24 stundir - 23.09.2008, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 24stundirHeilsa
Umsjónarmenn:
Svanhvít
Ljósbjörg
svanhvit@24stundir.is
Kristjana
Guðbrandsdóttir
dista@24stundir.is
María
Ólafsdóttir
maria@24stundir.is
Eftir Maríu Ólafsdóttur
maria@24stundir.is
„Á síðastliðnum 25 árum hefur
starfsgreinin í tengslum við lík-
amsrækt og dans styrkst mikið. Þó
má enn gera betur og mér finnst að
það megi vera meiri stefna innan
skóla landsins að bæta almenna
lýðheilsu. Það er endalaust hægt að
finna góðar hugmyndir að nýrri
líkamsrækt sem er einmitt það sem
við Íslendingar þurfum þar sem
við fáum fljótt leiða á hlutunum. Í
ár er ég einmitt mjög ánægð með
að hafa fengið til mín marga ís-
lenska kennara,“ segir Unnur
Pálmarsdóttir, framkvæmdastjóri
fyrirtækisins Fusion, sem stendur á
bak við heilsuhátíðina Fusion Fit-
ness Festival, en hátíðin verður
haldin í World Class Laugum
næstkomandi helgi.
Allsherjar hreyfingarveisla
Hátíðin er nú haldin í sjötta
sinn, en þetta er annað árið í röð
sem Fusion og World Class taka
höndum saman um að styrkja gott
málefni með allsherjar dans- og
þolfimiveislu sem verður haldin í
World Class næstkomandi föstu-
dag. Í ár rennur ágóði tímans til
KRAFTS, stuðningsfélags fyrir
ungt fólk sem hefur greinst með
krabbamein og aðstandendur þess.
„Allir geta tekið þátt í tímanum,
jafnt byrjendur sem lengra komnir
og sérstaklega ánægjulegt að láta
gott af sér leiða með því að svitna
og skemmta sér. Kennarar frá Ís-
landi, Danmörku, Bretlandi og
Ungverjalandi sjá um kennslu í
tímanum og Páll Óskar um tónlist-
ina svo það verður stuð. Aðgangs-
eyrir í tímann er 1.200 kr. en Krafti
verður afhent upphæðin sem safn-
ast hefur saman strax í lok tím-
ans,“ segir Unnur.
Batuka og Thriller
Hugmyndin að hátíðinni er að
erlendri fyrirmynd þar sem þeir
sem hafa eitthvað nýtt fram að
færa í hreyfingu og líkamsrækt
geta kynnt það landanum. Raun-
veruleikaþættir í sjónvarpi hafa
upp á síðkastið haft nokkur áhrif á
að móta líkamsræktar- og dans-
tíma en lokatími hátíðarinnar
verður til að mynda Wild Dances-
tími frá X Factor þar sem Máni og
Hara-systur munu leiða gesti
áfram í fjörugum dansi. Þá verður
Batuka-líkamsræktarkerfið kynnt
sem er blanda af kickbox og salsa.
Það kemur frá Spáni þar sem það
var byggt upp fyrir spænska X Fac-
tor-þátttakendur. Fit Pilates, Soft-
ball, Crossfit og meðgönguleikfimi
verða einnig á dagskránni svo og
Eurovison-þrektími og Thriller,
dans- og þolfimitími með einföld-
um sporum við lög Michaels Jack-
sons. Hann kennir Neil Bates sem
hefur tvisvar verið kjörinn besti
kennari ársins í Bretlandi.
Þaulreynd Unnur steig fyrst inn í líkamsræktarstöð 12 ára gömul.
Svitnað og púlað í nafni Krafts undir tónum Páls Óskars
Fjölbreytt dagskrá
á Fusion Fitness
➤ Annað árið í röð taka Fusionog World Class höndum sam-
an um að styrkja gott mál-
efni.
➤ Batuka-líkamsræktarkerfið erblanda af kickbox og salsa og
notað til að koma spænskum
X Factor-keppendum í form.
➤ Endalaust hægt að finna hug-myndir að nýrri líkamsrækt.
FUSION FITNESS
Nú er um að gera að rífa
sig upp úr haustlægðar-
doðanum og byrja að æfa
af fullum krafti. Á Fusion
Fitness-hátíðinni gefst
tækifæri til að prófa
fjölda mismunandi lík-
amsræktartíma og verður
gleðin sett í fyrsta sæti.
24stundir/Valli
Þegar rútínan fer aftur af stað eftir sumarfrí getur
verið erfitt að koma sér í gang. Hjá mörgum eru
þyngsli og leiði tímabundið ástand en hjá sumum get-
ur ástandið orðið alvarlegra. Það er mikilvægt að hlúa
vel að sjálfum sér og kunna að þekkja einkenni sem
gætu bent til þess að til einhverra ráða þurfi að grípa.
Breytingar á persónuleika
Viðvörunarbjöllur gætu hringt ef viðhorf þitt til
vinnunnar hefur breyst til muna á nokkrum mán-
uðum og ef þeim sem standa þér næst þykir þú hafa
breyst mikið eða þeir hafa áhyggjur af velferð þinni.
Sífelld veikindi geta líka verið merki þess að ekki sé allt
með felldu á sálinni svo og óeðlilegt þyngdartap eða
-aukning. Einnig ef þú hefur átt erfitt með svefn eða
þurft mun meiri svefn en venjulega svo og ef kynþörf
þín hefur minnkað verulega. Hafir þú fundið fyrir ein-
hverju af ofantöldu má nota ýmsar leiðir til að laga og
létta skapið. Hlustaðu á hugsanir þínar og ef þær
hljóma neikvæðar hugsaðu þá vandamál þín upp á
nýtt, hvað olli þeim og hvort þú getir ekki hætt að láta
þau angra þig. Einnig er mikilvægt að stunda reglulega
hreyfingu því það hefur góð áhrif á hugann. Ef allt um
þrýtur getur verið nauðsynlegt að leita utanaðkom-
andi hjálpar.
maria@24stundir.is
Rútínan getur valdið leiða og doða
Endurhugsaðu vandamálin
Hjálp Ýmsar aðferðir má nota til að losna við leiða.
Ég kynntist Aloe Vera vörunum árið 1999 og hafði þá
til margra ára átt við ristil og magavandamál að stríða.
Aloe Vera Gel drykkurinn í stuttu máli leysti þann vanda
strax. Ég hef verið dreifingaraðili æ síðan og upplifað
margan batann hjá þeim sem hafa nýtt sér þessa
frábæru vöru. GAJ
ALOE VERA GEL
Nánari upplýsingar á www.4ever.is
Sjálfstæður dreifingaraðili FLP. Guðmundur A Jóhannsson Sími. 662-2445
Fyrir allar konur sem elska salsa,
mambó og chacha. Frábær suðræn tónlist, góðar æfingar með
þaulreyndum kennara í fjölskylduvænu umhverfi.
Ertu með nýfætt barn
og vilt koma þér Í FYRRA FORM
á heilsusalegan hátt?