Eintak

Tölublað

Eintak - 05.05.1994, Blaðsíða 4

Eintak - 05.05.1994, Blaðsíða 4
UNDARLEQ VERÖLD HILMARS ARNAR Af eyjaskeggjum Flughafnir skipa sérstakan sess í lífi mínu. Ef ég er á heimleið hef ég undantekningalaust gleymt að taka rakvélina með mér utan og er undantekninga- laust kominn með skegg og undantekningalaust verð ég fyrir aðkasti drukkinna íslenskra góðborgara sem kalla mig Aðalstein og vilja diskútera myndlist. Áður fyrr reyndi ég að leiðrétta misskilninginn, með misjöfnum árangri þó, en núna síðustu árin hef ég látið þá bjóða mér upp á glas og hvísla síðan að þeim að losa sig við Kjarvalana, Schevingana og Erróana og íjárfesta í því sama og allir sænsku og hollensku millarnir sem ég hef verið að hitta og nefni síðan nöfn góðra vina minna í myndlistageiranum. En þegar ég millilendi einhvers staðar og missi undantekningalaust af tengifluginu enda ég undan- tekningalaust innan um Japani sem brosa sætt til mín og ég sætt á móti og þá er mér boðið að sitja hjá þeim og síðan förum við í kurteisiskeppni sem end- ar yfirleitt á því að ég skelli fríhafnarhvannarótinni, sem ég ætlaði einhverjum öðrum, á borðið og eftir smástund er ég farinn að yrkja hækur og þeir/þau að syngja „Yfir kaldan eyðisand“ hreimlaust. Síðan taka við heimspekilegar umræður þar sem ég segi klökkur að tvær eyþjóðir sem elski lítil skondin ljóð og hafi sömu hefðir varðandi heiður og hetjuskap, svo ekki sé minnst á fiskinn og hvalkjöt- ið, þessar tvær þjóðir hljóti að eiga svo ótrúlega mikla samleið. Þeir/þau svara: „Skoh ísrand!“ og klingja glösum og ég lýg síðan sögum af frægu fólki því mér þykir ekkert eins skemmtilegt eins og að heyra Japanska karlmenn segja „0-ohr“ ofan í gaupnir sér þegar þeir átta sig á því að gæjínarnir séu nú annars bölvað pakk — nema ef vera skildi að heyra Japanskar konur segja „Aaaaiiieeee“ þegar þær átta sig á því að goðin þeirra eru mannleg og ég geri þau ávallt ó-svo-mannleg og breysk. Ég hef það fyrir satt að margar þessarar sagna minna séu orðn- ar hluti af borgarþjóðsagnahefð þeirra fyrir austan og mér skilst að sagan sem ég sagði um leynilegt hjónaband Timothy Dalton og Boy George sé komin með marga epíska viðauka sem ég bíð spenntur eftir að fá að heyra. En yfirleitt enda þessar samkundur á trúnaðar- stiginu þar sem ég játa ósigra mína á sviði Zen hug- leiðslu, þar sem Roshíinn hafði meiri áhuga á því að fara í klámbrandarakeppni við mig en berja mig til uppljómunar og Bodhisattva með bambuspriki og þeir/þau svara að svona séu þeir allir þessir andlegu kennarar og spyrja mig síðan feimnislega hvort ég geti svarað nokkrum einföldum spurningum um hamingjuna og tilgang lífsins. Þegar hér er komið við sögu er ég yfirleitt kominn í innblásið þoku- kennt ástand og er yfirleitt ekki ábyrgur orða minna — enda eyði ég gjarnan næstu dögum í að reyna að sökkva þessum þætti flughafnarsetunnar ofan í dul- vitundina. En ég verð að viðurkenna að ég fékk smá sjokk þegar ég las frétt um daginn sem segir frá nýjum sér- trúarsöfnuði í Japan. Söfnuðurinn heitir Taisokyo og hefur nú yfir tvær milljónir áhangenda. Safnað- armeðlimir verða að hlæja að öllu: flóðum, hung- ursneyðum og hörmungum og gætu þurft að sæta brottrekstri ef þeim finnst ekkert fyndið við dauða og eyðileggingu. Jarðarfarir þykja sérstök skemmt- un: „Við hendum rjómakökum í andlit syrgjandi fjölskyldumeðlima,“ segir safnaðarmeðlimurinn Nansui Kita. „Við teiknum yfirvaraskegg á andlit þess látna og kveikjum jafnvel í kistunni ef við erum í nógu góðu skapi.