Eintak - 18.07.1994, Page 15
viðkemur sportinu, jafnvel bílana
sem koma veiðimanninum á stað-
inn.
CamePro
Blaðið GamePro er sérrit frir vi-
deóleikjafrík. Það er jafnt fjallað
um leiki frá Nintendo og Sega, auk
margra annarra leikjaframleiðenda,
en framfarir og vöxtur í þessarri at-
vinnugrein er gríðarleg um þessar
mundir. I blaðinu er líka fjallað um
það, sem koma skal, og sýndar-
veruleikinn er nær en margur
hyggur.
Girls of Outlaw Biker
Þetta er frábært blað með engu
nema myndum af misberum mót-
orhjólagellum. Þær eru flestar með
tattú og yfirleitt eru vélvæddir engl-
ar ekki langt undan. Það er ekki svo
mikið sem ein grein í öllu blaðinu,
lengsti textinn er höfundarréttarkl-
ásúlan. Svona eiga blöð að vera.
Golf Magazine
Hér á íslandi eru þeir taldir í
þúsundum, sem eyða stórum hluta
tíma síns í að spila golf. Úrval golf-
tímarita í Eymundsson endurspegl-
ar þetta æði, því þar má finna sjö
mismunandi blöð, sem öll lofa því
að gera úr lesandanum topp gol-
fara. Golf Magazine er engin und-
antekning. Þar er því lofað að
sveiflan gjörbreytist til hins betra;
frægir spilarar gefa góð ráð og fjall-
að er um öll atvinnumannamótin,
sem lesendur þessa blaðs eiga
sennilega aldrei eftir að spila á.
Good Housekeeping
Trúir hefðinni beina útgefendur
þessa blaðs boðskap sínum að kon-
um. Þetta er kvennablað, en
kannski ekki í þeim skilningi, sem
ritstýrur Veru hafa hugsað sér það.
Hér má fræðast um húsverkin,
eldamennsku, nýjustu kvenfata-
tískuna og er auðvitað úttekt á ör-
bylgjuofnum, besta vini húsmóð-
urinnar. Svo vantar auðvitað ekki
eina litla ástarsögu til að lesa rneðan
suðan kemur upp á kartöflunum.
Gourmet
Þetta er blað fyrir þá Sigmar B.
Hauksson og Stemgrím Sigurgeirs-
son, því blaðið fjallar nær einvörð-
ungu um sælkerafæði og góð vín,
þó svo ýmis lúxusvarningur komist
reyndar líka að. Það er engin
ástæða til þess að taka þátt í rándýr-
um matarklúbbum þegar svona
blöð eru á boðstólum.
Kerrang!
Þetta er eitt best skrifaða popp-
ritið, en það fjallar nær einvörð-
ungu um rokk í þyngri kantinum. 1
því er að finna fjölda umsagna um
diska og gigg beggja vegna Atlants-
ála. í bland eru svo viðtöl við síð-
hærð stirnin.
l’Echo des Savanes
Þetta er skrýtið blað. Fyrir það
fyrsta er það franskt, þannig að fáir
skilja það. Enda skoða það kannski
flestir vegna myndanna, sem eru
ríkulegur hluti blaðsins. Nokkrar
greinar er þarna að finna; í nýjasta
tölublaði þess um leynikynlífsfélög,
kynlíf í Englandi (eins og það geti
mögulega verið áhugavert), vopna-
sölu í Frakklandi og grein um
stjórnmálaástandið í Kússlandi.
Undarlegt blað, en sarnt skemmti-
legt — þó maður skilji ekki staf.
Loaded
Þetta er breskt karlarit, sem er
svona eins og Extrablaðid væri ef
Snorrarnir væru syndandi í pen-
ingum. I því er að fmna umfjöllun
um tísku, danstónlist, klúbba-
stemminguna, kvikmyndir og
hvaðeina, fréttatengdasta efnið er
nokkurra síðna grein um O.J.
Simpson. í hausi blaðsins segir að
það sé blað fyrir karlmenn, „sem
ættu að vita betur“.
MacWorld
Þetta er annað tveggja helstu
tímarita fyrir notendur Macintosh-
tölva. Menn geta setið við tölvuna
dægrin löng og blaðað í handbók-
um, en til þess að ná skjótum ár-
angri er þessi lesning ómissandi.
Fyrir utan að vera fróðlegt er í blað-
inu fjöldinn allur af prýðilega
skemmtilegum dálkahöfundum.
T H i: * r. » fi t R A r t T T — A I l 4 S XJCUI
NewRepublic
l,M| c«i«r • IN.'UM t«m> • *«(>.% m «*» «.«(
Is
Stephbn
Brever
Too
CiOOD To
Be True?
jl'.TrRRV
H O íi fc K
t' l i \ t i\ \ ’ ;<
s e c ö X n
UH'*. t
t C K
The New Republic
Blaðið er ekkert rosalega
skemmtilegt, en sumum finnst fínt
að sjást lesa það. Það er gefið út fyr-
ir vinstrimafíuna í Bandaríkjunum,
en hér heima eru það kallar eins og
Jón Ormur Halldórsson og Karl
Th. Birgisson sem lesa það. í
blaðinu má finna vangaveltur um
hvað sé að Clinton og hvað hafi
verið að Carter, hvers vegna fem-
ínisminn sé jafnóvinsæll og raun
beri vitni og svo framvegis. Ekki
mjög spennandi.
Newlook
Þrátt fyrir nafnið er þetta tímarit
franskt og geggjað eftir því. Það er
hins vegar erfitt að átta sig á því
hvers eðlis það er. Því virðist nær
ekkert óviðkomandi og leggur tals-
vert upp úr góðum mvndum, ekki
síst ef þær eru svolítið djarflegar.
vilja láta koma sér á óvart, og er
stútfullt af vel unnu stoffi um und-
arleika þessa heims.
