Eintak - 05.05.1994, Qupperneq 32
Finnski Haphazard-hópurinn heldur sýn-
ingu I Hlaðvarpanum. Það eru þær Jóhanna
Bruun. Maikki Harjanne og Eppu Nuotio
sem skipa flokkinn og leika þær sér með kven-
ímyndina og hvunndagshetjuna Haphazard. Hún
hefur verið kölluð enfant terrible.
Alda Siguröardóttir sýnir [ Portinu verk úr
tvinna, stáli, bókbandslími og plexigleri. Sýn-
ingin stendurtil 15. maí.
Verk Þóreyjar Magnúsdóttur hanga uppi í
Gallerí Sævars Karls að Bankastræti 9. Æja, eins
og hún er kölluö, sýnir skúlptúra unna í leir,
járn, stein, rekavið og gips sem málaðir eru
með jarlitum. Æja málar meðal annars Ijótleika í
andlitum þess fólks sem hún rekst á. Þetta er
sölusýning.
Farandsýning stendur yfir í kjallara Norræna
hussins þar sem sýndar eru teikningar eftir
börn á Norðurlöndum. Henni lýkur á sunnu-
daginn.
Sýning á smáhillum og borðum eftir Gunnar
Magnússon innanhúshönnuð í Gallerí Greip.
Húsgögnin eru til sölu.
Tryggvi Ólafsson opnar sýningu í Listasafni
ASÍ á laugardaginn.
Helga Rún Pálsdóttirog Bergdís Guðna-
dóttir opna sýningu á fatahönnun sinni í Port-
inu í Hafnarfirði á laugardaginn. Þetta er sölu-
sýning og fara fram sérstakar sýningar i umsjón
Helenu Jónsdóttur dansara kl. 16.00 laugar-
dag og sunnudag.
Hulda Hákon sýnir málverk og skúlptúra á
Kjarvalsstöðum. Ólafur Gíslason heldur
sömuleiðis sýningu að Kjarvalsstöðum og er yf-
irskrift hennar „Vernissage". Seölabankinn er
hér með hvattur til að kaupa óþvegnu rauðvíns-
glösin hans Ólafs. Svo hanga verk Kjarvals
sjáifs að sjálfsögðu uppi líka.
Listasafn Háskóla íslands er með sýningu á
nýjum verkum í eigu safnsins á öllum hæðum f
Odda.
Jóhann Sigmarsson stendur fyrir sýningunni
„Drög að veggfóðri" á Mokka.
Anton Einarsson sýnir málverk á Veitinga-
staðnum að Laugavegi 22. Nokkuð glúrinn
bara.
Lýsingar Barböru Árnason við Passíusálma
Hallgríms Péturssonar hanga uppi í Listasafni
íslands. Býsna góðar hugmyndir færrar lista-
konu. Yfirlitssýningin á verkum Jóns Gunnars
Árnasonar stendur líka yfir í Listasafninu.
Guðbergur Bergsson kallar Jón Gunnar galdra-
dreng og segir sýninguna einstæða. Sýningarn-
ar í Listasafninu standa til mánudags.
Þórdís Zoega húsgagnahönnuður sýnir stóla f
Stöðlakoti. Þar á meðal eru stólarnir Stelkur og
Tjaldur sem koma á markað innan skamms.
Þetta er síðasta sýningarhelgi.
B í Ó I N
BIOBORGIN
Full á móti Grumpy Old Men ★* Bessi og
Árni þeirra Ameríkana, JackLemmon og
Walther Matthau, í tiltölulega saklausu og
góðlátlegu gríni sem gengur ekki mjög
nærri hláturtaugunum. En það má stund-
um brosa.
Óttalaus Fearless *** Mynd um efni
sem fáir leikstjórar komast lífs frá, sjálfan
dauðann. Weir tekst þó að búa til sterka
mynd og sleppur næstum óskaddaður.
Rosie Perez leikur frábærlega.
Hús andanna The House of the Spirits
*★** Frábærleikur. Myndin verður
aldrei leiðinleg þrátt fyrirþriggja tima
setu.
FYRIR PIPRAÐA
Það er eina vonda við að pipra
er að fólk hálfvorkennir manni
eins og maður sé að missa af
öllum heimsins
gæðum. Leiðin til
að pipra og kom-
ast upp með það
án þess að fólk
líti á mann sem
annars flokks er
að fara á skrifstofur Félags-
máiastofnunar Kópavogs og fá
lánaða spóluna með frygðarst-
unum húsmóðurinnar í blokk-
inni, fjölfalda hana og spila
hana síðan reglulega í svefn-
herberginu. Það ætti þurka
vorkunarglampann úr augum
nágrannanna. Þeir djarfari geta
síðan spilað spóluna frá stof-
unni, eldhúsinu eða neðan úr
geymslunni og helst oft á dag.
