Eintak - 18.07.1994, Page 1
Valgeir Víðisson, sem hefur verið saknað síðan 19. júní
Hafðifengið
morðhótanir
Samkvæmt heimildum EINTAKS
hefur komið fram í yfirheyrslum
lögreglunnar að Valgeiri Víðis-
syni hafi ítrekað veri hótað lífláti af
ákveðnum aðilum í fíkniefnaheim-
inum. Þennan hóp hafi hann ætlað
að hitta að máli sama dag og hann
hvarf, nánar tiltekið 19. júní. Sam-
kvæmt heimildum blaðsins hafði
hann komist í kast við lögregluna
vegna fíkniefnamisferlis. Sam-
kvæmt fyrrgreindum framburði, ef
hann er réttur, voru líflátshótanirn-
ar í tengslum við vangoldnar skuld-
ir Valgeirs.
Jónas Jón Hallsson aðstoðar-
yfirlögregluþjónn vildi ekkert segja
um það hvort þetta væri rétt eða
ekki. Hann sagði að lögreglunni
hefði borist fjöldi sögusagna um
þennan atburð og verið væri að
kanna þessa líkt og allar aðrar.
Hann segir að rannsóknin beindist
að engum sérstökum hópum eða
einstaklingum og enginn hafi verið
handtekinn.
Rannsóknin á hvarfi Valgeirs
hefur ekki enn verið vísað til Rann-
sóknarlögreglu ríkisins. Jónas segir
að þangað verði henni ekki vísað
nema rökstuddur grunur vakni um
að hann sé ekki á lífi. „Þá munu
aðrir taka ákvörðun um framvindu
mála,“ segir hann. Jónas segir að
Rannsóknarlögreglan fylgist vel
með málinu og einnig sé gott sam-
starf við Fíkniefnalögreglu ríkisins.
Leitin að Valgeiri er í fullum
; gangi og er nú aðallega leitað í fjör-
f unum við Reykjavík og eyjunum
| sem liggja fyrir utan. <D
Sjá blaðsíðu 2
Unnur, Valkyija
íslands
Hörkudeilur meðal
stjómaríiða vegna
Evrópuleiks Jóns
Baldvins
IVIiðhúsasjóðurinn
efnagreindur
í fjórgang
Ingibjörg Sólrún
sendir ríkinu hand-
boltann
Starfsmenn Þor-
geirs & Ellerts á
báðum áttum
Böm leggja íbúðar-
húsírúst
Sénriskuleg og
háHgeggjuð Bmarit
+