Option
Þetta er eitt af nýju blöðunum,
sem helgar sig málefnum X- kyn-
slóðarinnar, en er með aðeins meiri
glamor og fágun, en yfirleitt er að
finna í slíkum blöðum. Umfjöllun-
arefnin eru dansklúbbar, eiturlyf og
ný bönd með asnalegar hárgeiðslur.
PC Magazine
Hér er eitt af ómissandi hjálpar-
tólum tölvunotenda. í blaðinu er
fjallað um hvernig kaupa eigi tölvur
og jaðartæki þeirra, hvaða hugbún-
aður sé bestur og þar fram eftir göt-
um. Blaðið er feykilega þykkt, 514
síður, en megnið af síðum fer undir
auglýsingar. Hins vegar eru auglýs-
ingarnar oft jafnathyglisverðar og
efnissíðurnar.
eins heit og gerist í Lundúnum, þar
sem suðupotturinn er.
■
.111
Scientific American
Þetta er eitt virtasta fræðirit í
heimi, sem þó er skrifað fyrir al-
þýðu manna. Hvers kyns vísindi
eru umfjöllunarefnið og gildir einu
hvort verið er að fást við stjörnu-
fræði, læknisfræði, stærðfræði eða
heimspeki vísinda. Vissulega birtast
oft greinar, sem maður hefur lítinn
áhuga á, en það er alltaf eitthvað,
sem fangar hugann, í blaðinu.
Psychology Today
Hér er blað fyrir fólk, sem vill
kynnast sjálfu sér betur. Það er
mjög fræðandi og alþýðlegt um sál-
ræn málefni og gerir sérstaklega út
á sjálfshjálp. Einnig er fjallað um
hvernig bregðast eigi við þung-
lyndi, ný lyf og kenningar á sviði
sálrænna kvilla. Mjög fróðlegt blað.
SCIENTIFIC "Z
VMEIUCW
«“ ELEGTRONtCS
HOBBYiSTS
toaia htmtitmM
Popular Electronics
Ef þú átt lóðbolta, ögn af tini og
ónýtt útvarpstæki getur þetta blað
upplýst þig um hvernig hægt er að
smíða innrauð heyrnatól, síma-
ruglara og kjarnorkusprengjur í
kjallaranum heima. Blað fyrir fé-
lagslega firrt tæknifrík.
Project X
l>að fær enginn verðlaun fyrir að
giska á fyrir hvaða kynslóð þetta
blað er gefið út. Það er hreint
prýðilega hannað og efnismikið,
með aðaláhersluna á tísku og dans-
tónlist. Blaðið geldur þess hins veg-
ar aðcins að vera bandarískt, því
dansmenningin þar er ekki alveg
Skin Art
Fyrir nokkrum vikum sögðum
við frá því í EINTAKI að stofnaður
hefði verið hér Tattúklúbbur ís-
lands. Þetta er greinilega félagsritið.
Blaðið er stútfullt af misgóðunt lit-
myndum af húðflúri og heimilis-
föngum þeirra sem fást við þetta.
Lítið er af öðru efni í þlaðinu, enda
gerist þess varla þörf.
The Sun
Alþjóðleg útgáfa The Sun sérhæf-
ir sig í fréttum, sem eru ekki fréttir
heldur yfirgengilega ótrúverðugur
vaðall, en þó yfirleitt með örlitlu
sannleikskorni einhvers staðar. I
nýjasta blaðinu er sagt frá yfirvof-
andi ísöld vegna lofsteinaáreksturs
við Júpíter, nýrri gröf frelsarans á
Indlandi og móðurkossi, sem lífg-
Wild Cartoon
Ritstjórar þessa blaðs þjást
greinilega ekki af minnimáttar-
kennd, því á síðu tvö segja þeir að
blaðið sé það besta sinnar tegundar
i heimi hér. Þetta er blað fyrir
áhugafólk um teiknimyndir og
státar meðal annars af skemmtilegri
umfjöllun um Flintstone-fjölskyld-
una frá upphafi steinaldar. Mynd af
íslensku tvíburunum er þarna að
finna og dóma um teiknimynda-
bækur. Blað fyrir teiknimyndafrík.
Wildbird
Aha! Blað fyrir sérlega áhuga-
menn um fuglaskoðun. Fallegar
myndir af fuglum, mikið af auglýs-
ingum um sjónauka og myndavélar
og fullt af leiðbeiningum um
hvernig á að lokka fúgla inn í garð-
inn til að verpa. Fínt blað — ef
maður hefur áhuga á fuglum.
Wired
Wired er af glænýrri kynslóð
tímarita og alveg sérstaklega vel
hannað. Efni þess er hins vegar ekki
allra, því það fjallar um upplýsinga-
byltinguna og lífið, sem þrífst á
tölvunetum heimsins. Þetta blað er
tvímælalaust boðberi nýrra tíma og
yfirleitt athyglisverðarara en
Mondo, sem gerir út á svipuð mið.
YOKO * ,
VWUtM
iHt Btiwmapg
KHIMUItlriS^
nSHimlpfib
BeútáWiÁnd
mSdS'NO l'IUWV TÁI.IP
i#'
t.rimu nmni \>
World Wrestling
Federation Magazine
Blaðið er gefið út af eigendum
fjölbragðaglímusirkussins, sem
hægt er sjá í gervihnattasjónvarpi.
Hér er hægt að lesa allt, sem máli
skiptir, um þessar teiknimynda-
hetjur í mannsmynd, Hul_k Hogan
og hvað þeir heita.