Eintak - 05.05.1994, Qupperneq 2
Sigrún
© L.A. Café hefur útfluting á íslensku veitingahúsa-viðskiptaviti til Thailands © Jón Magnússon ver sig í Hcestarétti
© Franski brennuvargurinn hljóp yfir blaðamenn DV án þess að þeir tœkju eftir honum
Nú er L.A. Café
að færa út kví-
arnar í næsta
mánuði því þá
stendur til að opna
samnefndan stað í
Thailandi. Jósteinn KristjAnsson
og félagar hafa undirbúið þetta mál
að undanförnu en staðurinn verður
á Pattya-ströndinni, einum vinsæl-
asta ferðamannastað landsins. ís-
lenskur kokkur mun sjá um mat-
seldina á staðnum og einn annar
íslenskur starfsmaður verður þar,
en að öðru leyti verður starfsfólkið
innlent. Svipað og við Frakkastíginn
verður L.A. Café í Thailandi sam-
bland af veitingastað, dansstað og
bar...
laðamaður og Ijós-
myndari DV sem sendir
voru upp í Elliðavatns-
hverfi I upphafi síðustu viku
hljóta að teljast seinheppn-
ustu menn ársins. Blaðinu
hafði borist ábending um að
Steingrímur NjAlsson héldi
til í hrörlegum kofa á þessum
slóðum og var ætlunin að ná tali
af manninum. Þegar þeir bönkuðu
upp á kom viðskotaillur náungi til
dyra sem reyndist ekki vera Stein-
grímur og þeir hurfu á braut. Hvor-
ugur þeirra kveikti á
perunni með það að
þarna var Bernard
Granotier á ferð,
Frakkinn sem
. eftirlýstur var fyr-
ir brunann í hús-
! næði Bahá’ía.
Þremur dögum
síðar fann RLR
manninn í kofan-
um. DV missti því af
því sem hefði getað
orðið frétt ársins
hjá blaðinu. Þeir
gátu hins vegar
notað myndina
sem þeir tóku í
ferðinni við
tilkynningu um
handtöku Granoti-
er. Þessi
frammistaða
félaganna hefur
ekki kætt
fréttamannshjarta
JÓNASAR
KristjAnsson...
Akemur, 10. maí,
verður málflutn-
ingur fyrir Hæstarétti í
máli ákæruvaldsins
gegn Jóni Magnússyni
hrl. og fleirum fyrir fjár-
svik gagnvart Málningu
hf. Málið snýst um inn-
heimtu Jóns og annara
á skuldabréfi sem gefið
var út á Málningu en
reyndist síðar vera fyrir-
tækinu óviðkomandi...
LOF
LAST
PAÐ VÆRI TILQANQSLAVST...
' að gera úlfalda
úr mýflugu
ur
að keyra sjálfan
sig niði
/ uppnami ut
af skolastióra
Myndlistaskólans
Úrslit kosningar milli umsækj-
enda um stöðu skólastjóra
Myndlista- og handíðaskóla
íslands veldur mikilli ólgu í
myndlistaheiminum.
Á fundi Sambands íslenskra myndlistamanna í gær-
kvöldi sagði Hannes Lárusson formaður Félags ís-
lenskra myndlistamanna sig úr félaginu og þar með af
sér embætti í mótmælaskyni við niðurstöðu skólaráðs
Myndlista- og handíðaskólans um það hver eigi að
verða næsti skólastjóri skólans.
I fyrradag var kosið í ráðinu milli umsækjenda um
stöðu yfirmanns skólans. Umsækj-
endur voru firhm': Ásrún Krist-
jánsdóttir, Daði Guðbjörnsson,
Gunnsteinn Gíslason, Gunnar
Árnason og Hannes Lárusson.
