Vikublaðið - 03.12.1992, Qupperneq 2

Vikublaðið - 03.12.1992, Qupperneq 2
2 VIKUBLAÐIÐ Útgefandi: Alþýðubandalagið Abm: Einar Karl Haraldsson Ritstjóri: Hildur Jónsdóttir Blaðamaður og augl.: Ólafur Þórðarson Ritstjóm og afgreiðsla: Laugavegur 3 (4. hæð) 101 Reykjavík Sími á ritstjórn: (91) - 17 500. Fax: 17 5 99 Áskriftarsími: (91) - 17 500 Prentvinna: Prentsmiðjan Oddi hf. Áskriftarverð kr. 1000 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 250. Ríkisstjóm næturverkanna Gömul máltæki flytja þá visku að skynsamir menn gangi til verka sinna í birtu dagsins. Morgunst- und gefur gull í mund er heilræði sem margir hafa fylgt með góðum árangri. Móðurmálið geymir einn- ig fjölmörg orðasambönd sem sýna að illvirkjar stunda aðallega iðju sína að næturþeli. „í skjóli nætur“ er oft upphafíð að frásögn- um um mikil voðaverk. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hefur tekið upp þá siðvenju að taka mikilvægustu ákvarðanir sínar á maraþonnæturfundum þegar þjóðin sefur værum svefni. Ráðherrarnir sitja örþreyttir og úttaugaðir við rík- isstjórnarborðið í náttmyrkrinu. ~ Ákvarðanir um gengisfellingu ís- lensku krónunnar og margvíslegar skattahækkanir á almenning, einkum barnafjölskyldur sem bera mikinn húsnæðiskostnað, voru teknar á slík- um næturfundum fyrir einni og hálfri viku. Þingmönnum Sjálfstæðisflokks- ins og Alþýðuflokksins var síðan smalað í þinghúsið upp úr miðnætti aðfaranótt mánudagsins og látnir sitja þar lon og don þar til flestir voru búnir að kyngja ósköpunum. Utan- ríkisráðherrann marséraði svo út úr þingflokksherberginu klukkan að ganga fjögur um nóttina og flutti eld- messu á ganginum um nauðsyn gengisfellingar. Ráðherrar Sjálf- stæðisflokksins læddust hins vegar út í náttmyrkrið. Sami vinnustíll næturverkanna var á ákvörðun ríkisstjómar Davíðs Oddssonar fyrir rúmu ári þegar hún í byrjun desember 1991 sat í kringum ríkisstjórnarborðið og prjónaði sam- an „bandorminn" illræmda. Þar var að finna margvíslegar aðgerðir gagnvart öldruðum, sjúkum og námsmönnum. Þau næturverk urðu síðan tilefni til heitra umræðna á Al- þingi fram yfir áramót. Það merkilega við þessa ríkis- stjóm er að hún hefur aldrei tekið meiriháttar ákvarðanir í dagsbirtu. Allar helstu lotur hennar fara fram á nóttunni. Væri fróðlegt að vita hvort skýringin á þessu atferli er stjórn- málaleg, sálræn eða bundin persónu- leika forystumanna ríkisstjórnarinn- ar. Læknar og starfsfólk í heilbrigð- isstéttum vara almennt við því að afdrifaríkar ákvarðanir séu teknar á nóttunni þegar viðkomandi er van- svefta, þreyttur eða illa til reika. Vaktavinna er almennt talin fara illa með fólk því manninum sé óeðlilegt að starfa á nóttunni. Náttúran hafi skapað honum það eðli að sofa á nóttunni en starfa vel að degi til. I óperum og listdanssýningum er næturdrottningin ávallt tákn hins illa. Hún er yfirleitt ófreskja, grímu- klædd, ógnandi í svörtu. I höfuð- verkum bókmenntanna eru spell- virkjarnir og illmennin ætíð á ferli á nóttunni og leggja til atlögu í skjóli myrkursins. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar og Jóns Baldvins Hannibalssonar er greinilega dregin af einhverjum óstöðvandi krafti inn í samfélag næt- urverkanna. Hún hefur kosið sér stíl myrkursins til að taka sínar mikil- vægustu ákvarðanir. Ríkisstjóm næt- urverkanna situr nú í gamla tukthús- inu við Lækjartorg. VIKUBLAÐIÐ Fimmtudagur 3. desember 1992 ÚR SAMÚELSBLOKK Jólagjöfin í ár SJÓNARHORN Ulfur í rúmí ömmu Samningurinn um evrópskt efnahagssvæði hefur margháttað- ar breytingar í för með sér á svo að segja öllum sviðum þjóðlífsins. Þannig hefur samningurinn til að mynda byltingarkennd áhrif á starf- semi verkalýðsfélaga. Aðalatriði Evr- ópuréttarins em þau að réttur einstakl- ingsins er grundvallaratriði en réttur félaga er víkjandi. Á Norðurlöndum er þessu háttað á annan veg: Þar er réttur félaganna, meðal annars til hagsmuna- gæslu fyrir sína