24 stundir - 23.09.2008, Blaðsíða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 24stundir
Við höfum sett saman
pakka sem inniheldur
grenningarnudd með
cellulite - jurtaolíum,
líkamsvafning
og extra flabelos.
Þú mætir
5 sinnum og
árangurinn
er engu líkur.
Brennir fitu
Hægir á öldrun
Grennir
Minnkar appelsínuhúð
Mótar vöðva
Eykur sveiganleika
Örvar blóðrás
Eykur beinþéttni
Dregur úr æðahnútum
Dregur úr verkjum
í mjóbaki
Þessi meðferð virkar
Við notum eingöngu bestu
grenningartæki sem til eru í
heiminum í dag.
10 mín, = 1 klst. í ræktinni
TILBOÐ
24.900 kr.
hringið núna í síma 577 7007
„Er nú svo komið að ég er farin
að kvarta undan málfari í ís-
lensku sjónvarpi. Ég veit að það
er voðalega miðaldra af mér en
sem sé, á Skjá einum er sjón-
varpsþáttur sem stjórnendur
stöðvarinnar hafa ákveðið að
kalla Singing bee …“
Eiríkur Bergmann Einarsson
eirikur.eyjan.is
„Ég sé að ég er komin í viðskipti
við einhvern sjeik frá Katar.
Spurning með að ég fari að rýna í
katörsku matreiðslubókina mína.
Ekki að ég sé nú að búast við að
sjeikinn droppi inn þrátt fyrir
þessi viðskiptatengsl okkar en
það er alltaf best að vera við öllu
búin.“
Nanna Rögnvaldardóttir
nannar.blogspot.com
„Húsráð. Ef þú gleymir að læsa
bílnum og ert of langt frá honum
til að fjarstýringin virki – prófaðu
þá að beina henni að gagnauganu
og smella á hnappinn. Svínvirkar.
Sumir segja þetta gerast vegna
þess að höfuðkúpan magni upp
merki fjarstýringarinnar …“
Baldur McQueen
www.baldurmcqueen.com
BLOGGARINN
mar, sem hefur þó ekki aðgang að
kjöti af rauðu ljóni. „Nei ætli hann
verði ekki með beikoni og eggi
bara.“
Hélt að um grín væri að ræða
„Mér fannst þetta nú fáránleg
hugmynd í fyrstu hjá þeim, að
nefna stað eftir mér, og það stóð
lengi á já-inu. Það tók svolítinn
tíma að átta mig hreinlega á þessu
hjá þeim, ég hélt að þetta væri eitt-
hvert grín, en þegar ég sá að þarna
væri verið að gera íslenskri íþrótta-
sögu hátt undir höfði, þá fannst
mér þetta bara mikill heiður. Þá
var KR stofnað ekki langt frá, í
gamla Morgunblaðshúsinu. En
það var gjarnan farið á Hressing-
arskálann eftir bíó og fengið sér
kaffi í básunum, sem hafa fengið
að halda sér,“ segir Bjarni Felixson
um aðdraganda nafngiftarinnar.
„Og ekki skemmdi nú fyrir að
það er gamall fótboltamaður sem
rekur staðinn,“ bætir Bjarni við, en
Valdimar Hilmarsson er fyrrum
fyrirliði HK og með leikjahærri
mönnum liðsins, en líkt og hjá
Bjarna Fel fóru þau afrek fram „í
gamla daga,“ en hann lék síðast
með liðinu árið 2001.
Sportbarinn Bjarni Fel opnaður í Austurstræti
Hélt að um grín
væri að ræða
Nýr sportbar hefur verið
opnaður í Austurstræti.
Staðurinn heitir Bjarni
Fel, en erfiðlega gekk að
fá leyfi hjá Bjarna Fel-
ixsyni, sem hélt að um
grín væri að ræða.
Heima er best Bjarni Fel er ánægður
með nafna sinn.
Stoltir af Bjarna Fel
Eigendurnir Einar
Sturla Monichen og
Valdimar Hilmarsson.
Eftir Trausta S. Kristjánsson
traustis@24stundir.is
Við hlið Hressingarskálans í Aust-
urstræti hefur verið opnað nýtt
íþrótta-öldurhús, Bjarni Fel að
nafni. Það er ekki á hverjum degi
sem lifandi goðsögn fær sport-
knæpu nefnda í höfuðið á sér en
svo er samt raunin með ástsælasta
íþróttaþul landsins, Bjarna Felix-
son.
Gamlar hetjur heiðraðar
„Það þurfti smá-tíma til að telja
Bjarna á að lána okkur nafnið,
hann hélt fyrst að við værum eitt-
hvað að grínast í honum. En síðan
þegar hann sá hvers kyns var, þá
sló hann til,“ segir Valdimar Hilm-
arsson, annar eigandi Bjarna Fel,
sportbarsins það er.
