Eintak - 18.07.1994, Page 8
'*tC*A*A
Heimsmeistarakeppninni er lokið
EVRÓSJÓN-ÁSTAND i MIÐBORG
Reykjavíkur.
Á meðan ítalir og Brasitíumenn
áttust við í Los Angeles var fátt
um manninn á götum
Reykjavíkur.
Þtjár og[ hálf milljón
lóni á vóllinn
Mesta íþróttaviðburði heims er
lokið. Að undanskildum sjálfum
Ólympíuleikunum, sem er auðvit-
að keppni í fjölmörgum íþrótta-
greinum, er heimsmeistarakeppni
FIFA vinsælasti íþróttaviðburður í
heimi.
Fyrir keppnina, sem haldin var í
Bandaríkjunum, voru uppi miklar
efasemdaraddir. Talað var um að
sú staðsetning væri eins og að
keppa í hafnabolta á Italíu eða í ís-
hokkí á Indlandi. Þessar raddir eru
nú að mestu þagnaðar. Keppnin
hefur farið ótrúlega vel fram, engar
knattspyrnuóeirðir hafa átt sér
stað, áhorfendur hafa verið ótrú-
lega margir og áhugasamir og talað
er um að síðasta vígið sé loks fallið,
Bandaríkin hafi loksins náð að
uppgötva vinsælustu íþrótt verald-
ar.
Fyrir keppnina voru ákveðnar
nokkrar breytingar sem skyldu
auka skemmtanagildi leiksins og
íjölga mörkum. Þetta hefur gengið
vel eftir. Dómararnir hafa verið
duglegir að senda sjúka menn út af
vellinum til að koma í veg fyrir tafir
og nú er svo komið að menn eru
hættir að liggja eins og skotnir eftir
minniháttar brot og virkur leiktími
hefur aukist í takt við það.
Nýjar knattspyrnuhetjur eru
komnar fram í dagsljósið, allir
þekkja nú Gheorghe Hagi, Hri-
sto Stoichkov, Roberto
Baggio, Rpmario, Bebeto og svo
mætti lengi telja.
Kóngurinn Diego Armando
Maradona féll á lyfjaprófi og fór út
með skömm, Escobar skoraði eig-
inlegt sjálfsmorð með skoti á vit-
Iaust mark og úti um allan heim
hafa risið deilur um rétt sjónvarps-
stöðva til að rjúfa hefðbundna dag-
skrá fyrir lifandi myndum af full-
orðnum karlmönnum eltandi bolta
út um allan völl.
Keppnin í ár er búin og fjögur ár
eru í þá næstu. Sem betur fer segja
sumir og aðrir ekki. Svona er lífið.
Og boltinn. O