Margir töldu miklar líkur á því
að Gunnar Árnason yrði fyrir val-
inu, en skólaráðið var ekki á því. Sá
sem fékk flest atkvæði var Gunn-
steinn Gíslason. Hlaut hann yfir-
gnæfandi stuðning ráðsins, sex at-
kvæði, en Gunnar fékk tvö og
Hannes Lárusson eitt. Mörgum
myndlistamönnum þykir Gunn-
steinn ekki heppilegur kandídat í
starfið og benda á að Gunnsteinn sé
ekki virkur listamaður, hafi síðast
sýnt opinberlega fyrir mörgum ár-
um. Gunnsteinn er lektor við Kennaraháskólann og hef-
ur kennt myndlist við Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
Eftir að niðurstaða skólaráðs lá fyrir hefur sú kenning
komist á flot meðal óánægðra myndlistamanna að aðil-
ar frá skólanum hafi leitað til Gunnsteins og beðið hann
um að leggja inn umsókn. Þetta hafi fyrst og fremst ver-
ið gert til þess að koma í veg fyrir að yngri og framsækn-
ari menn kæmust að. Vilja ungir listamenn jafnvel
kveða svo hart að orði að ýmsir kennarar, sem þeir kalla
kerlingar af báðum kynjum, hafi óttast um sinn hag ef
annað hvort Hannes eða Gunnar fengju starfið. Þetta
séu kennarar sem séu búnir að vera svo lengi við skól-
ann að þeir eru komnir með „lyktandi legusár", séu
dauðhræddir við allar breytingar og vilji því halda
óbreyttu ástandi.
Þessi hörðu viðbrögð myndlistamanna af yngri kyn-
slóðinni endurspegla þann klofning sem hefiir verið í
listaheiminum síðustu tuttugu ár eða svo. Og orð Hann-
esar í yfirlýsingu sinni þegar hann sagði af sér í gær-
kvöldi undirstrika að mikill hiti er í mönnum:
„Það er ekkert launungarmál, að um þessar mundir
hefur þessi ágreiningur verið staðfestur með svo skýrum
andstæðum að með ólíkindum er ef að listaheimurinn
og SÍM, sem er hinn félagslegi samnefnari hans, ætlar nú
eins og stundum fyrr að bregða fyrir sig „þagnarlyginni“
svo ég vitni í orð Gunnars Dal.“ ©
Gunnsteinn
Gíslason
Hlaut yfirgnæf-
andi stuðning
ráðsins, sex at-
kvæði.
Hannes Lárusson FORMABUR
FÉLAGS ÍSLENSKRA MYNDLISTAMANNA
sagði sig úr félaginu, og þar með af sér emb-
ætti, i mótmælaskyni við niðurstöðu skólaráðs
Myhdlista- og handiðaskólans um það hvereigi
að verða næsti skólastjóri skólans. Þetta gerðist
á fundi Sambands íslenskra myndlistamanna í
gærkvötdi.
STELLINQ
AR
... fær Steingrimur Her-
mannsson Seðlabanka-
stjóri fyrir að hafa afþakk-
að biðlaun frá Alþingi. Úr
því Steingrímur hefur nú
bæst í hóp þeirra sem af-
þakkað hafa biðlaun að
undanförnu verður sjálf-
sagt engum stætt á að
þiggja þau hér eftir.
... færJón Baldvin Hanni-
balsson utanríkisráðherra
fyrir að hafa staðið í þeirri
trú að hann hafi gulltryggt
þyrluflota fyrir íslendinga
en fá síðan einhvern David
Daley ofursta í hausinn til
að segja okkur undan og
ofan af því hvernig við-
skiptin fara fram á notuð-
um hergögnum.
Satt-aö-segja-veit-ég-ekki-hvað-kom-yfir-mig-stell-
ingin. Notuö í tilraunum til varna án þess þó að
leggjast flatur fyrir framan viðmælandann. Höfuðið
látiö drjúpa og horft beint niður á tærnar. Það sýn-
ir vissa iðrun. Hægri hendin notuð til að gefa orð-
unum aukna merkingu. Það sýnir málsvörn. Sígar-
etta milli vísifingurs og löngutangar. Það sýnir
viljann til að fremja verknaðinn jafnvel aftur.
