Vikublaðið


Vikublaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 1

Vikublaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 1
Þjóðríkið feigt? Þjóðríkið er í sjálfheldu og niargir telja það feigt. Guðmuhdur Hálfdanarson sagnfræðingur segir fféttir af dauða þjóðríkisins stórlega ýktar. Bls. 9 Kjördæmamál rædd I ályktun ráðstefnu Alþýðubanda- agsins á Vesturlandi er lagt til að gera landið að einu kjördæmi ef ekki tekst að verjasnúverandi kerfi. Bls. 6-7 Verkakvennafélög til tjóns ÁJafhréttisþingi kynnti Guð- björg Linda Rafnsdóttir niður- stöður rannsókna sinna á verkakvennafélögum. Félögin hafa verið til tjóns. Bls. 12 43. tbl. 2. árg. 5. nóvember 1993 Ritstjóm og afgreiðsla: sími 17500 250 kr. Minnihlutaflokkarnir blása af sameiginlegt framboð Fulltrúar Framsóknarflokks og Kvennalista mættu ekki á opinn fund til að ræða fram- boðsmál. Ríkisstjórnarþátttaka Alþýðuflokksins spillir fyrir samstarfi A-flokkanna Þótt ekkert verði úr sameiginlegu framboði cettu minniblutaflokkamir i borgarstjóm að r<eða um sameiginlegar á- herslur í kosningunum i vor. Ami Þór Sigurðsson í ræðustóí, Hrannar Jónsson fundarstjóri og Sigurður Pétursson. Amiðvikudagskvöld boðaði hópur ungs félagshyggju- fólks til opins fundar á Komhlöðuloftinu með fulltrú- um allra minnihlutaflokkanna í Reykjavík. Tilgangurinn var að fá flokkana til að ræða fyrir opn- urn tjöldum möguleika á sam- eiginlegu framboði. Hvorki Framsóknarflokkurinn né Kvennalistinn sendu fulltrúa á fundinn og gáfú með fjarveru sinni skýr skilaboð til fundar- manna. I umræðum fulltrúa AI- þýðuflokksins, Alþýðubanda- lagsins og Nýs vettvangs kom fram að ekki var grundvöllur fyrir sameiginlegu framboði þessara flokka og virtist ríkis- stjómarþátttaka Alþýðuflokks- ins vera helsti þröskuldurinn. I rúmt ár hafa fúlltrúar minni- hlutaflokkanna annað veifið hist til ræða sameiginlegt framboð gegn mcirihluta Sjálfstæðismanna í borgarstjórn Reykjavíkur. Árang- urinn lét á sér standa og hópur ungs félagshyggjufólks, sent hittist reglulega á laugardagsmorgnum á Hótel Borg, ákvað að ffeista þess að fá minnihlutaflokkana til að Fólk koma að sameiginlegu borði. Fyrir hálfum mánuði birtist á- skorun frá hópnum í Vikublaðinu og Alþýðublaðinu unt að félags- hyggjufólk bjóði fram einn lista við borgarstjórnarkosningarnar í vor. Fundurinn á miðvikudag á Korn- hlöðuloftinu var framhald af þess- ari áskorun. Fyrsti frummælandinn var Árni Þór Sigurðsson, formaður kjör- dæmisráðs Alþýðubandalagsins. Hann sagði að Alþýðubandalagið hafi tekið jákvæða afstöðu þegar Nýr vettvangur sendi minnihluta- flokkunum erindi síðast liðið haust þar sem hófanna var leitað um sameiginlegt framboð. Hinsvegar hafi fljótlega komið í ljós að hvorki Framsóknarflokkur né Kvennalisti hefðu áhuga og því hefði hug- myndin aldrei verið rædd í alvöru. Árni Þór sagði að þó ekkert yrði úr sameiginlegu frainboði þá væri fúll ástæða fyrir minnihlutann að leggja drög að sameiginlegum mál- efnagrundvelli og santstarfi eftir kosningar, takist að fella meirihluta Sjálfstæðismanna. Sigurður Pétursson, formaður Sambands ungra jafnaðarmanna, talaði fyrir Alþýðuflokkinn og and- mælti þeirri skoðun Árna Þórs að hægt væri að fella meirihluta Sjálf- stæðismanna án santeiginlegs framboðs. Sjálfstæðisflokkurinn þyrfti ekki nema um 47 prósent fylgi til að halda meirihlutanum. Hann minnti á að í kosningunum 1990 var það Alþýðuflokkurinn einn flokka sem gekk óskipmr til. liðs við Nýjan vettvang. Kosninga- barátta Alþýðubandalagsins og Kvennalista gekk útá það að ná fylgi frá Nýjuin vettvangi. Slík vinnubrögð duga ekki til að fella meirihlutann. Guðrún Jónsdóttir frá Nýjum vettvangi sagði það forsendu fyrir árangri að framboðum fækki. Nýr vettvangur væri tilbúinn að ræða við aðra flokka um sameiginlegt framboð. Þegar framsögumenn höfðu lokið máli sínu lögðu rnargir fundargesta orð í belg. Bolli Val- garðsson, formaður Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík, sagði algjört grundvallarskilyrði að minnihlutaflokkarnir beindu spjót- um si'nurn gegn sameiginlegum