Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 05.05.1994, Qupperneq 26

Eintak - 05.05.1994, Qupperneq 26
HWAH Fimmtudagur P O P P Hunang er hljómsveit frá Akureyri sem er kom- in í bæinn og spilar á Gauki á Stöng í kvöld. Bubbi Morthens túrar um landið og berst gegn atvinnuleysi. Hann er á Sjallanum á Akur- eyri íkvöld. Hljómsveit Jarþrúðar er eingöngu skipuð konum. Þær eru á Tveimur vinum. Wool treður upp á Hressó t kvöld ásamt Cranium og Tjalz Gissur. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30 og það kostar 300 kr inn. Grunaðir um tónlist frá Keflavík eru með tón- leika á Café Royale. BAKGRUNNSTÓNLIST Kjartan Valdemarsson, Matthías Hem- stock og Þórður Högnason leika djass fyrir gesti efri hæðar Fógetans. Niðri skemmtir trúbadorinn Hermann Arason Haffi og Rúnar eru dúett sem spilar íslenska og erlenda slagara í bland á Café Amsterdam í kvöld. L E I K H Ú S Gauragangur kl. 20.00 f Þjóðleikhúsinu. Steinunn Ólfná og Ingvar E. Sigurðsson í aðal- hlutverkum. Mjög vinsælt leikrit eftirsam- nefndri sögu Ólafs Hauks. Hedda og Brúðuheimilið sýnd í Hjáleigunni af Leikfélagi Kópavogs kl. 20.00. Hjáleigan er ný sýningaraðstaða í Félagsheimili Kópavogs. Leikfélagið er með þeim öflugri á landinu. Hafnsögur sýndar af Hugleik f Hafnarhúsinu við Tryggvagötu kl. 20.30. Sama húsnæöi og Hræðileg hamingjam sýnd í. Hafnsögur samanstanda af þrettán stuttverkum, örsögum, einþáttungum, örleikritum, gamanþáttum og óperum. Hafnsögur er afbragðsýning um ástir og örlög fólks og er engum manni óviðkom- andi. Sumargestir eftir Gorkí í Nemendaleikhúsinu kl. 20.00. Frábær sýning um fólk sem leiðist og langar að láta verða af einhverju sem það ætlar aldrei hreint að koma i verk. Sýningin á því fullt erindl við nútímafólk. Gleðigjafar á Stóra sviði Borgarleikhússins kl. 20.00. Guðrún Ásmunds er eiturfín í hlutverki hjúkrunarkonunnar. UPPÁKOMUR Bukowski-kvöld á Bóhem kl. 21.00. Þar verður skáldsins minnst meö Ijóðalestri og söng. Með- al þeirra semkoma fram eru skáldin Valgarður Bragason, Ágústa Didda Einar Kárason Þegar Ögmundur Jónasson er farinn að kvarta undan því hver er ráðinn frétta- stjóri á StÖð 2 eða hjá DV er ekki hægt að draga aðra ályktun en að forráða- mönnum þessar fjölmiðla hafi tekist vel upp við mannaráðningarnar. Ef Ögmundur fengi að ráða kæmist enginn maður eða kona nærri míkrafóni á ís- landi nema hann sjálfur eða einhver sem er álfka samansúrraður af inniveru í ríkiskerfinu. Þaðan sér Ögmundur heiminn og það telur hann eina rétta sjón- arhólinn. Það fólk sem hef- ur aðra reynslu, aðrar skoöanir, aðra sýn er hættulegt f augum Ög- mundar. Og ekki aðeins hættulegt heldur undirför- ullt og illa meinandi. Það er þvf heilbrigðisvottur í þjóðfélaginu þegar Ög- mundur kvartar. Þegar hann loks orgar og veinar verður ef til vill hægt að Allt útlit fyrir að sigurvegarinn frá því í fyrra geti ekki keppt í ár vegna bakmeiðsla Hin árlega Elvis Presley karók- íkeppni er á Tveimur vinum um helgina með búningum og öllu til- heyrandi. Undanrásir, upphitun og skráning verður föstudagskvöld en laugardagskvöldið er stóra kvöldið því þá verða sjálf úrslitin. í sömu keppninni í fyrra sigraði Héðinn Valdemarsson af Suður- nesjunum með sérstökum glæsi- brag. Að sögn þeirra sem þekkja vel til hefur Héðinn eflst mikið í Elvis- töktum siðan í fyrra. Hann er bú- inn að stækka búningasafnið og ný- verið komst hann yfir svokallaða Hawaii-gerð af Presleygalla. Hann er líka búinn að safna myndarleg- um börtum og hvaðeina. Þau slæmu tíðindi bárust hins vegar í vikunni að Héðinn væri meiddur í baki og er útlit fyrir að hann geti ekki tekið þátt í keppninni í ár, að minnsta kosti ekki beitt sér sem skyldi í hinni ffægu Elvismjaðma- sveiflu. Það er Elvisklúbburinn á Islandi sem stendur fyrir keppninni ásamt veitingastaðnum Tveimur vinum. Klúbburinn er