„Staðurinn er óður til gamla
tímans, þar sem íslensk íþróttasaga
er heiðruð með myndum af göml-
um en ekki gleymdum hetjum. Við
fengum um 40 myndir frá bæði
Þjóðminjasafninu og Ljós-
myndasafni Reykjavíkur, auk þess
sem Friðþjófur Helgason lét okkur
nokkrar myndir í té. Og þá verður
hægt að fá sér að drekka og borða,
meðal annars er boðið upp á
Bjarna Fel-borgara,“ segir Valdi-
HEYRST HEFUR …
Tónlistarstjóri Fjallabræðra, Halldór G. Pálsson,
sannaði í eitt skipti fyrir öll á Vagninum á Flateyri á
dögunum, að karlmenn gætu sannarlega gert tvo
hluti í einu. Er Halldór var í miðju gítarsólói remb-
ingskyssti hann unga snót svokölluðum frönskum
kossi (með tungu). Sló Halldór ekki feilnótu á gít-
arinn meðan á kossaflensinu stóð, þótt engum sög-
um fari af gæðum kossins. tsk
Skipulagsbreytingar eiga sér stað innan leikhópsins
Vesturports en Rakel Garðarsdóttir, systir Gísla, er
að byrja í lögfræðinni í Háskólanum og hefur því
ákveðið að hverfa frá framkvæmdastjórastöðu sinni
þar. Tvær manneskjur þarf til að fylla skarð hennar.
Það eru hótelstjóri Öldunnar á Seyðisfirði, Dýri
Jónsson, og móðir Rakelar og Gísla sem ætla að
skiptum verkum. bös
Það var mikið tilfinningaflæði hjá Guðjóni Davíð
Karlssyni, eða Góa, leikara á laugardag. Hann átti
afar viðburðaríka helgi. Tveimur tímum fyrir sýn-
ingu Flóar á skinni á laugardag eignaðist hann sitt
fyrsta barn en það var tekið með keisaraskurði.
Hann var því skiljanlega í mikilli geðshræringu þeg-
ar hann mætti upp í Borgarleikhús og það skilaði
sér í ýmsum útúrdúrum á leiksýningunni sjálfri. bös
Ný hljómsveit Heiðars Arnar
Kristjánssonar úr Botnleðju, The
Viking Giant Show, hefur lokið við
fyrstu breiðskífu sína. Sveitin byrj-
aði sem sólóverkefni hjá Heiðari en
hefur nú þróast í fulla hljómsveit
hafnfirskra hljóðfæraleikara. Tvö
ár eru síðan fyrsta lag sveitarinnar,
Party at the White House, var
hleypt í spilun og hafa áhugasamir
því þurft að bíða lengi eftir hreyf-
ingu á plötunni.
„Þetta er búið að taka svona
langan tíma vegna þess að það hef-
ur bara ekki verið neitt stress,“ seg-
ir Heiðar en platan kemur út um
miðjan næsta mánuð. „Þetta er
verkefni sem ég hef haft í hjáverk-
um og því hef ég leyft mér að taka
bara góðan tíma í þetta.“
Tónlistin er frekar frábrugðin
Botnleðju, en bjögunargítarinn og
öskrin fá að víkja fyrir léttum lög-
um þar sem daðrað er við kántrí.
„Ég myndi segja að hún væri
mjög fjölbreytt. Þetta er svo sem út
um allt, enda setti ég mig ekki í
neinar stellingar varðandi stefnu.
Það eru nokkur lög sem eru svolít-
ið kántrí. Mig langaði bara til þess
að gera eitthvað annað en maður
hefur verið að gera. Ég er búinn að
bjagast mikið með Botnleðju.“
Hvað varðar orðróm um end-
urrisu Botnleðju segir Heiðar þá
hugmynd aðeins vera á við-
ræðustiginu. „Það er eins og það sé
verið að pressa okkur og við erum
að ræða þessa hluti en það er ekk-
ert farið í gang. Það kemur bara í
ljós hvernig það verður allt saman.
Það verður einhverntímann en
þetta er ekkert stress.“
biggi@24stundir.is
Heiðar úr Botnleðju skiptir um gír
Klárar kántrískotna
poppplötu
Heiðar Hefur gengið með Víking-
arisa í maganum, en nær loks að
hleypa honum út.
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Su doku
1 8 6 3 7 2 5 4 9
7 3 4 6 9 5 2 8 1
5 9 2 4 1 8 6 7 3
4 2 8 7 3 9 1 5 6
3 7 9 5 6 1 4 2 8
6 5 1 8 2 4 9 3 7
2 1 5 9 8 3 7 6 4
8 4 7 1 5 6 3 9 2
9 6 3 2 4 7 8 1 5
Þú ert betur komin heima hjá þér, en
liggja hér og vorkenna sjálfum þér
a
Nei, þetta hefði verið bogið ef
einhver Örvar hefði verið ráðinn
Bogi, er ekkert bogið við þessa ráðningu?
Bogi Nils Bogason er nýráðinn framkvæmdastjóri fjár-
mála hjá Icelandair Group.FÓLK
24@24stundir.is fréttir