Vikublaðið


Vikublaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 8

Vikublaðið - 05.11.1993, Blaðsíða 8
8 VIKUBLAÐIÐ 5. NÓVEMBER 1993 Öflugur listi til höfuðs íhaldinu Æda vinstrimenn enn einu sinni að láta á sig sann- ast að sundurykkjan sé svo mikil að ekki náist samstaða um að fella núverandi meirihluta í Reykjavík? Framsókn og Kvennalisti hafa gefið út yfirlýsingar um að þessir flokkar komi til með að bjóða fram óháðir öðrum. Það er furðuleg þversögn í pólitík að sérhyggjan virðist vera að sliga vinstriflokkana á meðan Sjálfstæðisflokkurinn sýn- ist hafa til að bera sósíalíska sam- heldni. Eitt er þó ölluin flokkum sanr- eiginlegt að þeir virðast ætla að nota væntanlegar borgarstjórnar- kosningar til liðskönnunar fyrir næstu alþingiskosningar. Alvaran á bak við málefni borgarinnar er ekki meiri en svo. Langt er síðan að jafnsterk und- Teitur Bergþórsson iralda hefúr verið gegn ríkjandi öflum í þjóðfélaginu. Þessa undir- öldu verða vinstriflokkarnir að nýta sér. Þar af leiðir að þeir verða að leggja eitthvað af sérhagsmunum sínum tíl hliðar í bili. Þeir verða að sameinast urn að virkja óánægju fólksins til þess að fella núverandi meirihluta í borg- inni. Það er hreinn og beinn dóna- skapur við kjósendur ef þeir geta ekki beint reiði sinni á einn stað, ffemur en að fara með alla orkuna í KVENNASAMSTAÐA! Hvers vegna? Hvers vegna ekki? Alþýöubandalagskonur boða til fundar um kvennasamstöðu í stjórnmálum í Kornhlöðunni laugardaginn 13. nóv. kl. 11-14. Allar konur velkomnar. Dagskrá: Konur í stjórnmálum. Ólína Þorvarðardóttir, borgarfulltrúi Nýs vettvangs. Samstarf kvenna þvert á stjórnmálasamtök. Guðrún Ágústsdóttir, varaborgarfulltrúi Alþýðubandalagsins. Samstarf kvenna innan Alþýðubandalagsins. Ræðukona auglýst síðar. Fundarstjóri: Guðrún Kr. Óladóttir — ABR. Ef tími vinnst til verður rætt um þátttöku alþýðubandalagskvenna í Nordisk Forum '94. Konur í Alþýðubandalaginu. ALÞYÐUBANDALAGIÐ A SUÐURLANDI Aðalfundur Aðalfundur kjördæmisráðs 1993 verður haldin helg- ina 13. til 14. nóv. n.k. í Vestmannaeyjum í húsi Verkakvennafélagsins við Heiðarveg. Fundurinn hefst laugardaginn 13. nóv. kl. 9.30 til 18.00 og sunnudaginn 14. nóv. kl. 9 til 12. Gestir fundarins verða: Ólafur Ragnar Grímsson, Steingrímur J. Sigfússon og Einar Karl Haraldsson. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf - skýrsla stjórnar og reikningar kjördæmisráðs. 2. Útgáfumál. 3. Stjórnmálaumræður - pólitísk vinna framundan. Framsögumenn Steingrímur J. Sigfússon og Ólafur Ragnar Grímsson. 4. Undirbúningur sveitarstjórnakosninga - Hvernig ætlum við að vinna? Framsögumaður Einar Karl Haraldsson 5. Afgreiðsla mála. 6. Kosningar - Kosning kjördæmisráðs - Kosning í miðstjórn. Félagar mætið vel. Stjórn kjördæmisráðs. að gera upp hug sinn hvort eigi að krossa ffaman við A, B, K eða G. Margir aðrir borgarbúar en ég eiga sér þann draum að fram komi öflugur listi til höfuðs íhaldinu. En það er ekki nóg. Forystumenn vinstriflokkana hugsa meira til alþingiskosninga fremur en að ná borginni með skynsamlegri her- fræði. Séu t.d. forystumenn Alþýðu- bandalagsins tvístígandi með það hvort stefna beri að sameiginlegu framboði eður ei, er einfalt mál að gera um það skoðanakönnun hjá skuldlausum félagsmönnum og láta úrslit hennar ráða. Þar með hefði hinn almenni félagi töluverð áhrif og væri þar af leiðandi sáttari við að greiða sín gjöld. Eg ætla að leggja hér ffam þrjár mismunandi útfærslur á hugsan- legum lista sem settur yrði ffam til höfuðs íhaldinu í Reykjavík. Kvennalisti og Alþýðubandalag 1. sæti - Kvennalisti 2. sæti - Alþýðubandalag 3. sæti - Alþýðubandalag. 