Eintak - 18.07.1994, Qupperneq 16
'amestu me
skmtalífmu
(
A Islandi er fjöldi áhrifamanna. En sumir hafa meiri áhrif en aðrir. Með þetta að leiðarijósi lertaði EIN
og innti álits á þvi hverjir væru helstu áhrifamenn í íslensku viðskiptalm. Hér er niðurstaða þessarar <
1. Hörður Sigurgestsson
Forstjóri Eimskipafélags
ÍSLANDS OG STJÓRNARFORMAÐUR
Flugleiða.
„Óumdeildur konungur við-
skiptalífsins. “
„Hörður er geysilega mikill fag-
maður í rekstri og stjórnun. “
„Kemur inn í viðskiptalífið ein-
ungis með eigin metnað og
hæfileika að vopni. Ekki einn að
þeim sem fæddist með silfur-
skeið í munni eða hafði sterkar
ættir á bak við sig. Samt sem
áður vann hann sig upp á topp-
inn. Aðdáunarverður ferill. “
„Háirhonum að hann á ekki
miklar eignir sjálfur. Liggur ekki
á hundruðum milljóna eins og
margir aðrir. “
„Original self-made man.“
„Þungavigtamaður eins og þeir
gerast þyngstir. “
„Leiðtogi. “
2. Benedikt Sveinsson
Stjórnarformaður Sjóvár-
Almennra trygginga og stór
HLUTHAFI, STJÓRNARFORMAÐUR
SR-mjöls, stjórnarformaður
Nesskipa og stærsti hluthafi,
VARAFORMAÐUR STJÓRNAR ElM-
SKIPS, I STJÓRN FLUGLEIÐA OG
FLEIRA.
„Höfuð Engeyjarættarinnar og
stýrir því gífurlegum ættarauði. “
„Þótt það beri ekki mikið á hon-
um er hann ótrúlega áhrifamikill
bak við tjöldin. “
„Fylginn sér og líkar illa að
menn standi á móti honum. “
„Honum virðist takast allt, sem
hann tekur sér fyrir hendur. “
„Hann er stórmeistari ívaldatafli
fslensks viðskiptalífs. “
3. Björgvin Vilmundarsson
Bankastjóri Landsbankans og
f STJÓRNUM OG RÁÐUM FJÖL-
MARGRA VIÐSKIPTA- OG LÁNA-
STOFNANNA
„Yfirmaður stærsta lánadrottn-
ara landsins og hefur lánað til
langflestra sjávarútvegsfyrir-
tækja. “
„Hefur íhendi sér líf og dauða
fjölmargra fyrirtækja. “
„Huldumaðurinn í islensku við-
skiptalífi. Hefur það sem reglu
að koma aldrei fram í fjölmiðl-
um. Þess í stað sendirhann
Sverri Hermannsson og er bú-
inn að segja honum hvað hann
á að blaðra út úr sér fyrirfram. “
4. Indriði Pálsson
Stjórnarformaður Eimskipa,
FYRRUM FORSTJÓRI SKELJUNGS, NÚ
STJÓRNARFORMAÐUR, ( STJÓRN
Flugleiða og fjölda ANNARRA
FYRIRTÆKJA.
„Svona grand old man í við-
skiptalífinu. Tók við af Halldóri
Jónssyni sem stjórnarformaður
íslands. “
„Ber höfuð og herðaryfir flesta
i viðskiptalifinu. “
„Hefur hægt á sér síðustu árin,
var sá valdamesti fyrir nokkrum
árum. “
5. Kristján Ragnarsson
Framkvæmdastjóri Landsam-
BANDS ÍSLENSKRA ÚTVEGSMANNA, f
STJÓRN Fiskveiðasjóðs Íslands,
FORMAÐUR BANKARÁÐS ÍSLANDS-
BANKA OG FLEIRA.
„Harður íhorn að taka og fylg-
inn sér. “
„Hefur mikil itök í sjávarútvegin-
um, enda búinn að starfa innan
hans ífjöldamörg ár."
„Ræður miklu um stefnumótun í
sjávarútveginum. Maður sem
hlustað er á. “
„Það er mikil list að halda sam-
an stórum samtökum eins og
LÍÚ saman, þar sem jafnstórir
hagsmunir geta rekist á. Þetta
hefur Kristjáni tekist með ótrú-
legum dugnaði og frekju. “
„Hann er gífurlega vel að sér í
íslensku atvinnulífi. “
6. Friðrik Pálsson
Forstjóri Sölumiðstöðvar
HRAÐFRYSTIHÚSANNA.
