Vikublaðið - 20.08.1993, Qupperneq 12
12
Vföhorf
VIKUBLAÐIÐ 20. ÁGÚST 1993
Um ólæsi fræðimanna
s
IMorgunblaðinu þann 5. ágúst
sl. er grein eftir Þorvald Gylfa-
son prófessor um atvinnuleysi í
Evrópu. Trúlega er þar átt jafn-
ffamt við atvinnuleysi á Islandi.
Prófessorinn kemst að þeirri nið-
urstöðu að atvinnuleysið stafi af of
háu kaupi og talar þar sérstaklega
um láglaunafólk. Hann segir að
verkalýðssamtökin hafi verðlagt
láglaunafólk út af vinnumarkaðin-
um, það hafi ekki getað varið sig
(væntanlega gegn of háum kaup-
kröfúm verkalýðssamtakanna) með
því að bjóðast til að vinna „við
launum, sem fyrirtækin ráða við“.
Sem sagt, verkalýðssamtökin gera
of háar kröfur fyrir hönd Iáglauna-
fólks og valda þar með atvinnu-
leysi.
Prófessorinn segir að brýn nauð-
syn sé að setja verkalýðssamtökin
til hliðar eins og gert hafi verið á
Nýja Sjálandi og kaupið sé látdð
ráðast af ffamboði og eftirspum.
Hann segir að vísu að þessi aðferð
hafi haft í för með sér aukinn
launamun í Bandaríkjunum, en
hefur ekki áhyggjur af því. Launa-
jöfnuður er ekki hans deild.
Það þarf varla að eyða mörgum
orðum að þessari hugmyndaffæði.
Ollum launþegum ætti að vera ljóst
mikilvægi launþegasamtakanna, þó
að ffammistaða þeirra sé kannski
ekki merkileg um þessar mundir.
Hitt er umhugsunarefni hvað veld-
ur því að maður, sem vill láta kalla
sig marktækan og málsmetandi,
skuh láta sér detta svona lagað í
hug.
I blaði bandaríska iæknafélagsins
birtist nýlega grein um tæknivæð-
ingu í heilbrigðiskerfinu, sem var
gagnrýnd, talin dýr og oft og tíðum
gagnslítil. Var talið að fyrir þessari
ofinotkun og misnotkun tækninnar
stæðu menn sem væru mikið lærðir
á sviði vísinda og tækni, en skorti
yfirsýn og dómgreind til að gera
sér grein fyrir hvemig þessi firæði
gætu komið fólki að gagni. Þessir
menn em sagðir haldnir galla sem
höfúndur kallar „scientific illiter-
acy“ eða vísindalegu ólæsi. Þeir vita
allt um vísindi og tækni nema það
hvemig þau geti komið fólld að
raunverulegum notum.
Þorvaldur Gylfason hlýtur að
kunna sitthvað fyrir sér í hagffæði.
Annars væri hann varla prófessor.
En hann virðist ekki kæra sig um
að vita, hvemig fræði hans geti
komið almenningi að notum.
Hann er ólæs á ákveðin mannleg
gildi. Hann er haldinn „scientific
illiterary“. Og þetta gildir trúlega
um fleiri kollega hans. Það hefúr
verið sagt um hagffæðinga að þeir
viti hvað hlutir kosti, en ekki hvers
virði þeir em.
Gæti það verið að orsakasam-
band sé á milli þessa ólæsis hag-
ffæðinga og þeirrar staðreyndar að
aukin tækni og aukin ffamleiðni
virðist leiða ril hörminga í stað
hagsældar?
Höfúndur er heilsugæslu-
læknir í Hafnarfirði.
Þorvaldur Gylfason er baldinn
vísindalegu óUesi. Hann veit allt
um bagfrteði nema það bvemig bún
getur komið fólki að gagni.
Mynd: Einar Ola
Afmælishátíð í Norræna Húsinu
S'
Isíðustu viku águstmánaðar
ársins 1968 var Norræna húsið
í Reykjavík vígt. Allt ffá
upphafi hefur húsið gegnt veiga-
miklu hlutverki bæði fýrir norræna
samvinnu og íslenskt meningarlíf.
Síðan hefur húsið styrkt enn ffekar
þessa stöðu sína sem miðstöð
meningar, upplýsingastarfsemi og
sem fúndarstaður fólks. Oft er sagt
að Norræna húsið sé farkostur nor-
rænnar samvinnu, áhöfnin sé fá-
menn en farþegar skipti hundr-
uðum þúsunda.
