Vikublaðið - 20.08.1993, Síða 16
Munið
áskriftarsímann
11500
TVÖFALDUR1. vinningur
A fjórða hundrað mann
Þegar klukkan var farin að
halla í ellefu síðastliðið
laugardagskvöld í Selvogi,
vindurinn var dottinn niður og
enn var vermandi glóð í rekavið-
arstokkunum, rauf skothrið síð-
asta varðeldasönginn og Ijósa-
gangur hófst á kvöldhimninum.
Hjálparsveit skáta í Garðabæ var
komin á vettvang til þess að setja
endapunktinn á glæsilega og
fjölsótta fjölskylduhátíð Alþýðu-
bandalagsins í Reykjaneskjör-
dæmi og Suðurlandskjördæmi
með tilkomumikilli flugeldasýn-
ingu.
A túnunum í Nesi
Þegar komið var á mótssvæði
um miðjan dag á laugardag blökt
fánar flokksins og lýðveldisins vi
hún. Veður var bjart og fagurt e
strekkingsvindur af norðri. Dagii
í Selvogi var haldinn í boði hjór
anna Hafsteins Iijartarsonar o
Fríðu Agústsdóttur á vel merktu o
undirbúnu inótssvæði í landi jart
arinnar Ness. Hún var áður talin
hópi stærstu og verðmestu jarða
landinu og á merka sögu. Hún ti
heyrir Arnessýslu en eigendt
hennar eru búsettir í Kópavogi. a
þessum slóðum renna Suðurland
Varðeldurinn vernidi vel í kvöldkulinu og var setið lengi og sungið. Þegarfór að líða á ellefta tímann ogfólk fór að tygja sig til brottfarar cfiidu félagar úr
Hjálparsveit skáta í Garðaba; til flugeldasýningar. Ljósmyndir: G.Þ.
Það voru á fjórða hundruð manns í mat hjá Páli Amasyni grillmeistara (sem sést við steikinguna á miðri mynd) á
jjölskyldumótinu í Selvogi, ríflega hundrað fleiri en skipuleggjendur gerðu ráð fyrir. Senda varð eftir viðhótar-
skammti af pylsum til Hveragerðis, enda margt smáfólkið á staðnum sem ekki leist á heilsleikta skrokkana. Full-
orðna fólkið gerði scr hinsvegar grillkjötið að góðu og mynduðust um tíma biðraðir enda þótt kjötskurðarmenn hefðu
sig alla við og hntfamir gengjtt ótt og títt.
og Reykjanes saman í eitt.
Fjölskyldumótið hófst með á-
varpi Olafs Ragnars Grímssonar en
Ilafsteinn Hjartarson setti mótið
formlega. I ljá Olafi Ragnari kom
fram að ánægjulegt væri að koma
saman í upphafi tímabils þar sem í
hönd færu tvennar kosningar á
tuttugu mánuðum, og gott til þess
að vita að hauststarfið í kjördæm-
unum tveimur hæfist með svo
þróttmiklum hætti. Alþýðubanda-
lagið myndi á næstunni leggja höf-
uðáherslu á endurreisn efnahags-
lífsins, velferð fjölskyldna og ein-
staklinga og siðvæðingu. í efna-
hags- og stjómmálalífi. Formaður
Alþýðuhandalagisins færði Flaf-
steini og Fríðu kærar þakkir fyrir
höfðinglegt boð og þakkaði flokks-
félögum og einstaklingum sem
höfðu lagst á eitt til þess að móts-
gestir gætu gert sér glaðan suinar-
dag í Selvogi.
Þórarinn Snorrason hóndi í
Vogsósum, sem hafði lagt drjúgt
að mörkum við að undirbúa gömlu
túnin í Nesi fyrir mótshaldið, lýsti
sögu byggðarinnar í Selvogi og
Ávarp Hafsteins Hjartarsonar í Selvogi
Eyjan hvíta á sér von...
Kæru félagar, góðir viriir
mínir og allir aðrir
mótsgestir! Ég vil fyrir
hönd okkar hjóna bjóða ykkur
öll hjartanlega velkomin hingað
í Selvoginn. Ég veit að nálægðin
við hafið, við Selvogsbankann,
við ilminn frá fósturjörðinni og
við þann góða anda sem mun
ríkja hér í dag á meðal okkar á
eftir að færa okkur öllum gleði
og hamingju. Hún mun efla
okkur til góðra verka, efla flokk-
inn okkar Alþýðubandalagið og
framar öllu stuðla að því að við
vinnum vel saman og betur en
hingað til hefúr verið gert, því
alla hluti má bæta.
Ég veit að það er ekki mitt hlut-
verk hér á þessum stað að ræða um
þjóðmálin, en ekki get ég látið það
hjá líða að minna á að nú eru aðeins
örfáir mánuðir til kosninga og
hörð barátta er framundan. Því vil
ég segja: Verkamenn, sjómenn,
bændur og allt alþýðufólk í landi
þessu verður að taka höndum sam-
an og vinna gegn því afturhaldi
sem nú um stund hefúr ráðið í
landinu okkar. Við verðum að
hrista af okkur óværuna og gera
landið okkar byggilegt á ný venju-
legu fólki.
