24 stundir - 23.09.2008, Síða 20

24 stundir - 23.09.2008, Síða 20
Eftir Einar Jónsson einarj@24stundir.is Kennarar, skólastjórnendur og annað starfsfólk í leikskólum og grunnskólum Garðabæjar, alls um 350 manns, sóttu á föstudag fræðslufund um samskipti í skóla- starfi. Fyrirlesari og leiðbeinandi var Sigrún Aðalbjarnardóttir, pró- fessor í uppeldis- og menntunar- fræði við Háskóla Íslands. Sigrún fjallaði meðal annars um hvað starfsfólki finnst einkenna góð samskipti starfsfólks og nemenda. „Þeir kennarar sem ég hef talað við nefna traust, virðingu, væntum- þykju og öryggi. Þeir leggja áherslu á við nemendur að þeir treysti þeim, að það ríki gagnkvæm virð- ing, að nemendur finni að kenn- urunum þyki vænt um þá og að skapa öryggiskennd. Mér finnst einmitt birtast í þessu umhyggja fyrir velferð nemenda,“ segir Sig- rún. Einnig fjallaði hún um hvað góð samskiptahæfni skiptir miklu máli í lífinu og benti meðal annars á að börn sem sýni betri samskipta- hæfni líði betur, nái betri náms- árangri og neyti síður vímuefna. Umræður mikilvægar Í kjölfarið fór Sigrún inn á leiðir til að efla samskiptahæfni nem- enda. „Þar sem við höfðum ekki nema einn dag ákvað ég að taka að- eins einn þátt fyrir sem mér er mjög annt um en það eru umræð- ur,“ segir Sigrún sem lagði til dæm- is áherslu hvernig best sé að taka á ágreiningi og árekstrum. „Ég gaf dæmi um hvernig við getum tekið mjög markvisst á ágreiningsmálum með því að nota ákveðnar spurn- ingar sem laða fram hugsun nem- endanna. Áherslan hjá mér er að þroska hugsun nemendanna þann- ig að þeir átti sig á orsökum og af- leiðingum gerða sinna,“ segir Sig- rún og bætir við að þar skipti máli að fá nemendur til að setja sig í spor annarra. Sigrún leggur áherslu á að kenn- arar og aðrir sem vinna með börn- um og ungmennum gefi sér tíma til slíkrar umræðu. „Ég held að þetta sé spurning um forgangsröð- un. Auðvitað þarf kennarinn líka að hafa trú á að umræðurnar skili árangri því að annars ver hann ekki tíma sínum í þær,“ segir Sigrún og bætir við að umræðurnar megi ekki verða of langar því að börnin þreytist fljótt. „Það er heilmikil list að stýra svona umræðum en það er líka mjög gefandi,“ segir Sigrún sem er ánægð með fundinn. „Það var afskaplega ánægjulegt og gef- andi að vinna með starfsfólki skól- anna þennan dag.“ Öll börn fá að blómstra Ragný Þóra Guðjohnsen, for- maður forvarnanefndar Garða- bæjar, segir að fræðslufundurinn sé liður í stóru, heildstæðu verkefni sem unnið sé að í bæjarfélaginu. „Leiðarljós forvarnastefnu Garða- bæjar er að öll börn eigi að fá tæki- færi til að blómstra. Við hugum að því hvernig við getum hagað vinnu með börnum þannig að það fái örugglega allir að blómstra þó að við séum misjöfn og styrkleikar okkar liggi á mismunandi sviðum,“ segir Ragný Þóra og bætir við að mikilvægt sé að þeir sem vinni með börnum stígi allir í takt. „Það er búið að leggja mikla vinnu í það hjá sveitarfélögunum að búa til skólastefnu, fjölskyldustefnu og forvarnastefnu en þessar stefnur virka ekki nema fólkið sem er á vettvangi með börnunum alla daga sé meðvitað um það og við ræðum svolítið það sem við erum að gera,“ segir Ragný Þóra að lokum. Samskipti í skólastarfi Sigrún Að- albjarnardóttir, Margrét Björk Svav- arsdóttir, Ragný Þóra Guðjohnsen og Ragnhildur Inga Guðbjartsdóttir. 