Eintak

Ataaseq assigiiaat ilaat

Eintak - 18.07.1994, Qupperneq 13

Eintak - 18.07.1994, Qupperneq 13
Islenskir eiginmenn hafa reyntað veiða tým/erandiieiginkonum sinum og unnustum að aldurtila og hefursumum tekist það. Hér gefurá að Irta þijú atvik frá 7. og 8. áratugnum. Skipst á hnífum Þau höfðu verið gift í 13 ár og eignast saman íjögur börn. Ár var liðið frá skilnaðinum, sem meðal annars var vegna hjúskaparbrota hans. Kvöld eitt í janúar hafði hann setið við drykkju á krá ásamt nokkrum vinum sínum. Undir morgun hringdi hann í mágkonu sína til að biðja hana um að hafa milligöngu um að hann fengi að koma heim til fyrrverandi eiginkonu sinnar, en eiginmaður hennar svaraði og lagði á þegar hann heyrði hver þetta var. Snemma morguns tók hann leigubíl heim til sín til að sækja sígarettur. Þar ákvað hann að taka jafnframt með sér buffhamar og hníf sem hann vildi skipta á og hníf, sem eiginkonan fyrrverandi hafði undir höndum. Einhverju sinni hafði hún beðið eftir manni sínum langt fram á nótt og fengið hann loks drukkinn heim. Þegar hann var lagstur fyrir reyndi hún í bræði sinni að skera hann á háls. Þetta atvik rifjaðist upp þegar hann kom með hnífinn þetta janúarkvöld og espaði það þau bæði upp. Hann hringdi bjöllunni á heimili hennar, en hún þekkti hringinguna. Því opnaði hún ekki heldur grettir sig frarnan í hann gegnum rúðuna. Það ól á reiði hans og hann notaði buffhamarinn til að berja í dyrakarminn. Að lokum braut hann rúðu í útidyrahurðinni og opnaði hana innan frá. Hún var ekki ein heima heldur voru þar einnig börn þeirra fjögur, eiginkona frænda hans og dóttir hennar. Fljótt hófust miklar orðasennur og stympingar og fékk eiginkona frændans skurð á læri þegar hún reyndi að ganga á milli hjónanna fyrrverandi. Elsti sonurinn var sendur í skóla þennan morgun eins og alla aðra morgna og hamagangurinn hélt áfram. Það var þegar hún hótaði honum að ná af honum fyrirtækinu, húsinu og að sjá til þess að hann fengi aldrei að sjá börn þeirra aftur að hann stakk hana með hnífnum með þeim afleiðingum að hún lést. Hún fékk þrjú stungu- og skurðsár á brjóst og eitt stungusár á kvið. Sár í vinstri greip benti til þess að hún hefði gripið um hnífinn í varnarskyni. Hann kom henni fyrir í baðkarinu svo börnin kæmu ekki að henni al- blóðugri. Hann fékk 16 ára fangelsi fyrir að hafa ráðið fyrrverandi eiginkonu sinni bana af ráðnum hug. Skotið úr haglabyssu á eftir tengdó Þau höfðu verið saman í fimm ár áður en þau giftu sig og varði hjónabandið í þrjú ár. Hún hafði oft sakað hann um árásir, ofsóknir og hótanir. Hann hafði líka hótað fjölskyldu hennar lífláti. Þegar hann heyrði að sín fyrrverandi hefði trúlofast öðrurn byrjaði hann á því að fá sér neðan í því. Svo tók hann tvíhleypta haglabyssu ófrjálsri hendi hjá kunningja sínum og ók heim til fyrrverandi tengdamóður sinn- ar þar sem eiginkonan fyrrverandi bjó. Hún var hins vegar ekki heinra og kom fjórtán ára bróðir hennar til dyra. Móðir þeirra var ekki langt undan og tókst þeim í sameiningu að loka dyrunum þegar þau sáu hver var kominn. Hann gerði sér hins vegar lítið fyrir og skaut í gegnum hurðina svo högl og tréflísar særðu niæðgin- in. Svo sparkaði hann upp hurðinni og ruddist inn. Sonurinn hafði þá farið inn í íbúðina við hliðina með því að fara út á svalirnar. Móðurinni tókst að flýja inn í eldhús, en hann skaut líka í gegnum þá hurð og fékk hún haglahríð í læri, kvið og hönd. Þurfti að fjarlægja höglin með skurðaðgerð. Konunni tókst þó að komast inn í íbúð á hæðinni fyrir neðan, en hann hélt eftirförinni áfram með vopnið á lofti. Húsráðandi beindi haglabyssunni framhjá heimilisfólki, sem árásarmaðurinn rniðaði á, en tókst ekki betur til en svo að skot tætti í sundur á honum fótlegginn og varð að taka hann af fyrir ofan hné. Gestkomandi manni tókst hins vegar loksins að afvopna manninn. Hann hlaut 12 ára fangelsi. Geðlæknir skrifaði í skýrslu sína að hann væri „primitiv" og hömlulítil mann- gerð með ótamið skap, hátt stemmdur, með litla ábyrgðartilfinningu og fyndist sér vera flest leyfilegt. Ætlaði að skjóta sjálfan sig en... Þau hö'fðu verið par frá sautján ára aldri og trúlofuðu sig 18 ára. Ættingjum hennar sagðist síðar svo frá að hann hefði oft sýnt henni ofríki og stundum lagt á hana hendur. Hún mátti ekki fara út einsömul og lá stund- um við að slitnaði upp tir sambandinu þess vegna. Þau dvöldu um tíma í útlöndum og komu heim í sumarfrí 22 ára að aldri. Þau sáust lítið í fríinu, enda fékk hún sér vinnu úti á landi. Hann hélt utan á undan henni og hafði hún tiltekið ákveðinn dag, sem hún