Eintak

Tölublað

Eintak - 05.05.1994, Blaðsíða 10

Eintak - 05.05.1994, Blaðsíða 10
CINTAK Gefið út af Nokkrum íslendingum hf. Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson Framkvæmdastjóri: Níels Hafsteinsson Auglýsingastjóri: Örn ísleifsson HÖFUNDAR EFNIS í ÞESSU BLAÐI Andrés Magnússon, Árni E. Bjarnason, Bonni, Davíð Alexander, Einar Örn Benediktsson, Friðrik Indriðason, Gerður Kristný, Guðbergur Bergsson, Hallgrímur Helgason, Hilmar Örn Hilmarsson, Jói Dungal, Jón Óskar Hafsteinsson, Jón Kaldal, Jón Magnússon, Júlíus Kemp, Loftur Atli Eiríksson, Óttarr Proppé, Páll Ásgeirsson, Ragnhildur Vigfúsdóttir, Sigurjón Kjartansson, Styrmir Guðlaugsson og Þorvaldur Þorsteinsson. Setning og umbrot: Nokkrir íslendingar hf. Filmuvinnsla og prentun: Prentsmiðjan Oddi. Verð í lausasölu kr. 195. Áskriftarverð kr. 700 á mánuði. Það er í lagi að svína á þeim sem gæta sín ekki í EINTAKI í dag er greint frá úrskurði yfirskattanefndar um ólög- lega innheimtu ríkissjóðs á tryggingagjaldi af sjálfstæðum atvinnu- rekendum og þeirri afstöðu fjármálaráðuneytisins í kjölfar hans að það þurfi ekki að endurgreiða oftekin gjöld til annarra en þeirra sem kærðu gjaldtökuna áður en ný lög um hana voru sett. Það var gert um svipað leyti og úrskurður yfirskattanefndar lá fyrir. Þrátt fyrir að ríkissjóður hafí innheimt gjöld sem ekki stóðust lög af hundruðum ef ekki þúsundum sjálfstæðra atvinnurekenda verður engum þeirra sem greiddu gjaldið í góðri trú um löghlýðni ríkis- valdsins endurgreitt hið illa fengna fé. Einhver kynni að halda að hér væri um að kenna harðsvíruðum skattheimtumönnum ríkissjóðs en svo er ekki. Yfirskattanefnd byggir úrskurð sinn á dómi Hæstaréttar um innheimtu á ólögleg- um þungaskatti fyrir fáeinum árum. Rétturinn komst að þeirri nið- urstöðu að endurgreiða bæri hinn innheimta skatt en aðeins þeim sem höfðu haft fyrirhyggju til að greiða hann með fyrirvara. Um aðra gilti siðferði götukrimmanna: Ef þú ert nógu vitlaus til að láta gabba þig þá áttu það örugglega skilið. Jón Steinar Gunnlaugsson fjallaði í bók sinni Deilt á dómarana um þá tilhneigingu Hæstaréttar að draga taum ríkisins í dómsmál- um. Hann þóttist geta lesið úr dómum réttarins að eftir því sem fjárhagsleg skuldbinding ríkissjóðs væri meiri þeim mun minna færi fyrir réttindum borgaranna til að verja sig gegn valdi ríkisins í niðurstöðum réttarins. í bók sinni segir Jón Steinar meðal annars: „Það er eðli dómsmála, þar sem reynir á mannréttindavernd, að þar eigi einstaklingar og félög við ríkisvaldið og arma þess ... Mér finnst sú niðurstaða blasa við, að dómarar við Hæstarétt íslands hafi mjög ríkar tilhneigingar til að draga taum ríkisins og takmarka og þrengja vernd mannréttinda. Lögfræðileg nauðsyn hefur ekki knúið fram slíkar niðurstöður. Mildu réttara væri að segja, að nið- urstöðurnar hafi fengist, þrátt fyrir að hlutlausar lögfræðiaðferðir virðist í öllum tilvikum hafa hrópað á aðrar niðurstöður.“ Jón bætir við þessa ldausu neðanmáls, ef til vill sökum þess að hversu óvanir íslendingar eru umfjöllun um mannréttindi: „Það er að vísu hálfundarlegt að tala um að draga taum ríkisins, þar sem ríkið getur ekki átt aðra hagsmuni en þá, sem borgararnir allir eiga sameiginlega. Ljóst þykir mér, að allir borgarar eigi sam- eiginlega þá hagsmuni, að dómstólar tryggi mannréttindavernd í landinu. Ríkið hefur þá einnig þessara hagsmuna að gæta. Það skilst þó vonandi, þegar ég tala um að dómstólar dragi taum ríkis- ins.