Þá mun vorkunin í augum ná-
grannanna víkja fyrir öfund.
allt, en ég tek aldrei yfir Abba.
Þegar ég var ungur var Eurovision
einn af hápunktum ársins. Þetta var
viðburður sem keppti við jólin og
barnafmælin, mín. Eurovísjón var
itt! Abba voru jú þaðan; það voru
Slade sem prumpuðu á kynninn;
það var í Eurovsion sem tsraelar
sungu „Hóra! Hóra!“ við fögnuð
kúk og piss kynslóðarinnar. En
með aldrinum hefur þessi há-
punktur einhvern veginn orðið
óljósari í minningunni eftir því sem
styttra er orðið síðan viðkomandi
keppni átti sér stað. Á tímabili var
juró hallærislegri en HLH og Brim-
kló. tslenskir skallapopparar tínd-
ust í keppnina einn af öðrum, hrós-
uðu hári fram yfxr keppendur ann-
arra landa, kannski litlu öðru, og
loks kom Sígga íslendingar eru
allt í einu orðnir júrófíklar á ný. t
dag dirfist ekkert fyrirtæki svo mik-
ið sem að láta sig dreyma um að
halda árshátíð á Eurovision-kvöldi.
Þessi tónlistarmessa sjónvarpsins
hefur lengi verið helgiathöfn á
mínu heimili. Ef það er ekki poppið
sem er dýrkað er það floppið. I ár
var svindlað með atkvæði, það var
svindlað með útsetningar og það
var vélað þar til allt var orðið hélað.
En samt var engin leið að sofna yfir
keppninni í ár. Aldrei þessu vant
var kippa af fínum lögum og þau
sem voru stolin voru í það minnsta
úr skemmtilegum áttum (saman-
ber hinn dvergvaxna Ted Nugent
Rúmeníumanna). Kjólaatriði
Rússa var tvímælalaust besta sýning
síðan Hljómar komu út úr líkkist-
unum á Hótel íslandi um árið. Ef
eitthvað er að marka aðra fjölmiðla
um sögusagnir af skriflegum samn-
ingum urn stigagjöf, ætti að fjölga
þeim, og neyða okkur og aðra Evr-
ópumenn til að sína enn meiri lit.
©
LANDID
Sá gamli ruglar afviti
WlLLIAM S. BöRROUGHS
Vaudeville voices
★★★
Hr. Burroughs er orðinn gamli
karlinn í bókmenntunum, tónlist-
inni, kvikmyndaheiminum og guð
veit hverju. Hann skrifar spólgraða
unglinga í kaf, hann var síðastur til
að taka upp plötu með Kurt Coba-
in, hann stal senunni frá krúttlega
hjartaskurðlækninum Matt Dill-
on. Áttræður maðurinn afkastar
meiru á dag en meðal skiptinema-
samtök láta sig dreyma um á heilu
ári. Vaudeville voices er samtíning-
ur af upptökum sem Burroughs
gerði með Brion Gysin og lan
Sommerville um miðjan sjöunda
áratuginn. Á þessum árum voru
þessir plógar hins óplægða að velta
sér upp úr óumflýjanlegu hruni
tungunnar eins og við þekkjum
hana. Þeir byrjuðu á þvi að klippa
sundur og saman blaðagreinar og
bókmenntaverk. Þeir neituðu að
hugsa rökrétt og héldu því fram að
bæði ástin og orðið væru vírus
(veira). Þetta varð auðvitað til þess
að þeir fóru að klippa saman upp-
tökur af orðum og raða saman
samhengislaust. Undirmeðvitund-
in skyldi koma fram hverju sem
gegndi og gerði það svo sem
kannski, án þess að nokkur tæki
eftir henni. Niðurstaðan lét altént
ekki á sér standa. Setningar þær
sem þekja þennan geisladisk eru
óskiljanlegar, annað hvort orð er út
í hött. Að leita að söguþræði er eins
og að bíða eftir annari Abba í júró.
Maður setur Vaudeville voices ekki
á fóninn til að undirbúa næstu
Englandsferð. Þaðan af síður sér til
skemmtunar. Ef ekki væri fyrir se-
fjandi rödd Burroughs ætti þessi
diskur skilið beina leið í heilunar-
sessjón hjá bókmenntafríkum gær-
dagsins (fínt nafn á lagi vel að
merkja). En röddin hans Vilhjálms,
hún er svo heillandi að hún fer
langt út fýrir alla skilningsþörf.
