24 stundir - 23.09.2008, Qupperneq 19
24stundir ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 19
Eftir Ragnhildi Sigurðard.
rs@24stundir.is
Herdís er ekki ókunn sviðinu en
frá því hún var lítil stúlka á Ísafirði
hefur tónlistin skipað ríkan sess í
lífi hennar og fjölskyldu hennar.
Hún lærði á píanó og fiðlu í Tón-
listarskóla Ísafjarðar og steig einnig
á svið við uppsetningu leikrita og
söngleikja strax á unga aldri. Frá
Ísafirði lá leið hennar til Reykjavík-
ur þar sem hún tók BA-gráðu í
söng frá LHÍ en því næst hélt hún
utan til að sérhæfa sig í óperusöng.
Fjölbreytt verkefni
Herdís segist hafa fundið mikið
frelsi í listsköpun sinni við að fara
til Berlínar. Hún segir þau verkefni
sem hún vinni við fjölbreytt og fara
út fyrir mörk hefðbundinnar óp-
eru.
„Í skólanum er til dæmis leik-
stjórnardeild sem kemur með hug-
myndir að ýmsum nýstárlegum
uppsetningum og prófar sig áfram
með að brjóta upp formið,“ segir
Herdís og bætir við að það sé mjög
í takt við það sem sé að gerast í
Berlín um þessar mundir.
„Hér er nánast allt leyfilegt. Berl-
ín er mikil umbrotaborg og hér er
mikið af ungu fólki með ferskar
hugmyndir.“
Lifandi borg
Hún segir einnig gott að búa í
borginni. „Þetta er lifandi staður
og jafnframt mikil gróska og auð-
velt að drífa hlutina áfram.“
Fyrir vikið gefast tækifæri fyrir
ungt fólk sem er að hefja feril sinn
en um leið meira krafist af henni
um að fara út fyrir mörkin og
stuðla þannig að nýsköpun.
Sem dæmi um eftirminnilegar
og óhefðbundnar sýningar nefnir
hún Parsifal eftir Richard Wagner
sem sýnd var í Neuköllner-óper-
unni. „Við brutum alla óperuna
upp og gerðum hana að samfélags-
ádeilu, tókum til að mynda fyrir
útlendingahatur,“ en Neuköllner-
óperan er einmitt til húsa í hverfi
sem margir Tyrkir byggja. „Í Leð-
urblökunni söng ég líka Adele og
þurfti að boxa í aríunni minni,“
bætir hún við.
Langar að starfa í Berlín
Um framtíðarplön segist Herdís
hugsa sér að starfa áfram í Berlín
en þó togi ræturnar líka. „Ég er ný-
komin að vestan og langaði mest
að flytja aftur þangað,“ segir hún í
nostalgíutón. „Ég hyggst samt
dvelja þar sem tækifærin til að
starfa við óperu gefast.“
Spurð hvort hún elski sviðið
neitar hún því ekki en aðspurð
hvort það sé stóra ástin í lífi hennar
hlær hún bara en bætir þó við að
það skipi vissulega stóran sess í lífi
hennar um þessar mundir.
Herdís snýr brátt aftur til Berl-
ínar en landanum gefst þó tækifæri
til að heyra söng hennar á hádeg-
istónleikum í Fella- og Hólakirkju í
dag kl. 12. Þar koma einnig fram
Hrólfur Sæmundsson barítón og
Hilmar Örn Agnarsson organisti. Á
dagskránni verður íslensk tónlist
eftir Atla Heimi Sveinsson (afmæl-
isbarn), Hjálmar H. Ragnarsson og
fleiri.
Herdís Anna Jónasdóttir nemur óperusöng í Berlín
Boxað í óperunni
Herdís Anna Jónasdóttir
er ungur Ísfirðingur sem
nemur óperusöng við
Hanns Eisler-tónlist-
arháskólann í Berlín. Hún
glímir þar við verk gömlu
meistaranna sem og að
feta ótroðnar slóðir í
spennandi heimi óper-
unnar.
Acis og Galatea
eftir Händel Herdís í
hlutverki Galateu.
➤ Óperan lifir góðu lífi í Berlín.Helstu óperuhúsin eru: Die
Deutsche Oper Berlin, Die
Komische Oper Berlin og Die
Staatsoper Unter den Linden.
➤ Einnig má nefna StaatsballettBerlin og Der Bühnenservice.
MENNINGARBORG
Nýjar vörur
Kjólar toppar og pils
Suðurlandsbraut 50
(Bláu húsunum Fákafeni)
www.gala.is • S:588 9925
Opið 11-18 og 11-16 lau.
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í
Reykjavík, RIFF, er nú að fara í
hönd og hefst 25. september næst-
komandi og stendur til 5. október.
Þetta er í fimmta sinn sem hátíðin
er haldin og fer hún vaxandi ár
hvert. Á heimasíðu hátíðarinnar
www.riff.is, er hægt að lesa sér til
um myndirnar sem sýndar verða
og höfunda þeirra.
Margt áhugavert er á dagskrá og
er þetta kjörið tækifæri fyrir kvik-
myndaunnendur til að sjá þver-
skurð mynda víða að í heiminum.
Erlendar verðlaunamyndir í fullri
lengd skipa flokk sem kallast Fyrir
opnu hafi og gefur þar að líta
myndir sem í mörgum tilfellum
yrðu ekki sýndar á Íslandi ef hátíð-
arinnar nyti ekki við. Einnig verður
sýndur fjöldi stutt- og heimilda-
mynda, íslenskar sem og erlendar.
