Eintak - 18.07.1994, Síða 6
EINTAK
Gefið út af Nokkrum ísiendingum hf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Framkvæmdastjóri: Hafsteinn Egilsson
Augiýsingastjóri: Örn Isleifsson
Dreifingastjóri: Trausti Hafsteinsson
HÖFUNDAR EFNIS í ÞESSU BLAÐI
Alda Lóa Leifsdóttir, Andrés Magnússon, Árni E. Bjarnason,
Björn Ingi Hrafnsson, Björn Malmquist, Bonni, Rafn Marteinsson,
Friðrik Indriðason, Gauti Bergþóruson Eggertsson, Gerður Kristný,
Gisli Hjartarson, Hilmar Örn Hilmarsson, Huldar Breiðfjörð,
Jói Dungal, Jón Óskar Hafsteinsson, Jón Kaldal,
Loftur Atli Eiríksson, Óttarr Proppé, Ragnar Óskarsson,
Sigurgeir Sveinsson.Sigurjón Kjartansson og
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson.
Setning og umbrot: Nokkrir Islendingar hf.
Filmuvinnsla og prentun: Prentsmiðjan Oddi.
Verð í lausasölu kr. 195.
Áskriftarverð kr. 1.200 á mánuði fyrir tvö blöð í viku.
Handalögmál
heimilanna
Umræða um heimilisofbeldi hefur aukist mjög á und-
anförnum árum. Ekki vegna þess að það sé að færast í
aukana. í sjálfu sér er ekkert sem bendir til þess að svo
sé, mannkynssagan og goðsagnir eru uppfullar af dæm-
um um ofbeldi innan veggja heimilisins. Það sem hefur
verið að breytast er að fólk er ekki lengur tilbúið að líta
á það sem einkamál fólks hvort það lætur maka sína
ganga í skrokk á sér eða ekki. Og það er ekki heldur til-
búið að láta það viðgangast að börn alist upp í slíkri
ógnargíslingu. Flest fólk að minnsta kosti.
Það elur hins vegar á svartsýni í þessum efnum, að enn
virðist ótrúlegur íjöldi fólks ekki kippa sér upp við
handalögmál heimilanna. Á sama tíma og allir þegnar
þjóðfélagsins eru sammála um að sérhver maður skuli
njóta réttar til lífs og lima — að lögin skuli standa vörð
um öryggi almennings — kemur fram í skoðanakönn-
un Gallups að tæplega helmingur karla á aldrinum
15-24 ára telur réttlætanlegt að þeir slái konur sínar utan
undir! Auðvitað ber margt út af í lífinu og Kristur
kenndi lærisveinum sínum að bjóða hinn vangann, en
það er óyggjandi merki þess, að eitthvað sé að, þegar
slíkur fjöldi manna telur það réttlætanlegt, svona al-
mennt og yfirleitt, að leggja hendur á konur sína. Það
eykur áhyggjurnar enn, að niðurstöður þessarar könn-
unar eru úr öllu korti, þegar þær eru bornar saman við
samsvarandi kannanir í helstu grannríkjum okkar.
Hvað er til ráða? Standist þessar niðurstöður Gallups
er vafamál að við búum í siðmenntuðu þjóðfélagi.
Kvennaathvarfið hefur lyft Grettistaki í þessum efnum.
Eins og lesa má um í EINTAKI í dag hefur straumurinn
þangað aukist ár frá ári. Þar má einnig lesa að í upphafi
leit fólk á Kvennaathvarfið sem hvert annað húmbúkk
eða þá að sú skoðun var viðruð að konur, sem létu berja
sig, vildu vera barðar. En sannleikurinn gjörir menn
frjálsa og til allrar hamingju hafa raddir af þessu tagi
þagnað.
Jafnþarft og Kvennaathvarfið er, þá veitir það aðeins
hjálp í viðlögum. Það er dagljóst af niðurstöðum Gall-
up-könnunarinnar að hér þarf hugarfarsbreyting að
koma til, hugarfarsbreyting sem elur á tillitssemi og
umburðarlyndi og minnir á að frelsi einstaklingsins nær
aldrei lengra en að nefi náungans eða eiginkonunnar. ©
Ritstjórn og skrifstofur
Vesturgötu 2,
101 Reykjavík
sími 1 68 88 og fax 1 68 83.
- seg/r einn stjómannanna íslenska útvarpsfélagsins um þau ummæli Páls Magnússonar að
ummæli fyrrverandi minnihluta hafijafngilt fyrirvaralausri uppsögn.
