Vikublaðið - 03.12.1992, Blaðsíða 16

Vikublaðið - 03.12.1992, Blaðsíða 16
VIKOBLAÐIÐ ' 3. TOLUBLAÐ 1. ÁRGANGUR 3. DESEMBER 1992 Aukínn skattur 350 milljónum velt út í verðlagið á mjólk, nautakjöti, eggjum, svínakjöti, kjúklingum og hrossakjöti í aðgerðum þeim sem ríkisst jórniu hefur boðað að undanförnu er stefnt að því að auka skattlagningu búvara. Annaðhvort hækk- ar innlend matvara í verði sem því nemur eða framleiðendur verða að axla auknar byrðar. Lagt er til innan ríkisstjómar að endurgreiðsla virðisaukaskatts (mat- arskattsins illræmda) lækki verulega af nautakjöti, eggjum, svínakjöti, kjúklingum og hrossakjöti. I fjár- lagafrumvarpinu, sem lagt var fram í október, er gert ráð fyrir að dregið verði úr endurgreiðslu virðisauka- skatts af fyrrgreindum búvörum um allt að 200 milljónir króna. Afram á nú að halda á sömu braut og draga enn frekar úr endurgreiðslum virðis- aukaskattsins eða sem nemur allt að 50 milljónum króna. Samtals er þetta 54% lækkun á endurgreiðslum. Þetta hefur í för með sér að verð þessara búvara hækkar sem þessu nemur eða að framleiðendur verða að axla auknar byrðar. Einnig er stefnt að því að inn- heimta allt að 100 milljónum króna aukalega gegnum verðmiðlunarsjóð mjólkur. Það mun seinka því að um- samdar hagræðingaraðgerðir, sem unnið hefur verið að innan landbún- aðarins, nái til neytenda. Samtals er um að ræða 350 millj- óna álögur á búvörur. Þessar aðgerð- ir stjómvalda veikja verulega grunn- inn undir því samstarfi milli aðila vinnumarkaðarins, stjómvalda og landbúnaðarins sem staðið hefur yfir allt frá tímum þjóðarsáttarinnar árið 1990. Bændur sjá ekki mikinn til- gang í að semja um hagræðingu og lækkun raunverðs búvara ef stjóm- völd eyða áhrifum þeirra jafnóðum með aukinni skattheimtu, sem veldur því að áhrifin af samkeppnishæfari framleiðsluháttum ná seint eða ekki út til neytenda. Kjarasamningum sagt upp Kennarasamband Islands hefur sagt upp kjarasamningi við ríkið. Launamálaráð stærsta félagsins inn- an BSRB, Starfsmannafélag ríkis- stofnana, með 4700 félagsmenn, ákvað einróma uppsögn samninga í vikunni og fyrir helgi hvatti ASÍ- þing aðildarfélög til þess að losa samninga sín. Rökin eru í öllum til- fellum þau sömu: Gengisfelling, kjaraskerðing, efnahagsaðgerðir án lífskjarajöfnunar og atvinnuskapandi aðgerða kippa umsömdum forsend- um undan samningunum. Sjúkraliðar hafa síðustu daga setið fundi í aðalstöðvum BSRB að Grett■ isgötu 89 í Reykjavík. Kjarasprengja tifar á spítölunum Langlundargeð margra hefðbundinna kvennahópa innan heilbrigðiskerfisins er á mörkum þess að snú- ast upp í meiri baráttuvilja en komið hefur fram hjá öðrum hópum á vinnumarkaðinum um nokkurra ára skeið. Gagnvart reykvískum sjúkraliðum með 54 þúsund krónur á mánuði í byrjunarlaun, sem fjármála- ráðherra reynir að þvinga til að samþykkja kjaraskerðingar sjúkraliða á landsbyggðinni, dugir skammt að vísa til atvinnuleysisvofunnar og mikilvægis stöðugleika á vinnumarkaði. Þau meðul eru einfaldlega hætt að hrífa gagnvart þessari lægstlaunuðu sérmenntuðu kvennastétt landsins. í ljósi sjúkraliðadeilunnar er rétt að skoða ummæli fjármálaráðherra á jafnréttisráðstefnu ungra kvenna í stjómmálaflokkunum sem haldin var í Reykjavík hinn 14. nóvember síð- astliðinn. „Fyrir liggur mikið magn upplýs- inga um