Eintak - 21.04.1994, Page 2
Férgötu-
0 Vara-fréttastjórar súrir á DV 0 Tilvonandi glasabarnaforeldrar teknir út úr meðferð vegna verkfalls meinatœkna
sopurum
ekki að líöa
einsogþeir
séumeð
mamfatt
morðá
bakinu, Arí?
„Nei, það held ég ekki, enda
koma einungis þeir til greina sem
ekki hafa hlotið meira en 3 mán-
aða óskilorðsbundinn dóm. Sam-
félagsþjónustan er talin heppileg
viðurlög til dæmis við auðgunar-
brotum, skjalafalsi og nytjastutdi."
Hvaða störf verða fangarnir
látnir inna af hendi?
„Það á eftir að ræða það enda
tóku lögin aðeins gildi fyrir tveim-
ur dögum. En þau störf verða val-
in sem teljast likleg til að vekja
samfélagslega ábyrgð hjá mönn-
um og þroska með þeim jákvæð-
ari viðhorf til samfélagsins fremur
en að vera grundvöllurinn að því
að þeir fremji afbrot. Erlendis hafa
fangar til dæmis verið látnir að-
stoða við fornleifagröft. “
Kastar þetta ekki rýrð á þá at-
vinnugrein sem fangarnir verða
látnir i?
„Nei, það er engin ástæða til að
ætla það. Þetta eru það vægir
dómar sem menn hafa fengið. “
Af hverju takið þið til þess ráðs
að beita samfélagsþjónustu?
„Þetta er refsiúrræði sem rétt er
að gera tilraun með. Tilraunin
stenduryfir frá 1. júlí 1995 til árs-
loka 1997. Næsta ár notum við til
undirbúnings. Það þarf til dæmis
að taka tillit til ástandsins á vinnu-
markaðinum. “
Hve lengi á hver og einn að
vinna?
„ Um það bil 40 stundir á mánuði. “
Er tekið tillit til þeirrar mennt-
unarsem fangamir hafa?
„Ekkert frekar, en það verðurað
sjálfsögðu lagt mat á möguleika
hvers og eins. Þetta er tilraun
með ný refsiúrræði sem er nauð-
synlegt til að byggja upp nútíma-
legt fangelsiskerfi sem fullnægir
þeim kröfum sem samfélagið gerír
um öryggi en er um leið mannúð-
legt. “
Ari Edwald, aðstoðarmaður Þor-
steins Pálssonar dómsmálaráð-
herra, vann að breytingum á fmm-
varpi um samfélagsþjónustu fanga
sem gert var að lögum á þingi í
vikunni. Einnig unnu þau Haraldur
Johannessen og Margrét Frí-
mannsdóttir að breytingunum en
frumvarpið var fyrst lagt fram fyrir
fjórum árum síðan.
Dómur í fyrsta
kvótakaupa-
málinu átti að
liggja fyrir í þessari
viku hjá Héraðsdómi
Reykjaness. Nú lítur hins vegar út
fyrir að dómurinn frestist um viku
þar sem dómari hefur óskað eftir
frekari skýrslugerð í málinu. Forysta
Sjómannasambandsins er ekki
ánægð með þessa frestun og telur
að öll gögn málsins liggi Ijós fyrir
enda málflutningi lokið. Hér er um
mál Guðmundar Siguðjónsson-
ar, háseta á Guðfinni KE, að ræða,
OQEÐFELLDASTA
FRÉTT
VIKWNNAR
Skíta-
lyktin ti!
Japan
Ógeðfelldustu frétt vikunnar má
finna í viðtali við fjórtán ára stúlku
á unglingasíðu Morgunblaðsins í
gær. Þegar stúlkan, Björg Hanna
Eiríksdóttir, er spurð hvernig það
sé að vera unglingur í dag kemur
eftirfarandi svar:
„Það er svo ömurlegt, að maður
finnur skítalyktina til Japan. Ég er
ekki að grínast, það má ekki neitt.
Maður má ekki reka við, þá er ein-
hver farinn að skipta sér af. Við fá-
um ekkert frelsi, við getum ekki
komið hugmyndum okkar fram,
eða skoðunum. Við eigum bara að
vera eins og einhverjar dúkkur sem
sitjum á rassinum og kinkum kolli.
Það er ógeðslega illa farið með okk-
ur og ekkert tillit tekið til okkar. Og
fullorðnir geta ekki búist við því að
við berum virðingu fyrir þeim þeg-
ar þeir bera enga virðingu fyrir
okkur. Það er bara ekki hægt.“
Sá heimur sem þessi unglings-
stúlka lýsir er sérstaklega ógeðfelld-
ur. I raun fallast manni hendur og
spyr hvað sé til ráða. Og það hefur
komið yfir blaðamann Morgun-
blaðsins sem spyr hverju Björg
Hanna vilji breyta í þjóðfélaginu.
