Eintak

Tölublað

Eintak - 05.05.1994, Blaðsíða 6

Eintak - 05.05.1994, Blaðsíða 6
Byggingarnefnd Reykjavíkurborgar Hirðir ekki um að innheimta dagsekbr Lögð hefur verið fram tiliaga I byggingarnefnd Reykjavíkur um að sekta eigendur bílastæðakjallarans að Hafnarstræti 7 um 3,5 milljónir króna vegna þess að gerð hans er enn ekki lokið rúmum áratug eftir að húsið reis. Byggingarnefnd hefur áður samþykkt að beita eigendurna dagsektum sökum seinagangs við að koma kjallaranum í notkun en ekki fylgt þeirri samþykkt eftir. Eig- endur þessa kjallara og hússins sem hann tilheyrir eru erfingjar Stein- dórs heitins Einarssonar sem átti samnefnda leigubílastöð í miðbæn- um, en meðal þeirra eru Guðrún Steindórsdóttir, Einar Péturs- son og Steindór Pétursson. Auk þess eiga Síldarverksmiðjur ríkisins hluta af húsinu. Um helmingur hússins stendur á lóðinni Tryggva- götu 26 en hún er skráð í eigu Steindórs Haarde, Geirs H. Ha- arde og Önnu Haarde. Húsið var hannað af Steindóri Haarde og byggt á árunum 1980 til 1983. Hilm- ar Guðlaugsson formaður bygg- ingarnefndar segir að farið verði í Kosningabaráttann er komin á fullt fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar i Hafnarfirði. Kvennalistinn sótti um til bæjaryfir- valda að fá að nota Strandgötu 45 fyrir kosningaskrifstofu sína en svör við fyrirspurninni bárust ekki fyrr en eftir dúk og disk og þá var þeim tjáð að Alþýðuþandalagið hyggðist nota húsið. Alþýðubandalagið er meö skrifstofu við hliðina á Strand- götu 45 og þótti kvennalistakonum einkennilegt að það þyrfti svona mikið þláss fyrir starfssemi sína. Þegar þær spurðust fyrir um það hjá Alþýðubandalaginu kom í Ijós að flokkurinn hafði ekki tekið Strandgötu 45 á leigu. Strandgata 45 hefur í gegnum tíðina verið köll- uð Hollywood vegna forhliðar húss- ins en þegar kvennalistakonur settu sig aftur í samband við bæjarstjórn vegna þessa „misskilnings" var þeim tjáð að húsið yrði rifið á næstu dögum og lóðin notuð undir bílastæði fyrir Hafnarborg. Kvenna- listakonum finnst öll meðferð þessa máls einkennileg því nóg er fyrir af bílastæðum fyrir Hafnarborg og telja þær að einhver öfl innan bæj- arstjórnarinnar vinni að því að reyna að gera þær ósýnilegar í kosningabaráttunni. Til að bæta gráu ofan á svart hefur þeim nú verið úthlutað húsnæði í portinu að Strandgötu 50 og í stað þess að vera Hollywoodstjörnur í kosninga- baráttunni kalla gárungarnir þær nú portkonurnar sín á milli... Isíðasta EINTAKI var greint frá tíðum mannabreytingum í stjórnunarstöðum hjá Kaup- þingi. Sigurlaug Hilmarsdóttir starfsmannastjóri Kauþþings svar- aði þessu á þá leið að um eðlilegan hlut væri að ræða sökum þess að markaðurinn tæki sífelldum breyt- ingum og væri á fleygiferð. Sjálf er Sigurlaug á ferð þessa dagana því hún er hætt hjá Kaupþingi og hefur ráðið sig sem fjármálastjóra Brauðs hf... málið og séð til þess að bætt verði úr. Það er Gunnar H. Gunnarsson einn fulltrúa minnihlutans í bygg- ingarnefnd sem leggur fram tillög- una og leggur jafnframt til að lagð- ar verði 5000 króna dagsektir á eig- endurna ef bílastæðakjallarinn verður ekki kominn notkun fyrir 1. júlí næstkomandi en í kjallaranum er gert ráð fyrir stæðum fyrir 21 bíl. I greinargerð með tillögunni seg- ir Gunnar: „Á undanförnum árum hef ég haft frumkvæði að því innan byggingarnefndar Reykjavíkur að fylgst verði með því að bílgeymslur sem sýndar hafa verið á samþykkt- um byggingarnefndarteikningum yrðu ekki teknar til annarra nota og einnig að þær yrðu kláraðar þannig að þær nýttust í raun sem bíl- geymslur. Afstaða meirihlutans til þessara mála hefur einkennst af áhugaleysi og, ef brotlegir aðilar voru dregnir fram í dagsljósið, af mér eða emb- ættismönnum byggingarfulltrúa, af dæmalausu langlundargeði gagn- vart þeim flestum enda oít ekki um neina „meðal-Jóna“ að ræða. Hvað mildustum höndum hefur meiri- hlutinn farið um eigendur bíla- stæðakjallarans undir Hafnarstræti 7 því hann hefúr ekki enn verið tek- in í notkun eftir öll þessi ár.