Vikublaðið


Vikublaðið - 20.08.1993, Blaðsíða 5

Vikublaðið - 20.08.1993, Blaðsíða 5
VIKUBLAÐIÐ 20. ÁGÚST 1993 Samfélagld 5 Atvinnulýðrœði og auður lifeyrissjóðanna Eitt af því setn greinir ísland ffá hinum Norðurlöndun- um er hversu lítið hefur ver- ið unnið að því hérlendis að koma á atvinnulýðræði eða efla áhrif starfsmanna á stjóm og rekstur fyr- irtækja. Þó svo málið hafi við og við verið á dagskrá hefur ekki tekist að stilla saman strengi verkalýðs- hreyfingar og stjómmálaflokka þannig að þau færí sem gefist hafa væm nýtt í þessa átt. A hinn bóginn er þetta mál sem félagshyggjufólk getur ekki látdð niður falla. Við vilj- um efla og auka lýðræði á sem flestum sviðum samfélagsins og þá em vinnustaðimir eitt mikilvæg- asta sviðið. Ekki einvörðungu vegna þess að fólk eyðir mjög stór- um hluta tilvem sinnar þar heldur einnig sökum þess að ákvarðanir teknar í stjómarherberginu geta haft grundvallarþýðingu fyrir allt líf starfsfólksins. Hugsanleg Ieið til að þoka þessum málum áleiðis er að nýta lífeyrissjóðina. I árslok 1992 var sameiginleg eign lífeyrissjóðanna um 175 millj- arðar króna. Þetta er hærri upphæð en allar innistæður í bönkum og sparisjóðum. Hér er því um ó- hemjufé að ræða og á enn eftir að aukast vemlega, þannig að giskað hefur verið á að sjóður sem tryggði öllum landsmönnum góðan lífeyri yrði um 600 milljarðar króna. Til að tryggja verðgildi þessa fjár verða lífeyrissjóðimir að fjárfesta. Hingað til hefur það aðallega verið með húsnæðislánum en í æ ríkari mæli hefur verið leitað annarra ráða og önnur fjárfesting en hús- næðislán mun enn aukast á næstu ámm. Ein leiðin til að tryggja fé sjóðanna er að fjárfesta í hlutabréf- um. Að auki veitir það nýju fé til ís- lenskra fýrirtækja sem svo sannar- lega em í brýnni þörf fyrir það. Heildarverðmæti hlutabréfa á ís- lenska markaðnum munu vera um 40 milljónir og lífeyrissjóðimir hafa þannig ljóslega alla möguleika til að gera sig verulega gildandi á þeim markaði. Engin fjárfestingar- stefna Þá vaknar sú spuming hver sé í raun stefna sjóðanna í fjárfesting- armálum. Og svarið virðist vera að heildarstefna sé engin. Stjóm hvers sjóðs fyrir sig ákveður á hvern hátt sjóðsfé er ávaxtað. Að sjálfsögðu gera allir sitt besta til að ná góðri á- vöxtun og að öllum líkindum er tdl- hneiging til þess að fjárfesta ffekar í fyrirtækjum sem á einhvem hátt tengjast þeirri atvinnugrein sem meðlimir lífeyrissjóðsins hafa mesta hagsmuni af að haldið sé gangandi. En öllu áhugaverðara atriði er þó hvort látið sé sitja við að leggja ffarn féð eða hvort eitthvað ffekar sé að gert. Hvernig er hlutafjár- eignin nýtt til áhrifa á rekstur fyrir- tækisins? Setjast menn ffá stjórn- um lífeyrissjóðanna til dæmis í stjómir þeirra fyrirtækja, sem fjár- fest er í og þá til hvers? Ljóst er að engin almenn stefha hefúr verið mótuð í þeim málum og umdeilt hvað gera skuli. A hinn bóginn fer ekki á milli mála að lífeyrissjóðim- ir hafa alla burði til að verða mildll áhrifavaldur á markaðnum og hafa þannig möguleika á að hafa veruleg áhrif á valdahlutföll innan