Vikublaðið - 20.08.1993, Blaðsíða 1
Ein í heimi
Nýbúabörn læra íslensku í
sumarskóla á meöan mæður
þeirra fá kennslu í saumaskap
og íslenskri matargerðarlist.
Utlend aðlögun að Islandi í
framkvæmd. Bls. 8-9
Tilfinningar og
skynsemi
I lvernig finnum við til á réttan
hátt? Hvar skarast skynsemi og til-
finningar? Eru til skynsamar til-
finningar?
Bls. 7
Menning
Er nútíma landbúnaður á Islan-
di arftaki gömlu íslensku bæn-
damenningarinnar? Hver er
mtmurinn á Selfossi og
Reykjavík? Hefúr Jón Helgason
rétt fyrir sér? Bls. 4
32. tbl. 2. árg.
20. ágúst 1993
Ritstjóm og
afgreiðsla:
sími 17500
250 kr.
Skerðing á kjörum
aldraðra og öryrkja
Aldraðir og öryrkjar hafa
margir borið sig upp við
Tryggingastofnun vegna
þess að kjör þeirra hafa verið
skert með breytingum á lögum
um atvinnuleysistryggingar.
Ríkisstjómin fékk lagabreyting-
una samþykkta á síðustu starfs-
dögum Alþingis í vor og nýmæl-
in tóku gildi í júlí.
Lagabreytingin felur það í sér að
aldraðir og öryrkjar á atvinnuleys-
isskrá fá ekki fullar atvinnuleysis-
bætur heldur skerðast þær þannig
að lífeyrisgreiðslur eru dregnar frá
atvinnuieysisbótum. Það er ekki af
stórum upphæðum að taka því að
atvinnuleysisbæturnar eru rúmar
40 þúsund krónur og þegar búið er
að skerða bæturnar með því að
draga lífeyrisgreiðslur frá standa
eftir 31 þúsund krónur.
- Við höfum ekki fengið góð
viðbrögð frá fólki sem verður fyrir
skerðingunni, segir Sigrún Hauks-
dóttir hjá Tryggingastofnun. I
efhahagssamdrættinum undanfarin
misseri hafa margir aldraðir og ör-
yrkjar misst vinnuna og það er
erfitt fyrir þessa þjóðfélagshópa að
fá nýtt starf.
Þegar bæturnar sem þetta fólk
átti rétt á fyrir 1. júlí eru í ofanálag
skertar finnst því harkalega að sér
vegið.
Landssamband aldraða ályktaði
gegn lagabreytingum ríkisstjórnar-
innar en það haíði lítil áhrif. Að
sögn Olafs Jónssonar, formanns
Landsambands aldraða, munu
þessar ráðstafanir ýta öldruðum út
af vinnumarkaðnum og það hafi
vakið hörð viðbrögð fyrst í stað.
- En annars eru menn farnir að
sljóvgast yfir öllunt þessum skerð-
Ólafiir Jónsson formaður Lands-
sambands aldraðra: Óldruðum er
ýtt út í kuldann.
ingum sem dunið hafa yfir, segir
Ólafur.
Ný stjórn í útgáfufélagi Tímans:
Meirihlutinn vildi Steingrím út
Steingrímur Hermannsson á hluthafajúndi Mótvægis hf Hann beið lægri blut t viðskipum við hluthafahóp undir
forystu tveggja starfsmanna Tímans. A vinstri hönd Steingríms er Leo Löve fundarstjóri, Vilhjálmur Jónsson fyrrv.
forstjóri Olíufélagsins, Hrólfur Ólvisson framkvtemdastjóri Tímans, Agiíst ÞórAmason blaðamaður og Stefán As-
grímsson fiéttastjóri.
Meirihlutinn í Mótvægi
hf.,útgáfúfélagi Tím-
ans, er kominn úr
höndum íramsóknarmanna sem
í hartnær 80 ár hafa gefið blaðið
út. A hluthafafundi í fyrradag
myndaðist nýr meirihluti sem
reyndi að fella Steingrím Her-
inannsson, formann Framsókn-
arflokksins, úr stjórn útgáfúfé-
lagsins. Litlu munaði að það
tækist.