“ Gunnar segir ennfremur í grein- argerðinni að honum hafi næstum tekist árið 1989 að fá meirihlutann í nefndinni til að knýja eigendur kjallarans til að ganga frá honum. Þá hafi verið skrifað bréf þess efnis að nefndin hafi ákveðið að beita eigendurna dagsektum frá 10. apríl 1989 ef bílastæðakjallarinn yrði ekki kominn í notkun þá. Þessu hafi ekki verið fylgt eftir. Sektarupp- hæðin 3,5 milljónir króna byggist á framreiknuðum algengum dagsekt- um frá 10. apríl 1989 er þær námu 2000 krónum á dag. Tveir fornbílar og bil- aður Benz Gunnar H. Gunnarsson segir í samtali við EINTAK að hann hafi Hafnarstræti 7 Ekki er búið að ganga frá bílageymslunni íkjallara hússins þrátt fyrir að rúmlega áratugur sé liðinn frá þvíþað reis. 1 i í iS&fáék' 1 1 í TÍ I'r'H §y| 1 Jj m \ iFP 1IJ f j talið að þetta mál væri komið í höfn árið 1989 í kjölfar samþykktar bygginganefndar. Hann hafi hins- vegar ekki getað fylgt málinu eftir þá sökum þess að hann veiktist og gat ekki setið fundi nefndarinnar í nokkra mánuði. Er hann fór að kanna málið nýlega kom í ljós að nær ekkert hafði verið gert við kjallarann utan að setja þar upp lyftu og vísi að eldvarnabúnaði. Kjallarinn væri alveg ónothæfur þar sem meðal annars skorti loft- ræstingu í hann og því væri bein- línis hættulegt að nota hann sem bílageymslu. Þar væru nú geymdir tveir fornbílar og einn bilaður Benz. „Það má segja að ekkert hafi Dregist hefur f áratug að koma bíla- geymslu í gagnið undir Hafnarstræti 7 verið hreyft við framkvæmdum þarna frá árinu 1989 þegar lyftan var sett upp og hluti af eldvarna- kerfinu,“ segir Gunnar. Vildu kaupa sig út Á sínum tíma óskuðu eigendur Hafnarstrætis 7 þess að fá að kaupa sig undan bilastæðakvöðinni en þeirri ósk var hafnað í byggingar- nefhd. í dag er hægt að fara þessa leið ef byggingarnefndin fellst á slíkt og verður viðkomandi þá að borga tæplega 450 þúsund krónur fyrir hvert stæði. Sú leið myndi kosta eigendurna tæplega 10 millj- ónir króna. Ekki notuð í annað Hilmar Guðlaugsson segir að út- tekt hafi verið gerð á þessum mál- um 1988 og þetta sé eina tilfellið af sjö þar sem eftir er að koma málum í lag. „Eftir úttekt okkar var sett lyffa á þennan kjallara en síðan virðast framkvæmdir hafa legið niðri,“ segir Hilmar. Aðspurður um hinn mikla seinagang á málinu segir Hilmar að um sé að ræða bíla- geymslu sem ekki sé til afnota fyrir almenning heldur eigendur hússins og þar að auki hafi kjallarinn ekki verið notaður til neinna annarra hluta á þessu tímabili. Málinu hafi verið vísað til byggingarfulltrúa og verði tekið upp aftur þegar greinar- gerð hans liggur fyrir. „Það er í okkar verkahring að sjá til þess að bílageymslan verði lögleg og það verður gert,“ segir Hilmar. <D Umsögn Þjóðhagsstofnunar um sjávarútvegsfrumvörpin ir atvinnuleysið a fimmfatt minna 1 umsögn Þjóðhagsstofnunar til sjávarútvegsnefndar Alþingis um breytingar á sjávarútvegsstefnunni kemur meðal annars fram að stofn- unin gerir ráð fyrir að atvinnuleysið verði fimmfalt minna en „atvinnu- mennirnir" halda fram. „Atvinnu- menn“ höfðu í greinargerð til nefndarinnar gert ráð fyrir að um fimm þúsund manns myndu missa vinnuna, einkum