íslenskra fýrirtækja. Arið 1987 skilaði endurskoðun- amelhd lífeyriskerfisms lagafirum- varpi um starfsemi sjóðarma. Þessi ágæta nefnd hafði nokkrar áhyggj- ur af hugsanlegum völdum h'feyris- sjóðanna og lagði til að þeir fengju ekki að eiga meira en 5% í hverju fýrirtæki. Þetta ffumvarp varð ekki að lögum og í mörgum fýrirtækjum er eign einstakra lífeyrissjóða nú þegar mun meiri en þetta. En hvað á að gera við völdin sem þessu fýlgja? I stjóm fyrirtækja? I viðtali í 5. tbl. Frjálsrar versl- unar 1991 sagði þáverandi forseti ASI, Asmundur Stefánsson, m.a: „Við höfum ekki gert það upp við okkur hvernig best sé að halda í stjómaraðild í þeim fýrirtækjum sem lífeyrissjóðir fjárfesta svo mik- ið í að þeir eigi rétt á stjómarþátt- töku.... Það er hins vegar mikill misskilningur, sem ffam hefur komið, að h'feyrissjóðimir eigi alls ekki að skipta sér af því hvemig valið sé í stjómir þessara fýrirtækja. Menn vilja ömgglega hafa eitthvað um það að segja hvemig staðið er að rekstri í þeim fýrirtækjum þar sem lífeyrissjóðimir leggja fram mikla fjármuni.“ Asmundur bendir einnig á að ekki sé þörf á og ef til vill ekki heppilegt að stjórnarmenn lífeyris- sjóðanna setjistí stjómir fýrirtækja. Kalla megi til einhvem utanað- komandi og virðist Asmundur einna helst hafa í huga einhvers konar sérffæðinga. Sú spuming hlýtur á hinn bóginn að vakna hvort ekki megi eins fá starfsmann úr viðkomandi fýrirtæki og á þann hátt koma upp vísi að atvinnulýð- ræði. Nánar verður að því vikið síðar. En þó svo ljóst sé að verkalýðs- hreyfingin sem heild hafi ekki mót- að nokkra pólitík hvað varðar fjár- festingar og stjómarsetu þá em þar innan dyra menn sem hafa mjög á- kveðnar hugmyndir um hvemig skuli nota féð til að breyta samfé- lagsgerðinni. Og það sem meira er, þeir em farnir að framkvæma þess- ar hugmyndir og þær felast ekki í atvinnulýðræði. Verkalýðshreyfingin einkavæðir Stærsti lífeyrissjóður landsins er Lífeyrissjóður verslunarmanna og hann mun jafhffamt vera sá lífeyr- issjóður sem mest hefúr fjárfest í hlutabréfum. Samkvæmt reglugerð sjóðsins er heimilt að ráðstafa allt að 10% af ráðstöfúnarfé sjóðsins til hlutabréfakaupa. A síðasta ári var þó aðeins fjárfest fýrir 3,35% af ráðstöfúnarfénu en upphæðin var engu að síður hvorki meira né minna en 161 milljón. I stjóm sjóðsins em sex menn, þrír ffá at- vinnurekendum og þrír ffá Versl- unarmannafélagi Reykjavíkur. Fulltrúar VR em Magnús L. Sveinsson, Guðmundur H. Garð- arsson og Pétur A. Maack. Allt em þetta góðir og gegnir Sjálfstæðis- menn. Árið 1992 lét Guðmundur H. Garðarsson af formennsku í sjóðn- um og átti Frjáls verslun viðtal við hann um það leyti (3. tbl.). Þar lýsti hann meðal annars þeirri skoðun sinni að forsenda þess að einkavæð- ingaráform ríkisstjómarinnar næðu ffam að ganga væri myndar- leg þátttaka lífeyrissjóðanna. Vafa- laust er það rétt hjá honum þó svo ungkratar hafi verið að viðra þær hugmyndir að eftir að ríkisfýrir- tækjum hafi verið breytt í hlutafé- lög yrðu bréfin gefini En spuming- in er þá hvemig verkalýðshreyfing- in ætlar að bregðast