Vikublaðið - 20.08.1993, Síða 11
VIKUBLAÐIÐ 20. AGUST 1993
Af eriendum vettvaiigi
11
Töframeistarinn Peres
ísraelski utanríkisráðherran Shimon Peres er sérfræðingur í að afla stefnu lands síns skilnings
Shimon Peres, utanríkisráð-
herra ísraels, er sérfræðingur
í hebreska hugtakinu Has-
bara, útskýringum. Og það er
einmitt sá eiginleiki sem hefur gert
hann að einum áhrifamesta utan-
ríldsráðherranum sem Israel
nokkru sinni hefúr átt. Hann er
hinn íhuguli leiðtogi, sem frá því
Verkamannaflokkurinn tók við
stjómartaumunum fyrir ári síðan
hefur með óvenjulegri röksnilli
tekist að telja hverjum þjóðarleið-
toganum á fætur öðrum í Evrópu
trú um friðarvilja ísraelsmanna.
Þrátt fyrir að friðarviðræðurnar
sem nú hafa staðið í 21 mánuð hafi
enn ekki borið árangur, þrátt fyrir
að ísraelsmenn fómmtroði enn
mannréttindi á hernumdu svæðun-
um og þrátt fyrir endurteknar árás-
ir ísraelshers inn yfir landamæri
Líbanons.
Persónutöfrar Peres, sem nú
stendur á sjötugu, er fæddur í Pól-
landi og hlaut háskólamennmn í
Bandaríkjunum. A lögnum ferh
sínum í ísraelskum stjórnmálum
hefur hann þróað með sér eftír-
tektarverða hæfni til að leika bæði
hlutverk hins pólitíska sjarmatrölis
gagnvart umheiminum og hlutverk
litla drengsins í ævintýrinu um
nýju fötin keisarans í stjórnmáia-
hræringum innanlands. Kannski er
það vegna fortíðar hans í hinum
vinstrisinnaða zíonistaflokki Mapai
sem honum hefur tekist að að-
greina sig frá herskáu haukunum
innan Verkamannaflokksins, en
þeirra þekktasmr er Yitzhak Rabin
forsætisráðherra. Þó Peres hafi
ekki gengið svo langt að beita sér
opinberlega fyrir viðurkenningu á
Frelsishreyfingu Palestínumanna,
PLO, hefur hann í áratugi reynt að
nálgast Palestínumenn og oft kom-
ið með tillögur til lausnar deilun-
um fyrir bomi Miðjarðarhafs löngu
áður en samferðarmenn hans vom
tilbúnir til að ræða þær.
Ogranir Þannig reyndi Peres
hvað effir annað á síðasta áramg að
blása nýju lífi í því sem næst
útkulnaðar glæður ffiðammleitan-
anna, meðal annars með því að
mæla fyrir hinni svokölluðu jór-
dönsku lausn, en hún fól í sér sam-
komulag milli ísraels og Jórdaníu
um framtíð hernumdu svæðanna.
Hugmyndin naut stuðnings
Husseins Jórdaníukonungs, en
þrátt fyrir það vom hvomgur
deiluaðila tilbúnir til að fallast á
slíka lausn. Það var líka Peres sem á
níunda áramgnum tók þátt í
nokkmm viðræðufundum með
háttsetmm aðilum innan PLO,
sem hið sósíaldemokratíska Al-
þjóðasamband sósíalista hafði
frumkvæði að. Þetta gerðist meðan
hann var ráðherra í tveimur mis-
munandi sam-
steypustjórnum og á
sama tíma og ísra-
elsk lög kváðu á um
það skýmm stöfum
að hverskonar sam-
skipti við „hryðju-
verkasamtök“, þ.e.
PLO, væm bönnuð.
Og á árinu 1990
neyddist Peres svo
til að segja af sér
embætti fjármála-
ráðherra eftir að
hann hafði mótmælt
því opinberlega að
þáverandi ríkis-
stjóm, Likud-
bandalagið, hvað
eftir annað hafði
frestað friðarvið-
ræðum við Palest-
ínumenn. Að und-
anförnu hefur Peres
gefið til kynna að
hann er tilbúinn til
að semja beint við
PLO ef nauðsynlegt þykir.
A sama tíma hafa birst frétt-
ir í alþjóðlegum fjölmiðlum
um nýja fundi milli nokk-
urra æðstu manna PLO og
ráðherra í ríkisstjóm ísraels,
þar á meðal Peres sjálfs.