Síðustu mánuðina hefur Mót-
vægi hf. staðið fyrir hlutafjársöfnun
til að endurreisa Tímann og gera
blaðið samkeppnisfært við Morg-
unblaðið og DV. Tvær meginfylk-
ingar hafa tekist á uin meirihlutann
í útgáfufélaginu. Annarsvegar
Steingrímur Hermannsson, sem
var formaður Mótvægis hf. þangað
til í fyrradag, og hinsvegar hluti
starfsmanna Tímans undir forystu
Agústar Þórs Arnasonar blaða-
manns og Stefáns Ásgrímssonar
fréttastjóra.
Steingrímur Hermannsson taldi
óæskilegt að Framsóknarflokkur-
inn ætti rneira en fimmtung hluta-
fjár Tímans, enda er hann sann-
færður um að dagar flokksblaða séu
taldir. Hugmyndir hans voru að
hlutaféð dreifðist á margar hendur.
Hann lcitaði því til áskrifenda, fyr-
irtækja, kaupfélaga og verkalýðsfé-
laga eftir hlutafé. Einnig var haft
samband við aðra stjórnarand-
stöðuflokka, Alþýðubandalagið og
Kvennalista. Á hlutahafafundinum
á hótel Borg í fyrradag lýsti Stein-
grímur yfir vonbrigðum með und-
irtektir verkalýðsfélaga og kaupfé-
laga.
- Viðhorf margra er að þeir vilji
bíða og sjá hvernig þetta þróast,
sagði Steingrímur. Ilugmyndir
starfsmannanna voru á öðrum nót-
um en Steingríms. Þeir vildu
tryggja sér forræði yfir blaðinu og
tortryggðu Steingrím, töldu hann
ætla sér að hafa áhrif á bakvið tjöld-
in þótt flokkurinn afsalaði sér
formlega meirihlutanum. Á hlut-
hafafundinum í fyrradag kom í ljós
að Ágústi Þór og Stefáni Ásgríms-
syni hafði tekist að mynda banda-
lag meirihluta hlutafjáreigenda,
eins og kom fram í stjórnarkjöri.
Hvorki Ágúst Þór né Stefán buðu
sig fram í stjórn enda hyggjast þeir
báðir starfa áfram á Tímanum og
hefúr Ágúst Þór látið í ljós áhuga
sinn að verða ritstjóri.
Fyrir hluthafafundinn höfðu
fulltrúar stærstu hluthafana sam-
mælst um að kjósa Jón Sigurðsson,
fyrrverandi skólastjóra Samvinnu-
skólans á Bifröst, í stjórn Mótvægis
hf. Aðrir sem náðu kjöri í stjórn
voru: Steingrímur Gunnarsson,
Bryndís Hlöðversdóttir, Bjarni Þór
Oskarsson og Steingríinur Her-
mannsson.
Ágúst Þór og Stefán unnu að
kjöri Steingríms Gunnarssonar,
Bryndísar og Bjarna Þórs. Á fúnd-
inum stakk Ágúst Þór upp á Bárði
Halldórssyni í stjórn Mótvægis hf.
og var Bárði stefnt gegn Steingrími
Hermannssyni. Það stóð glöggt að
tækist að fella Steingrím og mun-
aði aðeins prósentubroti af atkvæð-
um hluthafa. Þegar ekki tókst að
fella Steingrím úr aðalstjórn var
Bárði stefnt gegn Helga Péturs-
syni, sem var fulltrúi Steingríms til
varastjórnar og fór Bárður inn en
I Ielgi lenti utangarðs. Síðusm dag-
ana fyrir hluthafafundinn voru
ýmsar hugmyndir á lofti um það
hvernig ný stjórn útgáfúfélags
Tímans skyldi skipuð. Tilraun var
gerð til að búa til stjórn skipaða
formönnum stjórnarandstöðu-
flokkanna og nöfn Ögmundur Jón-
assonar, formanns BSRB, og Bene-
dikts Davíðssonar, forseta ASI,
voru einnig nefnd í því sambandi.