“ Af þeim sex málum sem Jón Steinar rekur í bók sinni snerta tvö skattamál. Hin snúast um rit- og tjáningarfrelsi, félagafrelsi og eignarrétt. Sem kunnugt er hefur Hæstiréttur fengið ákúrur frá Mannréttindadómstól Evrópu á undanförnum árum í málum sem snerta tjáningarfrelsi, félagafrelsi og aðskilnað dóms- og fram- kvæmdavald. Ekkert þessara mála var einstakt í sjálfu sér og þau eiga marga bræður og systur í dómabókum undanfarinna ára. Mannréttindadómstólinn var því ósammála Hæstarétti í grund- vallarskilningi á ofangreindum atriðum. Það er því spurning hvort einhver góður maður vill ekki eyða í það fjórum til fimm árum ævi sinnar að fara með skattamál fyrir Mannréttindadómstólinn — mál svipað tryggingagjaldinu eða þungaskattinum. Niðurstaða frá þeim dómstól kynni að spara skattgreiðendum umtalsverðar fjárhæðir á komandi árum og koma stjórnvöldum í skilning um að þau komast ekki upp með að halda illa fengnu skattfé þrátt fyrir að fyrir því liggi dómsniðurstaða að skatturinn hafi verið ólöglegur. O Ritstjórn og skrifstofur Vatnsstíg 4, 101 Reykjavík sími 1 68 88 og fax 1 68 83. HUN SEQIR Annarpabbi minn er lögga HANN SEQIR Kynvillan bitni eícki á börnum Óréttlæti í samfélaginu á sér ýmsar orsakir. Takmarkaður möguleiki fólks til lífshamingju getur ráðist af efnahagslegum þáttum og einnig af takmörkun- um í eðli okkar sjálfra. Leikreglur samfélagsins ber að hafa þannig að þessar hindranir séu lágmarkaðar svo að flestir þegnar samfélagsins geti nálgast það sem veitir þeim lífsfyllingu innan þeirra marka að réttur annarra sé ekki fyrir borð borinn. Nú er eitt af vandamálum mannlegs samfélags það að menn rugla saman því, hvenær gengið er á rétt þeirra sjálfra til lífshamingju og því hvenær þeir verða fyrir óþægindum vegna þess að ein- hverjir lifa lífi sínu á annan hátt en þeir telja rétt og gott. Þannig meta menn oft og iðulega rétt sinn til að þurfa ekki að taka á eigin fordóm- um meira, en rétt annarra til að leita lífshamingjunnar á eigin for- sendurn. Siðir og venjur samfé- lagsins eru þá notaðar til að sýna fram á það að manns eigin lífstíll sé sá eini rétti og allt annað sé óeðlilegt, ónáttúrulegt eða jafnvel ógeðslegt. Sá hópur íslendinga sem hvað harðast hefur orðið fyrir barðinu á þessari hrokafullu og smáborgara- legu afstöðu, eru hommar og lesbíur. Það er ekki nóg með að samkynhneigðir þurfi að búa við fordóma einstaklinga á götum úti og á prenti, enda erfitt að koma í veg fyrir slíkt nema með fræðslu og upplýsingu, heldur er þeim stórlega mismunað í löggjöfmni. Samkynhneigðir geta búið saman alla ævi án þess að öðlast nema af- ar takmarkaðan erfðarétt hvor eff- ir annan og hvergi gefst þeim færi á að gera milli sín sáttmála í votta viðurvist sem tryggi þeim sama rétt og öðrum hjónum er tryggð- ur. Þetta eru atriði sem margir geta fallist á, en þegar minnst er á að samkynhneigðir ali upp börn þá verður fólk eldrautt í framan, tútnar út og er ekki tilbúið að taka neinum rökum. Jafnvel þeir sem telja sig sæmilega fordómalausa bera, í slíkri umræðu, það viðhorf sitt að samkynhneigð sé félagsleg meinsemd eða sjúkdómur, og þar að auki líklega bráðsmitandi. Allar kannanir leiða hins vegar í ljós að sömu líkur eru á því, að barn sem alið er upp í sambandi sam- kynhneigðra og barn sem al- ið er upp i g a g n k y n - hneigðu sam- bandi, sé gagn- kynhneigt. Og svo má auðvit- að spyrja hverju það breytti ef stað- reyndin væri önnur. Þegar skoðaðar eru kannanir um það sem skiptir meira máli í