félagsmenn, vemleg- ur. Þetta birtist meðal annars í þeim regium sem hafa þróast um aðild að verkalýðsfélögunum þar sem nær allir era í verkalýðsfélögum. ASI-þingið fjallaði um svokallað- an frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks samkvæmt EES-samn- ingnum á alþingi. Þar kom fram að staðbundni forgangsrétturinn sem verkalýðsfélögin hafa þróað hér á landi verður afnuminn í beinu fram- haldi af aðild íslands að EES. I 2. grein reglugerðar um frjálsan atvinnu- og búseturétt fólks segir svo á EES-íslensku: „Sérhver ríkisborgari EES-ríkis og sérhver vinnuveitandi sem rekur starfsemi á yfirráðasvæði EES-ríkis geta(sicl) skipst á umsóknum og til- boðum um atvinnu og geta komið sér saman um og framkvæmt(sic) ráðningarsamninga í samræmi við ákvæði gildandi laga eða stjóm- sýslufyrirmæla án þess að það leiði til nokkurrar mismununar. “ Þetta þýðir með öðmm orðum að reglur um staðbundinn forgangsrétt til vinnu á ákveðnum svœðum við- komandi verkalýðsfélaga standast ekki samkvœmt EES-samningnum. Nú hefur VSÍ bent á að ákvæðin um forgangsrétt verkalýðsfélaga séu í kjarasamningum en ekki lögum. Og það sé ekkert sem banni verka- lýðsfélögunum og félögum atvinnu- rekenda að hafa þessi ákvæði í samningum áfram. Það er rétt en hér er úlfur í rúmi ömmunnar: 1. Danska vinnuveitendasamband- ið hefur ákveðið að banna sínum að- ildarfélögum að semja um forgangs- réttarákvæði í kjarasamningum framvegis. Og um þetta veit VSÍ og þessi stefna verður vafalaust tekin upp hér á landi líka; þeim mun fyrr ef íslendingar verða aðilar að EES. 2. Þó að heimilt verði að semja um staðbundinn forgangsrétt í kjara- samningum eru lög vitaskuld æðri en kjarasamningar. Og lögin em stefnumótandi. Þannig að ákvæðin um staðbundinn forgangsrétt verða felld út úr kjarasamningum hér á landi á komandi árum. Launabónus til að auka jafhréttíð Launabónus er ný aðferð til þess að auka jafnrétti og er dæmi um slíkar aðferðir að fínna bæði í Noregi og Banda- ríkjunum. f Noregi hafa ný launakerfi verið tekin upp innan ríkis og sveitarfé- laga. Þau veita aukið svigrúm til vinnustaðasamninga, endurmats á störfum og einstaklingsbundinna launaauka á grundvelli frammi- stöðumats. Norska ríkisstjórnin hefur í þessu samhengi bent á að launakerfin nýju feli í sér vissa hættu á að launamunur milli kynja aukist sé svigrúmið ekki markvisst notað til að draga úr launamuninum. Til að tryggja að launakerfín virki þannig að launa- munurinn minnki hefur ríkisstjórnin því lagt til að frammistaða yfirmann- anna sjálfra verði metin á vogarskál- um launajafnréttisins. Þegar frammi- staða yfirmanns í starfi skuli metin verði því kannað hvaða árangur hann hafi sýnt í því að minnka launamun milli kynja innan sinnar stofnunar. Launaauki yfirmannanna mun því ráðast af frammistöðunni í launa- jafnréttinu ef tillögur norsku ríkis- stjórnarinnar ná fram að ganga. Þetta minnir á svipað dæmi frá Bandaríkjunum. Yfirstjóm fjölmiðlarisans Cannett Co„ sem meðal annars t gefur út stórblaðið USA Today, hafði falið yfirmönn- um fyrirtækisins að auka hlut kvenna í stjórnun- arstöðum. Árangurinn Hildur Jónsdóttir bendir á nýjar leiðir til þess að hraða þróun í átt til jafnréttis kynja á vinnumarkaði. Launaauki yfirmannanna mun því ráðast af frammistöðunni í launajafnréttinu eftillögur norsku ríkisstjórnarinnar ná fram að ganga. lét á sér standa og höfðu yfirmenn- irnir ávallt skýringar á reiðum hönd- um á því hversu treglega gengi að uppfylla sett markmið. Þegar yfir- stjórnin síðan ákvað að láta einstakl- ingsbundinn árlegan launaauka yfir- mannanna ráðast af því hvort þeir næðu settu marki eða ekki brá svo við að allar hindranir voru skyndi- lega á bak og burt. „Þeir sem höfðu leyft sér að efast um að okkur væri alvara fcngu að finna fyrir því í launum,“ var liaft eftir John J. Curley, framkvæmda- stjóra Cannett fyrirtækisins.

x

Vikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.