Nú, í síðustu viku ágústmánaðar,
verður haldin 25 ára afmælishátíð
Norræna hússins. I afmælisdag-
skránni er litið um öxl en þó aðal-
— lega fram á við. Fyrst er efnt til
veislu til heiðurs lífsglöðu 25 ára
gömlu afmæhsbami, en mn leið
æda aðstandendur hússins að sýna
gleði, styrk og möguleika nor-
rænnar samvinnu nú á tímtun þeg-
ar ekki er lengur fitið á norrænt Flytjendur Bandamannasögu við Norrænahúsið
samstarf sem sjálfsagðan hlut eins
og gert var þegar húsið var opnað
árið 1968.
Meðal dagskráratriða þessa
afmælisviku eru fjölmargir dag-
skráriiðir, affnælisveisla, hátíðarat-
höfn og málþing.
Fjörugur þriðjudagur
Þriðjudaginn 24. ágúst, á hinum
eiginlega afmælisdegi Norræna
hússins, er dagskrá sem hefst
klukkan níu að morgni með
saxófónblæstri og lýkur henni ekki
fýrr en á miðnætti. Lars Ake
Engblom sker fýrstu sneiðina af
heljarstórri afmælistertu sem
Reykjavíkurdeild Norræna félags-
ins gefúr húsinu.
Fyrir hádegi er dagskráin helguð
bömum. Ragnheiður Gestsdóttir
les fýrir börnin og ýmislegt annað
verður gert til skemmtunar. I
hádeginu syngur Ingibjörg Guð-
jónsdóttir tónlist frá Norðurlönd-
um við undirleik Jónasar
Ingimundarsonar.
Síðdegis er sýnd kvikmynd frá
vígslu hússins en síðan tekur
Söngfélag Félags eldri borgara
lagið. Þá sjá Anna Pálína og
Aðalsteinn Asberg um vísnasöng.
Klukkan fimm kynnir Sveinn
Einarsson dagskrá sem helguð er
þeim íslensku rithöfúndum sem
hreppt hafa bókmenntaverðlaun
Norðurlandaráðs.
Um kvöldið verður fjölbreytt
útiskemmtun. Þar koma m.a. ffam
Ieikarar úr Bandamannasögu, en sá
leikur var einmitt ffainlag
Norræna hússins til listahátíðar í
Reykjavík 1992. Norræningjamir
flytja skemmtidagskrá effir Þórarin
Eldjám. Hópinn skipa þau Asa
Hlín Svavarsdóttir, Edda Heiðrún
Backman, Jóhann Siguðarson og
Om Amason. Undirleikari er
Jónas Þórir. Þegar líða tekur á
síðsumarkvöldið leika Grettir
Bjömsson og félagar fýrir dansi.
Dagskránni lýkur á miðnætti með
flugeldasýningu.
Kaffistofa Norræna hússins sér
um veitingar sem verða bomar
ffam í tjaldi sem reist verður á bak
við húsið. Allir em velkomnir á
afinælishátíðina.
DBBHBSB9BBBBB.■
Prentsmiðjan Oddi hf. býður nú nýja þjónustu sem margir
hafa beðið eftir.
Hin nýja Xerox Ijósritunarvél okkar prentar ekki aðeins
ótrúlega hratt, hún sér líka um allan frágang, þ.e. bindur
inn í þykkari pappír og límir á kjöl ef þess er óskað.
Ljósmyndir og teikningar eru ekkert vandamál og
myndgæðin eru ótrúleg.
Ef þú þarft að láta prenta lítil upplög í einum lit, t.d.
skýrslur, handbækur eða kennslurit, þá er þetta leiðin,
og hraðinn maður, hraðinn . . .
Hér er dcemi utn
bókaskrá prentaða í
10 eintökum 16 síður
hvert og bundna
inn á 5 mínútum.
• • •
hann beið aðeins í 5 mínútur
Tœknilegar upplýsingar:
Frumrit getur verið prentað öðrum megin eða beggja vegna
og getur verið allt að 250 bls. Ijósritað á 80 g. pappír. Fyrir-
mynd getur verið allt að 38 x 44 cm. Hægt er að Ijósrita
af samhangandi formum. Afköst: 135 A4 blöð á mínútu,
58 A3 blöð á mínútu. Pappírsstærð: A4 eða A3 60-200 g.
Litir eftir vali af pappírslager Odda.
QÉi
1 943-1 993
Söludeild er opin
mánudaga - fimmtudaga
frá kl. 08-18.00
föstudaga frá kl. 08 - 17.00
0 D D I S ð L UDEILD HÖFÐABAKKA 3-7 SÍMI 683366 FAX í SÖLUDEILD 676694