24 stundir - 23.09.2008, Blaðsíða 7
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 7
Karlar sem líta svo á að konur
eigi að vera heima og hugsa um
heimilið eru að jafnaði tekjuhærri
en karlar sem aðhyllast jafnrétti
kynjanna á heimili og á vinnu-
markaði.
Fram kemur í bandarískri rann-
sókn að árstekjur karla með slíkt
viðhorf séu að meðaltali um
769.000 krónum hærri en árslaun
karla sem aðhyllast jafna stöðu
kynjanna. Konur, sem aðhyllast
jafnrétti hafa hins vegar að með-
altali 134.00 krónum hærri árstekj-
ur en konur sem gera það ekki.
Rannsóknin var gerð á meðal
12.686 einstaklinga á árunum 1979
til 2005. sibb
Karlremba skilar
hærri tekjum
Rannsókn á jafnrétti á heimilum og í vinnu
Forsvarsmenn Óslóarháskóla hafa fyrirskipað að
brenna skuli mikið safn norrænna og erlendra dag-
blaða frá 19. öld til þess að rýma til fyrir antikhús-
gögnum. Frá þessu er greint í norska dagblaðinu Aft-
enposten.
Um er að ræða safn dagblaða sem tekur um þrjá
hillukílómetra og geymt er á Follum Gård á Ringerike.
Þegar er búið að bjarga dagblaðasafninu einu sinni, því
árið 2002 stóð einnig til að farga því, en þá komu eld-
hugar hjá Þjóðarbókasafninu norska og Óslóarháskóla
því til leiðar að safninu var komið fyrir á Follum Gård.
„Þarna er verið að vinna óbætanlegt skemmdarverk
á menningararfinum,“ segir Edgar Ytteborg, en hann
kom að björgun safnsins árið 2002 á vegum Þjóð-
arbókasafnsins og hafði umsjón með dagblaðasafninu
hjá Óslóarháskóla þar til hann fór á eftirlaun. Segir
hann safnið ekki eiga sinn líka á Noregi.
Talsmaður tæknideildar skólans, sem sér um að
brenna blöðin, segir að ef einhverjir hafi áhuga á að
geyma þau sé það guðvelkomið. sibb
Brenna á mikið safn dagblaða frá 19. öld í Noregi
„Skemmdarverk“
Yfirmaður kínverska matvæla-
eftirlitsins, Li Changjiang, hefur
sagt af sér í kjölfar þurrmjólkur-
hneykslis. Alls hafa nærri 53 þús-
und kínversk ungbörn veikst í kjöl-
far þess að hafa drukkið
melamínmengaða þurrmjólk.
Samkvæmt kínverskum yfir-
völdum hafa þau flest náð sér á
strik en tæplega 13 þúsund þeirra
dvelja enn á sjúkrahúsum.
Fram kemur hjá hinni opinberu
Xinhua-fréttaveitu að afsögn Li
Changjiang sé gerð með samþykki
ríkisstjórnarinnar.
Fjögur börn hafa látist af völd-
um eitrunarinnar svo vitað sé og
104 börn eru illa haldin. Í Hong
Kong og Taívan, Bangladess, Brú-
nei, Búrundí, Japan, Malasíu, Tan-
saníu og fleiri löndum hafa allar
kínverskar mjólkurvörur verið fjar-
lægðar úr hillum verslana.
Melamín, sem er venjulega notað
í plastiðnaði, hefur verið sett út í
mjólkurvörur til að hækka prótein-
gildi. Það fer illa með nýru ung-
barna.
Átján manns hafa verið handtekn-
ir í Kína í tengslum við málið. sibb
Þurrmjólkurhneykslið í Kína
Flestum batnað
Eftir Sigrúnu Birnu Birnisdóttir
sibb@24stundir.is
Thabo Mbeki, forseti Suður-Afr-
íku, sagði af sér á sunnudag og
þykir allt stefna í að Jakob Zuma,
formaður Afríska þjóðarráðsins,
verði kjörinn næsti forseti lands-
ins í upphafi næsta árs. Hann get-
ur þó ekki tekið við embætti for-
seta fyrr en að loknum
kosningum þar sem hann situr
ekki á þingi.
Mbeki hefur lengi verið um-
deildur og staða hans veiktist
mjög er hann tapaði fyrir Zuma í
formannskjöri innan Afríska
þjóðarráðsins á síðasta ári. Kröfur
um afsögn hans voru þó ekki sett-
ar fram innan flokksins fyrr en
eftir að dómsmáli gegn Zuma var
vísað frá hinn 12. september. Ekki
var tekin afstaða til sektar eða
sakleysis í úrskurði dómarans en
þar kom fram að vísbendingar
væru um að málið hefði verið
höfðað á pólitískum forsendum.
