Vikublaðið - 03.12.1992, Síða 15

Vikublaðið - 03.12.1992, Síða 15
VIKUBLAÐIÐ Fimmtudagur 3. desember 1992 15 Gísli Gunnarsson, Eggert Eggertsson, Kristinn Karlsson og Mörður Arnason. Sigþrúður Gunnarsdóttir, Arnoddur M. Valdimarsson og Róbert Marshall. miklum atriðum í ósamræmi við til- lögur Alþýðubandalagsins og hug- myndir frá Alþýðusambandinu og atvinnurekendum. Miðstjórnin vekur athygli á: • að ekki er tryggt að aðgerðír rík- isstjórnarinnar auki atvinnu í land- inu; • að miklar álögur eru lagðar á al- mennt launafólk en engar jöfnunar- aðgerðir er að finna í ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar; • að með aðgerðunum er stöðug- leika í efnahagslífinu stefnt í voða og ekkert gert til þess að halda aftur af verðhækkunum; • að með ákvörðunum sínum í sjávarútvegi gerir ríkisstjómin tilraun til að festa núverandi fiskveiðistjóm í sessi og hindra nauðsynlega endur- skoðun fram á næsta kjöru'mabil. Fundu „breiðu bökin“ hjá barnafólki Miðstjórn Alþýðubandalagsins mótmælir harðlega þeirri atlögu að lífskjörum almennings sem felst í nýframkomnum efnahagstillögum ríkisstjórnarinnar. Þær koma verst við þann fjölda bamafólks sem er að eignast húsnæði. Húshitunarskattur- inn er óréttlátur skattur og felast í honum sérstakar aukaálögur á þá sem bera nú hæstan hitunarkostnað. Með fyrirhuguðum virðisaukaskatti á bækur er horfið frá þeirri sóknar- stefnu í menningarefnum sem mörk- uð var þegar lestrarskattur var af- numinn árið 1990. Ríkisstjómin eyk- ur skattaálögur á almennt launafólk en á sama tíma er ekki hreyft við skattfrjálsum gróða fjármagnseig- enda. Nýir skattar á launafólk sam- kvæmt tillögum ríkisstjórnarinnar nema 6 þúsund miljónum króna en hátekjufólki er einungis ætlað að bera 300 miljónir sérstaklega. Hvatt til samstöðu Fundurinn skorar á landsmenn að fylkja liði til þess að verja velferðar- samfélagið gegn atlögum ríkisstjóm- arinnar. Reynsla annarra þjóða sýnir að það hefnir sín grimmilega að van- rækja uppbyggingu á sviði félags- og heilbrigðismála. Lykillinn að betri framtíð, jafnt í efnahagslegu sem menningarlegu tilliti, er efling rannsókna og mennt- unar, sérstaklega í greinum sem tengjast farsælli hagnýtingu á auð- lindum. Alþýðubandalagið hafnar upp- gjafarleið ríkisstjómarinnar og hvet- ur áfram til víðtækrar samstöðu í þjóðfélaginu um raunhæf úrræði í efnahags- og atvinnumálum. Tillög- ur Alþýðubandalagsins liggja fyrir. Flokkurinn er reiðubúinn til sam- starfs við stjómmálafylkingar og samtök launafólks um aukna at- vinnu, stöðugleika í efnahagslífi, kjarajöfnun og varðstöðu um vel- ferðarkerfið. SAGT MED MYND HÖF. HJÖRTUR GUNNARSSON OG ÞURÍÐUR HJARTARDÓTTIR VERDLA UNA GÁ TA 3 Verkefni ykkar, lesendur góðir, er að lesa texta út úr myndagátunni. Lausnir sendist Vikublaðinu, Laugavegi 3,101 Reykjavík. Skilafrestur er tvær vikur. Verðlaun fyrir myndagátu nr. 3 em Lífsins dómínó - öðmvísi ævisaga Skúla Halldórssonar, sem Örnólfur Árnason skráði og Skjaldborg gefur út. Verðlaunahafí Rúmlega fjörutíu lausnir bámst á verðlaunagátu nr. 1. Allntargir höfðu ráðið gátuna næstum rétt, en höfðu næst- neðstu línuna ekki nákvæmlega rétta. Ráðningin var þessi: NÝR FJÖLMIÐILL, VIKUBLAÐIÐ, MÁLGAGN AB, HEFUR NÚ GÖNGU SÍNA. LÁTUM RÖDD ÞESS HEYRAST. Úr hópi þeirra sem rétt réðu var dregið út nafn Kristins Gíslasonar, Jökulgrunni 21,104 Reykjavík. Vikublaðið óskar honum til hamingju með bók Thors Vilhjálmssonar, Raddir í garðinum.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.