„Hann er forstjóri stærsta fyrir-
tækis landsins og þess fyrirtæk-
is, sem skapar mestar gjaldeyr-
istekjur. Það gerir hann að mikl-
um áhrifamanni í íslensku við-
skiptalífi. “
„Hefur mikið um gengismál að
segja. “
„Það er alltaf hlustað á hann.“
„Gæti haft meiri áhrif, en beitir
sér fyrst og fremst að SH. “
„Hefur sýnt yfirburðahæfni í
stjórn SH.
7. Valur Valsson
BANKASTJÓRI ÍSLANDSBANKA.
„Ákveðinn maður og mjög fær. “
„Athyglivert að hann skyldi ná
því að verða eini bankastjórinn í
íslandbanka. “
„Lánadrottinn fjölmargra fyrir-
tækja ilandinu."
8. Sigurður Gísli
Pálmason
FORSTJÓRI FfAGKAUPA, f FRAM-
KVÆMDASTJÓRN VSl OG FLEIRA.
„Hefuraldrei verið íþessum
„Rotaryklúbb“ yfirforstjóra
landsins og hefur líka engan
áhuga á að vera íhonum. Samt
sem áður hefur hann mjög mikil
áhrif. “
„Höfuð Hagkaupsættarveldisins
og ræður öllu um ganga mála í
þessu gríðarlega stóra fyrirtæki.
„Ræður yfir stórum hluta smá-
sölunnar ílandinu með því að
eiga Hagkaup og meirhlutann í
Bónus. Er sá maður sem hefur
mest að segja um afkomu al-
mennings. “
„Hefur ótrúlega mikið peninga-
legt vald. Bónus og Hagkaup
velta um 6.000 milljónum ár-
9. Brynjólfur Bjarnason
Framkvæmdarstjóri Granda,
STJÓRNARFORMAÐUR HAFRANN-
SÓKNARSTOFNUNAR.
„Hefur mjög gott samband við
forsætisráðherra og einn af
hans helstu ráðgjöfum. “
„Ræður Granda, sem er eitt
stærsta útflutningsfyrirtæki á
landinu. “
„Hefur tekist að reka Granda
mjög vel. “
10. Kristinn Björnsson
Forstjóri Skeljungs, vara-
FORMAÐUR VlNNUVEITENDASAM-
BANDSINS, I STJÓRN ElMSKIPA OG
Sjóvá-Almennra TRYGGINGA.
„Helsti fulltrú H.Ben-veldisins."
11. Árni Vilhjálmsson
Prófessor við hagfræði- og
VIÐSKIPTADEILD HÁSKÓLA IsLANDS.
Stærsti hluthafinn í Hampiðj-
UNNI OG í STJÓRN, EINN STÆRSTI
HLUTAHAFINN í GRANDA OG
STJÓRNARFORMAÐUR, Á í HVALI HF.
OG Venus.
„Nýtur mikillar virðingar og
mjög eftirsóttur í stjórnir fyrir-
tækja. “
12. Einar Sveinsson
Formaður Verslunarráðs,
FRAMKVÆMDARSTJÓRI SJÓVÁ-Al-
MENNRA TRYGGINGA OG f BANKA-
STJÓRN ÍSLANDSBANKA.
„Ekki jafnáhrifamikill og Bene-
dikt bróðir hans, en hefur ærin
áhrif samt. “
„Ræður miklu, en stóribróðir er
samt höfuð ættarinnar. “
13. Kristján Loftsson
Varaformaður í Granda, for-
stjóri Hvals, stjórnarformað-
ur Olíufélagsins.
„Hefur mun meiri völd en marg-
ir gera sér grein fyrir. “
„Gífurlega sterkur karakter og
hefur þessvegna mikil völd. “
14. Kjartan Gunnarsson
Framkvæmdastjóri Sjálf-
STÆÐISFLOKKSINS OG FORMAÐUR
BANKARÁÐS LANDSBANKANS.
„Gífurlega slyngur
fjármálamaður. “
„Gamall refur. “
15. Gunnar Ragnars
Forstjóri Útgerðarfélag Ak-
UREYRAR, I STJÓRN CóLDWATER, I
STJÓRN SH, í STJÓRN LANDSVIRKJ-
UNNAR OG FLEIRU.
„Er gamall i hettunni og þekkir
alla. Maður sem hlustað er á. “
16. Axel Gíslason
Forstjóri Vátryggingafélag
ÍSLANDS.
„Einn afgömlu Sambands-
mönnunum. Var allt í öllu innan
samvinnuhreyfingarinnar, hefði
liklega orðið næsti forstjóri."
17. Magnús Gunnarsson
Formaður Vinnuveitendasam-
BANDSINS.
„Hann getur haft mjög mikið að
segja ef hann beitir sér. “
18. Jón Ingvarsson
Stjórnarformaður SH, (
STJÓRN ElMSKIPA OG FJÖLDA SJÓÐA
OG FYRIRTÆKJA.
„Harður nagli. “
16
MÁNUDAGUR 18. JÚLÍ1994