Þetta er þvi stelling málsvarnarinnar málsvarn-
arinnar vegna. Henni fylgir aöeins létt sam-
viskubit og iðrun til skrauts og yndisauka.
Sigrún Magnúsdóttir situr í
borgarráði sem samþykkti í
vikunni að sækja um að
Reykjavík verði gerð að
menningarborg Evrópu árið
2000. Ráðherraráð Evrópu-
sambandsins ákveður hvaða
borg verður fyrir valinu.
Einskisnýtt
doktorspróf
Ógeðfelldasta frétt vikunnar er
af ummælum Steingríms Her-
mannssonar, nýskipaðs Seðla-
bankastjóra,
um sjálfan
sig og
reynslu
sína. Stein-
grímur
reyndi að
verja skipun
sína í stöðu L
bankastjóra. Æ
Hann ræddi
um þing-
mannsstarf-
ið og sagði
meðal ann-
ars:
„Ég hef
stundum sagt að ég tel að það sé á
við mörg háskólapróf, meira að
segja á við doktorspróf í hagfræði.”
Þrátt fýrir að þessi ummæli
dæmi sig sjálf eins og flest önnur
ummæli Steingríms höfðu þátta-
gerðarmenn í Dagsljósi fyrir því að
láta fimm þingmenn þreyta lítið
próf í hagfræði sem Jón Daníels-
son, hagfræðingur í Háskólanum
sauð saman. I stuttu máli féllu fjór-
ir af fimm. Og það þrátt fýrir að
spurningarnar væru ekki þungar.
Dæmi: Þingmennirnir vissu
ekki að verðbólga eykst efvextir
lækka. Þeir vissu ekki að atvinnu-
leysi eykst í kjölfar kauphækkana.
Þeir vissu ekki að hlutfall sjávaraf-
urða í þjóðarframleiðslunni er 16
prósent heldur völdu frekar 26,36
og jafnvel 46 prósent. Og þeir gátu
heldur ekki rétt til um erlendar
skuldir íslendinga á hvert manns-
barn eða um það hversu mikið við-
skiptabankarnir hafa lagt til hliðar
á afskriftarreikninga. Það er því ef
til vill ekki skrítið þótt þeir hafi
flaskað á því hver munurinn væri á
M2 og M3 en það er einmitt bund-
in innlán.
Fákunnátta þingmannanna
er náttúrlega ógeðfelld. En nú
kann vel að vera að Stein-
grímur hafi haft rétt fýrir sér.
Ef til hefðu hagfræði-
doktorar ekki staðið
sig neitt betur. Það
er enn ógeðfelldara.
Nei, það er ekki skilyrði fyrir því
að Reykjavík verði valin menning-
arborg Evrópu.
Afhverju var ákveðið
að sækja nú um að Reykjavik
hlyti þennan titil?
Okkur fannst ákveðin fyrirhyggja
felast íþvien þegar margir keppa
um titilinn er náttúrlega óvíst
hvort Reykjavík verður fyrir valinu.
Veistu við hvaða borgir
þið keppið?
Nei, ekki ennþá.
Hvaða menningarviðburði
i Reykjavík verður lögð
áhersla á?
Það hefur enn ekki verið ákveðið.
Mér finnst við aftur á móti hafa af
ýmsu að státa og það hefur vakið
athygli erlendis hvað við höldum
uppi öflugu menningarlifi hér. Ég
er því ekki i vafa um að við getum
staðið undirþessu.
Hvað kostar þetta okkur?
Þetta er ekki komið á hreint enda
ekki enn farið að vinna að þeim
málum.
Er undirbúningurinn
ekki hafinn?
Við höfum aðeins samþykkt
að senda inn umsóknina fyrir
þvíað Reykjavík verði gerð að
menningarborg Evrópu.
Lengra höfum við ekki kom-
ist.
OQEÐFELLDASTA
FRÉTT
VIKUNNAR
2
FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994
© JÖN QSKAR