við. Vill hún nota fé verkafólks til að auka veldi kolkrabbans? Það er fullljóst afvið- talinu við Guðmund að hann er stuðningsmaður þess að einkavæð- ingaráformin nái fram að ganga og þjóðfélaginu þokað í þá frjáls- hyggjuátt. En eftir er að sjá hvort hreyfingin sem heild er reiðubúinn að taka þátt í því að "einkavæða" til dæmis Póst og síma. Krabbavæð- ing væri þá ef til vill réttara hugtak. Lífeyrissjóður verslunarmanna á nú hlutabréf í 21 fýrirtæki og er eign sjóðsins ffá 0,1% til 10,7% af hlutafé viðkomandi félags. I töfl- unni hér við hliðina er hlutafjár- eignin sýnd. A síðasta ári keypti sjóðurinn hlutabréf í 12 fýrirtækj- um og þar af 3, sem hann átti ekki hlutabréf í fýrir. Vom það Jarðbor- anir h.f., Samskip h.f. og Sjóvá-Al- mennar h.f. Af þessum félögum er Jarðboranimar eitt þeirra ríkisfýr- irtækja sem verið er að einkavæða. Ekkert lýðræðislegt aðhald í áðurnefúdu viðtali segir Guð- mundur H. Garðarsson að afstaða Lífeyrissjóðs verslunarmanna til þátttöku stjómarmanna í stjómum fýririrtækja sé opin. „í stjóm sjóðs- ins er fjallað um hvert tilvik fýrir sig og ákvörðun er tekin í samræmi við það sem við teljum að samrým- ist hagsmunum sjóðsins best. í sumum tilvikum hefúr sjóðurinn ekki afskipti af kjöri stjómar og í öðmm tilvikum er stuðningur veitmr mönnum.“ Með öðmm orðum þá gilda ekki Hlutajjáreign Lífeyríssjóðs verslunarmanna samkvæmt ársskýrslu '92. Ármannsfell hf........................0,4% Draupnissjóðurinn hf...................7,1% Eignarh.fél. Alþýðubankinn hf..........3,1% Féfang hf.............................10,7% Fjárfestingafélagið hf................10,6% Flugleiðir hf..........................6,2% Grandi hf..............................2,7% Hf. Eimskipafélag Islands..............3,7% Haraldur Böðvarsson hf.................2,2% íslandsbanki hf........................9,6% Jarðboranir hf..........................3,0% Máttarstólpar hf.......................9,3% Olís hf................................1,4% Olíufélagíð hf.........................3,3% Samskip hf.............................1,7% Sjóvá-Almennar hf.....................0,1 % Skagstrendingur hf.....................1,0% Skeljungur hf..........................2,0% Tollvörugeymslan hf....................4,3% Útgerðarfélag Akureyringa hf...........2,3% Þróunarfélag íslands hf................8,7% vegna hef ég notað hann sem dæmi hér. Verkalýðshreyfingin getur ekki til lengdar horft fram hjá þeirri á- byrgð sem fýlgir lífeyrissjóðunum. Þar verður að eiga sér stað stefúu- mótun. Og ef einhvem tíma bráir af Alþýðuflokknum og hann hristir frjálshyggjupestina af sér er vel hugsanlegt að loks geti náð saman þeir tveir flokkar sem kenna sig við alþýðuna og síðan stéttarsamtök alþýðunnar. Því verður vart unað til lengdar að meðferð þess mikla auðs sem felst í eignum lífeyrissjóðanna sé utan lýðræðislegs eftírlits. Það er verkalýðshreyfingunni nauðsyn að ræða hvaða stefúu hún vill taka í þeim málum. Og þá má varpa fram þeirri hugmynd hvort ekki sé unnt að nýta féð tíl að auka völd og áhrif verkafólks innan