Eintak

Útgáva

Eintak - 05.05.1994, Síða 22

Eintak - 05.05.1994, Síða 22
Íþróttafíkn Sjónvarpið ber tvímælalaust fyrst og fremst ábyrgð á þessari fíkn sem leggst helst á getulausa karlmenn. I stað þess að kvenþjóð- in horfi með björtum augunt til þess að velta sér upp úr dögginni úti í guðsgrænni náttúrunni á Jónsmessunótt verða þær að kyngja því að stöddarnir þeirra liggi og emji yfir loðnum leggjum fótboltakappanna í sjónvarpinu meginpartinn af sumarleyfinu. Iþróttafíkn virðist því miður vera ólæknandi og fársjúkir íþróttafíklar öðlast æ meiri völd í þjóðfélaginu. Kaupæði Konur eru oftar fórnarlömb þessa kvilla en karlmenn. „Sjúk- dómseinkennin“ eru þau að „kaupæðissjúklingurinn“ upplifir neikvæðar tilfinningar og fer þá út í búð að reyna að kaupa sér betri líðan í einhverju óþarfa glingri. Ef viðkomandi hefur síðan ekki haft efni á því að kaupa viðkomandi hlut fyllist hann samviskubiti og fer þá aftur út í búð að kaupa eitt- hvað til að losna við þá leiðindar- tilfmningu og þannig gengur það koll af kolli. Shoppers anonymous eru vaxandi samtök sem hafa sagt frasanun „Shop ‘til you drop!“ stríð á hendur. Kvíði Ótímabærar áhyggjur valda kvíðahnút í maganum sem er óneitanlega leiðinlegur djöfull að draga. Það er eðlilegt að kvíða fyrir því að fara í hjartaaðgerð, en það sama er ekki hægt að segja um kvíða fyrir því að fara fram úr rúminu á morgnana eða að sofa á kvöldin. Uppskriftirnar fyrir að iosna við kvíða eru fjölmargar en flestum dugir að líta til sambæri- legrar tilfmningar úr fortíð sinni og sjá þá að þeir uppskáru ekkert af því að vera kvíðnir. Kvíði getur líka verið vanabindandi og byggst minnast þess að kynlíf er ekki íþróttakeppni. Þá er vinsælt að leigja bláar og sækja örvunina í sjónvarpstækið. Kynlífssýki Fáir kvarta yfir því að vera of aktífir kynferðislega. Almennt séð er frekar að fólki þykir skorta'á fjörið í þessum efnum. Engu að síður fer „kynlífssjúklingum" fjölg- andi en einkenni sjúkdómsins er að flýja vandamál sín í einhvern kynferðislegan hasar sem fólk sér síðan eftir. I Bandaríkjunum eru starfandi samtökin Sexoholics An- onymous og Sex Addicts An- onymous en liðsmenn þeirra funda reglulega og samhæfa reynslu sína styrk og vonir til að reyna að kom- ast frá þessum óskunda. Það er eðlilegt að keyra niður Laugaveginn og horfa á stelpurnar. Það er heldur ekkert óeðlilegt við það að velta því fyrir sér hvernig þær eru í rúminu. En að keyra nið- ur Laugaveginn og horfa á stelp- urnar um leið og maður fróar sér bendir til þess að eitthvað sé ekki alveg í lagi. Lofthræðsla og vatnshræðsla Sem betur fer eru engir skýja- kljúfar á Islandi þannig að alvarleg lofthræðsla er fremur fátíð. Vatns- hræðsla eldist yfirleitt af mönnum en ef það gerist ekki er hægt að fara í dáleiðslu til að sættast við ele- mentin. Lygi og óheiðarleiki Lífið er leiksvið og góðir lygarar eru smástirni sem vilja vera í aðal- hlutverkum. Bandaríkjamaður nokkur hefur vakið töiuverða at- hygli fyrir að fara krossferð um land sitt gegn lyginni sem hann tel- ur helstu meinsemd þjóðfélagsins. I lygi og óheiðarleika felst ákveðinn hroki og minnimáttarkennd og ótti við að koma til dyranna eins og maður er klæddur. Flest trúarbrögð og mann- bótarkenningar eru ágætis vettvangur til að losa sig við þetta hegðunarvanda- mál. Meðvirkni Það fylgir því að búa með einhverjum sem neytir áfengis eða annara vímuefna að verða stórbil- aður sjálfur. Fólk fer að ljúga