4. sæti - Kvennalisti 5. sæti - Alþýðubandalag 6. sæti - Kvennalisti Borgarstjóraefiii; Ingibjörg Sól- rún eða Þórhildur Þorleifsdóttír, sem tækju jafnframt 6. sæti á listan- um sem yrði baráttusæti. Við þessar aðstæður gæti Frani- sókn fengið tvo menn kjörna. For- setasæti borgarstjórnar myndi því skiptast á milli Alþýðubandalagsins og F'ramsóknar á kjörtímabilinu, að því gefnu að Framsókn kæmi til samstarfs við þessa flokka eftir kosningar. Utfærsla þessi miðar við að Framsókn rói einir á báti í komandi kosningum eins og þeir hafa boðað. Olíklegt verður að telja að þeir þyrðu að hlaupa í eina sæng með íhaldinu. Kvennalisti, Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur 1. sæti - Kvennalisti 2. sæti - Alþýðubandalag 3. sæti - Kvennalisti. 4. sæti - Alþýðubandalag 5. sæti - Kvennalisti 6. sæti - Alþýðubandalag 7. sæti - Alþýðuflokkur 8. sæti - Alþýðuflokkur Borgarstjóraefni; Jóhanna Sig- urðardóttir, og tæki hún jafnframt áttunda sæti á listanum sem yrði trúlega baráttusæti. Þetta væri mjög svo ögrandi verkefni fyrir Alþýðuflokkinn, og þó sér í iagi Jóhönnu. Framsókn fengi trúlega ekki nema einn mann við þessar aðstæður. Kvennalisti, Alþýðubandalag, Alþýðuflokkur og Framsókn 1. sæti - Kvennalisti 2. sæti - Alþýðubandalag 3. sæti - Kvennalistí. 4. sæti - Alþýðubandalag 5. sæti - Framsókn 6. sæti - Alþýðuflokkur 7. sæti - Alþýðubandalag 8. sæti - Kvennalisti 9. sæti - Framsókn 10. sæti - Alþýðuflokkur Borgarstjóraefni; Ingibjörg, Þór- hildur eða Jóhanna. Miðað við að núverandi yfirlýsingar Framsóknar er svona listi ekki mögulegur þar eð þeir hyggjast bjóða einir ffam. Flann hefði hins vegar snúið hlut- föllum í borgarstjóm algjörlega við. Alþýðuflokkurinn hefur nú ákveðið að gefa hugmynd að sam- eiginlegu framboði líf fram í miðjan nóvember. Þar á bæ em menn orðnir skíthræddir við þær víðtæku óvinsældir sem flokknum hefúr tekist að afla sér. Það hlýtur að vera krafa vinstri- inanna að þeir fái tækifæri til að hnekkja hressilega á íhaldinu. Það gerist hins vegar ckki ef vinstri- flokkarnir ætla að leyfa sérhyggj- unni að blómstra innan sinna raða með skammtímamarkmið að leið- arljósi. Málefnaágreiningur hefur ekki verið það mikill milli þessara flokka í borgarstjórn. Höfúndur er kennari EES-samningurinn er uppsegjanlegur Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins á Norðurlandi vestra hélt aðalfund sinn á Sauðárkróki, laugardaginn 30. október, og þar var samþykkt eftirfarandi stjórnmálaályktun. Eftir tveggja ára stjóm Al- þýðuflokks og Sjálfstæðis- flokks er ástand atvinnu- mála vægast sagt hörmulegt. Þús- undir Islendinga em atvinnulasir. Hundruð ffamleiðslutækja á barini gjaldþrots eða orðin gjaldþrota. Fjöldi heimila í landinu er í upp- lausn vegna stefnu stjórnvalda í at- vinnu- og vaxtamálum. Velferðar- kerfið hefur orðið fyrir árásum og gengið hefur verið stórlega á áunn- in réttindi alls almennings en launafólk hefúr þurft að blæða. Fjármagnseigendur og stór- eignamenn hafa losnað við að borga nokkuð í hinn sameiginlega sjóð og jafnvel verið losaðir við ýmsar greiðslur sem þeir áður inntu af hendi á meðan álögur em auknar á þá er ininnst mega sín, sjúklinga, öryrkja og aldraða. Spill- ing í meðferð opinbers fjár hefur stóraukist og embættisveitingar ráðherra minna helst á siðleysi konunga og keisara fyrri alda. Að- för hefur verið gerð að tjáningar- frelsi í landinu með ýmsum að- gerðum stjórnvalda og hætt við að haldið verði áffam á þeirri braut verði ekki spymt við fótum. Utanríkisviál Nú er lag til þess að losna við herinn úr landi vegna ytri að- stæðna. Alþýðubandalagið hlýtur að ítreka þá kröfu sína að Island verði herlaust land innan tíðar. í stað þess að ganga með betlistaf til bandarískra hermálayfirvalda ættu stjórnvöld að ráðast í nýsköpun at- vinnulífs á Suðurnesjum og undir- búa brottför hersins þannig að hann geti farið sem allra fyrst. EES-samningurinn hefúr verið samþykktur en hann er uppsegjan- legur með árs fyrirvara. Verði áhrif hans neikvæð ber að segja honum upp við fyrsta tækifæri. Island er miðja vegu rnilli Ameríku og Evr- ópu. Við eigum því að hafa sem best samskipti jafnt til austurs og vesturs. Atvinnumál Stefnt skal að því að ná skynsant- legri nýtingu allra þeirra fiskitcg- unda, krabbadýra, skelfisks, hvala ALÞYÐUBANDALAGSFÉLAG ÓLAFSVIKUR Aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsfélags Ólafsvíkur verður haldinn í Gíslabæ, félagsheimili Alþýðu- bandalagsins, sunnudaginn 7. nóvember kl. 14.00 Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf 2. Kosning fulltrúa á landsfund Alþýðubandalagsins. 