Eintak

Tölublað

Eintak - 18.07.1994, Blaðsíða 20

Eintak - 18.07.1994, Blaðsíða 20
Birgir Andrésson - gallerí. VerkJóns Ósk- ars eru unnin á pappír. Þorri Hringsson opnar sýningu á málverkum í gullsmíöaverkstæöi Ófeigs á laugardaginn. Öll eru verkin unnin á pessu ári. Porri nam í MHÍog í Jan Van Eyck akademíunni í Ma- astricht. Sýningin stendur fram í ágúst. Sigurður Kristjánsson opnar sýningu í Gall- erí Greip. Sigurður er elsti núlifandi mynd- listarmaður landsins og jafnvel Erró státar ekki að slíkum titli. Sigurður sem er fædd- ur 1897 sigldi til náms út til Kaupmanna- hafnarárið 1918. í Gallerí Greip verða jafn- framt sýnd verk eftir Kristján Fr. Guðmunds- son en hann hefur llfað og hrærst í mynd- listarheiminum áratugum saman og notið tilsagnar færustu listamanna þjóðarinnar. Allar myndir á sýningunni eru til sölu, pæ- lið íþví. Sýningin stendur opin til 28. júlí. Alls kyns listamenn sýna í bílastæðinu á Borg- arkringlunni. Erlendir sem útlendir. 35 lista- menn talsins. Meðal listamanna eru Ijóðskáldið Didda og myndlistarmennirnir Fjölnir Braga- son og Nonni Björnholt Ásgeir Lárusson er með málverkasýningu á veitingastaðnum 22 á Laugavegi. Atar skemmtilegar myndir. í Galleríi Sævars Karls er Guðný Magnús- dóttir með sýninguna „Lesið f leir". Óll verkin eru úr hábrenndum jarðleir. Hermína Dóra Ólafsdóttir sýnir myndir unn- ar með blandaðri tækni í Galleríinu Hjá þeim. Opnuð hefur verið sýning í Norræna húsinu á verkum Ragnheiðar Jónsdðttur Ream Verkin eru fengin að láni hjá listasöfnum og einkaaðilum. Anne Barbier sýnir í Gallerí 11. Anne er frönsk, búsett í París og hefur sýnt verk sín um víðan völl. Hún notar meðal annars litaduft, bergsalia og ösku til listsköpunar sinnar. Ljóðasýningin Ljóð Þjóö í Perlunni þar sem 50 ættjarðarljóð hafa verið prentuð á póstkort. Kí- kið á þessa sýningu og sendið einhverjum vini Eldgamla ísafold á póstkorti. Fólk hefur gott af slíkum sendingum. Þorvaldur Þorsteinsson á veg og vanda af sýningunni. Skúlptúr - skúlptúr - skúlptúr á Kjarvalsstöð- um stendur fram yfir helgi. í deiglunni heitir sýningin í Listasafni íslands. Þar eru sýnd verk frá árunum 1930-1944 og er reynt að varpa Ijósi á þau umbrot sem urðu þegar gamalgróið bændasamfé- lagið mætti vaxandi borgarmenningu einkum í myndlist, listiðn, hönnun og byggingarlist. Petta er mjög athygtisverð sýning og greinilega mikil vinna á bak við heimildasöfnunina. Sjáið þessa sýningu. íslandsmerki og súlnaverk Sigurjðns Ól- afssonar er yfirskrift sýningarinnar f Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. Sýningin stendur út árið. Húbert Nói Jðhannesson sýnir verk sín á Sólon íslandus. Þar hanga uppi níu afar dimm málverk. Ljósmyndir Joel-Peter Witkin stendur yfir á Mokka-kaffi fram á föstudag. Þær eru ekki beint listaukandi en það eru veitingarnar heldur ekki. B í Ó I N BIOBORGIN Maverick ** J ody Foster skýtur James Garner og Mel Gibson ref fyrir rass í þessum grínvestra. Blákaldur raunveruleiki Reality Bites *** Góð skemmtun fyrir unglinga. Fjandsamlegir gíslar Hostile Hostages ** Nokkuð nálægt þvíað vera „dúndur grin- mynd“, eins og segirí auglýsingnnunni. Angie ** ★ Mannleg mynd, yndæl og þó nokkuð fyndin. Það er kannski ekki