fýrirtækjanna. Eða með öðmm orðum hvort ekki megi nýta fjárfestíngamar tíl að veita starfsfólki viðkomandi fýrir- tækis nánari innsýn í rekstur fýrir- tækisins og jafúvel að fúlltrúi þess taki sæti í stjóm viðkomandi fýrir- tækis í krafti fjárfestingar lífeyris- sjóðanna. Slíkt gætí hugsanlega orðið byrjun á eða hlutí af atvinnu- lýðræði. Einhvem veginn þykir mér sem sú hugmynd hljóti að vera eðlilegri en hin að nota fé verka- fólks tíl að færa kolkrabbanum ein- okunarfýrirtæki ríldsins á silfurfati. Höfúndur er starfismaður Iðju, félags verksmiðjufólks. um þetta neinar reglur eða viðmið. Stjóm lífeyrissjóðsins hefur alger- lega frjálsar hendur og varla þarf að efa að sama frelsi gildir um ákvarð- anir á stjómarfundum þeirra fýrir- tækja sem sjóðurinn hefúr talið rétt að setja mann í. Lýðræðislegt eftír- lit með því hvernig farið er með það vald sem felst í fjárfestíngum lífeyrissjóðsins er því sáralírið formlega séð og ekkert í raunveru- Ieikanum. Og það er ljóslega nokkmm sinnum sem stjóm sjóðsins hefur talið nauðsynlegt að koma manni í stjómir. Af þessum 21 fýrirtæki hafa stjómarmenn lífeyrissjóðsins setíð í stjómum að minnsta kostí þriggja. Guðmundur H. Garðar- son var í stjóm Fjárfestingarfélags- ins 1973-1992 og þar af stjómar- formaður 1986-1992. Hann situr nú í stjóm íslandsbanka og Pétur A. Maack situr í stjóm Máttar- stólpa. Svo sem sjá má af meðfýlgj- andi töflu em þetta þrjú af þeim fjórum fýrirtækjum þar sem sjóð- urinn á yfir 9% hlutafjár. Hvort hlutafé í öðmm fýrirtækjum hefúr verið notað til að styrkja einhverja tíl valda þar er mér ókunnugt um. Pólitískur tilgangur - en hvaða? Það má því ljóst vera að sumir á- hrifamanna hafa áttað sig á að sjóð- ina er unnt að nota í pólitískum til- gangi þ.e. í þeim tilgangi að breyta samfélaginu í ákveðna átt. Þetta ættí að ýta enn frekar undir að menn ræði stefúumörkun í fjárfest- ingum sjóðanna. Lífeyrissjóður verslunarmanna er ekki nefúdur hér vegna þess að mál séu þar með eitthvað sérstak- lega góðum eða slæmum hætti. Vafalaust er hegðunin svipuð í öðr- um sjóðum. En hann er stærstur og forsvarsmenn hans hafa opinber- lega orðað pólitíska stefúumótun í sambandi við fjárfestingar. Þess Heimildir: Guðmundur Guðmundsson: „Lífeyrissjóðir og hagkerfið.“ Fjármálatíðindi 1, 1993. Hlutafélagaskrá Lífeyrissjóður verslunarmanna. Ársskýrsla 1992. Þorleifur Friðriksson og Gestur Guðmundsson: „Klassesamar- bejde i Island: Underudvikling eller egne veje.“ 1 Daniel Flem- ing (red): Industriell demokrati i Norden. (P Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Garðyrkjustjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í útivistarsvæði við Völvufell í Reykjavík. í verkinu felst meðal annars: Hellulögn 230 m2. Malbikaðir stígar 100 m2. Grasflatir 900 m2. Undirbúningur trjábeða 700 m3. Verklok eru 15. október 1993. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudeginum 17. ágúst 1993, gegn kr. 10.000.- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudaginn 26. ágúst 1993, kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.