Vikublaðið


Vikublaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 3

Vikublaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 3
VIKUBLAÐIÐ 5. NOVEMBER 1993 Mennlngln 3 Þjóðhátíðarhald á næsta ári: ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR SVIPUR HJÁ SJÓN Þjóðhátíðarsjóður, sem var stofnaður vegna 11 alda bú- setu á íslandi 1974, á œ erfiðara með að sinna skyldu sinni, sem er að vinna að varðveislu og vernd verð- mæta lands og menningar. Á 16 árum hafa árlegir styrkir sjóðsins lœkkað um nœr 90% að raungildi og höfuðstóll sjóðsins lœkkað úr 230 milljónum á núvirði niður í tœpar 60 milljónir. Fyrstu ár sjóðsins úthlutaði hann 26 til 33 milljónum króna í heildarstyrki, en allra síðustu árin hafa styrkirnir numið liðlega 4 milljónum. „Styrkir hafafarið heldur lœkkandi eftir að dró úr verðbólgu, þegar ávöxtunin var mest. Það hefur verið regla að leggja ákveðinn hluta af ávöxtuninni við höf- uðstólinn, sem aftur hefur takmarkað úthlutun, eftir að ávöxtun í heild hefur lœkkað, “ sagði Magnús Torfi Ólafsson formaður sjóðsins í samtali við Vikublaðið. s Avöxtun sjóðsins hefur því ekki gengið sem skyldi og við það bætist að fyrstu árin voru styrkir allrausnarlegir. Þó ekki sé hægt að halda því fram að Þjóðhátíðarsjóður sé að þromm kominn, er hann samt svipur hjá sjón miðað við fyrstu árin. Staða sjóðsins nú er vafalítið allt önnur en menn gerðu ráð fyrir þegar þeir stigu á stokk og strengdu heit í þjóðhátíðarskapi á sínum tírna, rétt eins og gerst hefur með aðra þjóð- hátíðarhugsjón - byggingu Þjóðar- bókhlöðunnar. Að varðveita og vemda arfinn Arið 1977 var sjóðnum sett skipulagsskrá og skyldi stofnféð vera ágóðinn af útgáfu Seðlabank- ans á þjóðhátíðarmynt í tilefhi 11 alda búsetu á Islandi 1974. Til- gangur sjóðsins er að veita styrki til aðila sem hafa það verkefni „að vinna að varðveizlu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar', sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf.“ Strax var ákveðið að fjórð- ungur árlegra styrkja rynni til frið- lýsingarsjóðs Náttúruverndarráðs, annar fjórðungur til Þjóðminja- safnsins og svo helmingur til al- mennra umsækjenda. 1 stjórn sjóðsins sitja fimm manns, formaður tilnefndur-af for- sætisráðherra, einn tilnefridur af Seðlabanka og þrír kjörnir af Al- þingi. Fyrstu stjórn sjóðsins skip- uðu þeir Björn Bjarnason þá skrif- stofustjóri í forsætisráðuneytinu en núverandi þingmaður, Jóhannes Nordal, Seðlabankastjóri til skamms tírna, Eysteinn Jónsson fyrrverandi ráðherra, Gils Guð- mundsson þáverandi alþingismað- ur og Gísli Jónsson menntaskóla- kennari. Björn og Jóhannes hafa æ síðan átt sæti í stjórninni en Magn- ús Torfi varð stjórnarformaður 1986 og 1990 komu inn í stjórnina Björn Teitsson skólameistari og Gunnlaugur Haraldsson þjóð- háttafræðingur. Höfuðstóllinn hefur rýmað um 75% Frá upphafi var ákveðið að sjóð- urinn yrði varðveittur í Seðlabank- anum og að sjóðurinn yrði ávaxtað- ur með hagkvæmustu kjörum á grundvelli verðtryggingar. Að Friðrik Þór Guðmundsson stofni til heíúr þessu verið fram- fylgt með kaupum á spariskírtein- um ríkissjóðs. Sjóðurinn var stofn- aður í desember 1976 með 300 gömlum milljónum eða sem svarar 230 milljónum króna á núvirði. I árslok 1983 var höfuðstóll sjóðsins kominn niður í 91 milljón og um síðustu áramót var höfuðstóllinn 57,5 milljónir. Með úthlutun síðasta sumars var búið að veita 250 milljónum í styr- ki og mætti því segja að stofhffam- lagið hafi ávaxtast í raun um 77 milljónir, en þá er þess að geta að fjórum sinnum á umliðnum árum hefur Seðlabankinn veitt sérstök- Jóhannes Nordal hefur verið í sjóðstjóm frá upphaji. Og sömuleiðis Bjöm Bjamason alþingismaður. n Þjóðhátíðarsjóður hcfur verið í vörslu Seðlabankans en stofnfé hans var ágóði af sölu þjóðhátíðamiyntar sem gefin var út 1974. Hvemig má það vera að ávöxt- un sjóðsins var meiri á verðbólgutímum heldur en í seinni tíð þegar vextir hafa veiið háir? Myndir: Ól.Þ. hugsjónir, heldur byggingarharm- saga Þjóðarbókhlöðunnar á garnla Melavellinum. Fyrir 27 árurn mælti sérskipuð nefnd til þess að reist yTÖi bóka- safnshús í næsta nágrenni við Há- skólann. 