Vikublaðið


Vikublaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 11

Vikublaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 11
VTKUBLAÐIÐ 5. NOVEMBER 1993 11 Rithöndin Sérvitur Skriftín þín segir að þú sért góðum gáfum gæddur, út- sjónarsamur og duglegur. Þér er eðlilegt að vera tdllitsamur og sanngjarn en getur þó átt til að sýna hörku ef þér finnst annað ekki líklegt til árangurs. Þú virðist hafa mikinn memað og þolir engum að hlusta ekki á þig. Þú ert hrein- skiptinn, gengur beint framan að hverjum sem er. Þú gerir allmikiar kröfur, sennilega bæði til þín sjálfs Sviðsljós Róbert sjötugur Þjóðleikhúsið frumsýndi í gærkvöldi eitt af merkustu leikritum Arthurs Miller, „Allir synir mínir“ í nýrri þýðingu Hrafhhildar G. Hagalín. Sýningin var jafnframt afinælissýning til heiðurs Róbert Arnfinnssyni, sem átti sjötugsaftnæli 16. ágúst s.l. Róbert var ásamt Herdísi Þor- valdsdóttur yngsmr leikara sem fastráðinn var við Þjóðleikhúsið haustið 1949. Hann hefur leikið rúm 150 hlutverk í Þjóðleikhúsinu. Hlutverkalisti Róberts ber með sér að hann er jafnvígur á gaman og al- vöru en ýmsir telja list hans rísa hæst þegar alvara og glettni vega salt í sömu persónunni. Róbert nam leiklist hjá Lárusi Pálssyni og við Leiklistarskóla Konunglega leikhússins í Kaup- mannahöfn. Leikferil sinn hóf hann hjá Leikfélagi Reykjavíkur árið 1945 og lék hjá LR þar til Þjóðleikhúsið tók til starfa. „Allir synir mínir“ var sýnt af Leikfélagi Reykjavíkur í Iðnó árið 1958 og voru þá Brynjólfur Jó- hannesson og Helga Valtýsdóttír í aðalhlutverkum. I sýningu Þjóð- og gerir kröfur og annara. Viljakraftur og sjálfe- traust er í ágæm lagi. Dálitla sérvisku munm eiga til. Það virðist erfitt að fá þig til að skipta um skoðun. En þetta fyrirgefst þér af vinum og fjöl- skyldu, því þau vita að þér þykir vænt um þau og mundir leggja mikið á þig þeirra vegna. Þú virðist dálítið óþolinmóður ef þú þarft að útskýra eitthvað, þér finnst að fólk eigi að vera snöggt að hugsa og skilja. Reyndu að muna að þannig eru ekki allir. Þú virðist gera nokk- urn mannamun. Það virðist nokkur hætta á streitu hjá þér. Eða þá að vinnuálag er of mikið. Þú rnunt ná góðum árangri í flestum störfum en r. Hjálmar Hjálmarsson og Róbert Amjinnsson í hlutverkum sýnum í leikriti Arthurs Millers „Allir synir mínir“, sem fmmsýnt var í Ijóólcikhúsimi í garkvöldi. leikhússins fer Róbert með hlut- verk Joe Keller og Kristbjörg Kjeld leikur konu hans. Hjálmar Hjálm- arsson leikur son þeirra og Erla Rut Harðardóttir unnusm hans. I öðrurn stórum hlutverkum eru Magnús Ragnarsson, sem nú þreytír frumraun sína á sviði Þjóð- leikhússins, Sigurður Skúlason, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Randver Þorláksson og Olafía Hrönn Jónsdóttir. Leikstjóri er Þór H. Tulinius og er það frumraun hans í Þjóðleik- húsinu. Leikmynd gerði Hlín Gunnarsdóttir, búninga Þórunn Elísabet Sveinsdóttír og Björn B. Guðmundsson annast lýsingu. Atburðarás leikritsins fer ffarn á heimili Keller þölskyldunnar á ár- unum eftir seinni heimsstyrjöld. Joe Keller er verksmiðjueigandi og framleiddi vélahluti í flugvélar. A stríðsárunum hafði fyrirtækið framleitt gallaðar vélar og leiddi það til dauða þölda flugmanna. Arthur Miller hefur sagt að „AIl- ir synir mínir“ sé skrifað fyrir venjulegt fólk um venjulegt fólk. Miller varpar fram þeirri spurn- ingu hvaða afleiðingar það hafi að menn í ábyrgðarstöðum taki eigin hagsmuni fram yfir hagsmuni al- mennings, og bendir á að afleið- ingar gerða mannanna geta verið áþreifanlegri en gerðirnar sjálfar. Höfundurinn sló í gegn í heima- landi sínu, Bandaríkjunum, árið 1947 með þessu leikriti. bestum í flóknum og ábyrgðar- miklum störfum sem gaman er að glíma við, svo sem stjórnunarstörf- um margskonar. Góða framtíð. RSE Kormákur Bragason kvikmynda- gerðarmaður Sniglar með Sinfóníunni Sinfóníuhljómsveit íslands ætlar annað kvöld, laugardag kl. 20, að ráðast á hið menn- ingarlega járntjald svo um munar. Þá verða tónleikar fyrir ungt fólk og flutt sérstakt mótorhjólatón- verk! Af því tílefni ætla Sniglarnir í Reykjavík að heiðra tónleikana með nærveru sinni og hestöflum. Kynnir er Björn Jörundur Frið- björnsson, söngvari í hljómsveit- inni Ný dönsk með meiru. Tónleikarnir hefjast á Pomp and Circumstance eftir Edward Elgar. Millikaflinn, Land of Hope and Glory, er sjálfur þjóðsöngur breskra fótboltabullna því það er einmitt sú volduga kviða sem þarlendir fótboltaáhorfendur kyrja þegar best gengur á vellinum. Næst er Vélhjólakonsertínn, eins og mótorhjólaverkið heitir. Einleikari í því verki er Svíinn Christian Lindberg, einn ffemsti básúnuleikari heims. Verkið er eft- ir samlanda hans Jan Sandström og lýsir ferðalagi Snigils um heiminn. Milli áfangastaða er örstutt hvíld og svo er gefið í, hemlaískur, hvell- ur. Tónverkinu líkur á sinn óhjá- kvæmilega, óendurtakanlega hátt. Tónleikarnir enda svo á Bolero eítír Ravel, en þeir munu ófáir sem minnast með fiðringi kvikmyndar sem notaði verkið sem undirspil við ástaleiki. Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglamir, sýna ttekin. Mynd: Ari Viðar. Sagt íneð inyncl Höfundar: Hjörtur Gunnarsson og Þuríður Hjartardóttir Eins og við sögðum ffá í síðasta blaði höfum við hætt að draga úr innsendum ráðningum á verðlaunagát- unni. Verðlaunahafinn sem nú var dreginn út er því síð- astur til að hreppa bókaverð- laun okkar. Því höfum við á- kveðið að birta rétta lausn verðlaunagátunnar strax í næsta tölublaði effir að hún birtist og birtist hér því líka lausn 47. gátu úr síðasta tölu- blaði: Ráðning 47. myndagátu: „Hin nýju spilavíti Háskóla Islands munu bera heitið Gullnáman." Verðlaunahafi fyrir nr. 46 Þegar dregið var úr réttum lausnum kom upp nafhið Jónína Hafsteinsdóttir, Nökkvavogi 31, 104 Reykja- vík. Hún fær bókina Stakir steinar eftír dr. Kristján Eld- járn. Ráðning 46. myndagátu: „Rekstrarhalli ríkissjóðs verður minnst tíu milljarðar króna næsta ár.“ s Eg er að hugsa um að segja upp áskriftínni að Viku- blaðinu. Það skrifaði maður í það um daginn sem mér er meinilla við. Tóm tjara sem hann skrifaði að sjálfsögðu. Og þó svo ég hafi kvartað þá hefur blaðið ekkert gert tíl að andmæla þessari óhæfu. Buðu mér að vísu að skrifa eitthvað á mótí en maður hefur nú annað við tímann að gera en pikka eitt- hvað í blað sem enginn les hvort eð er. Nei ég segi bara upp þangað til hér hefur orðið breyting á. Maður verður að halda í principin. Það ætla fleiri að gera þetta. Eg hitti einn um daginn sem sagði að öll þessi viðtöl við Steingrím J. væru að gera sig gráhærðan og hann ætlaði bara að hætta að kaupa blaðið. Þá kom reyndar í ljós að gestgjafi okkar tveggja var nýbúinn að tilkynna uppsögn enda sagði hann að blaðið væri gegnsýrt af kratísmanum í Ólafi Ragnari. Við vorum hjartanlega sammála um að eina lausnin á vandanum væri að sýna ritstjóranum í tvo heimana. Þetta gengi ekki lengur að hafa í blaðinu.allskonar hluti sein manni líkaði ekki. Og ef ekki verður bragabót á þá er næsta skrefið að segja sig úr flokknum. Principin maður, það má hvergi slaka á. Eg þekkti einu sinni einn sem var svona ógurlega principfastur. Hann gekk í hvert félagið á fætur öðru, mætti á fund og sagði öllum—-. viðstöddum að þeir væru skálkar og illmenni sem hefðu svikið hugsjón- ir félagsins og selt sig fyrir nokkra silfurpeninga. Síðan tilkynnti hann opinmynntuin fundarmönnum að hann væri sko ekki af þessu sauðar- húsi og því neitaði hann að greiða árgjaldið þar tíl þessum málum hefði verið kippt í lag og félagið aftur horfið til fyrri hugsjóna og hreinleika. Og þegar síðan farið var að rukka hann um árgjaldið sagði hann sig úr félaginu tíl að sýna það svart á hvítu að hann létí sko ekki bjóða sér að menn vikju ffá grund- vallaratriðunum. Skrifaði yfirleitt grein urn það í Morgunblaðið hversu svikul og illa innrætt forysta viðkomandi félags væri. En sjálfur var hann engiltær. Hann hefði verið fínn í öfgasam- tökunum hérna í gamla daga. Það var lélegt ár ef ekki varð klofningur £ tvígang og nokkrir reknir þar fyr- ir utan. Ef ekki hefði verið fyrir það hvað stafrófið er skammarlega stutt hefðum við getað klofið miklu oft- ar. Mikið asskoti leið manni nú vel eftir að búið var að segja skilið við endurskoðunarsinnana eða hægri klíkuna eða sáttfysina eða hvað það nú hét í það og það skiptið. Nú"** hlaut verkalýðurinn að skynja sinn vitjunartíma. Þeir lýsa þessu svipað þessir sem eru í Jehóva eða Betel. Því segi ég það, við þurfum að drífa í að segja Vikublaðinu upp. Ef við erum bara nógu mörg þá gemm við þvingað fram breytingu. Mogginn verður einn eftir með sinn hola kjarna. Og við öll hin í- klædd silkidúkum hreinleikans. Hvergi blettur og hvergi hrukka. Og gerum ekki neitt. V'

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.