Vikublaðið


Vikublaðið - 20.08.1993, Side 6

Vikublaðið - 20.08.1993, Side 6
Kveðja 6 VIKUBLAÐIÐ 20. ÁGÚST 1993 Ökuþórinn mikli nírœður Olafur Ketilsson fyrrum sérleyfishafi á Laugarvatni varð níræður þann 15. á- gúst sl. Um Olaf mætti skrifa langt mál, en slíkt væri honum á móti skapi, þó hann lcyfði birtingu þess- arar greinar með því skilyrði að hún birtist eftir afmælisdaginn. Guðmundur Daníelsson rithöf- undur skrifaði Ólafs sögu Ketils- sonar og nefndi hana A miðjurn vegi í mannsaldur. Guðmundur nefndi Ólaf ökuþórinn mikla í þeirri bók. I þessari grein er stuðst við bók þeirra félaga, þó Ólafur telji að Guðmundur hafi að nokkru „skeinmt bókina með bulli ffá sjálf- um sér,“ þ.e.a.s. Guðmundi, en það er önnur saga. Ólafi kynntist ég fyrst þegar ég hóf nám við Menntaskólann að Laugarvami 1973. Reyndar hafði ég séð Ólaf nokkrum árum fyrr og heyrt um hann sögur. Síðasta vetur minn við Menntaskólann bjó ég í húsi við hlið Ólafs. Þá var Ólafur kominn yfir sjötugt og það kom fyrir að hann bað mig að hjálpa sér við að lesta bílana. Fékk ég þá að heyra langa fyrirlestra um akstur og umferð. Ólafi var t.d. fyrirmun- að að skilja hvernig stæði á öllum þessum umferðaróhöppum í henni Reykjavík, með þessa góðu upp- lýstu vegi. „Þegar ég lærði á bíl,“ sagði Ölafur „voru borðorð kenn- arans þrjú. I fyrsta lagi: Aktu hægt. I öðru lagi: Aktu hægt. I þriðja lagi: Aktu hægt. Þessi boðorð hafa reynst mér sæmilega," bætti Ólafur við, „en líklega hafa þeir gleymt þeim í Reykjavíkinni.“ Þess má geta að í þá daga voru gíramir bara þrír eins og boðorð kennarans, en nú hefur gírunum fjölgað, en boð- orðunum ekki að sama skapi. Olafurflytur að Laugarvatni 1931 kvæntist Ólafúr Svanborgu Asmundsdótmr frá Apavatni og 1932 byggðu þau hjón sér hús á Laugarvatni og bjuggu þau þar til 1988, að Ólafur flutti í Sunnuhlíð í Kópavogi stuttu fyrir andlát Svan- borgar. Ólafúr og Svanborg áttu fjögur börn, Asrúnu, Kötlu, Elvu og Börk. 1928 er verið var að byggja Héraðsskólann á Laugar- vatni var Ólafúr ásamt fjórum öðr- um bílstjórum fenginn til að flytja vatnsleiðslurörin f skólabygging- una. Þá var yfir vegleysur og erfið- ar ár að fara og fór svo að Ólafur einn kom efúinu alla leið, en hinir bílstjórarnir gáfust upp við Djúpá. Næst þegar þurfti á efúi að halda í skólabygginguna var Ólafúr feng- inn til að flytja það. A árunum 1930 til 1932 byrjar Ólafur áælunarferð- ir. Fljótlega varð Ólafur stórveldi í samgöngumálum Sunnlendinga og árið 1978 átti Ólafur átta sérleyfis- bíla, með samtals 336 sæti. /* Olafur gerist umboðs- maður Hannibal Valdimarsson, þá rit- stjóri Alþýðublaðsins, birti á af- inælisdegi Ólafs, 15. ágúst 1953, viðtal við Ólaf Ketilsson, en Ólafur hafði hafnað venjulegri afmælis- grein. Ólafur var þá landsþekktur sem gætinn og stundvís bflstjóri, en ekki síður sem uppspretta neyðar- legra tilsvara í garð orðhvatra far- þega og æðstu yfirvalda vegamála. I grein sinni um Ólaf