Eintak

Útgáva

Eintak - 21.04.1994, Síða 17

Eintak - 21.04.1994, Síða 17
Hversu oft og hversu mikið, hversu gott og hversu fjölbreytt, hversu margir og hversu gamlir, hversu skrýtið og hversu fábreytt? Hvað er gott og hvað er vont, hvað er æsandi og hvað er bannað, hvað má og hvað má ekki? Einhvern veginn á þennan hátt reyndu 100 Is- lendingar sem EINTAK rétti spurningaeyðublað að greina frá kynlífi sínu. Niðurstöðurnar eru hér. Það sem fólki finnst gott - og ekki alveg eins gott 20% 40% 60% 80% Munnmok Mök á opinberum stöðum Binda eða vera bundinn Endaþarmsmök Kynlif með þremur Framhjáhald Sofa hjá besta vini maka Nota klamefni Nota hjalpartæki S/M kynlíf Hopreið QlNTAK 01994 Þeir sem svöruðu spurningum EINTAKS um kynlíf sitt voru flestir ungir og enn að og allir höfðu þeg- ar byrjað þótt í misjöfnum mæli væri. Og lang lang flestum fannst það gott, skipta miklu máli og ætl- uðu helst ekki að hætta. En þó fannst einstökum það ekkert sér- stakt á sama hátt og sumum fannst það skipta öllu máli, svo miklu máii að þeir óttuðust helst að komast ekki yfir það í þessu lífi — óttuðust að áhugaleysi, getuleysi eða óffam- færni félaganna stæði í veginum. En þótt margt hafi verið ólíkt með kynlífi þessa fólks, bæði af- stöðu þeirra til þess og afrekaskrá, þá var margt sameiginlegt. Eitt af því var að fæstir höfðu staðið á gægjum né fannst mikið til þeirrar íþróttar koma. En það er einmitt það sem við ætlum að gera. Við ætlum að gægjast á kynlíf þessa fólks. Ekki lifa allir spennandi kynlífi Það skal tekið strax fram að ef þetta fólk hefur rétta sýn á eigið kynlíf þá kann það ekki að vera svo ýkja spennandi að liggja á gægjum. Aðeins 53 prósent karla í sambúð gaf kynlífi sínu einkunnirnar skemmtilegt eða spennandi og að- eins 37 prósent einhleypra karla. Hlutfallið hjá konunum var svipað. 53 prósent kvenna í sambúð býr við skemmtilegt eða spennandi kynlíf en aðeins 28 prósent einhleypra kvenna. Flestir hinna lifa við eitthvað sem þeir kalla venjulegt kynlíf. Aðrir eru ver settir. 21 prósent karla í sambúð finnst þeir ekki fá nægjanlegt kynlíf út úr lífinu og 29 prósent ein- hleypra karla. Því til viðbótar sagði 5 prósent hinna einhleypu að ekk- ert kynlíf væri til staðar í lífi sínu. Á móti sagði sama hlutfall karla í sambúð að þeir lifðu við of mikið kynlíf — svo af því má sjá að kynlíf- ið getur verið, eins og svo margt annað, ýmist í ökkla eða eyra. Inn- an við tíu prósent karla, bæði með- al sambands-manna og einhleypra, gáfu kynlífi sínu síðan einkunnina; afbrigðilegt. Það voru helst einhleypu kon- urnar sem sögðust ekki fá nægju sína af kynlífi og var það tæpur þriðjungur. Aðeins tæp tíu prósent giftra kvenna kvörtuðu undan því sama, svo eitthvað hafa karlar og konur í samböndum misjafnar skoðanir á því hvað er nægjanlegt kynlíf og hvað ekki. EINTAKI tókst ekki að finna neina konu í sam- bandi sem fannst kynlíf sitt hreint og beint leiðinlegt. Þannig svöruðu hins vegar tæp tíu prósent hinna einhleypu, en enginn karl. Án þess að ætlunin sé að fara út í einhverja sjúkdómsgreiningu hér, kann það einmitt að vera ástæðan fýrir leið- indum kvennanna, að hafa engan karl að njóta þeirra með sér. Karlar betri elskhugar En ef einhverjum þykir súrt að kyngja því að kynlíf þessa fólks er ekki meira spennandi en raun ber vitni skal sá huggaður með því að svo þarf alls ekki að vera. Það telur sig nefnilega flest góða elskhuga og sumir jafnvel ffábæra. Ef eigin einkunnum þessa fólks skal trúað hefúr guð komið því þannig fyrir að karlmenn eru al- mennt betri elskhugar en konur. Þannig sagðist fjórðungur þeirra vera hreint ffábærir elskhugar á meðan rétt rúm tíu prósent kvenn- anna gáfú sjálfúm sér þá einkunn. En þar sem ívið hærra hlutfall kvenna sagðist vera góðir elskhugar þá er munurinn á milli kynjanna minni þegar borið er saman þeir sem eru annað hvort góðir eða ffá- bærir. Karlarnir hafa þó enn vinn- inginn með tæp 70 prósent á móti rúmum 60 hjá konum. Kannski er það vegna mikillar bólfimi annarra kynbræðra sinna að það er algengara meðal karla en kvenna að telja sig slaka eða jafnvel Fleiri vilja Björk en Ólöfu Rún Ein af þeim þrautum sem lagðar voru fyrir þátttakendur í könnun- inni var að velja hvorri þeir vildu heldur sofa hjá, Ólöfu Rún Skúla- dóttur, fréttakonu, eða Björk Guð- mundsdóttur, söngkonu. Bæði kynin þurftu að svara. Konumar gátu litið svo á að um afarkosti væri að ræða. í stuttu máli kusu fleiri að hafa Björk með sér í bólið. Af báðum kynjum sögðust 76 prósent vilja Björk en 24 prósent Ólöfu Rún. Ólöf Rún fékk skárri útkomu með- al karlanna. Af þeim sögðust 36 prósent taka hana fram yfir Björk. Og bakland Ólafar em karlamir í sambúð því 43 prósent þeirra sögðust frekar vilja sænga með Ólöfu en Björk en aðeins 28 pró- sent einhleypra. Af þessu má sjá að Björk var vinsælli meðal einhleypra karia en þeirra sem vom í sambúð. Og það sama var uppi á teningnum hjá konunum. Af einhleypum konum sögðust 95 prósent kjósa sér Björk fremur en Ólöfu Rún á með- an 82 prósent kvenna í sambúð voru þeirrar skoðunar. © FIMMTUDAGUR 21. APRÍL 1994 17

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.