nryndi konra. En þegar hún lét ekki sjá sig sneri hann aftur til íslands. Hann hitti hana í verslun þar senr hún hafði fengið sér vinnu og hún tók honum heldur fálega. Hún sagði að þau gætu hist daginn eftir og flýtti sér burt. Daginn eftir sótti hann riffil, sem til var hjá foreldrunr hans. Svo sótti hann hana í vinnuna og ók rétt út fyr- ir borgina. Hann reyndi að ræða sanrband þeirra, en hún sýndi því ekki áhuga. Hann fór þá út úr bílnum, tók riffilinn aftur úr bílnum og án þess að hún liti nokkru sinni aftur skaut hann hana fjórunr skotum. Að því loknu skar hann sig á púls en ekki lagaði mikið úr sárinu. Hann tók það þá til bragðs að skjóta sig í brjóstið. Þegar hann sá börn á reiðhjólum ók hann af stað svo þau kæmu ekki auga á lík hennar í bílnum. Hann stöðv- aði þegar sárskaukinn varð of mikill og konru hjón á bíl að honunr. Þau höfðu ekki komist fram hjá bíl hans á veginum og stigu því út úr til að athuga hvort eitthvað amaði að. Hann sagðist fyrir rétti hafa verið svo niðurbrotinn þar sem sambandi hans við unnustuna væri lokið að hann hefði ætlað að svipta sig lífl í viðurvist hennar. En einhvern veginn fór það svo að hann skaut hana fyrst. © anndráp úr íslenskum veruleika þeirri löggjöf, sem gildir um of- beldi hér á landi. „Það er lögreglumál ef einhver ræðst á mig úti á götu, en ekki ef það gerist inni á heimili. Þannig á það náttúrulega ekki að vera því verknaðurinn er sá sami,“ segir Guðrún. „Jafnframt er það brot á barnalöguin að láta það viðgang- ast að börn horfi upp á ofbeldi á heimilum og það ber að kæra. Ekki má heldur gleymast að það er á ábyrgð beggja foreldra að barni sé búið gott heimili. Þau eiga einnig rétt á sómasamlegu upp- eldi og það gerist ekki þar sem of- beldi líðst.“ Ragnhildur bendir á að það sé ekki aðeins fórnarlambanna að rjúfa þögnina heldur einnig þeirra, sem verða varir við ofbeld- ið. „Þegar maður verður var við heimilisofbeldi ber manni að skipta sér af því og að hringja á lögregluna. Jafnframt er hægt að tala einslega við konuna og benda henni á hvaða leiðir eru til bóta eins og sú að leita í Kvennaat- hvarfið. Það mikilvægasta er að rjúfa þögnina. Maður tekur sjálfur þátt í ofbeldinu með því að þegja um það,“ segir Ragnhildur. Frætt um heimilisof- beldi „Það er líka löngu orðið tíma- bært að afla vitneskju um rætur ofbeldis og fara ofan í saumana á karlhlutverkinu. Hvað er það til dæmis í karlmennskuímyndinni, sem fær þá til að beita ofbeldi?,“ spyr Ragnhildur. „I Svíþjóð hefur verið settur á stofn hópur karla sem vinnur gegn heimilisofbeldi, en hér á landi er mikill seinagang- ur í þessum málum. Mér finnt að byrja mætti á því að setja á stofn neyðarlínu fyrir karlmenn og ekki úr vegi að Kiwanis og Rotary tækju málið upp á sína arma. Það er löngu kominn tími til að karl- menn axli ábyrgð á því ofbeldi sem viðgengst inni á heimilunum. Karimenn eiga svo sjaldan trún- aðarvin, því er eiginkonan oft besti vinurinn og svo lemja þeir hana.“ Fræðsla um heimilisofbeldi er þegar hafin í skólakerfinu og aðal- lega í menntaskólum. En frá Há- skóla Islands korna nernar í upp- eldisfræði, félagsráðgjöf, hjúkrun- arfræði og guðfræði á þriggja daga námskeið til Kvennaathvarfsins. Flestir eru sammála um að lengi hafi skort kannanir um heimilis- ofbeldi hér á landi, en nú horfír til úrbóta. I vetur var samþykkt á Al- þingi að stofnuð yrði nefnd, sem kanna á ofbeldi hér á landi og þar á meðal heimilisofbeldi. © gátu fundið aðstæður sem rétt- lættu ofbeldi á konum og 7% kvenna. Börn eiga sinn rétt „Ég trúi ekki niðurstöðu þessar- ar könnunar. Það er eitthvað rangt við hana. Enginn hamingju- söm mannseskja ber aðra mann- eskju og ást er engin afsökun fyrir ofbeldi. Ég skil alla vega ekki þá tegund ástar“, segir Guðrún Helgadóttir alþingismaður. Ragnhildur Vigfúsdóttir, rit- stjóri tímaritsins Veru, sent Sam- tök urn kvennalista gefa út, segist hafa orðið miður sín þegar hún heyrði niðurstöður könnunarinn- ar og sérstaklega að sjá hve mörg prósent kvenna gátu ímyndað sér aðstæður sem réttlætti ofbeldi. „Það rifjaðist upp fyrir mér þegar Kvennaathvarfið var stofn- að fyrir 12 árum og ég var að selja merki til styrktar starfseminni. Þá sagði fólk við mig að konur sem væru barðar vildu láta berja sig og þær ættu það skilið,“ segir Ragn- hildur. Guðrún telur ofbeldið vera meðal annars sambland af þreytu, streitu og áhyggjum. „Ástandið í þjóðfélaginu hefur náttúrulega áhrif á fólk og samlíf þess,“ segir Guðrún. Henni finnst að breyta megi MÁNUDAGUR 18. JÚLl' 1994 13

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.