Eintak

Útgáva

Eintak - 18.07.1994, Síða 2

Eintak - 18.07.1994, Síða 2
Ráðamenn bítast um ESB ..Mér finnsl absúm-leikhús.“ segirBjöm Bjamason formaður utanríkismálanefndar Jón Baldvin Hannibalsson „Getum ef til vill hafið aðildarviðræður strax í janúar 1995.“ Björn Bjarnason „Ég dreg íefa að við eigum samleið með Norðuriöndunum 1. janúar 1995." Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra segir að í viðræðum sem hann hafi átt við forystumenn Evrópusambandsins á fimmtudag hafi komið fram að Islendingar geti hugsanlega átt möguleika á að hefja viðræður um aðild að ESB strax í janúar á næsta ári. Þá verður tekin ávörðun um það hvort hefja eigi viðræður við smáríkin í Miðjarðar- hafi sem þegar hafi sótt um aðild. „Það sem er nýtt í niðurstöðum þessara viðræðna er að utanríkis- ráðherra framkvæmdarstjórnar ESB telur ekki loku fyrir það skotið að samningaviðræður hefjist fyrir ríkjaráðstefnuna 1996, eða strax í janúar á næsta ári.“ EINTAK bar undir Björn Bjarna- son frétt Morgunblaðsins um að Is- lendingar ættu þess ef til vill kost að helja viðræður um aðild að ESB á næstunni og ganga í ESB um svipað leyti og hin Norðurlöndin. „Ég dreg i efa að við eigum samleið með Norðurlöndunum 1. janúar 1995. Mér finnst þetta eins og eitthvað ab- súrdleikrit," sagði Björn. „Ég hef ekki heyrt yfirlýsingar ráðamanna ESB og get því ekkert um þetta sagt.“ Björn sagði einnig: „Utanrík- isráðherra hefúr ekkert umboð frá ríkisstjórn eða Alþingi um aðildar- viðræður að ESB. Hvaðan hefur hann það?“ Jón Baldvin segist ekki hafa verið í neinum aðildarviðræðum. Hann hafi einfaldlega verið að gera skyldu sína sem utanríkisráðherra og afla upplýsinga um afstöðu ráðamanna ESB til Evrópusamrunans og Is- lands. „Þessum upplýsingum þurf- um við á að halda,“ sagði hann. Þegar borin voru undir Jón þau ummæli Björns í Morgunblaðinu að hann legði lítinn trúnað í orð ut- anríkisráðherra um tímasetningar í þessu máli, sagði hann að viðræður sem færu fram milli utanríkisráð- herra Islands og formanns ráð- herranefndar EFTA annars vegar, og Hans van den Bruch utanríkis- ráðherra og framkvæmdarstjóra hins vegar, væru til í fundargerðum og væru í návist fjölda manna. „- Þetta eru staðreyndir," sagði hann. Ekki að sprengja ríkisstjórn Orðaskipti ráðamanna í fjölmiðl- um um þessi mál hafa vitaskuld vakið athygli. Jón Balvin Hanni- balsson var inntur að því hvort Al- þýðuflokkurinn væri að reyna að gera ágreining í Evrópumálum í rík- isstjórn og ætlaði sér í haustkosn- ingar með þau á dagskrá. „Það var óskað eftir þessum viðræðum fyrir löngu síðan. Þær eru hefðbundnar þegar nýr maður tekur við for- mennsku í ráðherraráði EFTA, þá leitar hann ævinlega eftir viðtölum við það land sem er í forsæti fyrir ESB á þeim tíma og helstu talsmenn framkvæmdastjórnarinnar. Menn þurfa að vera mjög þungt haldnir af samsæriskenningum ef þeir halda að fundir sem eru undirbúnir með margra mánaða fyrirvara snúist um svona heilaspuna,“ sagði hann. Björn Bjarnason var sammála Jóni Baldvini um að þetta hefði ekki áhrif á ríkisstjórnarsamstarfið. Hann sagði að Jón myndi eiga við- ræður við Davíð í dag og þá myndu málin skýrast betur. 