vegna þess að út- hafsveiðar dyttu út við breytingar á sjávarútvegsstefnunni en Þjóðhags- stofnun segir þennan fjölda ekki vera nema um eitt þúsund manns. Meðal þeirra sem stóðu að grein- argerð „atvinnumanna“ voru Arnar Sigurmundsson formaður Sam- taka fiskvinnslustöðva, Einar Svansson framkvæmdastjóri Fisk- iðjunnar Skagfirðings, Gunnar Ragnars framkvæmdastjóri Út- gerðarfélags Akureyrar og Halldór Árnason framkvæmdastjóri Borg- eyja. „Atvinnumennirnir" gera mikið úr því að úthafsveiðar minnki tölu- vert vegna fimmtíu prósenta regl- unnar í framkomnum breytingum í sjávarútvegsfrumvörpum þeim sem nú liggja fyrir. Þessi regla kveður á um að: „Veiði fiskiskip minna en 50 prósent af samanlögðu aflamarki sínu í þorskígildum talið tvö fisk- veiðiár í röð fellur veiðileyfi þess og aflahlutdeild niður.. .Viðmiðunar- hlutfail sem ákveðið er í þessari málsgrein lækkar þó um fimm pró- sent fyrir hverja fúlla 30 daga sem skipi er haldið til veiða utan fisk- veiðilandhelgi Islands á fiskveiðiár- inu.“ í greinargerð „atvinnumanna" er fúllyrt að úthafsveiðar muni skila um fimm milljarða króna tekjum í ár, sem er nokkru meira en þessar veiðar gáfu á síðasta ári. Fullyrt er að falli þessar veiðar á brott muni 1.500 störf tapast beint en sökum marg- feldisáhrifa er áætlað að alls verði fimm þúsund manna atvinnulaus af þessum sökum. I umsögn Þjóðhagsstofnunar seg- ir hins vegar að fimm milljarðar séu um tíu prósent af aflaverðmæti fiskiskipaflotans en þar starfi tæp- lega sjö þúsund manns. I spálikön- um Þjóðhagsstofnunar sé gert ráð fyrir að sá fjöldi starfa sem tapast í heild sé um 50 prósentum hærri en sá fjöldi sem tapast í fiskveiðum, en ekki þrefalt hærri eins og „atvinnu- menn“ leggja til grundvallar, og gera eigi ráð fyrir að sjö hundruð missi vinnuna beint. Ennfremur bendir Þjóðhagsstofnun á að „atvinnu- mennirnir" virðast ekki hafa tekið tillit til þess ákvæðis í breytingartil- lögunum þar sem gert er ráð fyrir að fimmtíu prósentin lækki um fimm prósent fyrir hverja 30 daga sem skip er á úthafsveiðum þannig að ef skip er 10 mánuði eða lengur á úthafs- veiðum annað hvert ár er þess ekki krafist að það veiði neitt af þeim veiðiheimildum sem það hefur fengið úthlutað. Hvað varðar gagnrýni „atvinnu- manna“ á óhagræðið af takmörkun- um á ffamsali kvóta tekur Þjóðhags- stofnun undir hana að hluta til. I umsögn stofnunarinnar segir meðal annars að af umfangi kvótaviðskipta á undanförnum árum megi áætla að verulegt hagræði sé af framsali kvóta og að þetta hagræði hafi farið vax- andi með aukinni þekkingu á kerf- inu. Sem dæmi megi nefna að kvótatilfærslur í botnfiski og rækju á milli skipa á síðasta fiskveiðiári námu um 75 prósentum af aflanum. Þjóðhagsstofnun bendir hins- vegar á að þótt markaður fyrir árs- kvóta hafi vaxið gífúrlega á undan- förnum árum sé markaður fýrir var- anlegan kvóta enn mjög lítill og van- þróaður. Ástæða sé til að ætla að sú óvissa sem ríki um varanleika kvóta- kerfisins ráði hér nokkru en einnig sé mögulegt að fyrirtæki í sjávarút- vegi hafi enn ekki lært að nýta sér þá möguleika sem felast í viðskiptum með varanlegan kvóta. Síðan segir: „Þróun markaðarins með árskvóta sýnir ljóslega að það tekur tíma fyrir fyrirtækin að læra á nýtt kerfi og þá möguleika sem það býður upp á. Ýmislegt bendir til þess að það væri til hagsbóta fyrir íslenskan sjávarút- veg ef markaður með varanlegan kvóta yrði virkari og fyrirtæki í út- gerð gæfu meiri gaum að því að laga betur rétt sinn til kvótaúthlutunar að þörfum sínum.“ O FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.