Hún er brim. 0
Spírandi lágmark ...
ogvelþað!
Sleeping seconds
Destroyed
©
Indianapolis í Bandaríkjum
Norður Ameríku gaf okkur John
BlÚHÖLLIN
Hetjan hann pabbi My Father the Hero
★*★ Huggulegasta gamanmynd með
ágætum leik Depardieu.
Fingralangur faðir Father Hood ★ Leiðin-
leg mynd um leiðinlegan pabba og enn
leiðinlegri börn.
Pelikanaskjalið The Pelican Brief ** Þrátt
fyrir ágætt efni kemst þessi mynd aldrei á
flug. Bókin er betri. I það minnsta fyrirþá
sem hafa þokkalegt ímyndunarafl.
Leikur hlæjandi láns The Joy Luck Club
*★* Indæl mynd um kínverskar konur.
Himinn og jörð Heaven and Earth ** Síð-
asti hlutinn af trílógíu Oiivers Stone um
Víetnam. Hér reynir hann að segja mikla
sögu en næraldrei tökum á henni.
Sister Act 2 * Nunnurnar hafa skipt út af
fyrir krakka á glapstigum. Söngurinn er
enn poppaður gospel. Sagan enn þunn og
Whoopi enn með of fáar línur.
Rokna Túli *** Pað er komið íslenskt
tal við þessa mynd sem hefur fengist
nokkuð lengi á vídeóleigunum. Börnin
mæla með henni.
Beethoven 2 * Annarþáttur með fleiri
hundum en færri og þynnri bröndurum.
HÁSKÓLABIÓ
Backbeat ★*★ Pað bjargar myndinni að
það er skilið við sögu Bitlanna á þröskuldi
frægarinnar og við dyrnar heima hjá Rin-
gó. Það erþví lítið afseinni tíma væmni
Bítlanna en meira afsexi, dópi, rokki og
róli. Stjarna myndarinnar er lan Hart - -
kannski ekki furða þar sem hann leikur
stjörnu Bítlanna, Lennon.
Nakinn Naked ★** Hin ágætasta skoð-
unarferð um lægstur lendur Englands,
neðan mittis og hungurmarka.
Robocop 3 * Vondurendirá annars
góðri sériu um mann- vélmennið i lögg-
unni sem segir reyndar upp i þessari
mynd og slæst í lið með þeim sem ekki
einu sinni löggan nennir að vernda.
Leitin að Bobby Fischer Searching for Bob-
by Fischer ** Vandvirknislega gerð mynd
um dreng sem á erfitt með að standa
undirþeim miklu kröfum sem gerðar eru
til hans.
Eins konar ást The Thing Called Love **
Glöð mynd um ungt fólk í Ameríku, létt
yfirbragð og fallegir leikarar.
Litli Búdda Litle Buddha *★ Práttfyrir
glæsilegan búning vantar einhvern neista i
þessa tilraun Bertoluccis til að búa til
mikla epíska sögu.
Blár Blue *★ Kieslowski-myndirnar verða
þynnrí og þynnri eftir því sem þær verða
fleiri og fleiri.
Listi Schindlers Schindler's List ****
Verðskulduð Úskarsverðlaunamynd Spiel-
bergs. Allir skila sínu besta og úr verður
heljarínnar mynd. Meira að segja Polanski
braut odd af oflæti sínu og fór á ameríska
mynd (en hann er nú reyndar gyðingur og
missti mömmu sína í helförinni).
í nafni föðurins In the Name of the Father
**** Mögnuð mynd um réttarmorð i
Englandi. Umdeild fyrir tilfærslur á smá-
um atriðum sögunnar en ísköld og sönn
engu að siður.
Beethoven 2 ★ Meira gelten hlátur.
LAUGARÁSBÍÓ
Ögrun Sirens ** Innihaldslaus og snubb-
ótt saga sem hefði mátt klára fyrir hlé.
Pótt sumarkonurnarséu full-jussulegar
geta karlar skemmt séryfir að horfa
prestfrúna. Og konurnará Hugh Grant.
Þessi tvö eiga stjörnurnar.
Tombstone * Myndin erlengi ígang en
svo loks þegar þeir byrja að skjóta þá
verður hún eins og veríð sé að sýna úr
fimm vestrum i einu.
8 sekúndur 8 Seconds * Amerisk goðsögn
sem fær hjörtun i miðvesturrikjunum til að
tifa. Hefur minni áhrif i Laugarásnum.