350 skólastarfsmenn sóttu námskeið um samskipti í skólastarfi Þarf gagnkvæma virðingu Allir starfsmenn skóla Garðabæjar sóttu á dög- unum fræðslufund um samskipti starfsfólks og nemenda. Þar var meðal annars fjallað um gildi góðrar samskiptahæfni og hvernig best sé að taka á ágreiningsmálum. ➤ Í október verður sams konarnámskeið haldið fyrir þá sem vinna með börnum og ung- mennum utan skóla. ➤ Námskeiðið tengist bókinniVirðing og umhyggja – Ákall 21. aldar eftir Sigrúnu. Henni hefur verið dreift til þeirra sem starfa með börnum og ungmennum í Garðabæ. NÁMSKEIÐIÐ 20 ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 2008 24stundir Vika símenntunar er nýhafin en markmið hennar er að auka sí- menntun í atvinnulífinu og hvetja fólk til að leita sér þekkingar alla ævi. Sérstök áhersla er lögð á fræðslu í fyrirtækjum og að ná til þeirra sem hafa litla formlega menntun. Hápunktur vikunnar er hinn ár- legi símenntunardagur í fyrirtækj- um og stofnunum sem haldinn er á morgun, miðvikudaginn 24. sept- ember. Fyrirtæki eru hvött til að tileinka þann dag fræðslumálum, til dæmis með því að kynna starfs- mönnum fræðslustefnu fyrirtækis- ins, bjóða upp á námskeið eða fá kynningar frá fræðsluaðilum, stétt- arfélögum eða styrktarsjóðum. Jafnframt verða haldnir fundir og málþing í tilefni vikunnar. Menntamálaráðuneytið stendur fyrir viku símenntunar í samstarfi við símenntunarstöðvar á lands- byggðinni, Mími-símenntun og Framvegis á höfuðborgarsvæðinu. Nánari upplýsingar um Viku sí- menntunar má nálgast á vefsíðu menntamálaráðuneytisins www.menntamalaraduneyti.is. einarj@24stundir.is Vika símenntunar stendur sem hæst Áhersla á fræðslu í fyrirtækjum Fyrirtækjafræðsla Áhersla er lögð á fræðslu í fyrirtækjum í viku símenntunar. Á Íslandi var stærri hluti þjóð- arinnar innritaður í formlegt nám en í nokkru öðru landi Efna- hags- og framfarastofnunarinnar (OECD), eða 30,3%, árið 2006. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu stofnunarinnar um menntamál. Innritunarhlutfall í fræðilegt há- skólanám var það næsthæsta inn- an OECD og voru konur 60% ný- nema, sem er hæsta hlutfall OECD. Hærra hlutfall kvenna innritaði sig í vísindagreinar við háskóla en annars staðar og af þeim sem útskrifuðust með æðri há- skólagráðu var meira en helm- ingur konur. Í grunnskóla voru að meðaltali 18 nemendur í hverjum bekk og rúmlega tíu nemendur á hvern kennara, en innan OECD er með- altalið 13,5 nemar á kennara. Ís- land varði stærri hluta af sinni landsframleiðslu til menntamála en nokkurt annað land OECD, eða 8%, sem er 18% af heildar- útgjöldum hins opinbera. Stutta samantekt úr skýrslunni má nálgast á vef Hagstofu Ís- lands, www.hagstofa.is. ej Ísland og önnur lönd OECD Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra kynnir nýja menntastefnu á fundi í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja í Reykja- nesbæ í kvöld kl. 20. Fundurinn markar upphaf fundaraðar um land allt þar sem stefnan verður kynnt. ej Menntastefna í Reykjanesbæ LÍFSSTÍLL lifsstill@24stundir.is a Þeir leggja áherslu á við nemendur að þeir treysti þeim, að það ríki gagnkvæm virðing, að nemendur finni að kennurunum þyki vænt um þá og að skapa öryggiskennd. menntun Vísindavaka RANNÍS verður haldin föstudaginn 26. september í Listasafni Reykjavíkur við Tryggvagötu kl. 17-22. Dagurinn er tileinkaður evrópskum vís- indamönnum og haldinn hátíð- legur í helstu borgum Evrópu. Markmiðið með Vísindavöku er að kynna fólkið á bak við rann- sóknirnar og viðfangsefni þess. ej Vísindavaka Af fyrirlestrinum Námskeiðið tengist bókinni Virðing og umhyggja - Ákall 21. aldar. 24stundir/Valdís

x

24 stundir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 24 stundir
https://timarit.is/publication/307

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.