fyrir alkohólistann og láta neyslu hans og skapgerðarsveiflur stjórna sínu lífi. Tvenn samtök fyrir þá sem eiga við með- virkni að stríða eru starf- rækt hér á landi og eru áherslurnar innan þeirra svipaðar og byggjast á tólf reynslusporum AA-sam- takanna. Einnig hefur SÁÁ verið ötult við að bjóða upp á námskeið fyrir þá sem eru að fríka út á húsi þótt þeir hafi ekki drukkið það sjálfir. Minnisleysi Minnisleysi hefur ákveðna kosti en gallarnir eru sennilega fleiri. Sem afsökun virkar minnisleysi ilk og atvinnurekendur eru til dæmis ekki tilbúnir til að kyngja því ef maður gleymir að fara í vinnuna. Það sama á við um bankastofnanii varðandi gjalddaga og kerfið sýnir minnislausum fádæma miskunn- arleysi. Gamalt ráð við minnisleysi er að binda slaufu um baugfmgur vinstri handar en minnislausum hættir því miður til að gleyma af hverju þeir gerðu það. Einnig er gott að semja rímur og binda í þæ það sem maður vill muna. Haft er ur af samanherptum og óframfærnum einstakling- um. Feimni er allt frá því að fá nettan skrekk í mag- an þegar stíga á í ræðustól að því að þora ekki að yrða á hitt kynið án þess að fá sér t glas. Flughræðsla Eftir að gamla Gullfossi var lagt er farið að fjúka í flest skjól fyrir flughrædda. Margir láta sér enn nægja að koma við á barnum í fríhöfninni og skutla í sig nokkrum glösum áður en dauðadómurinn ríður yfir eða fá sér eina róandi. Flugleiðir hafa um skeið boðið upp á námskeið til að sýna flughræddum fram á að fleiri deyi í bíl- slysum en í flugslysum og gera þeim loftköstin léttari. Reglulega má lesa reynslusögur þeirra sem takast á við þennan vanda. Hinir fara að ráðum ferðamálaráðs og sækja landið sitt heim. Fordómar Það ætti að skjóta alla þessa hel- vítis öfgamenn. Fullnægingarleysi Allt fram á þessa öld var litið svo á að kynlíf væri fýrst og fremst körlum til ánægju og menn voru ekki að velta því neitt fyrir sér þótt spúsur þeirra fengju ekki fullnæg- ingu. Staðreyndin er sú að einungis um þriðjungur kvenna fær full- nægingu við samfarir og þegar kynlífsvitund þeirra styrktist varð krafan um fullnægingu háværari. Tímaritið Bleikt og Blátt hefur riðið feitum hesti á vettvangi þessarar kröfu og einnig hefur kynlífsfræð- ingur þjóðarinnar, Jóna Ingi- björg Jónsdóttir boðið upp á námskeið til að hjálpa konum að ná hinu langþráða takmarki. Fullorðin börn alkóhólista Það er ekkert grín að vera alinn upp í fjölskyldu þar sem annað eða bæði foreldri neyta áfengis i óhófi. Slíkt brenglar persónugerð og hug- myndir barna mikið og á síðustu árum hefur samtökum fullorðinna barna alkohólista vaxið fiskur um hrygg hér á landi. Mikil áhersla er þar lögð að komast yfir skömm og sektarkennd sem félagsmenn eiga við að stríða og einnig að komast í betri tengsl við jákvæðari tilfinn- ingar sínar. Einnig er algengt að fullorðin börn alkohólista sæki svokölluð gestalt- námskeið sem er meiriháttar heví þerapía. Fyrirtíðaspenna Þótt ótrúlegt megi virðast finnst æ fleiri konum spennandi að fara á túr og verða tunglsjúkar áður en blæðingar hefjast. Aður fýrr þótti eðlilegt að konur væru ómögulegar þegar þær voru á túr en nú er búið að lengja þann tíma. Fyrirtíða- spenna er tiltölulega nýtt vandamál á Islandi en mikið framboð er af töflum við þessum kvilla í Banda- ríkjunum. Ef það má orða það sem svo er íýrirtíðaspennan ennþá í tollinum á íslandi, en reikna má með því að hún eigi eftir að skríða hratt upp vandamálalistann á næstunni. Páll Óskar Hjálmtýsson „When the dog barks, when the bees sting, when l’m feeling sad I simply remember my favorite things and then I don’t feel so bad.