Vikublaðið - 03.12.1992, Síða 14

Vikublaðið - 03.12.1992, Síða 14
„Alþýðubandalagið hafnar uppgjafarleið ríkisstjórnarinnar og hvetur áfram til víðtækrar samstöðu í þjóðfélaginu um raun- hæf úrræði í efnahags- og atvinnu- málum.“ Þetta kemur meðal annars fram í stjómmálaályktun miðstjórnar Al- þýðubandalagsins sem samþykkt var á fundi í Hafnarfirði um helgina. A dagskrá fundarins voru umræður um efnahags- og atvinnumál, tillögur Alþýðubandalagsins og umfjöllun um flokksstarf. Þá var sérstakur dag- skrárliður þar sem rætt var um um- hverfi og hagvöxt og verður ítarlega greint frá honum síðar, en erindin sem flutt voru vöktu margar spum- ingar. Stjómmálaályktunin fer hér á eftir með millifyrirsögnum Viku- blaðsins. Breytt viðhorf Alþjóðleg viðhorf í efnahags- og atvinnumálum hafa á síðustu misser- um tekið stakkaskiptum. Tími frjáls- hyggjunnar er að líða undir lok og gjaldþrot þeirrar efnahags- og stjóm- málastefnu sem byggði á blindri markaðstrú verður æ Ijósara. Hug- myndir frjálshyggjumanna og ein- strengingslegra einkavæðingarsinna eru nú víðast hvar á undanhaldi. I staðinn koma ný félagsleg viðhorf þar sem frelsi fjármagnsins eru settar ákveðnar skorður, hlutverk opinberr- ar þjónustu í því velferðarsamfélagi sem menn keppa að er viðurkennt og sóknarlínur í atvinnulífi mótaðar með samráði og samstarfi á lýðræð- islegan hátt. Viðurkenning á vist- kreppunni gefur kröfum um aukinn jöfnuð nýjan byr. Undir merkjum þessara breyttu viðhorfa kýs Al- þýðubandalagið að setja fram tillög- ur sínar í efnahags- og atvinnumál- um. Alvarlegar aðstæður Fáum blandast hugur um að ís- lendingar standa frammi fyrir mikl- um erfiðleikum í efnahags- og at- vinnulífi, á margan hátt alvarlegri en um áratugaskeið. Atvinnuleysi er nú þegar hið mesta frá því í kreppunni miklu og fer vaxandi, afkoma at- vinnulífsins er óviðunandi og erlend skuldastaða þjóðarbúsins orðin slík Gunnlaugur Júlíusson og Ólafur Ragnar Grímsson. Séra Baldur Vilheltnsson í rœðustólnum. Steingrímur J. Sigfússon og Ólafur Ragnar Grímsson sitjandi. að mikið lengra verður ekki gengið á þeirri braut án þess að stofna efna- hagslegu sjálfstæði þjóðarinnar í hættu. Þing Alþýðusambands ís- lands hefur hvatt til uppsagnar kjara- samninga, Kennarasamband Islands hefur þegar sagt upp samningum og innan BSRB eru heitar umræður um kaupmáttarrýmunina. Alþýðubanda- lagið telur að þessar alvarlegu að- stæður geri sérstakar kröfur til stjómmálasamtaka um að koma fram af ábyrgð og raunsæi. 1200 -1800 ný störf Markmið tillagna Alþýðubanda- lagsins í efnahags- og atvinnumálum er að skapa 1200-1800 ný störf á næstu 8-12 mánuðum. Tillögum flokksins er einnig ætlað að skapa samstöðu um nýjan grundvöll við hagstjórn, meðal annars með upp- stokkun í sjávarútvegi og nýrri at- vinnuþróunarstefnu, jafnframt því að varðveita þann stöðugleika sem náðist fram í tíð síðustu ríkisstjómar. Alþýðubandalagið gerir meðal ann- ars tillögur um skattlagningu fjár- magnstekna og um aukinn skátt á háar tekjur. Þessu fé verði varið til sóknaraðgerða í atvinnulífinu en einnig til félagslegra jöfnunarað- gerða og nýrra starfa í velferðarþjón- ustu. Engar jöfnunaraðgerðir Nýlegar ákvarðanir ríkisstjómar- innar í efnahagsmálum eru í veiga- Anna Kristín Gunnasdóttir, Kristinn Marinó Böðvarsson og Allan Mort- hens. Aramótahappdrœtti Alþýðubandalagsins Fjáröflunartæki fyrir flokksfélögin í þessari viku hleypir Alþýðu- bandalagið af stokkunum veglegu áramótahappdrætti. Dregið verður á þrettándanum, 6. janúar 1993. Vinningar eru glæsilegir, miðaverð- ið er lágt, kr. 500, og meiri vinn- ingslíkur en tíðkast. Happdrættismiðar eru sendir til velunnara Alþýðubandalagsins um land allt. „Þetta happdrætti er mikilvægt fjáröflunartæki fyrir flokksfélögin," sagði Guðmundur Bjamleifsson, starfsmaður happdrættisins, í sam- tali við Vikublaðið. „Flokksfélögin fá verulegan hluta af innkomunni og geta notað happdrættið til þess að byggja upp fjárhag sinn. Þá er talsvert af lausasölumiðum sem fé- lögin og félagsmenn geta nálgast á skrifstofunni að Laugavegi 3 í Reykjavík eða pantað í síma 91- 17500.“ Guðmundur hvetur stuðnings- menn flokksins til þess að taka vel á móti þrettándahappdrætti Alþýðu- bandalagsins. í25®SdAlag9Íns Sfeeffi-HlpmdtalPtrotí'tJJS dN|*i- fti* BagKðunm 750.000,- Lágt miðawrð VINNINGUK: 654 3 ISrtð'týctti tfwteiÍ!í#mi-\íbA ta»KSfffogjísðöm siðarsáwtót. íéb. IIIIQGÖ,* • VINNlNGURl fttS-Sttik mttm.UÖ.OtKl,- * VINNINGUR: íHihk'iÍSíM&75.0Ö0, • V.IN NINGUR: aö' awrfteiWlilta. 90.000,- * VINNINGUR: JkiihtMtéirtm'tóö.iindkíH»fcn.80.QQ0>- í • VI.NNTNGUR: 8Ö.Q00,- • V'INNÍNGUR: Stffð!yTicív»ttfiF«i»<y>iiintJd'f,lfcgjl:K?ua'«3’ioi6í«0«TU: 55.006,- 8 n . 9.-14. VINNINGUR: | T5aií£ táííSoh ÍBá.Í)tiB*'.»U.EkitL | vfcamgiit að'. ainl'j 15Ö.00Í),- Í Fpöi Otgsfinna mS&i 3ÖÆ0Ð. * Kr 50Q,- 15.“44. VINNiNGUR: l«T&ur: ð»í Mvíli fti. bmar «innintjuc líÖaiTebi riHi kn. 10.000,- Dregið 6. janúar 1993. utn -vivxángz f '.Tito 93VT7S&1

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.