Og þá kemur í ljós hver er rót þessa
svarta ástands.
„Snobbinu. Ég hata snobb. Ef
maður er öðruvísi en aðrir, klæðir
sig öðruvísi eða er öðruvísi um hár-
ið, er maður bara eitthvað skrýtinn,
er í vondum félagsskap, er vand-
ræðabarn eða eitthvað álíka. Ef
maður er eitthvað öðruvísi, er
maður bara svarti bletturinn í lak-
inu.“
Ógeðfellt. Afskaplega ógeðfellt,
þetta snobb.©
LOF
LAST
en þvinguð þátttaka hans í kvóta-
kaupum útgerðarinnar leiddi til
þess að hátt í 300.000 krónur voru
dregnar af hásetahlut hans. Það er
Arnmundur Backman sem flytur
málið fyrir hönd Sjómannasam-
bandsins og aðalkrafan er að Guð-
mundur fái framangreinda upphæð
endurgreidda...
Innan DV mun mismikil ánægja
vera með ráðningu Guðmundar
Magnússonar í stöðu frétta-
stjóra, en hann hefur undanfarin tvö
ár verið settur þjóðminjavörður í
fjarveru Þórs MagnúSSónar.
Ékki er þó að efast um hæfileika
Guðmundar, en hann var á árum
áður blaðamaður á Dagblaðinu,
Tímanum og Morgunblaðinu og
leysti þar meðal annars af sem
fréttastjóri innlendra frétta. Aftur á
móti þykir ýmsum blaðamönnum
DV súrt í brotið að sóttur sé maður
utan blaðsins þegar menn á borð
við SlGURDÓR SlGURDÓRSSON og
Óttar Sveinsson hafi beðið
góða hríð í röðinni...
Verkfall meinatækna kemur illa
við alla starfsemi heilbrigðis-
kerfisins sem síst má við
auknum útgjaldaliðum nú þegar
niðurskurðarraddir eru hvað hávær-
astar. Á glasafrjóvgunardeild Land-
spítalans er öll starfsemi í lama-
sessi vegna verkfallsins og stöðva
hefur þurft lyfjameðferð fjölda para
sem voru í meðferð á deildinni.
Einnig hefur verið frestað með-
höndlun þeirra sem hugðust byrja
meðferð eftir að verkfallið hófst en
biðtíminn vegna hennar er um það
bil tvö og hálft ár. Lyfjakostnaður
fyrir hvert par er á bilinu 60-70 þús-
und króna og því er Ijóst að veru-
legar fjárupphæðir fara hér í súginn.
Mörg paranna hafa auk þess tekið
sér fri frá vinnu. Að sögn Þórðar
Óskarssonar, yfirmanns glasa-
frjóvgunardeildarinnar, kippa svona
uppákomur starfsgrundvellinum
undan deildinni, sem má sís.t við
því nú í kjölfar skoðanakönnunar
landlæknis, þar sem flestir að-
spurðra voru sammála um að skera
bæri niður hlutdeild opinberra aðila
við glasafrjóvganir...
Hönnunarsamkeppni hleypt af stokkunum
vegna lýðveldisafmælisins
Þjóðbúningu
fyrir íslensl
karlmenn
Þjóðræknisfélag íslendinga hefur hleypt af stokkunum samkeppni
um hönnun á þjóðhátíðarbúningi fyrir íslenska karlmenn. Félagið
stendur fyrir keppninni í samvinnu við Myndlistar- og handíðaskóla
íslands, Iðnskólann í Reykjavík, Þjóðminjasafn Islands,
menningardeild utanríkisráðuneytisins, og Ríkisútvarpið.
Til samkeppninnar er stofnað í tengslum við 50 ára afmæli
lýðveldisins en aðstandendum hennar þykir forkastanlegt að
hingað til hefur kvenfólk landsins einungis getað státað af sér-
stökum þjóðbúningi. Þjóðernissinnaðir karlmenn hafa fram að þessu
þurft að láta sér nægja að fagna tímamótum í einhvers konar norsk
færeyskum samtíningi sem samanstendur af púffermaskyrtu, poka-
buxum og sportsokkum, en þar er ekki um opinberan þjóðbúning
að ræða. Árni Björnsson þjóðháttafræðingur segir að sér þyki
þetta skelfileg hugmynd. „Mér finnst þetta kjánaleg og yfir-
borðsleg sainkeppni," segir hann. „Fyrst kynbræður okkar og
forfeður höíðu ekki manndóm í sér til að halda við þjóðbún
ingi fyrr á öldum þá finnst mér ekki ástæða til þessa tilbún
ings. Allt svona sem er ekta er sprottið upp af þörf og mér
finnst hún ekki vera til staðar núna.“
Gcetirþú þá ekki hugsað þér að klæðast svona búningi?