“ Þetta er haft eftir fréttum í Tucson [AZ] Daily Star og Europa Times og þessar fréttir birtust ekki fyrsta Apríl. Nú veit ég að mér er mjög gjarnt að ræða um hamingju og gleði og að gefa skít í eymd og volæði — en ég vona innilega að ég hafi ekki haft neitt með þetta að gera. En þegar ég hugsa til þess hversu auðveldlega fólk keypti söguna mína um ónafngreindan bítil, nunnuna syngjandi og Dóbermannhundinn þá fæ ég pínupons samviskubit. Bara til vonar og vara. 0 Fimmtudagurinn 20. apríl Ég veit ekki með hann Árna. Auðvitað er hann skárri en gufan hann Markús en ég veit ekki samt. Hann tuðar eitthvað um dag- vistun, mýkt, fjölskylduna og er farinn að hljóma elns og Anna Ólafsdóttir Björns- son. Ef fólk vill kjósa Önnu vill það miklu heldur kjósa Ingibjörgu Sólrúnu Og þegar maður veltir því fyrir sér þá eru þeir sem eru tilbúnir að kjósa Önnu allt eins til í að kjósa Markús. Það vantar allan kraft í þennan mann. Enda fiskar hann akkúrat ekkert í skoð- anakönnunum. „Yfirt)oðarar mínir báðu mig að sýna ekki myndina,“ segir Hinrik Bjarnason Föstudagurinn 21. apríl Ég hringdi í Kjartan og ræddi við hann um bága stööu flokksins (Reykjavfk. Ég sagði að við þyrftum að gera eitthvað t[l að breiða yfir teþruskapinn og væmnina í Árna. Það var eins og ég hefði kveikt (Kjartani. Hann byrj- aði strax að tala um að það þýddi ekki að láta helvítis minnihlutaflokkanna komast upp með að kenna sig við Reykjavík. Hann sagðist ætla að kæra þetta tíl yfirkjörstjórnar. Gamli góði Kjartan. Alltaf sami refurinn. Laugardagurinn 22. apríl Ég var svo viss um að Kjartan mundi láta verða af þessu að ég fór í bæinn og missti það út úr mér að við værum aö hugsa um að kæra Reykjavíkurlistann. Sumum fannst þetta tittlingaskítur, öörum örvæntingarfullt. Mér var sama. Ég fann að mönnum fannst ég vera aö segja þeim fréttir úr innsta hring. Sunnudagurinn 2J. apríi Ég var heima í dag. Ég þoli ekki fyrsta maí. Maður getur ekki gengið um bæinn án þess að slysast inn í einhverja helvftis kröfugöng- una. Ég man enn eftir því þegar ég var að labba Austurstrætiö rétt fyrir 1980 og fann mig allt í einu umkringdan Ara Trausta og EIK-urum á leið út á Hallærisplan aö halda fund. Mér leið eins og ég stæði nakinn inni í miðjum kvennaklefa. Þetta kröfugöngufólk er fólk sem mér kemur ekki við og ég vil helst ekki vita af. Mánudagurinn 24. apríl Mér var sagt að Ögmundur Jónasson heföi gert ráðningar Elínar Hirst á Stöð 2 og Guðmundar Magnússonar á DV að um- ræðuefni á fyrsta maí. Ef til vill er ég orðinn meyr en ég gat ekki annað en vorkennt mann- inum. Lá honum virkilega ekkert annað á hjarta þennan hátíðisdag verkalýðsrekenda. Vantar hann ekki launahækkun, styttri vinnu- tfma, meiri atvinnu, fleiri félagslegar íbúðir, fleiri dagvistunarpláss, lægri vexti eða neitt af því sem vanalega er vælt eftir á þessum degi? Þriðjudagurinn 25. apríl © Bíódagar komnir í alheimsdreifingu © Sjónvarpsáhorfendur misstu af spennandi lokakafla í atskákmótinu © Samvinnuferðir að uppfylla samninginn sem skrifstofan var svo mikið á móti Hinrik Bjarnason „Ég ætla ekki að nafngreina þá einstaklinga en ég geri mér grein fyrir mætti þess- arar myndar." Hverjir voru það sem óskuðu þess að myndin yrði ekki sýnd? „Ég ætla ekki að nafngreina þá einstaklinga en ég geri mér grein fyrir mætti þessarar myndar. Ef þú átt við hvort mínir yfirboðarar hafi talað við mig þá gerðu þeir það en það var ekki í formi fýrirskipana.“ Hvað kostar sýningarréttur- inn d svona mynd? „Það er sennilega urn 130 þúsund krónur fyrir utan text- unina. Exorcist verður ekki sýnd á næstunni; við geymum hana í bili.“ Þú átt samt von á að fyrr eða síðar fari hún í loftið? „Já, mér finnst það líklegt. Þó vil ég ekki fúllyrða það.