3. Almennar stjórnmálaumræður. Framsögumaður Jóhann Ársælsson alþingismaður. 4. Önnur mál Stjórnin og annarra lífvera í hafinu kringum landið. Stefnt skal að sem hag- kvæmastri útgerð og sem bestri meðferð afla. Koma verður í veg fyrir að með stjórnvaldsaðgerðuin verði siná- bátaútgerð lögð í rúst. Stjórnvöld verða að standa á bak við útgerð og sjómenn og smðla að sókn skipa á fjarlæg mið. íslendingar hafa nú þegar helgað sér ákveðinn rétt með ffamsýni og dugnaði sjómanna og útgerðarmanna. Otækt er að stjórnvöld sitji að- gerðalaus. I fiskvinnslu verður að stefna að betri nýtingu aflans og við gemrn ekki haldið áfram að flytja út lítt unninn fisk sem hráefni til vinnslu í stórverksmiðjum er- lendis. Stjórnvöldum ber að standa við búvörusamningjnn frá 1991. Það er hagur allra Islendinga, jafnt þeirra sem vinna við landbúnaðar- störf, tengdan iðnað og neytenda, að fslenskur landbúnaður blómstri og dafni. Islendingar eiga ónýtta orku í fallvötnum Iandsins. Gera verður átak í því að við gemm nýtt orkuna í auknum mæli í stað inn- fluttrar orku, t.d. í loðnuverk- smiðjum, til eldsneytisframleiðslu fyrir sldpaflota okkar, og til fiskeld- is. Efla þarf iðnað, ekki síst smá- iðnað sem byggir á nýtingu inn- lendra hráeffia og stórauka verður framlög til vísinda og þróunarstarf- senii. Samgöngumál Saingöngur á Iandi í loffi og á sjó eru eitt mesta byggðamálið. Mikið hefur áunnist í þessum málum. Þó hefur þess gætt að teknar hafa ver- ið hinar furðulegustu ákvarðanir. Gera verður kröfu um að allar fjár- festingar séu vandlega ígrundaðar jiví að rangar fjárfestingar leiða til þungrar greiðslubyrði, aukinna skulda og um síðir til niðurskurðar í velferðarkerfinu. Framtíðin íslendingar eiga alla möguleika á því að lifa góðu lífi í fögru landi og ómenguðu umhverfi. Stjórnvöld nota svartsýni og bölmóð til að ala á ótta meðal okkar. Þeir sem við stjórnvölinn standa eru alls óhæfir þar og hlýmr það að vera hvatning til allra vinstrimanna að sameinast um það að koma óhæffi ríkisstjórn frá völdum sem fyrst. Landbúnaðarmál I sérstakri álykmn aðalfundar Kjördæmisráðsins unt landbúnað- armál er bent á að nauðsynlegt sé að á Islandi sé rekinn öflugur land- búnaður sem njóti sambærilegra rekstrarskilyrða og gerist meðal þjóða sem við berum okkur saman við. Fundurinn vill að landbúnaður njóti sambærilegrar innflumings- verndar og tíðkast hjá nálægum þjóðunt og lýsir yfir áhyggjum vegna stórfellds samdráttar í sauð- fjárbúskap. Vegna skertra fram- leiðsluheimilda sé framfærslu- grundvöllur víða ekki fyrir hendi og brýnt að bændur njóti sama réttar til atvinnuleysisbóta og aðrir. Þá telur fúndurinn að við ákvörðun framleiðsluréttar í land- búnaði þurfi að miða sem mest við landkosti og gróðurástand. Varað er við óskráðri framleiðslu- og markaðsstarfsemi og slíkt talið draga úr heildargreiðslumarki og leiða til minni skatttekna ríkisins. Fundurinn fagnar tilraunum til út- flutnings á dilkakjöti en varar um leið við vemlegum útflutningi á óunnum gærum sem dregur úr atvinnu verkafólks. Loks bendir fundurinn á að íslenskar búvörur séu framleiddar í ómenguðu um- hverfi, án lyfja, hormóna og eitur- efna. Islenskir neytendur eigi að njóta áffarn þeirra forréttinda að neyta ómengaðra matvæla, fram- leiddra í landinu sjálfu.

x

Vikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikublaðið
https://timarit.is/publication/310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.