„Nei, ekki nema ef ég þyrfiti að flippa út.“
Samkeppnin er öllum opin og ber þátttakend-
um að koma teikningum í lokuðu umslagi
merktu dulnefni til Þjóðernisfélags íslands, Aðal-
stræti 2 Reykjavík fyrir 24. maí næstkomandi. Með
teikningunni skal fýlgja vinnuteikning af framhlið
og bakhlið búningsins og sýnishorn af gerð efnis, lit og
áferð þess. Ef um höfuðfat og aðra fýlgihluti er að ræða skulu
sem nákvæmastar upplýsingar um slíkt fylgja.
I fréttatilkynningu vegna samkeppninnar er sagt að óskað sé
eftir fatnaði sem er í senn stílhreinn og þægilegur, og nýtist sem
viðhafnarbúningur en auk þess leitist hönnuðir við að láta smekk
samtímans kallast á við fortfð okkar og menningararfleifð þjóðar-
innar.
Sjö manna dómnefnd undir forsæti Sævars Karls Ólafssonar
mun velja tíu athyglisverðustu tillögurnar en á sérstöku hátíðarkvöldi
á Hótel Borg á sjómannadaginn 5. júní, fá áhorfendur tækifæri til að
greiða þeim búningi atkvæði er þeim finnst best henta til þessa brúks. At-
kvæði áhorfenda mun gilda til hálfs á móti dómnefndinni.
Sá hönnuður sem verður hlutskarpastur fær 200 þúsund krónur í verð-
laun auk ferðar á íslenska hönnunarsýningu í Design Museum í London þar
sem búningarnir verða sýndir. Saumastofan Sólin og Verslunin 17 eru styrkt-
araðilar að keppninni en hugmyndin er að þeir karlmenn er girnast
gripinn geti lagt inn pantanir og fengið þær afgreiddar fyrir há
tíðarhöldin á Þingvöllum 17. júní.
Aðstandendur keppninnar vænast þess að framtak þetta
verði íslenskri fatahönnun og fatnaði lyftistöng, og ef vel
tekst til muni íslenskir karlmenn eignast þjóðbúning sem eft
irsóknarvert þykir að klæðast við sem flest tækifæri. ©
... fær Pétur H. Blöndal fyr-
ir að bjóða sig fram i kjöri
til bankaráðs íslandsbanka
sem fulltrúi almennra hlut-
hafa. Orri Vigfússon var
keyptur yfir i klúbb stóru
hluthafanna og nú kemur
Pétur eins og oft áður til
bjargar. Hann á heiður skil-
inn fyrir að berjast ótrauð-
ur við stóru kallana með
hagsmuni litla mannsins
að leiðarljósi. Gallinn er
bara sá að það hefur ítrek-
að sýnt sig að gullgæsirnar
vilja ekki sjá ríka, Ijóta and-
arungann í sínum félags-
skap.
... fær Sig-
björn Gunn-
arsson, al-
þingismað-
ur og for-
maður fjár-
laganefnd-
ar, fyrir að
láta Sigurð
Þórðarson, ríkisendurskoð-
anda, komast upp með það
að afhenda ekki skýrslu
Rikisendurskoðunar um
sölu ríkisins á SR-mjöli.
Stofnunin heyrir beint und-
ir alþingi og því á ekki að
láta Sigurð komast upp
með neitt múður. Sigbjörn
beit höfuðið af skömminni
með þvi að bera fyrir sig að
fjárlaganefnd vildi ekki að
deilan um skýrsluna yrði til
að spilla góðum samskipt-
um nefndarinnar við Ríkis-
endurskoðun. Menn eiga
að vita hvenær þeir eiga að
berja i borðið.
STELLINQ VIKUNNAR
Gleðilegt sumar-stellingin. Ágæt til brúks á
grasinu á Austurvelli einhvern þeirra
þriggja sólardaga sem er að vænta í sum-
ar. Virkar bæði þegar maður er leiður á
mannlífinu og kýs frekar að horfa til
sólar og eins þegar einhver vill ná
tali af manni. Þá liggur maður í
grasinu og horfir tómur á svip-
inn á manninn sem nennir að
standa í lappirnar á þessum
drottins dýrðar degi.
2
FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994
0 JÓN ÓSKAR