“ © að vinna Helga Ólafsson og vera með mun betri stöðu þegar hann og Hannes Hlífar féllu samtímis á tíma, en úr því verður jafntefli. Síð- astur tefldi Margeir Pétursson við Karpov og náði að halda vel í við hann. Þegar aðeins voru um 30 sekúndur eftir leit út fyrir að Karpov ætlaði að knýja fram jafntefli með þráskák. En þá virtist hann skyndi- lega eygja vinningsmöguleika og fór að tefla eins og óður maður. Þetta var augnablikið sem stjórn- andi útsendingar valdi til að klippa burt frá skákborðinu og sýna áhorf- endum andlitsmyndir af keppend- um og yfirlitsmyndir úr áhorfenda- salnum. Loks var sagt að Margeir hefði gefið og Karpov unnið, en enn þann dag í dag veit enginn hvernig hann fór að því... Við sögðum fyrir skömmu frá undrun starfsmanna Ríkis- spítalanna yfir því að vera skikkaðir til að kaupa farseðla hjá Samvinnuferðum-Landsýn og ýms- um kenningum um ástæðu þess. Ástæðan fyrir þessu mun vera sú að Ferðaskrifstofa stúdenta gafst upp á að standa við samning sem skrifstofan gerði við ríkið í félagi við Úrval-Útsýn og Ferðaskrifstofu Is- lands. Þessi samningur var gerður í kjölfar útboðs ríkisins þar sem þessar ferðaskrifstofur gáfu eftir hluta af umboðslaunum, en slíkt mun stangast á við alþjóðlegar reglur í þessum bransa. Og á sínum tíma gagnrýndi Helgi Jóhannsson þetta útboð ríkisins meðal annars sökum þess að í því var það gert að skilyrði að flogið væri með Flug- leiðum. Hann taldi hægt að ná betri kjörum með öðrum flugfélögum en situr nú uppi með hluta samnings — og SlGHVAT Björgvinsson og hans fólk... .egar |ís- lensk- um kvik- myndagerð- armönnum hefur tekist að selja myndir sínar til dreifingar í útlöndum hefur sá háttur yfirleitt verið hafður á að einstök lönd og svæði kaupa dreif- ingarréttinn. Einn aðili kaupir til dæmis réttinn til að dreifa myndinni í Þýskalandi en annar réttinn fyrir Spán. Núna á dögunum gerðist það hins vegar að svissneska fyrir- tækið Christarsaredi keypti heimsdreifingarréttinn á Bíódögum, kvikmynd Frið- riks Þórs Friðrikssonar. Bendir það eindregið til þess að nokkuð sé í mynd- ina spunnið ... að var nokkuð énubbóttur endir á atskákmótinu í sjón- varpinu á mánudagskvöld þar sem Anatólí Karpov tefldi við þrjá ís- lenska stórmeistara. Skákirnar höfðu allar verið frekar tíðindalitlar og Karpov sýndi styrk sinn með því Ég blaðaði í Mannlífi í dag og fannst það frek- ar vont blað þar til ég rakst á stuttaralejja grein um þau Ingibjörgu Sólrúnu og Arna Sigfússon. Þar var sagt frá því að þrír menn væru helstu ráðgjafar Arna: Björn Bjarna Kjartan Gunnars og ég. Hjartað (mér tók kipp. Það er orðið svo langt síðan ég hef les- ið um mig í þessu hlutverki. Hlutverki hins hljóðláta áhrifamanns. Maður sem hefur áhrif á áhrifamenn. Ég fékk strax meira álit á blaða- mönnum Mannlífs. Þeim tókst að sjá út áhrif mfn á Árna jafnvel þótt hvorki ég né hann hafi gert það. En ekki ætla ég að gera athuga- semdir. Miðvikudagurinn 20. apríl Ég hitti mann f dag sem hafði lesið það sama og ég í Mannlffi. Hann talaði til mín af þeirri virðingu sem ég hef fundið fjara út á undan- förnum mánuðum. Á meðan hann skaut ýmsu á loft og reyndi aö ráða í svipbrigði mín velti ég því fyrir mér hvaðJJavíð hefði í raun gert fyrir mig. Og hvort Árni væri ef til vill ekki Ifklegri til stórræða til lengri framtíðar. Við háskólamenn getum nefnilega leyft okkur að hugsa miklu lengra fram í tfmann en stjórn- málamenn. Við sjáum sprotana, hlúum að þeim, sjáum þá vaxa og fáum ef til vill að sinna fræðum okkar undir greinum þeirra í ellinni. Það eru bara skáldin sem geta ort viö grafir. Síðastliðið laugardagskvöld stóð til að sýna kvikmyndina Exorcist eða