“ Páll Óskar Hjálmtýsson söngvari finnur stundum fyrir stressi þegar hann er að fara að troða upp. „Besta lækningin við því er að draga djúpt andann og þiása vel frá sér. Sá sem finnur ekki fyrir stressi við og við hlýtur bara að vera dofinn. Stress er merki um tilfinningasemi og það að maður er meðvitaður um umhverfi sitt,“ segir hann. En hefur hann kynnst tilgangsleysi? „I svona ofmettuðu þjóðfélagi getur maður hæglega smitast af þeim sjúkdómi þegar manni finnst maður vera þúinn að gera allt sem hægt er að gera, fer út í bæ, sér að þar er úr 60 bíómyndum að velja, 400 videó-spólum og veit ekkert hverja á að taka. Þetta er afskaplega óþægilegt vandamál en ég bregð gjarnan á það ráð að hugsa eins og Julie Andrews: „When the dog þarks, when the þees sting, when l’m feeling sad I simply rem- ember my favorite things and then I don’t feel so bad.“ Kaupæði grípur Pál Óskar jafnframt við og við enda segist hann ekkert kunna með peninga að fara. „En ég elska peninga því þeir veita ákveðið frelsi," segir hann. „Kaupæði er eins og átsýki. Ég helli mér út í að kaupa alls kyns hluti sem ég rogast síðan með heim, sé svo að ég hef ekkert með þá að gera og fæ samviskubit. Lækningin er sú að velta hverjum hlut milli handanna á sér og pæla í því hvort mann vanti í raun til dæmis safndisk með lögum sem maöur á á plötum út um alla íbúð. Hafa svo í huga að græddur er geymdur eyrir.“ Á listanum yfir menningarvandamál stendur samkynhneigð, enda stunda sum trúfélög lækningar við henni. Er hún vandamál hjá þér? „Hvaða kjaftæði er þetta? Hvers konar sevenf/es-spurning er þetta? Það er fyrir löngu búið að sanna að kynhneigðin þín getur ekki verið sjúkdómur. Það er bara sjúkt hvernig sumt fólk hugsar um hana.“ Hvað með líkamlega kviila? „Ég fékk bakverk af því að ég sat vitlaust í þílum og við skólaborðið. Ég fór bara í nudd, en fyrir utan það er besta lækningin að stelast út á róluvöll og hanga í klifurgrindunum eins og krakkarnir gera. Við það réttist úr öllum líkamanum," svarar Páll Óskar. Sjónvarpssýki er menningarvandamál hjá sumum. Páll Óskar segir hana hafa verið barnasjúk- dóm hjá sér sem hann tók út eins og mislinga. „Ég læknaðist sjálfkrafa þegar myndþandið kom til sögunnar og hef ég notað það mikið allar götur síðan á mjög heilbrigðan hátt,“ segir hann. Ertu hræddur við að eldast? „Mér finnst yndislegt að eldast. Ef ég verð meðhöndlaður vel sem gamalmenni af liðinu I kring- um mig óttast ég ekki ellina," segir Páll Óskar. „Ég pældi mikið í dauðanum áður fyrr og komst að þeirri niðurstöðu að fyrst ég hræddist ekki að fæðast gæti ég ekki hræðst að deyja. Hugsunin um dauðann á krítískum augnablikum ergóð lækning við hverju sem er. Þegarég ertil dæmis hrædd- ur við að takast á við eitthvað brjálað verkefni hugsa ég bara: „Hvað er það versta sem getur kom- ið fyrir þig?“ Svo mála ég skrattann á vegginn og kemst að lokum að þeirri niðurstöðu að það hljóti að vera það að drepast og enn hefur það ekki gerst. Lífið hefur því bara gengið vel hingað til.