1967 var stofnaður Bygg- ingarsjóður Þjóðarbókhlöðu. 1968 greindi Gylfi Þ. Gíslason frá því að staðurinn hefði verið ákveðinn. 1970 samþykkti þingið tillögu með 50 atkvæðum gegn einu að Bók- hlaðan skvldi reist í tilefhi 11 alda afmælisins 1974. Vilhjálmur Hjálmarsson tók fyrsm skóflustunguna 28. janúar 1978, nær átta árunt eftir tillögu þingsins. Kjallari hússins var steypmr 1980. Ári síðar komst sá skriður á málin að allar fjórar hæðir hússins vom steyptar í einni lom. Vigdís Finnbogadóttir forseti lagði hornstein að hlöðunni 23. september 1981 eða fyrir 12 árurn. Nú em liðin 26 ár frá stofnun Byggingarsjóðs Þjóðarbókhlöðu og enn er byggingin óklámð. Og verður það sjálfsagt enn á næsta ári, á 50 ára afmæli lýðveldisins og ell- efu hundmð og mtmgu ára afrnæli íslandsbyggðar. um framlögum í sjóðinn, væntan- lega til að styrkja hann, samtals 35 milljónir. Eftir standa um 42 millj- ónir. Á sama tíma ag höfuðstóllinn hefur verið að rýma hafa styrkir farið lækkandi og sömuleiðis hlut- fall umsækjenda sem fær styrk. Helmingur styrkja fer til Náttúm- verndarráðs og Þjóðminjasafnsins. En þegar almennir og umsóttir styrkir em skoðaðir kemur í ljós að á meðan 13 til 17 milljónir fóm ár- lega fyrstu árin til 30 til 40 umsækj- enda, em almennu styrkirnir nú komnir niður í rúmar 2 milljónir á ári til 13 til 15 umsækjenda. Með- alstyrkur hefur um leið farið úr 400 til 700 þúsund krónum niður í 140 til 150 þúsund. Tveimur af hverjum þremur umsóknum hafnað Ekki er ástæða til að efast urn að veittir styrkir hafi runnið til góðra verka. Nefha má dænti frá síðari ár- um; sjóminjar í Flatey, viðhald á Nonnahúsi, endurbygging Löngu- húðar í Djúpavogi, rit um glímu, rit um sjávarhætti, eftirtökur gam- alla Ijósmynda, endurbætur Ró- aldsbakka á Siglufirði, endurbygg- ing „Pakkhússins" á Höfn, viðgerð á Þuríðarbúð á Stokkseyri, viðgerð á Randulffssjóhúsi og bryggju á Eskifirði, viðgerð á verslunarhús- unum í Neðstakaupstað á ísafirði, fornleifarannsóknir í Skálholti og áfrant mætti telja. Fuglaverndunar- félag Islands hefur verið „áskrif- andi“ frá upphafi og hefur á síðustu árum fengið að meðaltali tæp 70 þúsund krónur á ári til verndunar á íslenska hafarnarstofninum. Auðvitað má deila urn val ein- stakra verkefha, eins og að styrkja Stofnhöfuðstóll Þjóðhátíðarsjóðs Des. 1976 - 230 mkr Höfuðstóll í árslok m.kr. á núvirði: 1978 . 1979 ... 1980 ... 1981 ... 1982 ... 1983 ... 1984 ... 1985 ... 1986 ... 1987 ... 1988 ... 1989 ... 1990 ... 1991 ... 1992 ... 174.6 143.7 155,5 131,2 114,4 91.1 78.1 73.1 67.9 68,0 62,0 62.9 57,3 57.1 57,5 tónleikahald í Skálholti utn 1,3 milljónir á fjórum árum. Verkefnavalið verður þó vart gagnrýnt af alvöru nema fyrir liggji hvaða umsækjendum hefur ver- ið hafnað. Þeir eru ófáir, í sextán úthlutunum hafa „aðeins“ 389 hlotið styrk af alls 1.079 og hefur því nær tveimur af hverjunt þremur umsóknum verið hafnað. Afbyggingar- hamisógu Þjóð- arbókhlöðunnar Raunar er Þjóðhátíðar- sjóður ekki átakanlegasta dæmið um háleitar en lágfleygar þjóðhátíðar- Almennir styrkir Þjóðhátíðarsjóðs Alm. styrkir þús.kr fjöldi meðalstyrki kr. 1978 16.607 22 754.900 1979 14.934 27 553.100 1980 12.700 31 409.700 1981 13.474 42 320.800 1982 12.080 33 366.100 1983 10.400 33 315.200 1984 9.765 34 287.200 1985 3.835 21 183.300 1986 5.472 21 260.600 1987 5.120 19 269.500 1988 5.308 22 241.300 1989 4.380 21 208.600 1990 4.700 20 235.000 1991 2.206 13 169.700 1992 2.206 15 147.100 1993 2.120 15 141.300 Munið! - Aóalfundur ABH Alþýðubandalagið í Hafnarfirði heldur árlegan aðalfund sinn föstu- daginn 5. nóv. Fundurinn verður haldinn í Dalsbúð, Dalshrauni 1 og hefst kl. 20.00. Hefðbundin aðalfundarstörf. Kosning fulltrúa á landsfund og aðalfund kjördæmisráðs. Lagabreytingar. Ákvörðun um framboð og undirbúning kosninga. Einar Karl Haraldsson og Sigríður Jóhannesdóttir mæta á fundinn og spá í spilin. Pólitískt spjall að fundi loknum. - Léttar veitingar á boðstólnum. Félagar og stuðningsfólk Alþýðubandalagsins er hvatt til að mæta vel og stundvíslega.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.