stöðu karla og kvenna í at- vinnulífinu. Þær upplýsingar benda nær allar í eina átt, þ.e. að staða kvenna á vinnumarkaði sé almennt lakari en staða karla í launalegu til- liti. Þannig hafa karlar að jafnaði hærri laun þótt um sambærileg störf sé að ræða og eru alls ráðandi í stjómunarstöðum. Auk þess em þær starfsgreinar þar sem karlar eru í meirihluta almennt betur launaðar en svokölluð kvennastörf." Fjármálaráðherra fjallaði síðan um ýmsar vísbendingar „um stöðu- mun karla og kvenna í atvinnulífinu, konum í óhag, sem ráða þarf bót á með einhverjum hætti.“ Orð og athafnir fjármálaráð- herra Sá maður sem mælti þessi orð er nú í aðstöðu til að „ráða bót á“ slæm- um launakjörum helstu kvennastétt- anna í landinu sem margar starfa ein- mitt undir hans stjóm. Deila sjúkraliða er aðeins hluti af þeirri kjarasprengju sem tifar undir spítölunum. A fimmta hundrað hjúkmnarfræðinga sögðu upp störf- um um síðustu mánaðamót og samn- ingamál röntgentækna eru enn óleyst. Þá er flestum deila meina- tækna frá í sumar enn í fersku minni. Tilvera stéttarfélagsins í húfi - Ég er farin að halda að mark- miðið með stífni fjármálaráðherra sé að kæfa Sjúkraliðafélagið í fæðingu, áður en það nær að ganga frá sínum fyrsta kjarasamningi. Ef ríkið býður ekki upp á annað en að semja þannig að sjúkraliðar úti á landi lækki í launum og missi réttindi, er Ijóst að tilvera stéttarfélagsins er í húfi, segir Kristín A. Guðmundsdóttir, formað- ur Sjúkraliðafélagsins. Hættan sem félagið stendur frammi fyrir er sú að sjúkraliðar úti á Iandsbyggðinni yfirgefi félagið til að verja kjör sín. Þá getur það hlutfall af stéttinni í heild sem er innan vé- banda Sjúkraliðafélagsins lækkað niður fyrir viðmiðunarmörk og þær misst samningsréttinn. Sjúkraliðar hafa verið án kjara- samnings í 15 mánuði eða frá því í ágúst á síðasta ári. Þá voru aðeins liðnir þrír mánuðir frá stofnun fé- lagsins sem stéttarfélags, en áður hafði félagið verið til sem fagfélag án samn- ingsréttar og vom sjúkraliðar á höfuð- borgarsvæðinu ýmist aðilar að Starfs- mannafélagi ríkisins eða Starfsmanna- félagi Reykjavíkurborgar. Störf sjúkraliða úti á landi endurmetin Kjör sjúkraliða á landinu eru nokkuð breytileg en lægst í Reykja- vík. Munað getur allt að 15 þúsund- um króna á mánuði milli einstakra staða á landsbyggðinni og láglauna- svæðisins í Reykjavík. Þessi kjara- munur á rætur að rekja til þess að víða hafa sjúkraliðar verið í starfs- mannafélögum sveitarfélaganna og náð þar betri samningum en fengust gagnvart Reykjavíkurborg sem hefur sett metnað sinn í að halda botnsæt- inu hvað laun og kjör borgarstarfs- manna varðar. Þegar þau sveitarfé- lög, sem mynda samflot sveitarfé- laganna í kjarasamningum, hófu að endurmeta störf og röðun þeirra í launaflokka í kjölfar ákvörðunar 1987 um að innleiða starfsmat, leiddi það víðast til þeirrar niðurstöðu að starf sjúkraliða væri svo krefjandi að þeim bæri launahækkun. Reykvískir sjúkraliðar vom meðal þeirra sem fengu engar slíkar hækkanir en Reykjavíkurborg er eitt örfárra sveit- arfélaga sem standa utan samflotsins og tók því ekki þátt í starfsmatinu. Þegar sjúkrastofnanir voru færðar frá sveitarfélögum til ríkisins bauð ríkið ekki upp á annað en að miða laun sjúkraliða alls staðar á landinu við lægsta mögulega samnefnara, þ.e. launin