sérstaklega fréttnæmt þó haldnir séu tónleik- ar í Reykjavík. En styrktartónleik- ar söngvarans Maríusar Sverris- sonar vekja hins vegar athygli, því með þeim fer Maríus fram á stuðning velunnara sinna til að kosta hann til náms í Tónlistarhá- skólanum í Vín. Tónleikarnir hafa fengið nafnið Barnið burt, og þeir verða haldnir á fímmtudag- inn kemur að Ægisgötu 7. Þar koma fram auk Maríusar, þau Steinunn Ólína Þorsteinsdótt- ir, Páll Óskar og millarnir, Ragnheiður Árnadóttir sópran- söngkona og þau Aðalheiður Þorsteinsdóttir og David Knowles píanóleikarar. Einn af tíu heppnum „Þetta kernur svolítið snöggt upp á,“ segir Maríus, sem getur borið höfuðið hátt þessa dagana. „Ég fór í inntökupróf fyrir mán- uði síðan og var svo heppinn að komast inn í skólann. Námið tek- ur tvö ár og deildin sem ég verð í fæst við söng, leiklist og dans.“ Maríus var einn af 160 umsækj- endum sem sóttu um skólavist, en aðeins komust tíu inn í þetta skiptið. „Ég er búinn að sækja um námslán til Lánasjóðsins og fæ það væntanlega. En ég þarf hins vegar að vera í tveggja mánaða undirbúningsnámi í þýsku og í það nám lánar sjóðurinn ekki. Þess vegna ætia ég að halda þessa tónleika og biðja fólk um að styrkja mig. Ég hef heldur ekki mikinn tíma til stefnu því undir- búningsnámið hefst eftir hálfan mánuð og þá verð ég að vera mættur út til Vínar.“ Maríus hefur undanfarin tvö ár unnið við uppfærslur í Þjóðleik- húsinu. Hann tók meðai annars þátt í Skilaboðaskjóðunni, og syngur þar að auki með söng- hópnum Óskabörnin. Tónleikarnir hefjast kl. 21 að Ægisgötu 7 og kynnir verður leik- arinn Felix Bergsson. 0 ni í kröftum kvenna Unnur Sigurðardóttir, sterk- asta kona íslands, bætti við sig titlinum Valkyrja Islands á sumar- hátíð UlA um síðustu helgi. Sex konur kepptu með sér í hin- um ýmsu greinum, nánar tiltekið í „Dauðagöngu“, tvenns konar bíladrætti, hjólböruakstri, að henda dekkjum yfir rá og hey- baggahleðslu. Unnur vann í fjórum greinum en önnur í keppninni varð Bryn- dís Ólafsdóttir, fyrrum sund- drottning. Þriðja varð Petrún Jónsdóttir. 0 Kraftajötnar Mótshaldarí Valkyrju íslands, Magnús Ver Magnússon, ásamt nokkrum þátttakendum í keppn- inni. Sigurvegarinn, Unnur Sig- urðardóttir, er hér í heljargreip- um Versins sem virðist eins og fis íþessum félagsskap. Hús andanna The House of the Spirits**** Frábær leikur. Myndin verður aldrei leiðinleg þrátt fyrir þriggja tima setu. BÍÓHÖLLIN Löggan í Beverly Hills 3 Beverly Hils Cop 3* Líklega lokatilraun til að lífga við löngu dauðan feril Eddie Murphy. Bændur í Beverly Hills The Beverly Hillbillies * Ef til vill er það vegna þess að íslendingar voru aldrei ald- ir upp við sjónvarpsþættina, sem myndin erbyggð á, en einhvern veginn ferhún fyrir ofan garð og neðan. Tómur tékki Blank Check *kSaga afdreng sem kemst að þvíað það besta í veröld- inni er ókeypis með því að eyða milljón dollurum á sex vikum og hvila sig í faðmi fjölskyldunnar á þeim sjöunda. **** segir Davíð Alexander, 9ára. Hvaft pirrar Gilbert Grape What’s Eating Gil- bert Grape *** Ein af þessum myndum sem maður gleymir sér yfir. Þrumu-Jack * Ástralir elska Paul Hogan og þreytast eflaust ekki á að sjá hann i þessari mynd. Öðru máli gegnir um ís- lendinga. Ace