0 SUfrið efriagreint fjorum sinrium en niðurstöðumar ekki birtar Silfursjóðurinn margfrægi úr Miðhúsum hefur verið efnagreind- ur fjórum sinnum, að sögn Vil- hjálms Vilhjálmssonar, fornleifa- fræðings á Þjóðminjasafninu. Nið- urstöður efnagreininganna hafa hins vegar ekki verið birtar þrátt fyrir að þær hafi verið afhentar þjóðminjaverði og ráðherra. Að sögn Vilhjálms var silfursjóð- urinn efnagreindur tvisvar í fyrra og hinar tvær efnagreiningarnar fóru fram í byrjun þessa árs. 1 öll skiptin var um bráðbirgðagrein- ingu að ræða en þrjár þeirra voru gerðar af Iðntæknistofnun og ein í jarðfræðideild Háskóla íslands. Þeir sem tóku þátt í greiningunni auk Vilhjálms voru Kristín Sig- urðardóttir og eðlisfræðingur hjá Iðntæknistofnun. Tvenns konar aðgerðum var beitt við efnagreiningarnar. Annars vegar var rafeindasmásjá notuð og hins vegar örgreinir í jarðfræðihús- inu sem Ieiðir til nákvæmari grein- ingar. Yfirborð gripanna var rann- sakað og síðan tekin sérstök sýni bæði úr þessum og öðrum silfur- sjóðum. Þau voru síðan borin sam- an við bút úr þjóðhátíðarpeningi frá 1974. Engar ályktanir voru dregnar af þessum efnagreiningum að sögn Vilhjálms en niðurstöður þeirra voru meðal annars sendar ráðherra. Vilhjálmur segir að viss líkindi hafi komið í ljós sem bentu til að frekari rannsókna væri þörf til að segja til um aldur sjóðsins. Vilhjálmur segir að þegar efa- semdir kviknuðu um að silfursjóð- urinn kynni að vera falsaður hafi verið óskað eftir sérfræðiáliti við Pór Magnússon þjóðminjavörð. Þór hafi hins vegar aldrei sinnt því að svara slíkuin beiðnum og sýnt málinu algjört áhugaleysi.0 Valgeir haffði fengið moiðhótanir fyrir hvarfið Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum EINTAKS hefur komið fram í yfirheyrslum lögreglunnar að Val- geiri hafi ítrekað verið hótað lífláti af ákveðnum hópi í fíkniefnaheim- inum skömmu fyrir hvarf sitt. Þennan hóp hefði hann ætlað að hitta að máli daginn sem hann hvarf. Samkvæmt heimildum blaðsins hafði Valgeir komist í kast við' lögregluna nokkrum sinnum vegna fíkniefnamála. Líflátshótan- irnar voru í tengslum við van- goldnar skuldir við umræddan hóp samkvæmt umræddum fram- burði. Jónas Jón Hallsson aðstoðar- yfirlögregluþjónn sem stýrir rann- sókninni á hvarfi Valgeirs vildi hvorki játa né neita hvað væri hæft í þessu. Hann sagði að mjög marg- ar sögusagnir hefðu komist á kreik sem væru í svipuðum dúr. Sumir segðu að hann hafi engar hótanir fengið, aðrir segðu að hann hafi fengið ákveðnar hótanir. Hann sagðist kannast við þessa sögu en vildi ekki staðfesta að hún væri rétt. Hana væri verið að kanna eins og fjölda annarra. Jónas sagði að rannsóknin beindist ekki að nein- um sérstökum hópum eða einstak- lingum, enginn hefði verið hand- tekinn og það ekki á döfinni enn sem komið er. Rannsóknin á hvarfi Vilhjálms hefur ekki enn verið vísað til Rannsóknarlögreglu ríkisins. Að sögn Jónasar verður henni ekki vísað þangað nema rök- studdur grunur vakni um að hann sé ekki á lífi. „Þá munu aðrir taka ákvörðun um framvindu mála“, segir hann. Að sögn Jónasar fylgist RLR þó vel með málinu og einnig er gott samstarf við Fíkniefnalög- reglu ríkisins. Leitin að Valgeiri fer nú aðal- lega fram á ströndunum við Reykjavík í eyjunum sem liggja fyrir utan. Fjöldi manna úr björg- unar- og hjálparsveitunum tekur þátt í henni. Sumir hafa talið að Valgeir hafi horfið til útlanda. Samkvæmt heimildum blaðsins mun það telj- ast heldur ólíklegt. Daginn sem hann hvarf hafði hann beðið kunningja sinn um 5000 króna lán og virtist vera algerlega auralaus. Fátt bendir því til að hann hafi haft fjárhagslegt bolmagn til utanfarar. Annað sem mælir gegn því að hann hafi farið til útlanda er að hann skildi eftir sjónvarpið í gangi og kveikt á útvarpi er hann fór að heiman að sögn föður hans. (skv. frétt DV íö.júlí) Þá hefur hann ekki haft samband við föður sinn frá 19. júní.0 2 MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ1994

x

Eintak

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.