var húsleit hjá á
Suðurnesjum í næstsíðustu viku.
Lögreglan hefur látið Útlend-
ingastofnun hafa gögnin um mál-
ið og nú er verið að vinna í því
að taka viðtöl við fólkið og kanna
mál þess. Haukur segir þau hafa
verið með viðtöl fyrir helgi og
þau verði fleiri í þessari viku.
„Í einstökum tilvikum erum
við búin að segja fólki að við ætl-
um ekki að greiða fyrir það
kostnað í bili. Reykjanesbær ætlar
þá að leyfa fólkinu að greiða sjálft
það sem framfærslan kostar.
Annars getur fólk bara farið á
hótel ef það vill,“ segir hann.
„Það hefur verið fullyrt að yf-
irvöld skuldi skýringar á þessum
aðgerðum. Við erum búin að
svara þessu og segja af hverju að-
gerðin var gerð. Það var grunur
um fölsuð skilríki og fólk var
með furðulegar sögur um það af
hverju það væri hér á landi.
Reynslan hefur kennt okkur hvað
þarf að gera.“ kristing@24stundir.is
Útlendingastofnun er að vinna að máli hælisleitenda
Hælisleitendur í viðtölum
Í vinnslu Mál hælisleit-
endar eru til skoðunar hjá
Útlendingastofnun.
Karlmaður og kona voru úr-
skurðuð í gæsluvarðhald á
Akureyri síðasta föstudag sök-
um þjófnaðar og húsbrota. Á
föstudag voru þau handtekin
vegna stuldar á bifreið og í
kjölfarið kom í ljós að þau
hefðu framið ýmis önnur
brot. Að sögn lögreglunnar á
Akureyri var farið fram á
gæsluvarðhald yfir þeim til 26.
september næstkomandi. Ver-
ið er að rannsaka mál þeirra
og er talið að þau hafi einnig
framið afbrot í Reykjavík.
kyg
Tvennt í gæsluvarðhald
Stálu bifreið
á Akureyri
Hjón sem grunuð eru um
fólskulega árás í Þorlákshöfn í
síðustu viku hafa verið úr-
skurðuð í farbann til 1. des-
ember. Héraðsdómur Suður-
lands féllst ekki á kröfu
lögreglunnar á Selfossi um að
þau sætu áfram í gæslu-
varðhaldi.
Fimm voru handtekin vegna
málsins en hafa nú verið leyst
úr haldi. Að sögn lögreglu er
rannsókn málsins langt kom-
in. aak
Líkamsárásarmál
Féllst ekki á
gæsluvarðhald