frekar nýr af nálinni, var stofnaður á Hard Rock Café fýrir um það bil ári síðan. Formað- ur félagsskaparins heitir Sveinn Guðfinnsson og segir hann að starfsemi klúbbsins sé enn í þróun og komi mikið til með að velta á áhuga félagsmanna. „Markmið Idúbbsins er að efla spilun á Elvis og útbreiða tónlist hans. Við komum líka saman til að hlusta á kónginn og berum saman bækur okkar. Skráðir félagar eru um eitt hundrað og áttatíu og sífellt er að bætast í hópinn. Maður er alltaf að hitta fólk sem heldur upp á Elvis. Ég hitti til dæmis einn um síðustu helgi sem átti allar plötur með honum og hafði farið í píla- grímsferð til Gracelands. Elvis hafði verið áhugamál hans lengi en hann vissi ekki af klúbbnum fyrr en ég kynnti hann fýrir honum.“ Þann 8. janúar 1995 á Elvis sextíu ára afmæli. f tilefni þess ætla aðdá- endur hans að fagna sameiginlega og að sjálfsögðu verða aðalhátíðar- höldin við Graceland og í nágrenn- inu. Þetta verður engin smáveisla og ráðgert er að gleðin standi í nokkra daga. Ef nægilega stór hóp- ur næst saman ætlar Presleyklúbb- urinn að skipuleggja ferð og sam- fagna með öðrum Elvisaðdáend- um. En skyldu Presleyklúbbfélagar njóta einhverra fríðinda umfram aðra? „Já, við fáum afslátt á pizzum frá Pizza Elvis og hjá Skífunni. Það er til dæmis tilboð í gangi þessa dag- ana á fimm diska Elvissafni þar sem myndabók fýlgir.“ © „Þjóðhátíðarblaðið Island er óð- ur til menningarinnar á 50 ára af- mæli lýðveldisins og afmælisgjöf til fjallkonunnar. Aðaltilgangurinn með útgáfu þess er að vekja ungt fólk til umhugsunar á þessum tímamótum. Eins og einhver hafði orð á við okkur er ekki að finna neitt kynlíf í blaðinu, aðeins menn- ingu,“ segir Pétur Blöndal rit- stjóri íslands sem kemur út um helgina. Asamt Pétri unnu þau Mel- korka Stefánsdóttir og Börkur Gunnarsson að útgáfunni. Hvað rak ykkur til að fara út í þessa vinnu? „Mér fannst skorta að menning- unni væru gerð sérstök skil á lýð- veldisafmælinu. Sömuleiðis hefur mér þótt vanta skilgreiningu á ís- lensku þjóðareðli. íslendingar hafa aldrei reynt að skýra það. Þar af leiðandi fengum við þá Robert Jack, Sigurður A. Magnússon og Gunnar G. Schram til að svara því hvað gerir okkur að Islending- um. Jafnframt vildum við vekja upp ættjarðarkvæðin," segir Pétur. Yrkirfólk enn œttjarðarljóð? „Þau hafa verið utanveltu í skáld- skap að undanförnu og ekki þótt passa inn í heildarsvip þeirra bóka sem skáld hafa verið að gefa út. En sum drifu fram ættjarðarkvæði sem þau höfðu einhvern tíma samið og Einar Snorri ljósmyndari Jr Ofnaemið mitt skátasöngvar og Chanel-dragtir Það vantar fleiri menn eins og Ög- mund Jánasson sem eru tilbúnir að ganga fram og afhjúpa hæga og seig- fljótandi byltingu kapitalistanna á ís- landi. Eftir að gegnir menn höfðu eytt fyrirhluta aldarinnar til að halda gróðapungunum frá viðkvæmustu svæðum þjóðfélagsins — menntun, kirkju, fjölmiðlum og útgerð (að mestu — heiðruð sé minning bæjarút- gerðanna) — hefur hvert vígið fallið á fætur öðru á undanförnum árum. Nú vilja menn frjálsari kirkju, frjálsari menntun, frjálsari sölu á lífsbjörginni og frjálsari fjölmiðlun. Og hvert leiðir það? Við sitjum uppi með helvítis kapitalistana í hverri stöðu. Ögmundur hefur rétt fyrir sér þegar hann spyr hvaða frelsi það sé ef kapitalistar eru farnir að segja okkur fréttir. og hljómsveitin INRI. Kári Schram hyggst iilma kvöldið svo þetta gæti allt saman endað í sjónvarpsþætti. Smokkakvöld er í A-sal Hótel Sögu (kvöld. Kynntir verða RFSU smokkar og sænskur gesta- fyrirlesari mun halda erindi um gæðaeftirlit við framleiðslu smokka og segja frá þeim kostum sem góður smokkur þarf að vera búinn. Uppá- koman hefst klukkan 20.30 og í hléi verða born- ar fram veitingar. F U N P I R Gæði sem tæki í markaðssókn er námskeið sem haldið verður kl. 16.00 í Tæknigarði. Birna Einarsdóttir