Sceringamanninn í Ríkisjónvarpinu en hún var gerð árið 1973 og er tímamóta- verk í sögu hryllingskvik- mynda. Kvikmyndaáhuga- mönnum að óvörum var myndinni fyrirvaralaust kippt út af dagskrá og ömurleg form- úlumynd sem hét Revenge eða Hefndin sýnd í staðinn. I Sœr- ingamanninum segir frá 12 ára stúlku sem verður skyndilega haldin illum anda og prestur er fenginn til að særa hann úr stúlkunni. Þrátt fyrir að sögu- þráðurinn sé ævintýralegur er myndin mjög sannfærandi og heldur áhorfendum í spennu frá upphafi til enda. Exorcist fékk Óskarsverðlaun fyrir handritið og Maltin gefur henni þrjár og hálfa stjörnu. Sýning mynd- arinnar átti að hefjast eftir miðnætti og aug- NAFNSPJALD VIKUNNAR lýst var að hún væri stranglega bönnuð börnum innan 16 ára og viðkvæmt fólk varað við að horfa á myndina. EINTAK leit- aði til Hinriks Bjarnasonar dagskrárstjóra fyrir erlent sýn- ingarefni Sjónvarpsins til að grennslast fyrir um ástæður þess að hætt var við sýningu myndarinnar. „Ja, við bara skiptum um mynd þarna. Við nánari athug- un fannst mér heppilegra að sýna aðra mynd.“ Hvað fannstþér að myndinni? „Ég vil nú ekkert tjá mig um það. Mér fannst bara heppi- legra að sýna hana ekki á þess- um stað.“ Var ekkert sérstakt sem olli því? „Jú, það voru ýmis viðtöl við fólk sem ég tek mark á. Ég var HÁRGRÆÐSLA Rf-GFNCY C'RQWN - Hair l..o$s Advísory Cíinic Fœrir hársrœtur þangað sem þeirra er þörf BALDUR GUNNARSSON Umbóð og ráðgjöf Kennarar í starfi hjá hinu opinbera hafa löngum kvartað yfir lágum launum. Sumir hafa gripið til þess ráðs að fá sér aukavinnu og drýgja þannig tekjurnar. Nafnspjaldseigand- inn þessa vikuna er einmitt í þessari stöðu. En hann er ekki í tveimur vinnum heldur þremur. Baldur Gunnarson kennir bókmenntir við heimspekideild Háskóla ís- iands, hann er rithöfundur og hefur skrifað þrjár skáldsögur, Völundarhúsið, Granda café og Með manna- bein í maganum, og síðast en ekki síst berst hann við hækkandi kollvik og hártap. Þetta ber þó ekki að skilja sem svo að Baldur sé sjálfur að tapa hárinu — þvert á móti, hann skartar miklum Ijósum makka — en hann er í því göfuga starfi að færa þeim mönnum aftur hár sem hafa orðið fyrir þeirri ógæfu að tapa því. Baldur er nefnilega umboðsmaður Regency Crown Hair Loss Advisory Clinic sem á íslandi gengur undir nafninu Hárgræðsia. Fyrirtæki þetta „færir hársrætur þangað sem þeirra er þörf“ og árangurinn ætti að vera góður því á nafnspjaldinu er þessi yfirlýsing gefin: „Við lofum því ekki bara - við ábyrgjumst það.“ ekki beittur neinum þrýsingi heldur tók einfaldlega ákvörð- un um það sem dagskrárstjóri. Ég met ábendingar fólks um breytingar á dagskránni eins og efni standa til og reyni að bera hagsmuni íjöldans fyrir brjósti. Það er mjög sjaldan sem breytt er fýrirhugaðri dagskrá vegna þess að ef um atriði af þessu tagi er að ræða þá hefúr yfirleitt þegar farið fram umræða um þau innan stofnunarinnar. Um Exorcist var náttúrlega búið að segja eitt og annað áður en hún var sett á dagskrá og margt fólk hafði samband við mig vegna fyrirhugaðar sýningar myndar- innar. Svo þver er ég ekki að vera ekki máður til að taka hana út að minnsta kosti um stundar sakir. Um Exorcist vil ég einungis segja það að myndin er tíma- mótaverk og hafði bæði al- menn áhrif og líka áhrif á kvik- myndalistina því hún var undan- fari margra mynda sem snertu okkúlt- isma. Þetta er líka mynd sem hafði viðhorf margra andans manna. Ég minn- ist sérstaklega umræð- unnar innan kaþólsku kirkjunnar um það emb- ættisverk að reka út illa anda. Þannig snerti myndin við ýmsum tabú- áhrif 4 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.