Ketilsson eyð- ir Hannibal miklu rými til að segja frá skoðunum Ólafs á vegum og vegagerð. I dag hefur Ólafúr sama brennandi áhugann á vegamálum og umferð og áður var. Reyndar sagði hann við mig er ég ræddi við hann, að mér væri nær að skrifa um umferðarmálin heldur en að skrifa um hann. Segja má að Ólafur hafi gerst sjálfskipaður umboðsmaður bflstjóra og vegfarenda gagnvart Vegagerð ríkisins. Þó að vegir séu í dag miklu betri en þegar Ólafur Ketilsson var sérleyfishafi, er þörf- in á umboðsmanni vegfarenda ekki minni, en því miður hefur enginn tekið við því hlutverki. Olafur og Vegagerðin A vegagerðar vísdómstindi með votasína tíufmgur, sjáirðu mann á móti vindi míga - það er verkfræðingur. (1988, 96) Þessi vísa lýsir kannski vel skoð- unum Ólafs á Vegagerðinni, en eftirfarandi saga sem birtist í dag- blaðinu Vísi 1977 ef til vill betur. Eitt sinn þegar ófærð var mikil á Hellisheiði var Ólafur staddur\ í bænum á austurleið. Leit hann þá inn hjá Kristjáni Guðmundssyni í Vegagerð rfldsins, sem hafði það vanþakkláta verk með höndum, að sjá um snjómokstur á Hellisheiði. Ólafur innti Kristján eftir því, hvað snjómokstrinum liði. Kristján svar- aði því til að hann hefði þá um morguninn sent strákana austur á Heiði til að skoða snjóinn. Fór Ólafúr við svo búið. Daginn eftir átti Ólafur áætlunarferð í bæinn. Ekkert hafði verið mokað á Heið- inni, en Ólafúr tók stóran poka og fyllti hann af snjó úr einum skaflin- um. Þegar hann kom til Reykjavík- ur lét hann það verða sitt fyrsta verk að aka að skrifstofudyrum Kristjáns í Vegagerðinni. Ólafur óð inn með tunnupoka sinn út- troðinn af snjó, hellti úr honum á skrifstofugólfið og kallaði um leið til Kristjáns: „Ég kem hérna með snjó ofan af Heiði og skil hann hér eftir, svo þú þurfir ekki að ómaka þig, en getir skoðað hann í róleg- heitum hérna á kontórnuin." Ólaf- ur var rokinn á dyr áður en Kristján hafði ráðrúm til að opna munninn. * Olafur og skólamir að Laugarvatni Það kom fyrir að Ólafúr þótti aka of hægt og halda sig of lengi á miðjum vegi þegar einhver vildi komast fram úr honum. Eitt sinn Ólafi Ketilssyni hefur alltaf verið illa við að láta mynda sig °g því eru ekki til afhonum margar myndir. Hér cr hann ásamt séra Ingólfi Astmarssyni við kirkjuna að Mosfelli vorið 1975. Myndina tók Öm Óskarsson, en Óm segir að Ólafur hafi ífyrstu verið ófáan- legur til myndatöku, en látið loks til leiðast eftir mikla eftirgangssemi. var Ólafúr á austurleið í sérleyfisbíl sínum á venjubundnum löglegum áætlunarhraða, og þá byrjar ein- hver, sem virtist liggja mikið á, að þeyta bílflautuna að baki bfls Ólafs. Olafur sá í speglinum að þar var á ferðinni maður, sem alltaf ók eins og hann ætti lífið að leysa, Sveinn, skólameistari Menntaskólans að Laugarvatni árin 1953-1958 og sonur Þórðar læknis á Kleppi. Eftir nokkra stund vék Ólaíúr þar sem honum þótti vel henta og skaust Sveinn óðara ffarn fyrir og í veg fyrir Ólaf og stansaði. Ölafur skrúfaði niður bílrúðuna, en Sveinn kom út úr bíl sínum, upp- hóf raust sína og jós svívirðingum yfir Ólaf fyrir of hægan akstur og stirðbusaskap við aðra vegfarend- ur, sem lægi á að komast leiðar sinnar. Ólafur þagði um stund og hlust- aði, fannst þó að Iokum nóg komið og mælti fúllum rómi og dimmum: „Ég held þú hefðir aldrei átt að fara frá Kleppi, Sveinn.