24 stundir - 23.09.2008, Blaðsíða 12

24 stundir - 23.09.2008, Blaðsíða 12
Sigrún Erna Geirsdóttir sigrunerna@24stundir.is Bjórflaska merkt Snæfellsás, takkaskór og fiðrildasafn eru með- al þeirra hluta sem hægt er að bjóða í á uppboðsvefnum selt.is sem opnaði gáttir sínar í lok ágúst. Síðan vefurinn var opnaður hafa um 1500 notendur skráð sig og uppboðin eru orðin hátt í þúsund. Vöntunin var kveikjan ,,Móttökurnar hafa farið fram úr björtustu vonum,“ segir einn af stofnendum vefjarins, Björgin Guðmundsson sem er grafískur hönnuður. Hann segir að hann og félagarnir hafi verslað mikið á Ebay gegnum tíðina og fundist vöntun á sambærilegum vef hér- lendis. Vefurinn var um eitt ár í vinnslu en mesta vinnan fór fram í sumar. ,,Þetta var mikil vinna, sennilega nokkur hundruð tímar, en þetta er búið að vera bæði skemmtilegt og lærdómsríkt,“ seg- ir Björgvin. Vefurinn sé líka í stöð- ugri þróun eftir því sem meiri reynsla komi á hann. Árferðið hefur áhrif Björgvin segir að árferðið hafi án efa mikið að segja um velgengi vefjarins. ,,Fólki vantar peninga og þá er hægt að taka til í geymsl- unum og finna til dót sem það er hætt að nota. Vefurinn gerir söl- una á því miklu þægilegri,“ segir hann. Þá horfi fólk meira til þess en áður að kaupa notaða hluti frekar en nýja sé þess einhver kost- ur. Hægt sé að spara þannig stórar fjárhæðir. Grundvöllurinn er til staðar Vaxandi vinsældir Ebay á Íslandi og gróska á íslenskum vefjum þar sem verslun með notaðan varning fer fram sýni að grundvöllur sé fyrir svona vefjum. Núna sé líka besti tíminn til að koma ókeypis uppboðsvef. Það kosti ekki neitt að setja inn uppboð eða kaupa. Þegar seljandi selur hins vegar vöru þarf að borga þóknun frá 1,9 prósenti til 8,5 prósenta. Því dýrari sem varan er, því lægri prósenta. ,,Við blöndum okkur ekki í viðskipti milli seljanda og kaupanda heldur greiðir seljandi beint til okkar.“ Vefurinn virki því sem markaðs- torg. Bjartsýnir tölvugúrúar Björgvin segir þá félaga búna að reka sig á að fjárhagslegt utanum- hald sé erfiðara en þeir höfðu búist við og búið sé að fá fólk til að sjá um þá hluti fyrir vefinn. ,,Við er- um tölvugúrúar sjálfir og ekkert inni í svona hlutum. Það er hins vegar á dagskránni að fara á nám- skeið og kynnast viðskiptahlið- inni.“ Vefurinn hafi alla burði til þess að vaxa og dafna og verða að ágætis fyrirtæki. Það sé þó ekki verið að einbeita sér að því núna heldur því að gera vefinn sem allra bestan. Samvinna frekar en samkeppni Þótt aðrir söluvefir séu á mark- aðinum, svo sem hani.is og selja.is, sagðist Björgvin ekki óttast sam- keppni. Ætlunin væri frekar að vinna með öðrum vefjum en keppa við þá þrátt fyrir að einhver samkeppni væri auðvitað óhjá- kvæmileg. ,,Við sjáum þetta fyrir okkur þannig að uppboðin okkar væru auglýst á öðrum svona vefj- um,“ segir hann. Þannig myndu þeir ná til stærri hóps. Grænland, Færeyjar Spurður um útrás sagði Björg- vin það ekki útilokað að vefurinn yrði einn daginn Ebay Norður- landanna eða að minnsta kosti einn af þeim. Þar væru þó þegar til stórir sambærilegir vefir og ekki þeirra markmið að keppa beint við þá. ,,En hver veit, við erum opnir fyrir öllu. Kannski Færeyjar og Grænland bætist fljótlega við hjá okkur,“ sagði Björgvin hlæjandi að lokum. Auðveld kaup og sala  Samdrátturinn hvetur til verslunar með notaðan varning  Selt.is fullnægir þörfinni fyrir íslenskan uppboðsvef Útrás ekki útilokuð Björgvin Guðmundsson, Sindri Berg- mann og Óli Haukur Valtýsson, stofnendur Selt.is ➤ Netslóðin er www.selt.is. ➤ Hægt er selja einstaka hlutien að auki er hægt að stofna vefbúð. ➤ Hægt er að óska eftirákveðnum hlutum. ➤ Tölvur, heimilið og farartækieru stærstu flokkarnir. ➤ Dýrasta varan á vefnum núnaer Harley Davidson mótorhjól á 900.000 krónur. VEFURINN 12 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 24stundirI . www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Rafskutlur -umhverfisvænn ferðamáti                 !                      !   " #  $    % &'()* &   + ,- ./-  0        12    '    '3.   .4 2  *5 / 62 7  ,      8 2    8     ,/  !  "                                               7,   6 , 9   " & ; ;<< =<> ;?= ??; <=@ >A @AB ;B> C@C AA= C;A < @AD BAA =A; @CB ADB CA A=@ ??? AB CA? ;B= B?; A ;=C ;== A;C ;CD ?CB @D> ; B@C ?BA @;> AA? CDA C> ;?A D>@ ? C ;;B ?>; + A <;@ AD= + + + =@ D<> ??? + + @E<> >EAB ADE>> <E?= ;DEBB DEC< A?EC? <C<E?? ACE?> B;E<? CEA? =E@@ B>ED? A?@E?? ;@A>E?? ;<AE?? ;@BE?? + + + C@A?E?? + + @E=? >EC> ADE<? <E;; ;>E?? DEDC A?ED> <CBE?? ACE;? BAEC? CEC> =E<? B@E;? A?BE?? ;@=?E?? ;<BE?? ;<?E>? A;E<? ;EA? + C@>?E?? ;?E>? >E?? ./  ,  A A@ AA B= B> A D << @> ;B ;? C> = + B + ;D + + + B + + F  , , AA B A??= AA B A??= AA B A??= AA B A??= AA B A??= AA B A??= AA B A??= AA B A??= AA B A??= AA B A??= AA B A??= AA B A??= AA B A??= ;= B A??= AA B A??= A> = A??= C @ A??= < C A??= MARKAÐURINN Í GÆR ● Úrvalsvísitala Kauphallar Ís- lands hækkaði um 3,21% í við- skiptum gærdagsins og var loka- gildi vísitölunnar 4.186,14 stig. ● Atlantic Petroleum hækkaði mest félaga á aðallista, eða um 11,26%, en Exista hækkaði um 7,60%. Þá hækkuðu bréf Glitnis um 4,60% og Kaupþings um 3,22%. ● Alfesca lækkaði um 0,44% og voru bréf félagsins þau einu sem lækkuðu í verði í gær. ● Velta í kauphöllinni nam 61 milljarði króna og var velta með hlutabréf þar af tæpir 40,5 millj- arðar króna. ● Munaði þar mest um 29,3 millj- arða króna viðskipti með bréf Kaupþings, en greint var frá kaup- um fjárfesta í Katar á 5% hlut í bankanum í gær. Lækkanir voru í öllum helstu kauphöllum Evrópu í gær þrátt fyrir að bankar og hrávörufyrirtæki hefðu hækkað umtalsvert í viðskiptum dagsins. Breska FTSE vísitalan lækkaði um 1,41%, þýska DAX um 1,32% og franska CAC vísitalan lækkaði um 2,79%. Samnorræna OMX vísitalan lækkaði um 2,37%, sænska vísitalan um 1,8% og norska OBX vísitalan lækkaði um 0,09%. bó Lækkanir í Evrópu Glitnir og Byr sparisjóður hafa ákveðið að hefja samruna- viðræður. Í því felst einnig að stjórnir félaganna hafa skuld- bundið sig til að ræða ekki við aðra aðila um samstarf eða sam- einingar á meðan. Samkvæmt til- kynningu er stefnt að því að nið- urstaða liggi fyrir eins fljótt og auðið er. Með sameiningunni er mark- miðið að auka fjárhagslegan styrk fyrirtækjanna. Markaðsverðmæti Byrs er um 55 milljarðar króna en Glitnis um 220 milljarðar króna. bg Vilja sameina Byr Glitni Danir sem stunda ólöglegt nið- urhal gætu átt á hættu takmark- aða bandvídd. Þetta er ein af til- lögunum á ráðstefnu sem danska menntamálaráðuneytið stendur fyrir með dönskum símafyr- irtækjum og rétthafasamtökum. seg Bandvíddin takmörkuð Berlingske Tidende opnar nýjan vef þann 1. október, dinby.dk. Hver einasti bær og gata í Dan- mörku fær þar sitt eigið svæði. Þar verður safnað saman upplýs- ingum um verslun og þjónustu í nágrenninu, fréttum sem tengjast hverfinu og fleira. seg Berlingske opnar íbúavef Krónubréf að nafnvirði 5 millj- arðar króna sem þýski KfW bankinn gaf út fyrir tveimur ár- um síðan féllu í gjalddaga í gær að viðbættum vöxtum. Þetta er síðasti gjalddagi septembermán- aðar en alls hafa krónubréf að nafnvirði 27,5 milljarða króna auk vaxta fallið í gjalddaga í mán- uðinum að gærdeginum með- töldum. Ein krónubréfaútgáfa hefur litið dagsins ljós í sept- ember er hollenski bankinn Rabobank gaf út krónubréf að nafnvirði 13 milljarða króna til eins árs í byrjun mánaðarins samkvæmt Morgunkorni Glitnis. Krónan veiktist um 2,6% í við- skiptum gærdagsins. bg Síðasti gjald- dagi krónubréfa FÉ OG FRAMI frettir24stundir.is a Kannski Færeyjar og Grænland séu næst á dagskrá. SALA JPY 0,8448 1,06% EUR 131,17 0,30% GVT 171,31 0,73% SALA USD 89,86 1,73% GBP 165,52 1,04% DKK 17,585 0,32%

x

24 stundir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.