Vikublaðið


Vikublaðið - 20.08.1993, Blaðsíða 3

Vikublaðið - 20.08.1993, Blaðsíða 3
VIKUBLAÐIÐ 20. ÁGÚST 1993 Viðhorf 3 Þetta getur ekki verið,“ var fyrsta hugsun mín þegar rútan renndi í hlað í skála Ferðafélags Islands í Nýjadal. Eg var eini íslenski farþeginn með þessari rútu, hinir allir voru útlendingar. A tjaldstæðinu voru tjöld í felulitum og her- menn á vappi um holt og mela. Inni í skál- anum rákust farþegar Norðurleiðarútunn- ar á fjóra einkennisklædda menn, tvo norska og tvo víkingasveitarmenn. Er Ieið á kvöldið fjölgaði mjög ferða- mönnum bæði íslenskum og erlendum og fylltust brátt báðir skálarnir og fjöldi manns tjaldaði á tjaldstæðinu. Fólk virtist reyna að tjalda sem lengst í burm frá her- mönnunum, en tjaldstæðið er lítið, enda vöknuðu allir tjaldbúar við vondan draum kl. 6 að morgni þriðjudagsins 3. ágúst þeg- ar hermennimir hófú morgunleikfimi sína með viðeigandi köllum og skipunum. A göngu minni um Tungnafellsjökul þennan fagra dag var ég öðm hverju minnt á nærvem hersins þegar púðurskot þeirra mfu háfjallakyrrðina. Einnig flugu tvær þyrlur þeirra lágt yfir jökulinn. Ég yfirgaf Nýjadal að kvöldi þessa dags er til féll ferð til Akureyrar og skildi ég pjönkur mínar eftir. I stað þess að ganga inn í Vonarskarð eins og áætlað var í upphafi ferðarinnar setttist ég við símann og hringdi suður í þá aðila sem ég hélt að gæm frætt mig um “O- væmna“ sem ég kýs að kalla dvöl þessara manna í Nýjadal. Lögreglan vissi ekkert um dvöl víkinga- sveitarmanna þarna. Það vissi hinsvegar Bjarni Vestmann hjá Varnarmálaskrifstof- unni. Aðspurður um klæðnað oflátungs- legra víkingasveitarmanna í skála Ferðafé- lagsins svaraði hann að þessi búningur væri góður í stormi og regni. Einnig svaraði hann því til að úr því leyfðar væm heræf- ingar þama yrðu mennimir að fá að hleypa af skotum. Ferðafélag Islands kannaðist hins vegar við dvöl hermannanna í Nýja- dal. Þar höfðu þeir fengið leyfi til að nota salemisaðstöðu, en ekki virtist starfsfólk Ferðafélagsins hafa gert sér grein fyrir að þeir væm á tjaldstæðinu. Ég kom suður Sprengisand með rútu Guðmtmdar Jónassonar fimmtudaginn 5. ágúst og enn var ég eini íslandingurinn í rútunni. Er við nálguðumst Nýjadal sá ég mér til gleði að öll tjöldin vom horfin af tjaldstæðinu. En gleði mín varð skamm- vinn því undir húsvegg hímdu hermenn- irnir í roki og sandbyl með allt sitt haf- urtask og biðu efdr rútunni frá Keflavík. Þyrlumar sem áttu að flytja þá brott úr Nýjadal gám ekki lent vegna hvassviðris. Nú reyndi á leiðsögumanninn í rútunni að útskýra fyrir erlendu ferðamönnunum hvemig á þessari óvæm stæði. Meðan sam- ferðamenn mínir mötuðust í Nýjadal og ég tíndi saman pjönkur mínar renndu fleiri rúmr í hlaðið og spumingum varðandi hermennina rigndi yfir skálaverði og vík- ingasveitarmenn. Ég strengdi þess heit þegar ég renndi úr hlaði í Nýjadal að koma fljótt aftur og njóta þess friðar og náttúra- fegurðar sem þessi staður hefúr upp á að bjóða. Sprengisandur er stór og ég er viss um að bak við einhverja sandölduna hefði mátt fela þessa hersveit. Þeim hefði væntanlega ekki orðið skotaskuld úr því að fá sendan kamar til sín með marglofaðri þyrlu. Ann- að eins hefur hún nú flutt, bæði hús og hey. A ósköp venjulegur Islendingur eins og ég kannski ekkert betra skilið, þegar hann loksins ætlar að skoða eina af perlum Is- lands, en að rekast á erlendan her á æfingu? Þetta era óhreinu börnin okkar.Ohreinu börnin hennar Evu urðu að álfum sem við segjum af skemmtilegar sögur, en vonandi losnum við við þessi óhreinu börn áður en þau verða samgróin landi og þjóð. Höfundur er kennari. Bœði tslenskir og erlendir ferðamenn ráku upp stór augu þegar rennt var t hlað í Nýja- dal og við blöstu hermenn með allt sitt haf- urtask híntandi undir vegg. Myndina tók greinarhöfundur í Nýjadal 5. ágúst sl. Sumarferð ABR 21. ágúst Heillandi náttúra - stórbrotið landslag Lagt af stað frá Sætúni 4 (rétt fyrir norðan Hlemmtorg) kl. 8:00 Hinn ágæti félagi Árni Björnsson leiðsegir okkur. Farið verður sem leið liggur austur með Fljótshlfð yfir Emstrur ^að Markarfljótsgljúfrum og gengið að þeim (ein hrikalegustu gljúfur landsins). Þaðan ekið að Álftavatni og etið [leiðin óákveðin, það fer eftir veðri og færð hvort farið verður yfir Markarfljót og komið Keldum eða farin Fjallabaksleið syðri og komið við í Vík. Allir koma auðvitað með góða skapið og nesti. Svavar Gestsson heldur stutta ræðu og spáir í framtíðina (sem er jú það erfiðasta). Samsöngur. Verð: 2.200 kr. fyrir fullorðna að 65 ára aldri en 1.700 kr. fyrir eldri. Börn yngri en 12 ára greiða 1.100 kr. FJÖLSKYLDUPAKKAVERÐ Fararstjórar: Sigþrúður Gunnarsdóttir og Einar Gunnarsson. Alþýðubandalagið f Reykjavfk

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.