Afneitunin dýrkeypt
Helen Zille, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar í landinu, lofaði
Mbeki eftir að tilkynnt var um af-
sögn hans og sagði hann mikinn
gáfumann sem hefði verið í far-
arbroddi í friðarumleitunum í
Afríku. Hún sagði arfleifð Mbekis
þó mislita enda hefði tregða hans
til að viðurkenna umfang alnæm-
isfaraldursins og glæpatíðninnar í
landinu komið í veg fyrir að hægt
væri að ráðast gegn vandanum af
fullum krafti. Einnig gagnrýndi
hún stuðning hans við Robert
Mugabe, forseta Simbabve.
Mbeki hefur að undanförnu
farið með hlutverk sáttasemjara
Afríkubandalagsins í Simbabve og
vísaði hann til þess og aðildar
sinnar að samningaumleitunum í
Kongó, Búrúndí, á Fílabeins-
ströndinni og í Súdan er hann
ávarpaði þjóðina á sunnudags-
kvöld. Sérstakt samband þykir
vera á milli Mbekis, sem var vara-
forseti Nelsons Mandela, og Afr-
íkuleiðtoga af eldri kynslóðinni
en Zuma tengist ekki öðrum leið-
togum í álfunni með sama hætti.
Spillingar- og nauðgunarmál
Mbeki rak Zuma úr embætti
varaforseta árið 2005 eftir að fjár-
málaráðgjafi hans var fundinn
sekur um að bjóða mútugreiðslur
fyrir hans hönd. Dómsmáli vegna
meintrar aðildar Zuma að málinu
hefur nú tvisvar verið vísað frá. Þá
var hann sýknaður af ákæru um
að hafa nauðgað HIV-smitaðri
konu árið 2006. Í kjölfar þess bað
hann landa sína afsökunar á því
að hafa ekki notað smokk þegar
hann hafði samfarir við konuna.
Sagðist hann hafa farið í sturtu til
að koma í veg fyrir smit. Suður-
Afríka er eitt þeirra landa heims
þar sem HIV-smit og alnæmi er
hvað útbreiddast og voru þessi
ummæli hans harðlega gangnrýnd
þar sem þau þóttu senda mjög
villandi skilaboð um smithættu
og varnir gegn henni.
Fátækt og alnæmi
Afsögn Mbekis, forseta S-Afríku, markar þáttaskil í eftirmálum aðskilnaðarstefnunnar
Zuma Nær lík-
lega forsetakjöri.
➤ Mbeki var kjörinn forseti Suð-ur-Afríku árið 1999 og endur-
kjörinn árið 2004.
➤ Þrátt fyrir mikla uppbygg-ingu í landinu hefur reiði
vegna misskiptingar auðs og
andstaða verkalýðsfélaga
grafið undan stöðu hans.
➤ Zuma sækir stóran hlutafylgis síns til þeirra sem finnst
þeir hafa setið eftir í efna-
hagsuppbyggingunni í land-
inu.
SUÐUR-AFRÍKA
Mannræningjar í Egyptalandi
hafa tekið höndum hóp er-
lendra ferða-
manna. Sam-
kvæmt AP-
fréttastof-
unni eru
fimm ítalskir
ríkisborgarar
meðal þeirra,
ránið framið nærri landamær-
um Súdans. Samkvæmt El País
eru fimm Þjóðverjar, fjórir
Egyptar og tveir Rúmenar í
hópnum fyrir utan Ítalina.
Árásir á ferðamenn hafa verið
fátíðar í Egyptalandi síðan
um miðjan síðasta áratug er
forseti landsins, Hosni Mub-
arak, tók harkalega á aukinni
starfsemi íslamskra öfga-
manna. sibb
Egyptaland
Ferðafólki rænt
Enn eru 38 þúsund ferðamenn
strandaglópar víða um heim
vegna gjaldþrots ferðaskrif-
stofunnar XL Leisure. Sam-
kvæmt upplýsingum frá
breskum flugmálayfirvöldum
hafa tæplega 47 þúsund far-
þegar verið fluttir heim eftir
að flugvélar XL voru kyrr-
settar hinn 12. september sl.
Þetta kemur fram í frétt á vef
BBC. sibb
Gjaldþrot XL Leisure
Enn stranda-
glópar
...www.rannis.is/visindavaka
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Allir velkom
nir!
Hver á að passa mig?
er í kvöld 23.september
Fyrsta VÍSINDAKAFFIÐ
Vísindamenn segja frá rannsóknum sem koma öllum við - á mannamáli...
Kaffistjóri er Davíð Þór Jónsson, þýðandi
Listasafni Reykjavíkur kl. 20.00 – 21.30
MENNTAMÁLA
RÁÐUNEYTIÐ
IÐNAÐAR
RÁÐUNEYTIÐ
Alyson Bailes og Silja Bára Ómarsdóttir frá Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands
fjalla um öryggismál út frá nýju sjónarhorni – það er alveg öruggt!