í Reykjavík. - Á þriðjudag kúventi fjármála- ráðherra og sagði í fyrsta skipti að ríkið væri tilbúið að skoða það að sjúkraliðar úti á landi fái að halda launum sínum. Eftir stendur samt að ríkið vill taka af þeim ýmis réttindi. Þar vegur þungt réttur til að fá nám- skeið metin til launahækkana, sem sjúkraliðar úti á landsbyggðinni hafa en ekki við hér í Reykjavík. Sú krafa, að aðgengi að framhaldsmenntun og námskeiðum verði aukið og sú aukna þekking verði metin til launa er einmitt ein af höfuðkröfum Sjúkraliðafélagsins í þessum samn- ingum, segir Kristín. Víðtækur stuðningur við sjúkraliða Um 700 sjúkraliðar hafa flykkst á kjaramálafundi síðan á mánudag til að leggja áherslu á kröfur félagsins og til að knýja fjármálaráðherra að samningaborðinu. Að sögn Kristínar rignir skeytum og stuðningsyfirlýs- ingum yfir fundina. Þannig hefur BHMr sent þeim hvatningu og bæði hjúkrunarfræðingafélögin sömuleið- is. Þá er mikið um skeyti frá almenn- ingi og kaffihús eitt á Rauðarárstíg sendi stóra súkkulaðitertu með bar- áttukveðjum. En hvers vegna telur Kristín að sjúkraliðar njóti svona mikils stuðnings? - Stór hluti þjóðarinnar hefur kynnst störfum sjúkraliða af eigin raun, annaðhvort inni á sjúkrastofn- unum sem sjúklingar eða sem að- standendur. Þetta fólk veit hvers virði störf okkar eru og hvað sjúkra- liðar leggja af mörkum til þjóðarinn- ar. Þetta mat er í engu samræmi við stefnu fjármálaráðherra, sem sýnir okkur stöðugt í tvo heimana þrátt fyrir jafnréttissinnaðar yfirlýsingar á öðrum vettvangi. Leynileg launakönnun innan spítala í Reykjavík Hjúkrunarfræðingar hafa gefið spítölunum gálgafrest fram til fyrsta febrúar á næsta ári, en á fimmta hundrað þeirra sögðu upp störfum um síðustu mánaðamót. Ríkið hefur heimild til að framlengja uppsagnar- frestinn um þrjá mánuði til viðbótar og er þess vænst að sú heimild verði nýtt. Þennan frest ætla spítalarnir að nota til að láta fara fram ítarlega skoðun á launakjörum nokkurra starfsstétta innan spítalanna í Reykjavík, en Davíð Á. Gunnarsson hefur lýst því yfir að fara verði ofan í saumana á launamálum hjúkrunar- fræðinga og finna á þeim viðunandi lausn. Þessi samanburður, sem þegar hefur verið byrjað á, er gerður innan Borgarspítalans, Landspítalans og Landakots eða St. Jósefsspítalans og nær hann til fjögurra stétta að minnsta kosti; sjúkraliða, hjúkrunar- fræðinga, sjúkraþjálfara og aðstoð- arlækna. Gott gengi AB með 19,3% Alþýðubandalagið fengi 19,3% ef gcngið væri til alþingiskosn- inga nú samkvæmt skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið. Þetta er með mesta fylgi sem mælst hefur við flokkinn í könntinum Félagsvísindastofnunar og kemur heim við svipaða útkomu hjá DV og Skáís nýverið. í kosningunum síðustu fékk Al- þýðubandalagið 14.4% atkvæða, en í síðustu könnun FHI í júní sl. 17,5%. Athygli vekur að Kvenna- listinn mælist nú með 13,5% fylgi, hafði 12,2% í síðustu könnun og 8,3% í þingkosningunum. Það þýðir væntanlega að flokkamir eru ekki að bítast um sama fylgið. Framsókn tapar marktækt í könnuninni og fær 23%. Alþýðu- flokkurinn fær 10,9% og mælist nú minnstur flokka. Sjálfstæðisflokk- ur fær 32,5%. Samtals eru stjórnar- flokkamir í minnihluta með 43,4%. Könnunin var gerð 25.-30. nóv- ember.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.