andstæðingi, Sjálfstæðisflokknum, en ekki hver gegn öðrum. Lands- málin væru óskyld borgarstjórnar- kosningum. Arthur Morthens frá Birtingu sagði að landsmálin skiptu máli í borgarstjórnarkosningum og að það flækti stöðuna að Alþýðuflokk- urinn væri í ríkisstjórn. Birtingar- menn teldu sarnt sem áður að vinna bæri að sameiginlegum framboði. Arnór Benónýsson frá Alþýðu- flokknum kvaðst svartsýnn á sam- eiginlegt framboð. Helgi Hjörvar frá Verðandi sagði minnihlutaflokkanna tapa trúverðugleika sínum. Hann sagði meiri félagslegan styrk í sauma- klúbb móður sinnar en í heilu og hálfu stjórnmálahreyfingunum á vinstri kantinum. I annarri og þriðju untferð frummælenda kom fram að engar forsendur eru fyrir sameiginlegu framboði þeirra þriggja flokka sem áttu fúlltrúa á fundinum. Arni Þór útilokaði sam- starf við Alþýðuflokkinn á meðan þessi ríkisstjórn hjarði og Sigurður Pémrsson efaðist um vilja sinna flokksmanna til að eiga samstarf við Alþýðubandalagið. Guðrún Jónsdóttir bað rnenn að hætta ekki að tala saman, markið félags- hyggjuflokkanna væri það sama, réttlátara samfélag og mannúð- legra umhverfi. Hrannar Jónsson sleit fundi með þeim orðum að enn væri töluverð tortryggni milli manna en hana mætti yfirstíga. - Verkefninu er ekki lokið og ungt félagshyggjufólk mun halda áfram að hittast og vinna að sameiginlegu markmiði sínu, að sameina vinstri flokkana. Landhelgin og úthafs- veiðiréttindi Islendinga þolir ekki meira Ríkisstjómin verður að standa við öll þau fyrir- heit sem hún gaf við síðustu kjarasamninga og falla firá hugmyndunt um auknar álög- ur á láglaunafólk. Annars verður ekki komist hjá því að segja upp kjarasamningum. Þetta segir í ályktun sem stjórn Verslunarmannafélags Suðurnesja samþykkti á þriðju- dag. Ennfremur er sagt að vegna samdráttar í atvinnutekjum og langvarandi atvinnuleysis séu fjölmörg heimili á heljarþröm. Húsnæðismissir blasir við mörgum og oft á tíðum gjald- þrot vegna þess að húsnæði er ill seljanlegt. Eítir að Islendingar færðu út landhelgina í 200 míl- ur hafa stjómvöld lítið sinnt möguleikum sent þjóðin hefur til að tryggja sér betri að- gang að fiskistofnum sent liggja utan við landhelgina. Stjómvöld hafa jafnvel latt útgerðarmenn til að leita fyrir sér á nýjum mið- um, samanber afstöðu sjávarút- vegsráðherra til veiða íslenskra skipa í Smugunni á Barentshafi. Þingflokkur Alþýðubandalagsins lagði frarn þingsályktunartillögu um að Alþingi kjósi 7 manna nefnd skipaða fulltrúum allra flokka til að kanna möguleika á útfærslu land- helginnar annarsvegar og hinsveg- ar móti tillögur það hvernig hægt sé að afla ítrustu réttinda Islend- inguin til handa á hafsvæðum sem liggja utan lögsögunnar. - Menn hafa verið alltof bundn- ir við það síðustu árin að veiða inn- an landheiginnar og það hefur leitt til þess að sú stefna að úrelda skip fékk víða smðning. Sent bemr fer er þessi stefna á undanhaldi, nema þá kannski helst í sjávarútvegsráðu- neytinu, segja þeir Steingrímur J. Sigfússon og Jóhann Ársælsson, tveir fyrsm flumingsmenn þingsá- lyktunartillögunnar. Þeir benda á að nú þegar hillir undir það að hafréttarsáttmálinn verði að bindandi alþjóðalögum fyrir þær þjóðir sem hafa skrifað undir hann þá sé eins víst að nýrra tíðinda sé að vænta af þessurn vett- vangi. Þess vegna ríður á að Al- þingi og stjórnvöld leggi vinnu í að móta framtíðarstefnu í þessum málaflokki. Á allra síðusm árum og misser- um hafa íslenskar útgerðir sótt í auknum rnæli í fiskistofna sem liggja utan landhelginnar. Afla- reynsla Islendinga á þessum mið- um mun koma þjóðinni til góða þegar kvótar verða settir á fiski- stofna sem veiðast á alþjóðlegu hafsvæði. Og þess er ekki langt að bíða. Steingrímur J. Sigfússon bendir á að talað sé um að kvóti verði settur á rækjumiðin við Flæmska hattinn svokallaða, austan lögsögu Kanada. Mikið er í húfi. Það sést best á því að aflaverðmæti íslenskra skipa á þrem helstu miðunum utan lög- sögunnar, Smugunni, Flæmska hattinum og á Reykjancshrygg er nálægt 2,5 milljarðar króna.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.