“ © Getuleysi og of brátt sáölat . Ef hent er bolta inn í þvöguna á stórum fundi á Lækjartorgi er næsta fullvíst að hann lendir í ein- hverjum sem á við kynlífsvanda- mál að stríða. Staðreyndin er sú að kynlífsvandamál eru eitthvað sem flestir þekkja af eigin raun þótt flestir láti líta út fyrir hið gagn- stæða. Hjá körlum eru getuleysi og of brátt sáðlát efst á lista og yfirleitt er hér um sálræna kvilla að ræða sem tengjast þeirri mýtu að það sé þeim að kenna ef báðir aðilar sam- einist ekki alltaf í eldheitri fullnæg- ingu. Innflutningur á nashyrninga- hornum er bannaður og leita því flestir sem gefast upp á E-vítamíni til sálfræðings eða í dáleiðslu til Iausnar á þessum vandamálum. Hlaupafíkn Saklaust skokk getur auðveldlega leitt til þess að menn hlaupi blind- andi ofaní hyldýpi hlaupafíkninn- ar. Hlaupafíklar eru skokkarar sem uppgvöta það að þegar þeir eru að springa á skokkinu tekur líkaminn völdin og fer að dæla út í tauga- kerfið endorfíni sem er efni ekki ósvipað morfíni í uppbyggingu. Því miður finna hlaupafíklar off ekki botninn íýrr en þeir fá hjarta- áfall. Hlaupafíklar hafa ekki enn stofnað með sér samtök og hlaupa því enn hring eftir hring um bæinn á meðan venjulegt horfir undir hófa þeirra með auknum skilningi. Hrotur Öðru hvoru má sjá í Mogganum litla grein um hrotur. Þar kemur fram að þær geta verið lífshættu- Iegar og allt að því óyfirstíganlegar. Fram effir öldum var talið óbrygð- ult ráð að leggjast á magann og sofa þannig ef maður hraut en það virðist ekki duga okkur nútíma- mönnum. I apótekum er hægt að fá hrotustoppara sem er lítið tæki sem klemmt er yfir nefið en ef menn nenna ekki að sofa með slík- ar græjur má alltaf smella sér í dá- leiðslu. Hrömunarótti Áður fýrr eltust menn bara og drápust án þess að vera að gera mikið mál úr því. Með auknum lífsgæðum og auglýsingamennsku þykir það ekki lengur sjálfsagður hlutur. I hræðslu við ellina felst yf- irleitt afneitun á því að horfast í augu við dauðann og hrukkóttar kerlingar reyna að spartsla upp í sprungurnar með svokölluðum anti-aging-kremum. Líkamsrækt- arstöðvar þrífast einnig á þessu vandamáli. Höfuðverkur Magníl þykir í dag þreytt aðferð til að losna við höfúðverk. Fólk er ekki lengur „bara með hausverk" heldur er kafað dýpra til að leita að ástæð- unni. Stress er algengur orsakavaldur og höfuð- verkjasjúklingar beina því viðskiptum sínum í æ ríkari mæli til nudd- ara, svæðisnuddara og dáleiðara. Innilokunarkennd Öll endum við í kist- unni og því er vissara að vinna bug á innilok- unarkennd áður en svo langt er komið. Inni- lokunarkennd birtist yfirleitt í tveimur myndum: Annars vegar þannig að menn óttast að vera lokaðir inni í litlu rými eins og lyftu og hins vegar að vera innan um mikinn fjölda fólks eins og í kvikmyndahúsi og finnast það þrengja að sér. ísland er í raun paradís fýrir innilokun- arsjúklinga því hér er fámenni og bygging- arnar frekar lágar þannig að menn geta hlaupið á milli hæða án þess að það líti út fyrir að vera óeðlilegt. Sál- fræðingar og dáleiðarar hjálpa fólki að losna við innilokunarkenndina. Guðrún Bergmann „Ég hef alltaf verið með frekar veikan iíkama og sjúkdómar hafa herjað á mig eins og skæruliðar en ekki verið í formi ákveðinnar veiki." Guðrún Bergmann hefur verið einn helsti talsmaður nýrra hugmynda á sviði mannræktar á undanförnum árum, en hvað gerir hún við eigin streitu? „Ég reyni að takast á við hana þeg- ar hún kemur upp í stað þess að láta hana safnast upp eins og ég gerði einu sinni þegar ég kunni ekki að stjórna henni. Ég hugleiði á hverjum morgni og stunda líkamsrækt fimm daga vikunnar. í gegnum tíðina hef ég verið með hópa í hugleiðslu og þróað hana eftir eigin þörfum. Mér