Eintak - 05.05.1994, Page 33
"En röddin hans Vil-
hjáims, hún er svo heill-
andi að hún fer iangt út
fyrir alla skilningsþörf.
Hún er brim.“
"Það var þjóðfélagslega
spes að stinga sikrisnælu
í kinnina fyrir fimmtán
árum en að stinga henni
ryðgaðri í rassinn á sér í
dag er fremur kjánalegt."
Nafn: Hafsteinn Einarsson
Fæðingardagur: 11. maí 1942
Hæð: 178 sm
Þyngd: Rúmlega 60 kg
Háralitur: Skolleitur
Augnlitur: Blár
Sérkenni: Engin, ég tilheyri þessari
dýrategund og er eins og hún almennt séð.
H\m rnig? Hvers
VEGNA?
Hl
rAÐAN?
HvERT?
Hafsteinn Einarsson er
formaður Tae-Kwon Do
deildar ÍR. Hann er mennt-
aður sem lögfræðingur en
hefur unnið ýmis störf í
gegnum tíðina að eigin sögn.
Hann stjórnar Tae-Kwon
Do deildinni í sjálfboða-
vinnu en hefur salt í graut-
inn með því að taka
menntaskólanema í einka-
tíma í „öllu sem hann kann
sjálfur", eins og hann orðar
það.
„Tae-Kwon Do er mörg
þúsund ára gömul bardaga-
og sjálfsvarnaríþrótt sem á
rætur að rekja til Kóreu en
hefur aðeins verið stunduð í
fimm til sex ár hér á landi,“
segir Hafsteinn. „Þetta er
svipað og karate að mörgu
leiti en helsti munurinn felst
í því að fætur eru notaðir
miklu meira í Tae-Kwon
Do. Hugmyndaffæðin á bak
við íþróttina er einna helst
fólgin í sjálfsögun," segir
hann.
„Við leggjum mikla áherslu á
að fólk noti ekki Tae-Kwon
Do til að slást utan æfinga og
ef menn hafa einhverja of-
beldishneigð þá fá þeir útrás
fyrir hana við æfingar. Ég
held að svona íþróttir geti
virkað vel sem forvarnarstarf
gegn ofbeldi.
Það eru bæði strákar og
stelpur í þessu og bæði kynin
æfa saman. Ég hef ekki tíma
til að æfa sjálfur en við erum
með stærstu deildina hér á
landi. Við erum nýflutt með
starfsemina í nýtt íþróttahús
í Mjóddinni og þátttakendur
hafa aldrei verið fleiri en í
vetur.“
„Ég þekkti all-stóran hóp af
krökkum sem stunduðu Tae-
Kwon Do og svo þegar dóttir
mín byrjaði að æfa bauð ég
þeim aðstoð mína. Þetta gæti
verið fullt starf því það krefst
mikillar skipulagningar að
henda öllu því sem þarf að
gera í framkvæmd og að
halda vel utan um það.
Fyrsta Islandsmótið fór fram
í fyrra og hugmyndin er að
vera með Islandsmót aftur í
haust. Vandinn er hinsvegar
sá að það er ekki mikið að
gerast fyrir utan okkar deild,
en við höfum fúllan hug á að
bæta úr því ef við getum.“
„Ég held að áhugann á Tae-
Kwon Do þurfi ckki að rekja
til Ninja Turtle myndanna,“
segir Hafsteinn. „Hann fer
ósköp eðlilega stígandi og ég
held að það sé fýrst og fremst
að þakka því að við reynum
að halda uppi góðu félags-
starfi og erum með góðan og
öflugan þjálfara. Þeir sem
byrja á þessu eru ánægðir og
svo spyrst það út. Það er eng-
in múgsefjun á ferðinni.“
„Mig dreymir um að eignast
í framtíðinni lítið sumarhús
á Suður- Englandi og láta
tvær stelpur, ekki eldri en 25
ára þjóna mér. Ég ætla að
gera þetta þegar ég kemst á
elliheimilisaldur því ég held
ég verði svo óþolandi gamal-
menni.“
EINAR MED OLLUM
miklar efasemdir hafa herj-
að á mig alla síðustu viku.
ég held að það sé ekki góð
hugmynd að lofa að fara í
sund svona óundirbúinn. að
mörgu þarf að gæta þegar
busl er íhugað eftir mörg ár
á þurru íandi. það sem plag-
að hefur mig er sundkunn-
áttan, litaraftið og hvar er
sundskýlan?
og ekki tekst mér að
sannfæra baðvörðinn
um að þetta sé nýjasta
tegund froskalappa.
eða hvað?
«
(boink)
og hvaða laug á ég að
fara i? ég verð að vita
hvor endinn sé sá djúpi
þegarég sting mértil
sunds. síðast rotaði ég
mig, enda var það laug
sem ég þekkti ekki til í.
og hvernig lít ég út í kafi?
hræðslan við hið ókunna spilar §
líka inní. ekki langar mig að 1
hitta svona fyrirbæri einhvers
staðar þegar 1000 metramir
eru þreyttir.
svo fæ ég klór í augun.
það er svo vont.
framhald.
(átsj)
FIMMTUDAGUR 5. MAÍ1994
33