Ventura **** Ógeðslega, ógeðs- lega fyndin i fyrsta sinn en tólfsinnum leiðinlegri í næsta skipti, — segir Davíð Alexander, níu ára gagnrýnandi barnaefnis /'EINTAKI. HÁSKÓLABÍÓ Löggan í Beverly Hills 3 Beverly Hills Cop 3 * Það er löngu komið i Ijós að Eddie Murphy er einnar hliðar maður. Ef maður snýr honum við þá er sama lagið hinum meginn. Græðgi Greedy * Óttaleg þvæla. Veröld Waynes 2 Wayne’s World 2 *** Sannkölluð gleðimynd. Brúðkaupsveislan The Wedding Banquet * * Gaman mynd um homma i felum. Beint á ská 331/3 Naked Gun 331/3 The Final Insult ★ Frekar dapurleg tilraun til að halda lífi i þessari seriu. Með góðum hug má þó hlæja hér og hvar. Nakinn Naked ★★* Hin ágætasta skoð- unarferð um lægstu lendur Englands, neð- an mittis og hungurmarka. Listi Schindler’s Schindler’s List **** Verðskulduð Óskarsverðtaunamynd Spiel- bergs. Allirskila sinu besta og úr verður heljarinnar mynd. LAUGARÁSBÍÓ Serial Mom * * * Fyndin og bara rétt mátulega geggjuð svo ýmsir aðrir en ein- lægirJohn Waters-aðdáendur geta haft gaman af. Lögmál leiksins Above The Rim * Mynd um körfubolta og gæja. Ögrun Sirens ★★ Innihaldslaus og snubb- ótt saga sem hefði mátt klára fyrir hlé. Pótt sumar konurnar séu full jussulegar geta karlar skemmt sér við að horfa á prestsfrúna. Og konurnará Hugh Grant. Pessi tvö eiga stjörnurnar. REGNBOGINN Gestirnir Les Visiteurs **★ Frönsk della sem má hafa mikið gaman af. Hraður og hlaðinn farsi. Sugar Hill * Sýrópið og sykurinn drýpur af tjaldinu í einn og hálfan tima áður en myndin byrjar fyrir alvöru. Stuttu siðar er hún búin. Nytsamir sakleysingjar Needful Things ** Djöfullinn stígur upp til jarðar og breytir friðsömu þorpi i hálfgert helvíti. Venju- bundinn Stephen King. Píanó *** Óskarsverðlaunaður leikur i aðal- og aukahlutverkum. Pykk og góð saga. Kryddlegin hjörtu Como Aqua Para Chocol- ate *** Ástir undir mexíkóskum mána. STJÖRNUBÍÓ Bíódagar / raun er atriðið þar sem bónd- inn fer isagnakeppni við Kanann nægt til- efni til að sjá myndina. Stúlkan mín 2 My Girl 2 *★* Mynd sem er um og fyrir gelgjur — og ágæt sem slík. Þeir sem eru komniryfir hana eða hafa aldrei orðið fyrír henni geta meira að segja haft nokkuð gaman af. Tess í pössun Guarding Tess *★* Hæg, Ijúf og líklega yndæl gamanmynd með smá spennu i lokin. Söguþráðurinn skiptir i sjálfu sér ekki miklu eins og í mörgum svipuðum myndum heldurandinn sem svifuryfir vötnunum. Fíladelfía Philadelphia **** Frábærlega leikin. Það hafa allir gott af að sjá þessa mynd og ekki kæmi á óvart þótt hún yrði notuð sem kennsluefni i alnæmisvörnum þar til annað betra býðst. Dreggjar dagsins Remains of the Day **** Magnaðverk. SÖGUBÍÓ Maverick ** Bíómynd byggð á sixtís sjónvarpstöggunni sem skaut allt í tætlur. Bíódagar *** Falleg en dálítið gölluð Syndið 200 metrana! mynd. Byrjar vel en leiðist út í hálfgerða áramótasketsa og endar i langri jarðaför. Lögregluskólinn — Leyniför til Moskvu Police Academy— Mission to Moscow. * Yfirþyrmandi vitleysa sem er alltaf sjaldan skemmtileg. Rokna Túli ★** Talsett teiknimynd sem börnum finnst bara nokkuð gaman af. © 20 MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ1994

x

Eintak

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.