Vikublaðið


Vikublaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 6

Vikublaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 6
6 Jafnréttið VIKUBLAÐIÐ 5. NOVEMBER 1993 Skilaboð frá Vesturlandi: Verjum kjördæmakerfið ■ landið eitt kjördæmi er næst besti kosturinn s Alýðveldistímanum hafa í tvígang verið gerðar breyt- ingar á kjördæmaskipun landsins, árin 1959 og 1983. Þegar hróflað er við kjördæmum verður að breyta stjórnarskránni og það verður ekki gert nema tvö þing samþykki breytingarnar með kosn- ingum á milli. Umræða um breyt- ingu á núgildandi kerfi er hafin þótt aðeins hafi verið kosið í tvígang til Alþingis eftir breyting- arnar 1983. Það sem knýr umræð- una er óánægja með misvægi at- kvæða. Atkvæði kjósenda í Reykja- vík og Reykjanesi hafa hlutfallslega minna vægi en atkvæði kjósenda í landsbyggðakjördæmum. Kjördæmisráð Alþýðubanda- lagsins á Vesturlandi boðaði til ráðstefnu um kjördæmamálið um síðustu helgi að Rein á Akranesi. Ragnar Arnalds, þingmaður Al- þýðubandalagsins í Norðurlands- kjördæmi vestra, var fenginn til að hafa framsögu en hann gjörþekkir umræðu undanfarinna áratuga urn kjördæmaskipunina. Jóhann Arsælsson þingmaður Alþýðubandalagsins á Vesturlandi setti ráðstefnuna og rifjaði upp að efnt væri til hennar í framhaldi af samþykkt á aðalfundi kjördæmis- ráðs Alþýðubandalagsins á Vestur- landi sem haldinn var íyrir skemmstu. Formaður kjördæmis- ráðs, Sveinn Kristinsson, tók síðan við stjórn fundarins og bauð Ragn- ari Arnalds að flytja sína framsögu. Ragnar Arnalds kynnti stuttlega tvær meginhugmyndir sem hafa í áranna rás komið til umræðu í kjördæmamálinu, annarsvegar að gera landið að einu kjördæmi og hinsvegar að taka upp einmenn- ingskjördæmi. Hann rakti rökin fyrir því að landsbyggðarkjördæm- in hefðu hlutfallslega fleiri þing- menn en þéttbýliskjördæmin Reykjavík og Reykjanes. - Það er eðlilegt að taka tillit til þess hvar þingið situr. Ef Alþingi sæti í Varmahlíð í Skagafirði er ég nokkurn veginn viss urn að Skag- Fráleitt að gera landið að einu kjördæmi eða að búa til einmenningskjörcbemi til aðjafna kosningarétt- inn, sagði Ragnar Amalds á ráðstefnu um kjördcemamálið á Akranesi. Myndir: Ól.Þ. Kínverskir taoistar voru alla tíð mjög uppteknir af því hvernig menn kæmust bestt' gegnum tilveruna og hvernig þeir gætu lifað sem lengst. Til eru þjóðsögur um að taoískir munkar hafi fundið ýmsar aðferðir til að öðlast eilíft líf. En almennt hafa taoistar á- vallt litið svo á að langt og farsælt líf sé best tryggt með því að fylgja fordæmi náttúrunnar og láta allt þroskast og dafha í samræmi við náttúrulegt eðli sitt. Þeir telja óhóflega áherslu á einn þátt á kostnað annarra skaðlega. Allt sé tengt bönd- um innbyrðis sem ekki megi rjúfa. Þetta gildir ekki síður um mannfélagið. Til að öðlast lang- lífi er nauðsynlegt að huga vel að samskiptum sínum við aðra og gæta þess að troða þeim ekki um tær. Þess vegna er affarasælast að hlífa sjálf- um sér og forðast framapot og tilgangslausan gassagang. 7. brot úr Bókinni um Veginn Himinninn er langlífur ogjörðin varanleg. A- stœðanfyrir varanleika himins ogjarðar er að þau ciga sér ekki sérdrœga tilveru. Þess vegna er þeim langlífs auðið. Því erþað að spakvitringurinn setur sjálfan sig síðast og þá verður hann fremstur. Hann heldur sjálfum sérfyrir utan og þá er tilvera hans trygg. Erþað ekki einmitt vegna ósér- plœgni hans að hami nær markmiðum sínum? Umritun þýðanda Náttúruöflin eiga sér varanlega tilveru. Astæðan fyrir langlífi þeirra er að þau láta ekki allt snúast um eigin tilveru (heldur láta allt þróast í samræmi við eðlilegt samspil hinna ýmsu þátta). Þess vegna blífa þau svona lengi. Spakvitringurinn fylgir fordæmi náttúrunn- ar. Hann tranar sér ekki fram (heldur lætur lít- ið á sér bera og hagar seglum eftir vindi). Með því móti ketnst hann lengst áfram. Hann memr stöðu sína hlutlægt og kastar sér ekki blint inn í «L $ [. & MVýý* HFlG: ?