Vikublaðið - 21.01.1993, Page 15
Fimmtudagur 21. janúar 1993
VIKUBLAÐIÐ
15
DAGSINS ONN
RITHÖND VIKUNNAR
Bregst ekki þegar á reynir
Skriftin segir að þú eigir auðvelt með að skipta um starfssvið. Ef eitt bregst ert þú áður en við er litið búinn að finna nýj-
an útveg. Þú ert framgjarn og metnaðarfullur, en á rólegan og þægilegan máta. Þú ert ailtaf tilbúinn að hlusta á rök-
semdir. Þú munt vera þjóðlega sinnaður á ýmsan hátt. Það er einkennandi fyrir þig að þú vilt vinna hvað eina á sem fljótleg-
astan hátt, líklega truflar það einna helst hugarró þína ef það gengur ekki. Þá kanntu að verða óþolinmóður. Þú virðist alltaf
vera önnum kafinn. Þú hefur hæfileika á bókmenntasviði en leggur varla nóga rækt við
þá. Þú getur verið stíflyndur og þrár, en þá helst í smámunum; þegar um eitthvað er að
ræða sem máli skiptir semst venjulega við þig. Nokkuð dulur, en bregst ekki þegar á
reynir. Öllum sem þekkja þig náið verður þú kær og minnisstæður, þrátt fyrir nokkuð
flókinn persónuleika. Oft vinnur þú eins mikið að tjaldabaki og á sviðinu, ef svo mætti
orða það. Þér fellur best að vinna við eitthvað sem á að eiga sér langan aldur. Og það
verður líklega hlutskipti þitt. Líklega ertu það sem dulfræðingar kalla gamla sál. Ein-
hverskonar söfnunarstörf ættu líka að henta þér.
Varast: Að ofþreyta þig og gefa þérof lítinn tíma með fjölskyldu.
Flosi Eiríksson er sagnfræðinemi við
H.Í., fyrrverandi framkvæmdastjóri
Abl. og ættaður úr Kópavoginum.
Frægastur er hann líklega fyrir að hafa
verið í sigurliöi MK í spurningakeppni
framhaldsskólanna hér um árið.
LYKILLINN AÐ GOÐU HJONABANDI
Neistinn og
aðdráttaraflið
Hjón þurfa að vera góðir vinir. í því
felst trúnaður og hollusta, en líka
gleði og kátína. Hjónum þarf að finnast
gaman í hversdagsleikanum og ekki gera
sambandíð að einhverju sjálfsögðu sem
tekur við af níu-til-fimm-rútínu. Hjón þurfa
að vera heiðarleg, maður þarf að hlusta á
sjálfan sig og kunna að hlusta á makann,
jafnframt því að sýna honum skilning og
væntumþykju. Neistanum og aðdráttarafl-
inu má sömuleiðis ekki týna niður. Hér á ég
ekki aðeins við líkamlegt aðdráttarafl held-
ur líka þetta huglæga sem fær okkur til að
dást hvort að öðru, segir Nanna K. Sigurð-
ardóttir félagsráðgjafi.
á kaffihúsi msgmmmm
Atvinnulausir á Prikinu
r
Iatvinnuleysinu er stundum ekkert annað til ráða en að
setjast niður með kaffibolla og velta fyrir sér tilverunni.
Hver á sök á atvinnuleysinu? Ég sjálfur, stjórnvöld eða fisk-
urinn í sjónum? Hvers á ég fullfrískur maðurinn að gjalda?
Hvers vegna gera stjórnvöld svona lítið til að auka atvinnu í
landinu? Geta þeir það ekki, vilja þeir það ekki? Hver sem
ástæðan er þá er það allavega djö . . . skítt að hafa ekki
vinnu. Eitt er þó gott I þessari leiðu og vondu veröld. Það er
gott að setjast á Prikið í Bankastræti, fá sér kaffi og meððí ef
maður á fyrirðí.
SAGT MED MYND HÖF. HJÖRTUR GUNNARSSON OG ÞURÍÐUR HJARTARDÓTTIR
Verðlaunahafí fyrir nr. 7
Verðlaunahafi fyrir mynda-
gátu nr. 7 er Þorgerður
Bergsdóttir, Höfðabraut 16,
300 Akranesi. Hún fær bók-
ina Löndin í Suðri eftir Jón
Orm Halldórsson.
Ráðning 7. myndagátu:
Flest stéttarfélög hafa sagt
upp kjarasamningum og
stefnir í mikil átök.
VERDLAUNAGÁTA 9
Lausnir sendist Vikublaðinu, Laugavegi 3,101 Reykjavík. Skilafrestur er tvær
vikur. Verðlaun fyrir myndagátu nr. 9 er bókin um Astu Sigurðardóttur, Minn
hlátur er sorg, eftir Friðriku Benónýs.