“ Samskipti Ólafs við stjórnendur skólanna að Laugarvatni voru yfir- leitt með öðrum hætti en hér er lýst. Eins og áður er nefút flutti Ó- lafur byggingarefúi í nýbyggingu Héraðsskólans og hóf fljótlega á- ætlunarferðir að Laugarvatni og ók til ársins 1978, að fyrirtækið Ólafur Ketilsson hf., sem stofúað var um rekstur Ólafs, tók við. Það fyrirtæki sameinaðist síðar SBS hf. á Selfossi sem nú annast akstur að Laugar- vatni. Þegar Ólafur átti í stríði við yfir- völd vegna sérleyfis síns að Laugar- vatni og að Gullfossi og Geysi stóðu nemendur og starfslið skól- anna heilshugar að baki Ólafs og studdu hann með ráð og dug. Ég æda ekki að rekja þá sögu hér, það verða aðrir að gera, því hún er jafú- ljót og saga Alþýðuflokksins. A þessum merku tímamótum í lífi Ólafs vil ég nota þetta tækifæri og senda honum rnínar bestu kveðjur og árnaðaróskir með þökk fyrir viðkynninguna. Kristinn M. Bárðarson Blönduósi Trúnaðarmannafundir Alþýðubandalagsins í Norðurlandi vestra og á Vesturlandi Ákveðið hefur verið að boða til trúnaðarmannafunda Alþýðubandalagsins í einstökum kjör- dæmum. Fyrstu fundirnir verða í Norðurlandskjördæmi vestra og í Vesturlandskjördæmi. Auk formanns flokksins, Ólafs Ragnars Grímssonar, eru fundarboðendur þingmenn kjör- dæmanna og framkvæmdastjóri Alþýðubandalagsins, Einar Karl Haraldsson. Til trúnaðarmannafundanna er boðið stjómum flokksfélaga, sveitarstjómarmönnum Alþýðu- bandalagsins, forystumönnum í launamálum og atvinnulífi, sem starfa innan flokksins, og þeim sem em í nefndum sveitarfélaga á vegum Alþýðubandalagsins sem og öðrum áhuga- sömum flokksmönnum sem gjaman vilja sækja slíka trúnaðarmannafundi. Dagskrárefni fundanna verða sem hér segir: 1. Flokksstarf, útgáfumál, fjáröflun 2. Undirbúningur sveitarstjórnarkosninga og alþingiskosninga 3. Málefni kjördæmisins 4. Helstu áherslur flokksins í þjóðmálaumræðunni 5. Önnur mál Fundirnir í Norðurlandi vestra verða á Hvammstanga, laugardaginn 21. ágúst kl. 12:30. Fundarstaður: Vertshúsið; Sauðárkróki, laugardaginn 21. ágúst, kl. 16:00 Fundarstaður: Villa Nova; Siglufirði, sunnudaginn 22. ágúst, kl. 11:00 Fundarstaður: Suðurgata 10; Blönduósi, sunnudaginn 22. ágúst, kl. 17:00 Fundarstaður: Hótel Blönduósi. Fundirnir á Vesturlandi verða á Akranesi, fimmtudaginn 26. ágúst kl. 20:00 (Borgnesingar, Borgfirðingar, Akumesingar og nærsveitamenn) Fundarstaður: Félagsheimilið Rein Grundarfirði, sunnudaginn 29. ágúst, kl. 14:00 (Snæfellingar) Fundarstaður: Félagsheimili Alþýðubandalagsins

x

Vikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.