viðskiptafræðingur og Magnús Pálsson framkvæmdastjóri. Andri Árnason hefur umsjón með námskeiðinu Nauðasamningar og greiðslustöðvun sem fram fer í Endurmenntunarstofnun kl. 16.00. Kynning á tölvunetinu „Internet" ferfram f Tæknigarði kl. 16.00. Anna Clyde dósent er leiðbeinandi. Fjailað verður um nýja löggjöf um hluta- félög (Tæknigarði kl. 16.00. Stefán MárStef- ánsson prófessor og Jón Ögmundur Þormóðs- son lögfræðingur leiðbeina. Halldóra Arnar listfræðingur flytur fyrirlestur á Kjarvalsstöðum kl. 20.15. Nefnist hann Minn- ing um ítölsku borgina. Efni hans er menn- ingarsaga Ítalíu eftir seinni heimstyrjöld. BÍÓFRUMSÝNINGAR Sambíóin frumsýna stórgrínmyndina Ace Ventura í kvöld. Þessi mynd sló óvænt í gegn í Bandaríkjunum og sat samfellt í einn mánuð í efsta sæti yfir aðsóknarmestu myndir landsins. Aðalsöguhetja myndarinnar er einkaspæjarinn Ace Ventura og fjallar myndin um örvæntingar- fulla leit hans að týndum höfrungi. SJÓNVARP RIKISSJONVARP 18.15 Táknmálsfréttir 18.25Töfraglugginn 18.55 Fréttaskeyti 19.00 Viðburðaríkið Heldur vidburðalítil upptaln- ing á því sem er að gerast um helgina á sviðilista og menningar. 19.15 Dagsljós 20.00 Fréttir 20.30 Veður 20.35 fþróttahorn- ið 21.00 Hjónaleysin Fjölþjóðlegur mynda- flokkursem gerist á Langbarðalandi á 17. öld. 22.40 Gengið að kjörboröi /þessum þætti verður fjallað um helstu mál er varða Hveragerðiog Selfoss. Djöfullinn kemur okkur hinum það við? Svona um- ræður eiga heima í félagsheimilum en ekki sjónvarpi. 23.00 Ellefufréttir Eina tæki- færi fréttastofunnar til að skúbba fréttum. STÖÐ TVÖ 16.45 Nágrannar 17.30 Með afa 19.19 19.19 20.15 Eiríkur Eróþreytandi við að þjarma að þeim sem honum tekst að draga innístúdíóið til sín. 20.40 Systurnar Reed-systurnar og fjölskyldur þeirra í sorg og gieði. 21.30 Kiri Te Kanawa Þáttur með sópransöngkonunni frægu. 22.00 Engillinn Bright Angel Vegamynd um strák sem hittir strokustetpu og á ferðalagi þeirra uppgvöta þau ýmis sannieikskorn úrlifihvors annars. 23.30 Föðurarfur Miles from Home Richard Gere leikur ungan mann sem blöskrar framferði banka- manna gagnvartforeldrum sinum sem eiga bóndabýli. í stað þess að láta býiið af hendi brennir hann það til ösku og leggur síðan á flótta. 01.15 Eftirförin mikla The Great Locomotive Chase Klassíker frá 1956 um verkalýðsbaráttu á tímum þrælastriðs- ins. 02.30 Dagskrárlok Föstudagur P O P P Mæðusöngvasveit Reykjavíkur er hallæris- legasta og væmnasta hljómsveit sem sögur fara af. Hún er á Ásláki í Mosfellssveit f kvöld. Af til- litssemi við Mosfellinga treður hljómsveitin upp undir nafninu Mæðusöngvasveitin Three Ami- gos. Bubbi slær hvergi af á ferð sinni um landið. í kvöld er hann í Hnífsdal. Sniglabandið er komiö á skrið og sinnir dreií- býlinu þessa helgina — í Gjánni á Selfossi í kvöld. Hunang er hljómsveit frá Akureyri sem komin er í bæinn og spilar á Gauki á Stöng f kvöld. Þú ert er sex manna stórsveit sem ætlar að vera í myljandi stuði á Feita dvergnum. Sveitin skartar bæði karlkyns og kvenkyns söngspírum. Black Out er á Hótel Mælifelli á Sauðárkróki í kvöld. Fánar ætla að halda uppi fjörinu á Café Royale í Hafnarfirði. BAKGRUNNSTÓNLIST Siggi Björns, trúbadorinn ódrepandi, kemur frá Köben sérstaklega til að spila fyrir gesti á Café Amsterdam. Léttir sprettir heitir eldhress hljómsveit sem spilar fyrir gesti Rauða Ijónsins. Karl Möller gælir við svörtu og hvífu nóturnar og hlustir gesta Hótel Borgar í kvöld. Eyjólfur Kristjánsson og Ingi Gunnarætla að raula í Turnhúsinu. Bjössi greifi trúbadorast á Fógetanum. L E I K H Ú S Hugleikur sýnir Hafnsögur í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu kl. 20.30. Hugleikur hefur sjaldan brugðist leikhússunnendum og gerir það heldur ekki nú. Gaukshreiðrið á Stóra sviði Þjóðleikhússins 26 FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.