24 stundir - 23.09.2008, Side 14

24 stundir - 23.09.2008, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 24stundir ÍÞRÓTTIR ithrottir@24stundir.is a Það koma alveg stundum tímabil sem maður óskaði sér að hann væri að þjálfa karlalið ekki kvennalið, en við látum þetta ekki hafa nein áhrif á okkur. Við látum þetta bara ganga, svo einfalt er það. Hlíðasmára 14 sími 588 2122 www.eltak.is Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband líðas ára 14 Sí i 588 2122 .eltak.is Íslandsmótið í handknattleik kvenna hófst á laugardaginn. Stór- leikur fyrstu umferðar var á milli Hauka og Stjörnunnar og mynd- irnar eru þaðan. Stjarnan hafði betur, 29:26, en þessi lið eru talin líkleg til að berjast um titilinn ásamt Val og Fram. HK vann óvæntan sigur á Fram, Grótta lagði FH naumlega og Valur burst- aði Fylkiskonur í hinum leikj- unum á fyrsta deginum. Íslandsmótið í handknattleik kvenna er byrjað Eftir Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson thorkell@24stundir.is Síðasta tímabil háði Stjarnan harða baráttu við Fram um Íslandsmeist- aratitilinn og var mikil spenna allt fram í lokaumferðina hvort bikar- inn yrði áfram í Garðabænum eða færi í Safamýrina. Kristín hafði bet- ur gegn Einari í þeirri baráttu. „Við reynum auðvitað alltaf að láta þetta hafa sem minnst áhrif á okkur þó ég spili með Stjörnunni og Einar sé að þjálfa Fram. Þetta hafði samt pínu áhrif í vor þegar spennan í deildinni milli liðanna var í algleymingi. Það var mjög erf- itt. Það koma stundum tímabil sem maður óskaði sér alveg að hann væri að þjálfa karlalið, ekki kvenna- lið, en við látum þetta ekki hafa nein áhrif á okkur. Við látum þetta bara ganga, svo einfalt er það.“ Mikið talað um handbolta Kristín segir að það sé mikið tal- að um handbolta á heimilinu. „Við þurfum oft að passa okkur á því að tala ekki of mikið um handbolta af því það er áhugamál okkar beggja og því auðvelt fyrir okkur að tala varla um annað stundum.“ En gæti Kristín hugsað sér að spila einhvern tímann undir stjórn bónda síns ? „Nei, það gæti ég aldr- ei. Ég myndi ekki vilja búa með þjálfaranum mínum. Það kæmi ekki til greina. Þess vegna erum við bara hvort í sínu liðinu og getum því búið hamingjusamlega saman,“ sagði Kristín Clausen, sem telur að auk Stjörnunnar verði það Valur, Fram og Haukar sem muni berjast um titilinn og jafnvel Grótta muni koma á óvart. Mörg sterk lið í deildinni Kristín hefur verið lengi í liði Stjörnunnar og á meðal annars að baki 12 A-landsleiki. „Þetta tímabil leggst bara mjög vel í mig. Við er- um núna búnar að ná fyrsta sigr- inum af mörgum, vona ég. Mér sýnist allt á öllu að það séu mörg sterk lið í deildinni og held að það sé spennandi keppni framundan. Við erum með svipað lið og í fyrra. Reyndar misstum við leik- menn eins og gengur og gerist milli tímabila. Við misstum sterka leik- menn á borð við Rakeli Dögg Bragadóttur en fengum líka aftur á móti líka góða leikmenn eins og Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur. Auk þess eru yngri leikmenn líka orðnir reynslumeiri, þannig að ég myndi telja að liðið væri ósköp svipað að styrkleika núna og í fyrra,“ sagði hin 25 ára gamla Kristín Clausen. Gott fyrir Aðalstein að skipta Aðalsteinn Eyjólfsson hætti með Stjörnuna eftir síðasta tímabil eftir að hafa náð góðum árangri og eftir að hafa þjálfað margar af leik- mönnum meistaraflokks Stjörn- unnar frá því þær léku með yngri flokkum félagsins. Aðalsteinn tók svo við liði Fylkis. Kristín telur þó að Stjarnan sé ekkert veikari fyrir vikið. „Aðal- steinn var búinn að vinna frábæra hluti í félaginu og fyrir liðið, en það var kannski komið að endalokum hjá honum hjá okkur eftir þrjú ár með meistaraflokkinn og jafnvel gott fyrir hann að taka við nýju liði og hefja þar mikið og gott upp- byggingarstarf. Við stöndum alls ekkert veikari eftir með Ragnar Hermannsson sem þjálfara.“ Samhent Kristín og Einar láta ekki baráttu Stjörnunnar og fram innan vallar hafa áhrif á sambandið. Kæmi ekki til greina að búa með þjálfaranum mínum  Kristín Clausen leikur með Stjörnunni en sambýlismaðurinn þjálfar andstæðingana í Fram  Vill alls ekki leika undir hans stjórn ➤ Kristín og samherjar hennar íStjörnunni byrjuðu tímabilið vel og sigruðu Hauka á úti- velli, 29:26, á laugardaginn. ➤ Byrjunin hjá Einari og hansliði var ekki eins góð því Framkonur töpuðu mjög óvænt fyrir HK í Digranesi, 21:19. KRISTÍN OG EINARÍslandsmót kvenna í handknattleik hófst um síðustu helgi með heilli umferð. Átta lið leika í deildinni og er það Stjarnan sem á titil að verja. Reyndar hefur Stjarnan orðið Íslands- meistari síðustu tvö árin og byrjaði liðið titilbar- áttu sína með útisigri á Haukum um helgina, 29:26. Kristín Clausen er í stóru hlutverki hjá Stjörnunni og verður í þeirri einkennilegu stöðu að verða andstæðingur sambýlismanns síns, Ein- ars Jónssonar, sem þjálf- ar kvennalið Fram. 24stundir/Ómar

x

24 stundir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.