Vikublaðið


Vikublaðið - 21.01.1993, Síða 12

Vikublaðið - 21.01.1993, Síða 12
12 VIKUBLAÐIÐ Fimmtudagur 21. janúar 1993 HUGLEIÐINGAR I VIKULOK EFTIR ARNA BERGMANN Hvað er að? Morgunblaðið vitnaði í Reykjavíkurbréfi í Alice B. Rivlin, ráðgjafa Ciintons, verðandi Bandaríkjafor- seta. Ráðgjafinn spurði: „Hvernig stendur á því að efnahagskerfi sem byggir á miklum náttúruauðlindum og duglegu, hæfileikamiklu fólki, skilar ekki betri árangri? Hvernig getum við náð okkur á strik? Hvers vegna er reynslumikil, lýðræðislega kjörin stjórn lömuð?“ Blaðið segir að slíkar spurningar eigi jafnt við hér á íslandi og í Bandaríkjunum. Það svarar þeim ekki, það leit- ar ekki að „kjarna málsins" eins og segir í sjálfsauglýs- ingu blaðsins, en nú skulum við leyfa okkur þá ósvífni að reyna það okkur til skemmt- unar í umhleypingunum. Og þau svör eiga sumpart við um Bandaríkin, sumpart við okk- ur hér, sumpart við um öll iðnvædd Vesturlönd. Semsagt: hvað er að? Hversvegna skilar efnahags- kerfið ekki árangri? Heimskuleg stefna I fyrsta lagi vegna þeirrar reaganísku stefnu að létta sköttum og álögum af þeim ríku. Með þeirri réttlætingu að þeir hefðu þá meiri peninga til að fjárfesta og auka hagvöxt og atvinnu. Þetta var blátt áfram röng stefna og heimskuleg, árangur hennar varð öfugur við það sem til stóð. í öðru lagi rambar peninga- kerfið á ystu nöf. Hvernig sem á því stendur hefur markaður- inn, sem allt þykist vita, ekki sent þau skilaboð til lána- stofnana að þær skuli varast að trúa því að steinsteypa í stórborgum sé gulls ígildi. Gífurleg skrifstofubákn ný- reist standa auð eða hálfauð og óseljanleg í öllum helstu borgum heims, bankar, sem á veð í þeim trúðu, eru á heljar- þröm og grípa gjarnan til þess ráðs að þjarma þá meira að öðrum lántakendum, tiltölu- lega saklausum. Þar að auki gerðist það í Bandaríkjunum að spekúlöntum var leyft að eyðileggja húsnæðislánakerf- ið og stela peningum þess (og | 'j r. J >_./ ■ , t ■ V V. i r vJflNKfJ\ —; \ K s r 5 I X ’To e> 4T VjS Nj C { — mm / { '/>\ 4 m <4r 'V1' < < 9-- - 'V- t 4 0 Launamiðum ber að skila í síðasta Iagi21. janúar Allir sem greitt hafa laun á árinu 1992 eiga nú að skila launamiðum á þar til gerðum eyðublöðum til skattstjóra. Skilafrestur rennur út 21. janúar. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI var svo gert í nafni frjálsari peningaviðskipta og hömlu- lausari, eins og vænta mátti). Vítahringur hagfræðinnar í þriðja lagi er sú hagspeki í mikilli klemmu sem segir fyr- irtækjum að Iifa af í sam- keppninni með því að hag- ræða og tæknivæða - og fækka um leið hjá sér starfs- fólki sem mest þau mega. Þetta sýnist skynsamlegt en gengur ekki upp. Það er náttúrlega löngu tími til þess kominn að skoða hagvaxtardœmið upp á nýtt, kippa hjátrúnni á hag- vöxtinn úr nauðungarsambandi við kröfur um sómasamlegt mannlíf og gera skurk íþeim leikreglum vinnu- markaðarins sem eru að dœma fimmtung til fjórðung íbúa jafnvel auðugustu samfélaga heims úr leik. Allsherjarhagræðing leiðir fyrst til þess að mjög fækkar störfum í framleiðslugreinum. Um tíma er því svarað með nýjum störfum í þjónustu- greinum. En þau („hamborg- arastörfin") eru mun lakar borguð en framleiðslustörfin voru, og í annan stað kemur einnig að því, að í þeim geira verður ekki lengur við bætt fólki (enda „hagrætt“ allsstað- ar í senn). Atvinnuleysingjum stórfjölgar (Evrópubandalag- ið spáir hjá sér 10% atvinnu- leysi sem hægt og bítandi fari upp í 15%). Um leið fækkar þeim stórlega sem áður bjuggu við miðstéttarkjör. Hagræðingin sem átti að efla hagvöxt bítur í skottið á sér: kaupmáttur alltof margra hefur skerst, hver á að kaupa allt það sem hátæknin fram- leiðir með ótrúlega litlum mannafla? Þeir ríkustu geta að sönnu bætt á sig, en þeir eru fáir. Atvinnuleysi og ör- yggisleysi miðstéttanna gerir fólk líka enn varfærnara en áður: það hendir ekki nýleg- um hlutum, það skiptir síður og seinna um bíl og hefur hann ódýrari en þann sem seldur var. I fimmta lagi: markaðir eru mettaðir í fleiri en einum skilningi. A uppgangstímum hafa allar fjölskyldur sem vettlingi geta valdið komið sér upp dýrari hlutum og græjum sem ætluð eru til lengri nota. Heimilistölva, vídeó, geisla- spilari, eldhúsvélar o.fl. - þetta er allt til. Og vegna þess að enginn sem enn á ekki komplett af slíkum hlutum er núna á leið „upp“ í miðstéttar- kjör, og vegna þess að mið- stéttimar eru hræddar um sig, þá gengur ekki sú brella leng- ur í sölumálum að freista fólks til að henda þeim hlut- um sem það hefur og kaupa nýja og glæsilegri „kynslóð" þeirra. Harðlífið í sölukerfinu linast ekki. Reyndar er þjóðfélagið haldið alvarlegum geðklofa. Alþýðu er sagt að spara og sýna ábyrgð - en um leið og hún gerir það, kaupir hún minna og eykur þar með vanda atvinnulífsins. Þar með er sparnaðurinn orðinn eins konar andfélagslegt fyrirbæri, sem vinnur gegn því að „upp- sveiflan" byrji. Það er líka hægara sagt en gert að leysa kreppuna heima fyrir með því að selja meira erlendis. Vegna þess að öll samfélög sem geta keypt eru í svipaðri klemmu - og ætla öll í einu að bjarga sér á „nýjurn mörkuðum". I sjötta lagi súpa menn seyðið af því að hagvöxtur “ liðinna ára var falskur. I þeim skilningi að hann fékkst með- al annars með því að fleyta of- an af auðlindum sent ekki verða endumýjaðar, með því að spilla umhverfi - vatni, lofti, jarðvegi. Þetta var eins og að slá lán sem ekki er inni- stæða fyrir og nú falla sumir þeirra víxla og taka með sér í fallinu ýmsa „uppsveiflu- möguleika". Engin framtíðarsýn Og hvers vegna er „reynslu- mikil lýðræðislega kjörin stjórn lömuð“? Vegna þess að hún hefur ekki neina sýn, neinar lausnir, sem eru öðru- vísi en hagspeki stórfyrirtækj- anna sem ætla að lifa af á hag- ræðingu, á því að slátra störf- um (og hækka laun forstjór- anna um leið). Ríkisstjóm Clintons getur gert nokkra hluti betur en þeir Reagan og Bush. Til dæmis með því að skattleggja þá ríkari meira og nota þá peninga sem og spamað í vígbúnaði til að hressa upp á sárlasið mennta- kerfi. En þar með er fátt eitt gert, satt best að segja. Það er náttúrlega löngu tími til þess kominn að skoða hagvaxtardæmið upp á nýtt, kippa hjátrúnni á hagvöxtinn úr nauðungarsambandi við kröfur um sómasamlegt mannlíf og gera skurk í þeim leikreglum vinnumarkaðarins sem em að dæma fimmtung til fjórðung íbúa jafnvel auð- ugustu samfélaga heims úr leik. En til þess þarf bæði pólitískt hugrekki og sam- stöðu í samfélaginu sem lítt bólar á - enn sem komið er. Hitt er ljóst að eftirspumin (einn markaðsfrasinn enn!) eftir öllu slíku fer ört vaxandi.

x

Vikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.