ímyndarsmiður Það er til
marks um pólitíska hæfni
Peresar að hann hefúr lifað
af í ísraelskum stjórnmálum
allt frá fyrstu dögum ísraels-
ríkis. En oft hefur gustað
um hann og á síðasta ári
töldu margir daga hans talda
þegar Verkamannaflokkur-
inn velti honum úr for-
mannsembættinu og kaus í
hans stað hinn vinsæla
Rabin, sem er mun her-
skárri, enda með
viðurnefnið haukurinn.
Andstætt Peres gátu heit-
trúarmenn síður sakað
Rabin með sinn makalausa
bakgrann í hernum og
hægri-zíonistísku viðhorf
um að varpa þjóðarhags-
munum Ísraelsríkis fyrir
róða. Flokkkurinn vildi
hressa upp á ímyndina til að
eiga kost á að mynda ríkis-
stjórn eftir að hafa meira og
minna verið í stjórnarand-
stöðu í 15 ár. í augum
hægriarmsins var Peres
þreyttur og of sligaður af
eigin málamiðlunum eftir
fjöldamargar tilraunir til að
koma á friðarviðræðum við
PLO. Núna virðist Peres á
hinn bóginn hafa endur-
heimt kraftana og fundið sér
hlutverk sem nýr ímyndar-
smiður og boðberi ffiðar
gagnvart Vesmr-Evrópu
sérstaklega.
Sannfæring Pólitískan
kraft sinn virðist Peres, þessi
margreyndi leikfléttumaður,
einkum sækja í innri sann-
færingu um að friður í Mið-
austurlöndum sé mögulegur
og jafnvel á næsta leyti.
Hann hefur talað um samvinnu,
velferð og efnahagslegar framfarir
og kynnt hugsjónir sínar um gullna
framtíð með opnum landamærum,
friði, öryggi og auknu lýðræði.
Lykillinn í hans augum er auðvitað
friðarsáttmáli milli ísraels og Araba
sem gæti orðið grandvöllur að
efnahagsbandalagi í Miðaustur-
Charlotte
Aagaard
löndum þar sem ísraelsk tækni-
kunnátta, arabískt fjármagn, ódýrt
vinnuafl og ótrúlega vannýttur
markaður myndu getað verkað
saman að því að skapa gífurlega
eíúahagslega uppsveiffu í þessum
heimshluta. En eins og svo oft áður
tekur Peres gífurlega pólitíska á-
hættu af því að kynna hugsjónir
sem í augum landa hans gætu talist
langt á undan sinni samtíð, því
hugmyndir hans gætu einfaldlega
reynst óframkvæmanlegar. Og í
augum umheimsins gæti Peres lent
í gildra sölumannsins sem þegar á
reynir á ekki þá vöra sem hann hef-
ur reynt að selja.
VEGNA MIKILLAR SÖLU A NYJUM BILUM
BJÓÐUM VIÐ ALLT AÐ 350.000.- KRÓNA
AFSLÁTT Á NOTUÐUM BÍLUM
SEM HAFA VERIÐ TEKNIR UPP í NÝJA.
KOMIÐ OG GERIÐ BÍLAKAUP ÁRSINS.
SYNISHORN:
TEGUND ÁRG.
Toyota LandCrusier, langur 1990
Chev. Blazer S10 1989
VWGolfGTi 1988
BMW316 1988
Toyota Carina 111600 1988
Honda Prelude EX 1987
Nissan Micra 1991
MMCLancer 1989
Subaru coupé4WD 1989
Honda Civic sedan 1986
VERÐ ÁÐUR
2fi&&¥)ús. staðgr.
T. J50'|5ús. staðgr.
‘J&d^ús. staðgr.
STO'fíús. staðgr.
JiQ&tfús. staðgr.
J£70t>ús. staðgr.
hs&frú s. staðgr.
JJ-Q^s. staðgr.
JjOO'pps. staðgr.
420pús. staðgr.
2.280
1.400
550
770
480
650
450
660
690
320
VERÐ NU
OOOstaðgr.
OOOstaðgr.
000 staðgr.
000 staðgr.
000 staðgr.
000 staðgr.
000 staðgr.
000 staðgr.
000 staðgr.
000 staðgr.
GREIÐSLUKJOR TIL
36 MÁINIAQA,
JAFNVEL ENGIN
ÚTBORGUN
BÍLAHÚSIÐ-
B fi L. AS A B_ A
sævarhöfða 2 674848 í húsi Ingvars Helgasonar
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföa 2
síma 91-674000