Við vituni að „kolkrabbinn" hef-
ur vaxið og dafnað í skjóli íhalds og
krata og það er okkar hlutverk, Al-
þýðubandalagsins, að snúa vörn í
sókn og vinna frækilegan sigur í
næstu kosningum. Það er okkar
hlutverk að ganga af „kolkrabban-
um“ dauðum.
Ég enda tölu mína á orðum
skáldsins og alþýðumannsins:
„Eyjan hvíta á sér von ef að fólkið
þorir.“ F.g spyr: Þorum við eða
þorum við ekki? Að endingu vil
ég endurtaka orð mín í upphafi:
Verið hjartanlega velkomin hingað
í Selvoginn! Guð blessi ykkur öll!
Ég segi þessa fjölskylduhátíð setta!
Hafsteinn Hjartarsson og eiginkona
hans Fríða Agústsdóttir buðti land
sitt undir mótið í Selvoginu og tóku
til hendinni við undirbúning þess.
Þegar kvöldaði ríkti Ijúf stemning við varðeldinn. Guðrún Helgadóttir al-
þingismaður var meðal þeitra sem skemmtu á kvöldvókunni með frásógu.
Hún sagði eftir mótið að á meðan ungir Sjálfstæðismenn hefðu slegist á Sel-
fossi hefði Alþýðubandalagsfólk haldið utan um hvert annað við í Selvogi.
stýrði síðan gönguför um svæðið á-
samt Birni Hróarssyni náttúru-
fræðingi, sem sagði frá náttúrufari.
Gengið var að Selvogsvita og var
mikil þröng við að komast upp í
hann, en allt fór vel enda menn og
bíll frá Björgunarsveitinni Mann-
björg í Þorlákshöfh á staðnum til
að tryggja öryggi mótsgesta. Síðan
var gengið um fjörur og áð í ver-
búðum þar sem vermenn höfðust
við áður fyrri allt upp í fjóra mán-
uði á ári. Farið var um byggðina og
að Strandakirkju þar sem leikið var
á orgcl og hlýtt á hugvekju séra
Kristins Agústs Friðfinnssonar.
Veisla í grængresinu
Að lokinni gönguför var efnt til
mikillar grillveislu á mótssvæðinu í
Nesi og voru þar eitthvað talsvert á
fjórða hundrað manns í mat sem
snæddur var í grængresinu. Grill-
meistaramir voru úr Hafnarfirði,
kjötskurðarmenn af Suðurnesjum,
grænmetið kom úr Ilveragerði og
kartöflusalatið úr Kópavogi. Sam-
anlagt smakkaðist allt frábærlega
og ekki spillti að heitt var á könn-
unni allan daginn í sérstökum
kaffi- og kakóvagni senr Sunnlend-
ingar höfðu veg og vanda af. Eftir
grillveisluna hjálpuðust mótsgestir
við að bera sprek í bálköst sem
hlaðinn hafði verið úr rekaviðar-
drumbum og var efnt til kvöldvöku
á sjávarkambinuin við skíðlogandi
varðeld. Þar flutti Margrét Frí-
mannsdóttir alþingismaður ávarp
og endurtók þakkir til jarðeigenda
og allra þeirra sem höfðu lagt sitt af
mörkum til að gera fjölskylduhá-
tíðina skemmtilega. Hún sagði
rnargt sameina Suðurland og
Reykjaneskjördæmi og vonandi
væri þessi glæsilega hátíð upphafið
að nánara samstarfi kjördæinanna
flokknuin og þjóðinni til heilla.
Guðrún Helgadóttir alþingis-
maður skemmti mönnum við varð-
eldinn og sagði meðal annars frá
þeim ástarævintýrum í Selvogi sem
lesa má um í bókum. Söngvarinn
góðkunni Skafti Olafsson skapaði
dúndrandi söngstemningu með að-
stoð hljóðfæraleikaranna Páls
Arnasonar í Hafnafirði, Sigurðar
Björgvinssonar úr Garðabæ og
Ólafs Ólaftsonar frá Selfossi.
Mikill myndarskapur
Verkefnum við útihátíðina var
skipt niður á byggðarlög og flokks-
félög undir stjórn Elínar Bjargar
Jónsdótmr í Þorlákshöfn og Sig-
urðar Björgvinssonar í Garðabæ.
Eftir því var tekið hve myndarlega
var staðið að öllum þáttum og sama
hvort um var að ræða undirbúning
mótssvæðis, sorphirðu eða miða-
sölu, allt var leyst af hendi nteð
meiri myndarskap og frumleika en
hægt hafði verið að ætlast til rniðað
við stuttan fyrirvara. Það ríkti því
mikil ánægja með Sumardag í Sel-
vogi þegar kjördæmin kvöddust á
laugardagskvöldið og rætt var um
að taka höndum saman að nýju á
næsta ári.
- ekh