REGNBOGINN
Trylltar nætur Les Nuits Fauves *★* Hrá
mynd sem fjallar ef til vill frekar um ást-
sýki en alnæmi. Ung leikkona, Romane
Bohringer stelur senunni í sjálfsævisögu-
legu hlutverki leikstjórans.
IP5 ** Falleg mynd en ekki mjög góð.
Verður minnst fyrir að vera síðasta mynd-
in sem Yves Montand lék í. Og hann þarf
ekki að skammast sín fyrir að hafa dáið frá
þessum leik.
Píanó *** Óskarsverðlaunaður leikur i
aðal- og aukahlutverkum. Pykk og góð
saga.
Kryddlegin hjörtu Como Aqua Para Chocol-
ate *** Ástir undir mexikóskum mána.
Lævís leikur Malice * Sérdeilis bjánaleg
mynd. Ætlarað gabba áhorfandann með
þvíað byggja upp söguþráð en henda
honum svo skyndilega og taka upp nýjan.
Áhorfandinn lætur ekki gabbast, heldur
móðgast.
Cougar Mellencamp og Axl
Rose. Hvort sem það er mæli-
kvarði á Sleeping seconds eða ekki er
þetta lélegasta plata sem undirrit-
aður hefur heyrt. Verstu tónleikar
Sogbletta færu betur í vasa þótt þeir
væru teknir upp á segulband á
stærð við stóra sviðið í Þjóðleikhús-
inu. Það var þjóðfélagslega spes að
stinga sikrisnælu í kinnina fyrir
fimmtán árum en að stinga henni
ryðgaðri í rassinn á sér í dag er
fremur kjánalegt. Athugið! Þessi
plata ógnar heilbrigði móður og
barns! ©
Bíó
JÚLÍUS KEMP
Kreppan
Konungur hæðanna
Sambíöin
★★
Loksins er hún komin, nýjasta
kvikmynd Steven Soderberg:
King of the Hill. Myndin var frum-
sýnd í aðalkeppninni á kvikmynda-
hátíðinni í Cannes síðastliðið sum-
ar en er nú fyrst að fara í dreifingu
víðsvegar um heiminn. Myndin
spannar stutt en erfitt tímabil í lífi
fjögurra manna íjölskyldu árið 1933
í suðurríkjum Bandaríkjanna þegar
kreppan stóð sem hæst. Aðalper-
sóna myndarinnar er tólf ára gam-
all drengur sem lifir sína döpru
daga á hótelherbergi í St. Louis.
Þessi mynd er ekki skemmtileg þótt
hún gefi raunsanna mynd af lífi
fólks á þessum tíma, sérstaklega
unga drengsins sem gerir sitt besta
til þess að komast heill í gegnum
þetta tímabil lífs síns þótt aðrir láti
bugast. Þetta er þriðja mynd Soder-
bergs, en áður hefur hann gert
verðlaunamyndina Sex, Lies and
Videotape og Kafka sem fékk aldrei
mikla dreifingu. Best hefur Soder-
berg tekist upp þegar hann fjallar
urn vandamál sinnar eigin kynslóð-
ar í nútímanum og ég á bágt með
að skilja hvers vegna hann er að
gera dýrar myndir sem byggja á
sögum lengst aftan úr fortíð um
tímabil sem hann hefur enga til-
fmningu fyrir. King of the Hill er
ekki léleg mynd, en það er eitthvað
sem vantar upp á til þess að mynd-
in verði virkilega áhrifarík. ©
STJÖRNUBfÓ
Fíladelfía Philadelphia ***★ Frábærlega
leikin. Pað hafa allir gott afað sjá þessa
mynd og ekki kæmi á óvart þótt hún yrði
notuð sem kennsluefni í alnæmisvörnum
þar til annað betra býðst.
Dreggjar dagsins Remains of the Day
**** Magnað verk.
Morðgáta á Manhattan Manhattan Murder
Mystery *★* Allen er fyndinn iþessari
mynd. Hún er ekki ein af hans bestu en
sannar að það er skemmtilegra að eyða
tímanum undirAllen-mynd en undirann-
ars konar myndum.
SÖGUBÍÓ
Konungur hæðarinnar King of the Hill *★
Þetta er ekki léleg mynd, en það er eitt-
hvað sem vantar upp á til þess að myndin
verði virkilega áhrifarik.
Líf þessa drengs This Boýs Life ***
Mynd um það hvernig búa á til grönsj-
kynslóðina, þó ekki eintóma Cobaina. Frá-
bærleikur hjá Ellen Barkin, líka stráknum
og meira að segja hjá Robert de Niro.
32
FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994