Iljá einhverjunt hluthöfum kom til
tals að fá Jóhönnu Sigurðardóttir
félagsmálaráðherra í stjórn Mót-
vægis.
Þessar pælingar komust aldrei á
alvarlegt stig. Alþýðubandalagið tók
þá stefnu fyrir nokkru að sýna til-
rauninni til að endurreisa Tímann
„vinsamlegt hludeysi“ með því að
einstaklingar úr forysmsveit flokks-
ins keyptu óverulegt hlutafé í Mót-
vægi hf. Vegna þess hversu óljóst
var hvaða öfl hefðu undirtökin
meðal hluthafa Mótvægis bar kjör
sumra stjórnarmanna brátt að. Til
að mynda hafði Ágúst Þór ekki sam-
band við Bryndísi Hlöðversdóttur
fyrr en rétt fyrir hluthafafundinn.
Ágúst Þór hefur lengi reynt að afla
sér smðnings Kvennalistans og viídi
að konurnar tilnefndu einhverja til
að taka sæti í stjórn Mótvægis hfi,
jafnvel þó að Kvennalistakonur
Ieggðu ekki fram stóra peninga í
hlutfélagið.
Kvennalistinn var hinsvegar treg-
ur til og þekkmsm konumar þar á
bæ vildu halda sig til hlés. Á þriðju-
daginn birrist grein efrir Bryndísi í
Morgunblaðinu þar sem hún bar
blak af þingkonu Kvennalistans
sem hafði orðið fyrir óvæginni árás
í Alþýðublaðinu. í framhaldi af því
barst Ágústi Þór það tíl eyrna að
Kvennalistinn mjmdi líta á það
með velþóknun ef Bryndís tæki
sæti í stjórn Mótvægis hf. Ágúst
hafði samband og Bryndís sló til. -
Eg er þó ekki í Kvennalistanum,
segir Bryndís en hún er lögfræð-
ingur á skrifstofu ASI. Fyrsm verk
nýkjörinnar stjórnar útgáfúfélags
Tímans verða að kjósa sér formann
og auglýsa eftir ritstjóra. Þótt Á-
gúst Þór hafi náð að mynda meiri-
hluta í Mótvægi hf. eru áhöld um
hvort hann njóti stuðnings til að
ritstýra Tímanum. Þór Jónsson,
fyiTverandi blaðamaður á Tíman-
um og fréttamaður á Stöð 2, er tal-
inn korna til álita í stól ritstjóra. pv
Peres
mótmælt
I dag klukkan fjögur efnir
félagið Island-Paiestína til
mómiælafundar á Lækjartorgi
vcgna heimsóknar Símonar
Peresar utanríkisráðherra
Israels. Fundurinn er haldinn
til að knýja á um að Israel virði
mannréttindi, alþjóðalög og
samþykktir Sameinuðu þjóð-
anna. Ræðumenn verða Árai
Ragnar Árnason alþingismað-
ur og Benedikt Davíðsson for-
seri ASI. Fundarstjóri er Ki-ist-
ín Astgeirsdóttir alþingiskona.
Félagið Island-Palestína und-
irbjó fundinn i samvinnu við
samtök launafólks.
Hjátrú í hjónasæng
Hjátrú er líka mark-
aðsvara. Bókaforlagið
Vaka-Helgafell hyggst gefa út
bók um hjátrú Islendinga og
hefur auglýst eftir upplýsing-
urn um þetta fyrirbæri þjóð-
menningarinnar. Einkum er
bókaforlaginu umhugað að fá
upplýsingar um bjátrú er
tengist brúðkaupi og brúður-
inni sérstaklega. Ekki er til-
greint í fréttatilkynningu
hversu ítarlegar upplýsingam-
ar skuli vcra.