Af íslenskum myndum má nefna
myndina Rafmögnuð Reykjavík
sem er heimildamynd eftir Arnar
Jónasson og stuttmyndirnar Smá-
fugla eftir Rúnar Rúnarsson og All-
ir mættir eftir Maríu Guðmunds-
dóttur svo eitthvað sé nefnt.
Sýningar fara fram í Regnbogan-
um, Iðnó og Norræna húsinu.
Passi á allar myndir hátíðarinnar
kostar 7000 kr en einnig er hægt að
kaupa staka miða. Ýmislegt fleira
er á dagskrá í tengslum við hátíð-
ina svo sem umræður við höfunda
og aðstandendur myndanna sem
sýndar eru og tónleikar. Einnig
verður hægt að fara bílabíó í
Kringlunni 28. september.
Sigurmynd hátíðarinnar hlýtur
titilinn „Uppgötvun ársins“ og
Gullna lundann að launum. Við
lok hátíðarinnar verða einnig veitt
áhorfendaverðlaun við skemmti-
lega athöfn, en fólk getur greitt at-
kvæði sitt á mbl.is.
rs
Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst á fimmtudaginn
Úrval gæðamynda
Víkingur Heiðar Ólafsson pí-
anóleikari ætlar að koma Atla
Heimi Sveinssyni tónskáldi á óvart
þegar hann flytur verk hans Gloríu
á tónleikum í Listasafni Íslands í
kvöld. Þetta eru lokatónleikar á há-
tíðinni sem haldin er til heiðurs
Atla Heimi í tilefni af sjötíu ára af-
mæli hans. „Ég breyti auðvitað
ekki verki Atla en geri það aðeins
öðruvísi enda gefur verkið mögu-
leika á því að túlkunin verði mín,“
sagði Víkingur í samtali við 24
stundir. „Gloría er afar skemmti-
legt einleiksverk, eins konar píanó-
messa þar sem fjallað er um söng
englanna þegar Jesús fæddist, enda
er Atli Heimir mjög kaþólskur,“
sagði Víkingur ennfremur.
Auk einleiksins leikur hann
undir með söngvurunum Bergþóri
Pálssyni, Sólrúnu Bragadóttur og
Ágústi Ólafssyni en hann segist
aldrei fyrr hafa leikið undir hjá
þeim.
„Mér hefur þótt undirbúningur
fyrir þessa tónleika mjög skemmti-
legur og gaman að vinna með
þessu fólki. Þar fyrir utan fyllist
maður þjóðerniskennd þar sem
ljóð Einars Benediktssonar eru
flutt við lög Atla og þau eru öll svo
gjörólík,“ segir Víkingur.
Þá verður frumflutningur á
verkinu Útsæ sem Sólrún Braga-
dóttir flytur.
Fleira þekkt tónlistarfólk kemur
fram á tónleikunum og má þar
nefna Eydísi Franzdóttur sem leik-
ur á óbó, Bryndísi Höllu Gylfadótt-
ur sem leikur á selló og Camillu
Söderberg sem leikur á tenór-
blokkflautu.
Tónleikarnir hefjast klukkan
20.00 í kvöld í Listasafni Íslands og
kostar 1.500 krónur inn en 750 fyr-
ir eldri borgara og námsmenn.
elin@24stundir.is
Víkingur kemur á óvart
Flytur verk Atla Heimis á tónleikum
LÍFSSTÍLL
lifsstill@24stundir.is a
Berlín er mikil umbrotaborg
og hér er mikið af ungu fólki
með ferskar hugmyndir.
At og aðrar sögur er ný bók sem
Mál og menning hefur gefið út.
Þar eru samankomnar sextán
nýjar og spennandi draugasögur
fyrir börn frá níu ára aldri.
Bókin kemur út í tengslum við al-
þjóðlegu barnabókahátíðina
Draugur úti í mýri sem haldin er
í Norræna húsinu og er afrakstur
smásagnasamkeppni sem Forlag-
ið og barnabókahátíðin Mýrin
stóðu fyrir fyrr á þessu ári.
Fyrstu verðlaun hlaut sagan At
eftir Guðmund Brynjólfsson,
önnur verðlaun fékk Kristín
Helga Gunnarsdóttir fyrir söguna
Rauða húfu og Iðunn Steinsdóttir
hlaut þriðju verðlaun fyrir sög-
una Allra sálna messu.
Draugasögur
fyrir börn
Andinn í
borginni
Bókin Andi Reykjavíkur eftir
Hjörleif Stefánsson arkitekt er
komin út hjá JPV-útgáfu. Í bók-
inni er fjallað um bygging-
arsöguleg einkenni Reykjavíkur.
Skoðað er hvað hefur farið miður í
þróun borgarinnar og hvers vegna
umhyggja fyrir miðbænum gagn-
vart sögulegu hlutverki hans hafi
ekki verið í samræmi við gildismat
sem hæfir menningu landsins.
Texti bókarinnar er beinskeyttur
og höfundur dregur ekkert und-
an og er gagnrýninn á núverandi
ástand borgarinnar. Að mati
Hjörleifs er ástandið í borginni
vægast sagt skelfilegt og hverjum
manni augljóst að eitthvað hefur
farið úrskeiðis.
menning