barnauppeldi þá bendir margt til þess að samkyn- hneigðir standi sig betur í að skapa börnum sínum gott vega- nesti fyrir lífið. Þegar litið er á þann sorglega málaflokk sem er kynferðislegt ofbeldi, þá hallar illi- lega á svokallaða gagnkynhneigða. Slík misnotkun á ekkert skylt við það að hvoru kyni menn hallast almennt. Samkynhneigðir eru ekkert óánægðir með það að vera sam- kynhneigðir. Þeir eru hins vegar óánægðir með það, að vegna þess að tilfinningar þeirra beinast að sama kyni, sitji þeir ekki við sama borð og aðrir í samfélaginu. Og hver væri svo sem ánægður með slikt? 0 Eiga kynvill- ingar að fá að ættleiða börn? Þessi spurning er ein af þeim, sem hefur vak- ið hatrammar deilur, hvar sem hún hefur vaknað af al- vöru. Yfirleitt er það þó vegna þess að þeir, sem svara henni neitandi, telja rökin gegn því felast í því að kynvillingar séu verra fólk en annað, að þeir hafi brenglað siðferðismat og að kynvilla þeirra sé sem hver annar smitsjúkdómur, þó hann sé tæpast arfgengur. Á þessi rök blæs ég. Ég hef ekki orðið var við að kynvill- ingar séu verri eða betri en annað fólk. Og ekki ætla ég að fara að skipta mér að því hjá hverjum annað fólk sefur. En vegna þess að kynvillingar eru bara eins og fólk er flest - að kynferði rekkjunauta þeirra frá- töldu — þá bærast í þeim sams konar tilfinningar og hvatir og hjá flestum öðrum. Þar á meðal getur verið þráin eftir að eignast börn og ala þau upp. Og þar stendur hníf- urinn í kúnni, vegna þess að eðli málsins samkvæmt, geta þeir ekki eignast börn með elskhugum sín- um. Þá hafa sumir þeirra viljað ættleiða börn, en rekið sig á óyfir- stíganlegar hindranir í þeim efn- um, þar sem kynhneigð þeirra ein er talin næg ástæða til þess að ætt- leiðing kemur ekki til greina. Auðvitað hefur kynviliingum mislíkað þetta og telja sig vera enn einum óréttinum beittir. Ég get fallist á það að kynnvillingar eiga enn töluvert í land með að njóta sömu réttinda og aðrir borgarar landsins og þetta kann að vera einn anginn af því. En ég er samt sem áður þeirrar skoðunar að kynvillingar eigi ekki að fá að ættleiða börn. Ástæðan er einföld. Ættleiðing á nefnilega ekki að taka mið af neinum hags- munum öðrum en velferð barns- ins og ég hef mjög ríkar efasemdir um að börnum sé jafn vel fyrir- komið hjá kynvillingum og öðr- um. Ekki svo að skilja að ég haldi að kynvillingar yrðu verri foreldrar en gengur og gerist. En hvort sem okkur líkar betur eða verr þá ríkja fordómar gagnvart kynviliingum, sem engin löggjöf fær ráðið bót á. Þeir kynvillingar, sem ég þekki, eru sammála um að almennt ríki mun meira umburðarlyndi í þeirra garð en fýrir nokkrum ár- um, en samt verði þeir reglulega fyrir alls kyns aðkasti í stórum efn- um sem smáum. Halda menn í al- vöru að unnt sé að verja börn slíku? En nú eru sumir kynvillingar fjölkunnugir og eiga börn frá fyrri samböndum. Aðrir hafa farið þá leið, að láta sig hafa samræði með aðila af hinu kyninu til þess að tímgast. Og við slíkt hef ég ekkert að athuga. En þegar ættleiðing er annars vegar snýst málið um að velja bestu kjörforeldra, sem barn- ið á kost á. Það kann að vera áfell- isdómur yfir þjóðfélaginu, en að öðru jöfnu verða kynvísir að telj- ast miklu vænlegri kjörforeldrar heldur en kynvillingar. Ættleið- ingar eru vandasamari og við- kvæmari en svo að þær eigi að verða liður í annars réttmætri mannréttindabaráttu kynvill- inga. 0 Ættleiðingar homma og lesbía 10 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.