=• rsiifCí l f y\ f 'j m í ' ji ákfW o_ -'—ifÆ f v a 1 r' \ /\ \ \) ■EgeBBp ° 'ó |B| ÍSl hringiðu atburðanna. Þannig tryggir hann af- komu sína. Er það ekki einmitt ósérdrægni hans sem tryggir honum velfarnað? Þýðandi Baldur Ragnarsson. firðingar teldu það ekki nauðsyn- legt að eiga þingmann. Menn myndu telja það víst að alþingis- menn þekktu aðstæður í Skagafirði og vandamálin sem þar væri við að glíma. Tilfellið er að þingið hefur aðsetur í Reykjavík og þar eiga þingmenn heimá eða eru þar í að minnsta kosti átta rnánuði á ári. Vegna þessara aðstæðna hefur ver- ið talið eðlilegt að landsbyggðin hafi fleiri þingmenn en byggðin við Faxaflóa, sagði Ragnar. Ragnar sagði að núverandi kjör- dæmaskipulag tryggði það að landsbyggðin ætti fulltnia á Al- þingi sem gætu gripið í taumana þegar vandamál koma upp heima í héraði og hjálpað til við lausn þeirra. Hann sagði það út af fyrir sig rétt að með betri samgöngum og á tímum stækkandi sveitarfélaga þá væru þessi rök ekld eins sterk og áður. En Ragnar taldi að ekki mætti gera of mikið úr þessum breyting- um og minnti í því sambandi á að verkalýðsfélög væru enn skipulögð svæðisbundið og engin krafa væri um að láta eitt verkalýðsfélag ná yfir allt landið. Misvægið áþekkt og árið 1959 Kjördæmabreytingin árið 1959 var skref í þá átt að draga úr misvægi atkvæða, sem var orðið hrikalegt að sögn Ragnars. -Fyrir 1959 fóru sumir á þing með 100 atkvæði á meðan aðrir þurftu rúmlega 3000 atkvæði. Munurinn var þrítugfaldur. Eftir leiðréttinguna var misvægið nálægt því að vera einn á móti þrem, sagði Ragnar. Hann minnti á að breytingin árið 1959 hafi notið stuðnings allra flokka nema Framsóknarflokksins og gagnrýndi klausu á forsíðu Vikublaðsins fyrir fjórum vikum þar sem sagt var að landsbyggðar- þingmenn allra flokka hefðu iðu- lega verið á móti kjördæmabreyt- ingum. Aftur voru gerðar breytingar á kjördæmaskipuninni árið 1983 ineð það fyrir augum að jaína misvægi atkvæða, bæði með tilliti til landssvæða og stjórnmálaflokka. Framsóknarflokkurinn hafði frani að breytingunni 1983 færri atkvæði á bakvið hvern þingmann en aðrir flokkar. - En vegna þess að fólki fjölgar mcira í Reykjavík og Reykjanesi en í öðrum landshlutum þá hefur misvægi atkvæða heldur aukist á síðustu árum og er núna svipað og það var fyrst eftir breytingarnar 1959. Flokkaveldi og „sjón- varpsjramboo" Álit Ragnars Arnalds er að mið- stjórnarvald flokkanna mun aukast ef landið verður gert að einu kjör- dæini. - Ef Iandið verður gert að einu kjördæmi mun flokksforystan ganga frá framboðslista en það yrði ekki gert heima í héraði eins og nú er. I umræðuin eftir framsöguna hnykkti Ragnar á þessu atriði og minnti á að kjördæmabreytingin árið 1959 hefði dregið úr völdum flokksstjórna með því að skipa mál- um þannig að hvert kjördæmi fyrir sig lagði fram framboðsiista. Ef landið yrði eitt kjördæmi væri hætt við að flokkavaldið myndi taka fram fyrir hendur heimamanna og Núverandi kerfi er vel heppnað en ef það á að breyta þvt er á- stæða til að athuga það vandlega hvort ekki ætti að gera landið að einu kjördæmi, er álit Jóhanns Arsælssonar. Því meira sem ég hugsa um landið sem eitt kjördænti því meira verð ég á móti hugtnynd- inni, sagði Anna Guðrún Þór- hallsdóttir.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.