„Páll Magnússon er að slá ryki
í augun á fólki með því að segja að
hann verði aftur sjónvarpsstjóri ef
starfslokasamningurinn verði felld-
ur úr gildi. Það er ekki verið að gera
athugasemd við uppsögn Páls, enda
ekki eftirsjá í honum. Starfsloka-
samningurinn sem Ingimundur
Sigfússon gerði við hann er það
sem málið snýst um, hann er í engu
samræmi við það að Páll fer frá fyr-
irtækinu af eigin vilja,“ segir einn
stjórnarmanna meirihlutans í ís-
lenska útvarpsfélaginu um þau um-
mæli Páls Magnússonar fyrrver-
andi sjónvarpsstjóra Stöðvar 2 í síð-
asta EINTAKI að hann yrði sjón-
varpsstjóri á nýjan leik ef starfs-
lokasamningurinn yrði felldur úr
gildi.
Ingmundur Sigfússon
Starfslokasamningur hans við Pál
Magnússon erenn vefengdur, en
meiríhlutinn telur fráleitt að Páll hafi
getað litið á orð fyrrum
minnihlutaeigenda sem uppsögn.
„Það er skýrt að Páli var ekki sagt
upp. Hann hætti algerlega af sjálfs-
dáðum án þess að um nokkurn
þrýsting væri að ræða. Það mat Páls
sem kemur fram í EINTAKI á
fimmtudaginn, að ýmsar yfirlýsing-
ar aðila innan fyrrverandi minni-
hiuta um að hann geti jafngilt fyrir-
varalausri uppsögn, er beinlínis
hlægilegt bull. Þetta er hreint yfir-
klór hjá Páli og stórfurðulegt af
honum að láta hafa svona lagað eft-
ir sér. Það hefur sjálfsagt aldrei
gerst áður í sögunni að yfirmaður
fyrirtækis segi sjálfum sér upp með
þessum hætti.“
Sættir ekki í augsýn
Síðastliðinn fimmtudag var
haldinn fyrsti hluthafafundur hjá
ÓSKAR MaGNÚSSON
Virðist hafa ofmetið sáttavilja
fyikinganna. Engar viðræðurhafa átt
sérstað og engir fundir veríð
boðaðir.
sjónvarpsstöðinni Sýn eftir að 20
prósenta hlutur íslenska útvarpsfé-
lagsins var seldur í fyrirtækinu og
nýr meirihluti myndaður. Eins og
áður hefur komið fram saman-
stendur sá meirihluti af mönnum
sem eru í minnihluta innan Is-
lenska útvarpsfélagsins.
Það sem bar helst til tíðinda á
fundinum var að Gestur Jónsson
lögmaður, fulltrúi meirihluta-
manna innan íslenska útvarpsfé-
lagsins, var settur af sem sjónvarps-
stjóri Sýnar og Jóhann Óli Guð-
mundsson ráðinn í hans stað.
Einnig var ný stjórn kjörin á fund-
inuni en hana skipa þeir Jóhann Óli
Guðmundsson og Óskar Magn-
ússon fyrir hönd meirihlutans
innan Sýnar og Gestur Jónsson fyr-
ir minnihlutann.
Fyrir hluthafafundinn var áætlað
að taka á dagskrá tillögu um fullan
aðskilnað rekstur Sýnar og Stöðvar
2. Þessum dagskrárlið var frestað og
þykir það auka möguleika á að
sættir takist milli fylkinganna
tveggja sem hafa barist um yfirráð-
in í Tslenska útvarpsfélaginu und-
anfarnar vikur. Einnig sagði Ósk-
ar Magnússon, stjórnarformað
ur Sýnar, eftir fundinn að
sáttavilji væri fyrir hendi inn-
an beggja fylkinga. Eitthvað
mun þetta vera orðum
aukið hjá Óskari því sam-
kvæmt heimildum EIN-
TAKS frá mönnum inn-
an beggja fylkinga hafa
engar samningaviðræð-
ur átt sér stað um helg-
ina og ekki eru neinir
fundir fyrirhugaðir.
Síðast var reynt að ná
sáttum á stífum fund-
um fyrir hluthafafund-
inn sem haldinn var á
miðvikudaginn í Islenska
útvarpsfélaginu.
Hafa menn á orði að þessi
ákvörðun nýrrar stjórnar Sýnar, að
fresta ákvörðun um fuilan aðskiln-
að við Stöð 2, hafi verið gerð til að
hleypa málunum ekki i enn verri
hnút en þau eru nú komin í.
Meirihlutamenn setja það skil-
yrði íyrir sáttum að Sýnarbréfun-
um verði skilað og þá muni verða
fallið frá málshöfðun á hendur
þeim fyrrverandi stjórnarmönnum
sem stóðu að sölu bréfanna. Enn
fremur verður minnihlutanum
auðveldað að selja bréf sín í fýrir-
tækinu ef samningur næst á þess-
um grundvelli. En eins og er virðast
málin enn standa stál í stál og sætt-
ir ekki í augsýn.
6
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ1994