finnst líka gott að taka eitthvað ákveðið verkefni fyrir og hlusta þá á hugleiðslusnæld- ur. Þær skila mér áfram á þroska- brautinni en einnig er mjög gott að stunda öndunaræfingar með hug- leiðslunni. Hugleiðsla þarf ekki endi- lega að taka langan tíma og oft getur komið sér vel að staldra aðeins við í önnum dagsins og gera nokkrar önd- unaræfingar. Ég hef stundað andlega rækt í fimm ár og I rauninni er aldrei frí frá því. Mér finnst þetta aðallega vera spurning um að vera jákvæður og leyfa sér að vera, kannski með því að leika sér og gera hluti sem gjarnan er sagt að fólk eigi ekki að gera.“ Varþað einhver ákveðinn botn sem þú fannst fyrir sem varð hvatinn að því að þú fórst að hugsa meira um að rækta sjálfa þig? „Ég hef alltaf verið með frekar veik- an líkama og sjúkdómar hafa herjað á mig eins og skæruliðar en ekki verið í formi ákveðinnar veiki. Ég var ekki sátt við að vera alltaf í þessu ástandi og leitaði því til annarra eftir hjálp. Allt í einu komst ég að því að það gekk ekki lengur og axlaði ábyrgðina þess í stað sjálf. Mér finnst þetta skemmti- legt og gefandi og vil ekki líta á þetta sem andlega vinnu því orðinu vinna fylgir svo mikið ok og þreyta og kalla það því stundum leik. I dag er ég miklu hamingjusamari en áður en ég byrj- aði á þessu og er sáttari við sjálfa mig og umhverfið." Hefur þú þjáðst af orkuleysi? „Jú, það fylgir lélegu líkamlegu ástandi að vera orkulaus og þreyttur. Ég hafði lítið líkamlegt úthald og það var kannski helst út af ýmsum líkamlegum áföllum sem ég varð fyrir sem krakki. Ég leitaði til heimilislækna og fékk stundum þau svör að ég væri ímyndunarveik og í dag held ég að það geti vel hafa verið að hluta til rétt en ég fékk enga hjálp við að finna út af hverju það stafaði. Það var erfitt.“ Þannig að þú hefur bara ákveðið að taka málin í þínar hendur? „Ég segi það ekki. Læknisfræðilega séð hef ég leitað mikið til Hallgríms Magnússonar eftir svörum og í mörgum tilvikum höfum við notað mig sem tilraunadýr við að þróa hluti sem við höfum siðan verið að halda fyrirlestra um og kenna — það er að segja sveppaóþolið. Hvað erþað? „Það er jafnvægisleysi sem myndast í líkamanum, oft út af notkun á lyfj- um eins og fúkkalyfjum eða pillunni. Röng fæða getur líka verið orsökin og þetta ástand veikir mörg líffæri í líkamanum þótt sveppaóþolið sem slikt eigi upphaf sitt i þörmunum. Ég hef verið að berjast gegn þessu lengi og fyrst að menn voru ekki að spá í óþol líkamans á árum áður hefur þetta oft verið barátta lík því að ganga á veggi.“ © upp á ótta við það að axla ábyrgð. Kyndeyfö Þegar nýjabrumið er farið af samböndum er hætt við að logn- molla fari að ráða ríkjum í rúminu. Til að viðhalda fjörinu er nauðsy- legt fyrir báða aðila að vera hrein- skiptir í samskiptum og láta óskir sínar í Ijósi við bólfélagann. Fram- boð á bókum um stellingafræði er alltaf að aukast og það er einfalt mál að koma sér upp slíku ritsafni. Mikill bissness er einnig í sexí und- irfatnaði og rafhjálpartækjum sem taka við þar sem önnur hug- kvæmni endar. Hollt ráð fyrir karl- menn er að muna eftir að taka til- finningarnar með sér í rúmið og Minnimáttarkennd ísland er fallegasta land- ið í heimi. Hér eru einnig fallegustu konurnar, besta vatnið og tærasta loftið. Við erum miðpunktur al- heimsins og getum allt best — miðað við fólks- fjölda. Svo erum við ekk- ert með minnimáttar- kennd. 22 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.